Morgunblaðið - 13.09.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.09.1994, Blaðsíða 32
1 32 ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994 OLAVMARTIN HANSEN + 01av Martín Han- sen fæddist í Reykjavík 16. apríl 1920. Olav var sonur hjónanna Guðrúnar Gísladóttur húsmóð- ur og Sophusar Han- sen vélstjóra. Hann var elstur fimm bræðra, Geirs Haf- stein, Gísla Hilmars, Gunnars Kristins og Rúnars Sophusar. Gísli og Gunnar eru látnir. Eftirlifandi eiginkona Olavs er Guðrún H.C. Hansen. Olav var einn af fyrstu offsetprenturunum hér á landi og stofnaði, ásamt Þor- grími Einarssyni, offsetprent- smiðjuna Endurprent sf. og rak Olav þá prentsmiðju allt til starfsloka. Hann lést á Land- spítalanum 4. september síðast- liðinn. Utför hans fer fram frá Kristskirkju í Landakoti í dag. Því eitt sinn verða allir menn að deyja, og eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. (Vilhj. Vilhj.) Hann Úlli er dáinn. Fréttin hljóm- ar enn í höfðinu á mér, en það er svo langt frá því að ég sé búin að gera mér grein fyrir þýðingunni. Hann Úlli var föðurbróðir minn og góður vinur. Faðir minn og Úlli voru samrýndir og frá því ég fyrst man eftir mér var Úlli tíður gestur á heimili foreldra minna og fannst mér hann alltaf hluti af heimilisfólk- inu mínu. Úlli frændi var svo órjúf- anlegur hluti af tilveru minni að það, að hann sé ekki lengur með mér, er eitthvað sem ég get ekki meðtekið nema með tímanum. Þegar sárasti söknuðurinn er lið- inn hjá verða margar góðar minn- ingarnar til að orna sér við. Óneit- anlega finnst mér óréttlátt að hann Úlli sé dáinn, aðeins 74 ára, en ef ég læt af eigingirni minni örlitla stund verð ég þó að viðurkenna að Úlli fór héðan eins og hann lifði, með reisn. Heilsu Úlla hafði hrakað hin síðustu ár og svo vel tel ég mig hafa þekkt hann frænda minn að langvarandi heilsuleysi og sjúkra- húslega hefði ekki verið sá endir á ævinni sem hann óskaði sér. Því finn ég í sorginni til örlítillar gleði yfir því hvemig andlát hans bar að, því eins og fram kemur í ljóðlínunum hér að ofan þá verða allir menn að deyja einhvem tímann, jafnvél þótt manni finnist það of fljótt. Úlli var barnlaus en ákaflega barngóður, enda hændust böm að honum. Úlli skipaði sérstakan sess hjá sonum mínum tveim og umbar hann þeim alltaf gauraganginn, jafnvel þótt heilsan hafí ekki alltaf verið upp á það besta. Með þessum fátæklegu orðum vil ég kveðja elskulegan frænda minn og vin í gegnum árin. Elsku Dósla mín, Guð veri með þér í sorg þinni. Blessuð sé minning hans. Rúna S. Geirsdóttir. Guð gefi mér æðruleysi til þess að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á rnilli. Þessa bæn fara AA-menn með fyrir eða eftir fundi. Bæn þessa þýddi sá maður sem ég ætla að minnast í dag. Hann hefur líka þýtt flesta bæklinga sem AA-samtökin gefa út. Hann sagði mér að hann hefði sökkt sér svo ofan í þetta áhugamál sitt að hann hafði ekkert gert annað í frístundum sínum í fírnm ár, á milli 1950-1960. Úlli er sá besti maður sem ég hef kynnst. Ég gat alltaf fengið góð ráð hjá honum. Ég vann hjá honum í litlu prentsmiðjunni hans. Hann hefði ekki getað verið betri við mig en besti faðir. Alltaf bar hann smyrsl á sárin. Hann var góður hlustandi og uppör- vaði mig og sína. Mér fannst ég oft svo lítil svo ég þurfti svo sannarlega á því að halda. Hann var mik- ill heimilisvinur okkar og tók hann manni mínum vel og börnum. Alltaf var hann að gleðja þau með nær- veru sinni og gjöfum, þær voru ekki skornar við nögl frekar en annað sem hann gerði fyrir þetta heimili. Úlli var vel gefínn, gat talað um heima og geima. Þegar hann var einhvers staðar í nánd var oft glatt á hjalla. Hann gat verið meinfyndinn og gefíð mikið af sér. Úlli var tungu- málamaður mikill, sjálfmenntaður. Hann talaði öll Norðurlandamálin og þýsku. Auk þess talaði hann mjög gott íslenskt mál sem unun var að hlusta á, því orðaforðinn var svo mikill. Enskan var eins og hans annað tungumál. Úlli átti marga vini en ekki marga útvalda. Hann var fastur í trúnni, enda naut kirkj- an hans þess í ríkum mæli. Hann tók þátt í guðsþjónustu páfans þeg- ar hann kom hingað. Hann kunni að gleðjast með öðr- um. Þegar hann vissi að ég var sest á skólabekk, hafði ég nú ekki mikla trú á sjálfri mér, kona komin á fimmtugsaldur. Þá sagði hann mér að hann hefði alltaf haft trú á mér. Síðan þegar ég fór að kenna sagð- ist hann alltaf hafa vitað að ég gæti þetta. Svona var Úlli alltaf, að gefa öðrum sjálfsálit. Það voru ekki ófáar ferðimar sem hann bauð fjölskyldunni út úr bænum og til útlanda. Við gleymum ekki ferðinni sem hann bauð okkur á Snæfells- nesið og út í Flatey. Við gistum í húsi Ólafs Torfasonar, sé honum ævinlega þökk fyrir. Fréttin um andlát Úlla kom okkur öllum á óvart. Mér fannst heimilið lamast. Úlli kvæntist Guðrúnu Helgu 5. október 1982. Ekki versnaði sam- bandið við það, þau voru oft gestir okkar. En svo fór heilsunni að hraka. Þau gátu ekki verið við ferm- ingu dóttur minnar í vor. Það var sárt. En síminn var oft notaður þeg- ar ekki var hægt að hittast. Dosla mín, sorg þín er mikil. Ég bið Guð að styrkja þig, þú hefur svo margt að þakka. Guð geymi minninguna um elsku- legan mann. Við getum sungið, gengið um. Gleymt okkur hjá blómunum. Ef rokkvar, ráðið stjömumál, gengið saman hönd í hönd. Hæglát farið nið’rá strönd. Fundið stað, sameinað beggja sál. (Vilhj. Viihj.) Þín vinkona, María. Við Úlli kynntumst ungir að árum í barnaskóla og vorum mikið saman á unglings- og táningsaldri, m.a. í skátahreyfíngunni og í ferðalögum með félögum okkar þar. Attum við margar skemmtilegar stundir sam- an þessi ár og mörg sameiginleg áhugamál eins og hljómlist, ljóða- lestur, erlend tungumál og margt fleira, enda var hann vel gefínn, skemmtilegur og fróður og með skopskynið í lagi. Hann var einn af þeim fyrstu hér á landi sem lærði offsetprent og varð það ævistarf hans. Eftir að við vorum komnir á full- orðinsárin hittumst við sjaldnar eins og gengur, en nú seinni árin hitt- umst við öðru hvoru og rifjuðum upp gömul kynni og skopleg atvik. Heimsótti ég hann öðru hvoru í off- setprentsmiðju hans sem hann rak lengi og eins komu hann og Guðrún kona hans í heimsókn. En eins og oft vill verða voru samfundirnir nú síðustu árin færri en við hefðum MORGUNBLAÐIÐ ANDREA HELGA ING VARSDÓTTIR OG ÁMUNDI EYJÓLFSSON MINNINGAR kosið. En alltaf var hann sami trúi og tryggi vinurinn. Nú við hið skyndilega fráfall hans vottum við Ingibjörg kona mín Guð- rúnu eiginkonu hans, bræðrum hans og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Friðþjófur Björnsson. í dag fer fram frá Kristskirkju í Landakoti útför Ólavs M. Hansens offsetprentara sem lést 4. þ.m. Ka- þólski söfnuðurinn hér kveður þar góðan vin og traustan félaga í safn- aðarstarfi kirkjunnar. Kynni okkar Olavs hófust eftir að hann og kona hans, Guðrún Helga Carlsdóttir (Dósla), gengu í kaþólsku kirkjuna. Það skref steig hann eftir nána yfírvegun og um það má segja eins og um annað sem hann aðhyll- ist, að hann hvikaði ekki frá þeirri ákvörðun sinni og stóð heill og óskiptur með kirkjunni upp frá því. Allt hringl og tvískinningur var hon- um íjarlægt. Fyrir honum voru stað- reyndir staðreyndir og sannleikur sannleikur, hvað sem hver sagði. Væri rætt um þau mál sem skiptu hann miklu máli, lét hann álit sitt í ljós án alls ofstækis og áróðurs, hann var bara að segja frá stað- reyndum og ef menn féllust ekki á hans sjónarmið, var það þeirra mál, hann reyndi aldrei að troða sínum skoðunum upp á aðra en hann sagði oftar en einu sinni að sumir menn tryðu ekki á tilveru loftsteina fyrr en þeir féllu á höfuðið á þeim. Á þann hátt sagði hann að jafnvel frammi fyrir staðreyndum höfnuðu menn þeim, þangað til þeir rækju sig á. Olav gekk fijótlega í Félag kaþ- ólskra leikmanna og varð þar virk- ur. Hann var ekki einn þeirra manna sem trassaði athafnir félags síns eða þagði þunnu hljóði á fundum. Hann féllst á að taka sæti í stjórn félags- ins þegar við fórum þess á leit við hann og var lengst af ritari þess. Auk þess átti hann sæti í stjóm Þorlákssjóðs frá upphafi hans. Sá sjóður hefur með höndum útgáfu bóka á vegum kaþólsku kirkjunnar. Þessi störf innti hann af hendi af þeirri óbilandi trúmennsku sem virt- ist vera honum meðfædd. Olav var mikið snyrtimenni og hafði óbeit á öllum sóðaskap. Eitt sinn þegar við vorum staddir í smá- borg í Þýskalandi, þar sem götur voru svo hreinar að ganga hefði mátt um þær á sokkunum, sagði hann sposkur: „Hvernig er það, hafa þeir ekkert gaman af glerbrotum í þessari borg?“ Honum fannst, eins og fleirum, að slaknað hefði óskemmtilega á aga og mannasiðum í íslensku þjóðfélagi síðastliðna áratugi, margir aðhyllt- ust nú einhvers konar félagslegan anarkisma sem meira væri í ætt við frumskógarlíf en samfélag siðaðra manna. Taldi hann að þessi hnignun hefði orðið áberandi um líkt leyti og menn lögðu niður þéringar. Þéringar hefðu verið æskilegur virðingarvott- ur í umgengni við fullorðið fólk sem maður þekkti ekki og heppilegur skilveggur til að halda frá sér þeim mönnum sem mann langaði ekki til að hafa neitt saman við að sælda. í flestu þessu ég var honum sammála þótt mér fyndist hann stundum vera stefnufastur um of. En kannske er heilbrigð stefnufesta eitt af því sem við mættum eiga meira af. Um þessi mál ræddum við oft, ýmist í bílnum hans sem ég skemmdi einu sinni með því að opna á honum hurðina þegar hann bakkaði aftur með Ijósastaur, eða yfír tebolla heima hjá mér eða honum. Okkur skorti aldrei umræðuefni og í hvert skipti sem við skildum fundum við hversu margt við áttum eftir órætt. Nú er tækifærunum til þeirra um- ræðna lokið í bili en sé það rétt sem við höfðum alltaf fyrir satt, bíða okkar ný tækifæri til að skiptast á skoðunum, jafnvel deila, handan við landamærin. Og til þeirra endur- funda hlakka ég. Eftirlifandi konu hans, bræðrum og öðrum ættingjum, votta ég inni- legustu samúð mína og bræðra okk- ar og systra í kaþólsku kirkjunni. Hittumst heilir, Úlli, í hinu nýja ljósi. Torfi Ólafsson. + Andrea Helga Ingvarsdóttír húsmóðir fæddist í Hafnarfirði 3. sept- ember 1910. Hún lést 21. apríl 1986. Foreldrar hennar voru hjónin Ingvar Guðmundsson, sjó- maður, og Guðrún Andrésdóttir, sem búsett voru í Hafn- arfirði. Hún átti þrjú hálfsystkin samfeðra, Þorgils, bankafulltrúa í Reykjavík, Guð- mund, skipstjóra í Reykjavík og Rebekku, húsmóður í Hafn- arfirði. Alsystkini hennar voru Unnur, húsmóðir í Reykjavík, Ingunn, húsmóðir í Hafnarfirði og Ingólfur Halldór, sem lést ungur. Ámundi Eyjólfsson húsasmíðameistari fæddist i Bjólu í Djúpárhreppi, Rangár- vallasýslu, 29. september 1906. Hann lést 2. september síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin Eyjólfur Ámundason og Ingibjörg Tómasdóttír. Þau fluttust til Hafnarfjarðar árið 1919. Hann átti tvö systkin sem upp komust, Jóhönnu Margréti, sem lést ung og Ingigerði, hús- móður í Hafnarfirði. HANN afi okkar er dáinn. Á slíum tímamótum, þegar hjarta okkar er fullt af söknuði, rifjast upp minn- ingar frá þeim tíma þegar hús ömmu og afa á Hamarsbraut 12 var iðandi af lífí og fjöri. Á Hamrin- um kom fjölskyldan gjarnan saman. Þar var alltaf tekið vel á móti öllum og sóttum við barnabörnin mikið þangað. Amma fylgdist vel með öllu sem var að gerast í lífi okkar. Amma var einstök kona og hún hafði gott lag á börnum og talaði alltaf við okkur sem sína jafningja. Þegar við komum í heimsókn á Hamarinn, settumst við hjá ömmu og sögðum henni hitt og þetta sem á dagana hafði drifíð og hlustaði hún af at- hygli og alvöru líkt og verið væri að segja henni heimsfréttir. Þetta hafði góð áhrif á lítil kríli sem fengu það á tilfinninguna að þau væru kannski örlítið fullorðin. Síðar komumst við að því að amma hafði mjög ákveðnar skoðan- ir á lífínu og tilverunni. Hún hafði mjög ákveðnar pólitískar skoðanir og lét ekki kveða sig í kútinn ef henni var mótmælt. Hún hafði mik- inn áhuga á skólagöngu okkar son- ardætranna og hvatti okkur áfram. Hún hefði sjálf viljað læra þegar hún var á sínum yngri árum, en gafst þess ekki kostur. Hún varði miklum tíma með okkur, enda var hún mikil og góð vinkona okkar allra. Við vorum alltaf velkomnar á Hamarinn. Árið 1985 veiktist amma okkar alvarlega og var hún rúmliggjandi á spítala í níu mánuði, þar til hún lést 1986. Allan þann tíma sem hún lá á spítalanum var afí hjá henni. Afi hætti að vinna til að geta verið hjá ömmu öllum stundum. Hvort sem það voru hátíðar eða ekki stóð afí eins og klettur við hlið ömmu. Slík var tryggðin við hana. Þegar hún svo lést var hún mikið syrgð af fjölskyldu og vinum, en þó mest af afa. Amma og afí höfðu misst yngsta soninn, Eyjólf, árið 1985, þannig að nú var svo komið að afi var einn eftir í húsinu á Hamars- braut. Afi komst í gegnum sorgina með hjálp trúarinnar. Hann var mjög trúaður maður og efaðist ekki um að hann myndi hitta Eyva og ömmu á ný. Amundi og Helga gengu í hjónaband hinn 6. janúar 1934. Þau eignuðust þijá syni. Þeir eru, Gunnar, verkfræðingur, fæddur 30. október 1934, Ing- ólfur Halldór, skipasmíðameist- ari, fæddur 22. desember 1936 og Eyjólfur Ingi, skipatækni- fræðingur, fæddur 25. ágúst 1952, lést af slysförum 30. mars 1985. Gunnar er kvæntur Auði Skúladóttur, læknafulltrúa, Ingólfur Halldór er kvæntur Ragnheiði Sigurbjartsdóttur, starfsmanni í Víðistaðaskóla, Eyjólfur var ókvæntur. Útför Ámunda fer fram frá Hafnar- fjarðarkirkju í dag. Afí varð tíður gestur á heimilum okkar og foreldra okkar eftir að amma lést. Við fengum nú dýr- mætt tækifæri til að kynnast afa betur. Hann hafði, eins og amma, ákveðnar skoðanir og lét þær óspart í ljós og hafði gaman af að ræða þær. Margar skemmtilegar sam- ræður spunnust oft í eldhúsinu heima um hitt og þetta sem var að gerast í heiminum. Afi var pólitísk- ur og var virkur í starfí Sjálfstæðis- flokksins í Hafnarfirði. Árið 1990 var afi gerður að heiðursfélaga í Þór, félagi sjálfstæðismanna í laun- þegastétt, en þar hafði hann starfað frá stofnun félagsins árið 1939. Afi hafði alltaf haft mjög gaman af íþróttum og æfði hann til að mynda glímu sem ungur maður. Hann var alltaf við góða heilsu og hélt henni fram á síðasta dag. Afi var alla tíð duglegur og kraftmikill maður. Síðustu ævidagana sem hann dvaldi á spítalanum einkennd- ust af þessum sama krafti og dugn- aði. Hann kvartaði aldrei og vildi ekki að við hefðum áhyggjur af honum. Hann var sáttur við líf sitt og hlakkaði til að komast til ömmu og Eyva, sem hann hafði saknað svo lengi. Við huggum okkur við það að nú eru þau saman á ný. Við erum þakklátar fyrir að hafa fengið tækifæri til að njóta sam- verustunda með ömmu og afa og minningin um þau eru okkur kær. Auður, Þuríður, Aldís, Helga, Eygló og Elísa. Ég kynntist Ámunda vini mínum fyrir tæplega fimm árum og urðum við strax góðir vinir. Þó að það væru 60 ár á milli okkar gátum við talað saman um allt milli himins og jarðar. Við áttum líka margt sameiginlegt, eins og að vera báðir miklir íþróttamenn, hafa áhuga á bæjarmálum, hafa verið á sama bæ í sveit, fínnast maturinn á Miðvangi 79 alltaf frábær og báðir höfðum við einstaklega gaman af hundinum Tinnu. Ámunda var mjög hugleikið að ræða bæjarmálin og hafði hann mjög ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum. Stundum vorum við ekki sammála, þó það væri nú sjaldnar en hitt. Það kom fyrir að mér fannst hann full einstrengings-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.