Morgunblaðið - 13.09.1994, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.09.1994, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994 35 MINNINGAR Líklega hafa engir lagt mikilvæg- ari grundvöll að farsælu hjónabandi okkar en hjónin Jónborg Sigurðar- dóttir og Högni Einarsson. Við vor- um svo einstaklega heppin, þegar við feimnir og óreyndir unglingar fórum suður að kaupa trúlofunar- hringana og svipast um eftir fyrstu húsmununum í væntanlegt heimili, að gista hjá Boggu og Högna í Háa- gerðinu. Þótt það þætti nú jaðra við hneyksli á þeim tíma að ólofað fólk væri að flækjast landshluta á milli og biðja um gistingu hjá ættingjum, þá hvarf óttinn og kvíðinn eins og dögg fyrir sólu hjá þessum yndislegu hjónum sem af skilningi og næmni tóku okkur opnum örmum og leið- beindu okkur um völundarhús full- orðins hjónafólks. Það sópaði af Boggu, allt var snur- fusað og snyrt og daglegt matar- og kaffiborð eins og veisluborð kon- unga. Hún vissi hvað hún vildi og stjórnaði heimilinu af markvissri festu og bjó Högna heimili sem hann hefur líklega aldrei dreymt um að eignast fátækur piltur vestur á ísafirði. Hvorugt þeirra lagði efna- legan auð til búskaparins, en með elju og fyrirhyggju tókst þeim að verða vel bjargálna og að geta leyft sér að njóta lífsins. Þau höfðu unun af ferðalögum og ferðuðust mikið eftir að börnin kom- ust á legg bæði utanlands og innan. Þar voru þau í essinu sínu í hópi vina og ættingja þar sem hátvísi þeirra, gleði og hlýja gerði þau að eftirsóttum ferðafélögum. Sam- heldni, ástúð og gagnkvæm virðing einkenndi samlíf þeirra. Þau bjuggu bömunum sínum fjórum gott heimili og veittu þeim góða leiðsögn út í líf- ið. Jafnan var gestkvæmt á heimilinu í Háagerðinu, því vel var tekið á móti fólki, auk þess sem þau hjónin voru sífellt í útréttingum fyrir ætt- ingja og vini vítt og breitt um landið. Það varð Boggu mikið áfall þegar hún missti Högna fyrir tæpum fimmtán árum, þá 54 ára gömul. Það var henni þó víðs fjarri að leggja árar í bát, hún lærði á bíl, en fram að því hafði hún látið Högna um aksturinn, þótt hún hefði jafnan gott eftirlit með hvernig og hvert væri ekið. Hún fór fljótlega út á vinnu- markaðinn, en hún hafði í hjónaband- inu verið trú köllun sinni og unnið á heimilinu og lagt sig í líma um að vinna svo að því, að afkoman hefði ekki verið betri þótt hún hefði verið fjarri því lengri eða skemmri tíma við launavinnu. Vegna mannkosta sinna var hún eftirsóttur starfsmaður og gat yfirleitt valið úr störfum á þeim sviðum sem hún vildi starfa á, á meðan heilsa og kraftar leyfðu. Bogga var svo lánsöm fyrir nokkr- um árum að kynnast miklum ágætis- manni ofan úr Borgarfirði, Guð- mundi Jónssyni, starfsmanni Lands- bankans í Reykjavík. Þau áttu góðar stundir saman, enda samstillt við að byggja undir það góða í mannlífínu. Síðustu vikumar naut Bogga að- hlynningar barna sinna á heimili Sigrúnar dóttur sinnar og er ekki að efa að þar leið henni eins vel og hægt var á meðan sjúkdómurinn ágerðist og þar kvaddi hún lífið að morgni sunnudagsins fjórða septem- ber. Við hjónin viljum að leiðarlokum þakka þessari góðu vinkonu okkar samveruna og öll þau góðu áhrif sem hún hefur haft á líf okkar. Ekki síst viljum við þakka henni fyrir að leggja á sig löng ferðalög vestur á ísafjörð til að vera með okkur og aðstoða á tímum bæði gleði og sorgar. Astvinum hennar sendum við öll- um samúðarkveðjur. Jósefína og Úlfar Ágústsson. Geisladrif Hljoðkort frá kr. 17.906,- *BQÐEIND- Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081 V__________________/ ARNY RUNOLFSDOTTIR + Árný Runólfs- dóttir var fædd á Innri-Kleyfi í Breiðdal 30. desem- ber 1924. Hún and- aðist í Borgarspít- alanum þriðjudag- inn 6. september. Foreldrar hennar voru Runólfur Sig- tryggsson bóndi og Þórunn Jóhanns- dóttir. Hún stund- aði nám í Kvenna- skólanum á Blöndu- ósi veturinn 1943- 1944. Átrný giftist eftirlifandi eigin- manni sínum, Vilhjálmi Þor- bjömssyni, árið 1946. Vilhjálm- ur er sonur Þorbjörns Korm- áksíussonar og Guðrúnar Ey- þórsdóttur. Árný og Vilhjálmur eignuðust þijá syni: Frimann, f. 1947, kvæntur Guðnýju Gunnlaugs- dóttur, eiga þau tvo syni, Gunnlaug og Rúnar. Rúnar, f. 1950, lést af slysför- um 1970. Eyþór, f. 1956, kvæntur Guð- laugu Ársælsdóttur, eiga þau Jtrjú börn, Melissu, Árnýju Ra- kel 9g Vilhjálm. Út- för Árnýjar fer fram frá Fossvogskirkju í dag. Okkur langar í örfáum orðum að minnast nágrannakonu okkar Árnýjar Runólfsdóttur. Við kynntumsLÁrnýju og eftirlif- andi eiginmannL.'hennar, Vilhjálmi, stuttu eftir að við'fluttum í kjallar- ann á Njörvasundi 25, veturinn 1991. Fljótlega fórum við að kynn- ast þeim hjónum og það leið varla sú vika að við hittum ekki Árnýju í þvottahúsinu. Þá var oft mikið talað þegar þvotturinn var settur upp á snúrurnar eða tekinn niður. Það var gaman að koma upp til hennar, fá kaffísopa og tala um heima og geima. En það gerðist því miður alltof sjaldan. Við eigum eftir að sakna þess að sjá hana ekki rölta um garðinn tínandi rusl eða sitjandi á pallinum og njóta góða veðursins. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran.) Elsku Vilhjálmur. Þinn missir er mikill og söknuður sár, við sam- hryggjumst þér innilega. Anna og Árni. FARSIMAKERFIÐ GSM farsímakerfið Póstur og sími hefur tekið í notkun nýtt farsímakerfi hér á landi. Kerfið kallast GSM (Global System for Mobile Communication) og er stafrænt farsímakerfi fyrir talsímaþjónustu innanlands og milli landa. Fyrst um sinn nær GSM kerfið aðeins til höfuðborgarsvæðisins, Suðurnesja og Akureyrarsvæðisins en það verður síðan byggt upp í áföngum út frá helstu þéttbýlissvæðum landsins. Alþjóðlegt kerfi Notandi fær einnig aðgang að GSM farsímakerfum í öðrum Evrópulöndum eftir að nauðsynlegir samningar hafa verið gerðir. GSM kortið - lykillinn að kerfinu Áskrift að GSM kortinu er bundin við kort, svokallað GSM kort sem stungið er í símann. Kortið er i senn lykill að kerfinu og persónulegt númer þess sem er notandi og greiðandi þjónustunnar. Kynntu þér nýja GSM farsímakerfið og stígðu skref í átt til framtíðarfjarskipta. Allar nánari upplýsingar um GSM farsímakerfið er að fá hjá seljendum farsímatækja. Þeir eru: Bónusradíó, Bræðurnir Ormsson hf., Hátækni hf., Heimilistæki hf., (stel hf., Nýherji hf., Radíóbúðin hf., Radíómiðun hf., Símvirkinn - Símtæki hf., Smith & Norland hf., söludeildir Pósts og síma (Ármúla, Kirkjustræti, Kringlunni og á póst- og símstöðvum um land allt. FARSÍMAKERFI PÓSTS 06 SÍMA Eitt blab fyrir alla! - kjarni málsins! Fjölskyldan í Hewlett- Packard geisla- prenturum HP LaserJet 4L & 4ML Tilvalinn geislaprentari fyrir einstaklinga og smærri fyrirtæki. 300 dpi + RET*. 4 siður á mínútu. HP LaserJet 4L á einstöku tilboði kr. 69.900 stgr. m. vsk. HP LaserJet 4P & 4MP , ■ Hágæða 600 punkta útprentun í fyrirferðalitlum geislaprentara. 600 dpi + RET*. 4 slður á minútu. HP LaserJet 4P kr. 137.500 stgr. m. vsk. HP LaserJet 4 PLUS &4M PLUS Nýr HP geislaprentari með hágæða 600 punkta útprentun. Hraðvirkur. 600 dpi + RET*. 12 síður á minútu. HP LaserJet 4 PLUS kr. 209.900 stgr. m. vsk. HP LaserJet 4Si & 4Si MX atsm- Hraðvirkur alhliða geislaprentari fyrir meðalstór og stór netkerfi. 600 dpi + RET*. 16 slður á mlnútu. HP LaserJet 4Si kr.414-900 stgr. m. vsk. Kynntu þér heila fjölskyldu af Hewlett-Packard geislaprenturum hjá Tæknivali. * dpi = Upplausn ~ punkta á tommu. RET = HP upplausnaraukning Tæknival Skerfunni 17 - Sími (91) 681665 Fax (91)680664 BRYNJAR - HÖNNUN / RÁÐGJÖF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.