Morgunblaðið - 13.09.1994, Page 25

Morgunblaðið - 13.09.1994, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994 25 AÐSENDAR GREINAR Orkuiitflutningxir um sæstreng Nauðsyn umræðu og stefnumótunar NOKKUR undanfarin ár hafa möguleikar á útflutningi raforku um sæstreng verið til athugunar og töluverð umfjöllun farið fram um málið. Þær upplýsingar sem fram hafa komið hafa verið nokkuð misvísandi a.m.k. hvað varðar hag- kvæmni, tímasetningar og um- hverfisáhrif. Nauðsynlegt er að vit- ræn umræða fari fram um þetta mál. Nokkrir erlendir aðilar hafa sýnt málinu áhuga. Sem stendur eru við- ræður við þá í þrenns konar farvegi: (a) Iðnaðarráðuneytið hefur átt viðræður við orkuyfirvöld í Hamborg og var ráðherra (sen- ator) þeirra mála í Hamborg hér nýverið í heimsókn, eins og vikið verður að síðar. (b) Samstarf Reykjavíkurborgar við nokkrar hollenskar rafveitur um forkönnun á hagkvæmni verkefnisins. Ný- lega gerði Lands- virkjun samning við aðilana um að taka þátt í hagkvæmn- iathuguninni. (c) Samstarfsviðræður Landsvirkjunar við Skoska vatnsorku- fyrirtækið, m.a. um ávinning af því að samreka raforku- kerfín í Skotlandi og á íslandi. Til þess að samræma sjónarmið og viðræður við erlenda aðila skipaði iðnaðar- og viðskipta- ráðherra í 'febrúar sl. ráðgjafarnefnd um sæ- strengsmál undir for- mennsku ráðuneytisstjóra iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins og með fulltrúum frá stjórnum Landsvirkj- unar og Markaðsskrifstofu iðnaðar- ráðuneytisins og Landsvirkjunar. Upplýsingaöflun um virkjunarkosti Sérstakur starfshópur hefur unn- ið að skýrslu um virkjunarkosti norðan Vatnajökuls, en virkjun þeirra vatna er væntanlega for: senda stórútflutnings á raforku. í ágúst sl. var skýrsla starfshópsins — Virkjanir norðan Vatnajökuls — gefín út. Undirtitill skýrslunnar — Upplýsingar til undirbúnings stefnumótun — segir glöggt hver tilgangurinn með henni er, nefni- lega sá að draga saman í einu riti allt meginefni um þessa virkjana- kosti þannig að hefja megi vitræna umræðu um málið. Þar er ekki ver- ið að komast að niðurstöðu eða taka ákvörðun. Þvert á móti er bent á allar helstu leiðir til nýtingar þess- ara fallvatna, og bent á kosti þeirra og galla. En til þess að einfalda frekari umræðu er bent á tvær meginleiðir sem frekari umræða ætti að snúast um. Jafnframt út- gáfu þessarar skýrslu var hafín kynning á málinu með fundum á Eiðum 18.-20. ágúst sl. þangað sem boðið var þingmönnum Norð- austurlands og Austurlands, sveit- arstjórnarmönnum frá viðkomandi hreppum, fulltrúum Náttúruvernd- arráðs, náttúruverndar- og ferða- mannasamtaka á svæðunum auk blaðamanna. Ráðuneytið hyggst halda slíkri kynningu áfram. Stefnumótun á frumstigi Erlendum viðmælendum um sæ- strengsmál hefur ætíð verið gert Ijóst að pólítísk umræða um þetta stórmál sé enn á frumstigi, bæði hvað varðar það hvort eða með hvaða skilmálum íslendingar séu reiðubúnir að selja orku úr landi svo og varðandi ásættanlegar virkj- analeiðir, m.a. vegna umhverfis- þátta. Umfjöllun fjölmiðla að und- anförnu og samþykktir ýmissa aðila staðfesta þetta. Á sl. ári kom út á vegum ráðu- neytisins ítarleg skýrsla um sæ- strengsmálið — Sæstrengur til Evr- ópu. Þar kemur glöggt fram um hvílíkar risaframkvæmdir er að ræða. Þannig er áætlað að virkjan- ir kosti um 150 milljarða kr. og sjálfir strengirnir 110 til 220 millj- arða kr. eftir því hvort farið er til Skotlands eða meginlands Evrópu. Það er því ljóst að slíkar stórfram- kvæmdir eru utan fjárhagslegrar getu landsmanna. Bein eða óbein aðild útlendinga að fjármögnun þeirra þyrfti því að koma til. Greiðsla fyrir útflutta orku Einnig er einsýnt að þjóðin er ekki reiðubúin að selja raforku sem hráefni úr landi fyrir verð sem stendur að- eins undir beinum kostnaði vegna virkj- ana og sæstrengja. Að loknum stofnfram- kvæmdum er rekst- urskostnaður og vinnuaflsþörf við þessa starfsemi næsta lítill þannig að orku- salan skilaði þá litlu í þjóðarbúið. Ef orkan er aftur á móti nýtt til orkufrekrar fram- leiðslu innanlands yrði verulega meira eftir í þjóðarbúinu. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra fól því Þjóðhagsstofn- un að leggja mat á Við þurfum að íhuga hvort leggja skuli á beint gjald fyrir nýtingu orkulinda til útflutn- ings, segir Sighvatur Björgvinsson, eða hvort virðisauki getur fengist með öðrumóti. þennan mismun á innlendum virðis- auka annars vegar við notkun rafor- kunnar til álbræðslu og hins vegar við útflutning um sæstreng. Augljóslega yrðu hreinar tekjur þjóðarbúsins af rekstri álvers meiri en af orkusölu um sæstreng. I hnot- skurn er það niðurstaða Þjóðhags- stofnunar að munurinn gæti numið allt að 70 aurum á hvetja kílóvatt- stund. Miðað við líklegt orkuverð í Skotlandi samsvarar þessi mismun- ur um 22-25% álagi á söluverð ork- unnar. Til þess að glöggva sig á heildarupphæðum í þessu sambandi verður að hafa í huga að tvíþættur sæstrengur, eins og hugmyndir hafa verið um, getur flutt um 8-9 TWh á ári. Fyrrgreindur mismunur í hreinum tekjum samsvarar því um 6 milljörðum kr. á ári. Það er skoðun mín að hugsanleg- ir samningar um orkuútflutning verði að hafa það að leiðarljósi að fyrir slíkan útflutning þurfí að greiða með einhverju móti í þjóðarbúið til að jafna fyrrgreindan mun, a.m.k. að verulegum hluta. Fyrirkomulag slíkrar greiðslu þarfnast þó nánari athugunar: M.a. þarf að íhuga hvort lagt skuli á beint gjald fyrir nýtingu orkuauðlindanna til útflutnings eða hvort virðisauki getur fengist með öðru móti. í því sambandi þarf og að gæta ákvæða samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Samþykkt ríkisstjórnarinnar um virðisauka við orkusölu Að tillögu minni samþykkti ríkis- stjórnin á fundi sínum þann 26. ágúst sl. eftirfarandi ályktun um þetta efni: „Ríkisstjórnin hefur fjallað um hugsanlega nýtingu íslenskra orku- linda til útflutnings á raforku um sæstreng eða með öðrum hætti. Ljóst er að slík nýting orkulindanna skilar ekki sömu tekjum í þjóðar- búið og beislun þeirra til orkufrekr- ar framleiðslu. Rikisstjórnin markar þá stefnu að því aðeins komi til álita að selja orku beint úr landi að slík orkusala skili sambærilegum virðisauka og nýting orku til orku- freks iðnaðar innanlands getur skil- að þjóðarbúinu. Jafnframt felur ríkisstjómin iðnað- arráðherra að fylgja málinu frekar eftir, m.a. að kanna hugsanlegt fyrirkomulag slíks endurgjalds fyrir nýtingu orkulinda og hvernig það fái samrýmst þjóðréttarlegum skuldbindingum. “ Áhugi i Hamborg Eins og fyrr segir eru yfírvöld í Hamborg meðal þeirra aðila sem rætt hefur verið við. Áhugi þeirra á orkukaupum er ekki hvað síst vegna áforma þeirra að leggja niður kjarnorkuver. Orku- og umhverfis- ráðherra senatsins í Hamborg, dr. Fritz Vahrenholt, var í vinnuheim- sókn hér á landi í boði iðnaðarráð- herra dagana 16.-20. ágúst s.l. til að kynna sér möguleika okkar á að bjóða raforku til útflutnings. Ráðherranum var gerð grein fyrir fyrrgreindri pólitískri stöðu máls- ins, m.a. vegna þess að ekki liggi fyrir hvers kyns og hve mikils virð- isauka yrði krafist af orkuútflutn- ingi. Lýsti ráðherrann skilningi á þessum sjónarmiðum og taldi slíkt orkugjald í fyllsta máta eðlilegt. Nauðsyn stefnumótunar Hugmyndir um útflutning raf- orku um sæstreng eru enn á frum- stigi og er ýmsum spurningum ósvarað áður en taka má endanlega afstöðu til málsins. Ljóst er þó að með núverandi raforkuverði í Evr- ópu eru áform um orkuútflutning vart raunhæf, en flestir álíta að raforkuverð muni hækka um eða upp úr aldamótum ekki hvað síst vegna krafna um lokun kjarnorku- vera og skatta á brennsluorkuver. Orkuútflutningur, ef af yrði, kall- ar á nýjar stórvirkjanir og eru þá mjög horft til virkjanakosta í fljót- unum norðan Vatnajökuls. Umræð- an um þær virkjanaleiðir, kosti þeirra og annmarka, hefur ekki verið markviss hingað tii. Ekki er neitt sem kallar á ákvörð- un alveg á næstunni í þessum tveim málum, orkuútflutningi og stór- virkjunum á Norðausturlandi. Á hinn bóginn þarf að hefja mark- vissa og málefnalega umræðu um málið þannig að þjóðin og ráðamenn séu reiðubúin þegar og ef tækifæri til orkusölu býðst. Iðnaðarráðuneyt- ið vill stuðla að umræðu um stefnu- mótun í þessum efnum. í því skyni hefur það látið gera fyrrgreindar skýrslur um málin tvö og mun hafa frumkvæði að frekari kynningu og rökræðu. Orkulindir okkar eru mikil auð- lind. Samt eru þær ekki óþijótandi. í heild dygðu þær til að sjá Lund- únaborg fyrir raforku en heldur ekki meir. Við verðum að halda þannig á málum að orkulindimar nýtist til sem mestra hagsbóta fyr- ir þjóðina um leið og umhverfissjón- armiða er gætt. Höfundur er iðnaðar- og viðskiptaráðherra. AEG þvottavélar eru á um það bil 27.000* íslenskum heimilum AEG þvottavélar eru á tvöfalt fleiri heimilum er næstalgengasta þvottavélategundin. Yfir 85% þeirra, sem eiga A.ECl þvottavél, mundu vilja kaupa AECi aftur. Hvað segir þetta þér um gæði A.EO þvottavéla? Eða AEG yfirleitt? Þriggja ára ábyrgð á öllumAEG þvottavélum Allar AEG þvottavélar eru framleiddar í Þýskalandi. AEG Lavamat 508 Vinduhraði 800 sn/min, tekur 5 kg., sér hitavalrofi, ullarforskrift, orkusparnaðar- forskrift, orkunotkun 2,1 kwst ó lengsta kerfi, einföld og traustvekjandi. Kr. 75.149. Stgr. kr. 69.889. AEG Lavamat 920 Vinduhraði 700/1000 + áfangavindingu, tekur 5 kg., sér hitavalrofi, sérstök ullarforskrift, orkusparnaðar- forskrift, UKS kerfi (jafnar tau í tromlu fyrir vindingu), sér hnappur fyrir viðbótarskolun, orkunotkun 2,0 kwst á lengsta kerfi.Kr. 88.765 Stgr. 82.551. Umbobsmenn um land allt ’Samkvæmt markaðskönnun Hagvangs í des. 1993. AEG Lavamat 9451 Vinduhraði 700/1000/1200 + áfangavinding, tekur 5 kg., sér hitavalrofi, sérstök ullarforskrift, orkusparnaðar- forskrift, UKS kerfi (jafnar tau í tromlu fyrir vindingu), froðuskynjunarkerfi, sér hnappur fyrir viðbótarskolun, orkunotkun 1,9 á lengsta kerfi. Kr. 99.832 Stgr. 92.844. BRÆÐURNIR ORMSSONHF Lágmúla 8, Sími 38820 Sighvatur Björgvinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.