Morgunblaðið - 16.10.1994, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐBJÖRG HJARTARDÓTTÍR,
Lindargötu 57,
(áðurtil heimilis
í Ljósheimum 2),
verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn 18. október
ki. 13.30.
Blóm og kransar afþökkuð.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Félag krabba-
meinssjúkra barna.
Helga Lára Jónsdóttir, Einar Sigurðsson,
Sigurrós B. Eðvarðsdóttir, Ásgeir Fiórentsson,
Ásta B. Eðvarðsdóttir, Sveinbjörn Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
SIGTRYGGS HALLGRÍMSSONAR.
Hallgrímur Sigtryggsson, Kirsten Sigtryggsson,
Kristfn Sigtryggsdóttir, Sigurður E. Sigurðsson,
Ragnhildur B. Sigtryggsdóttir, Kristján H. Gunnarsson,
Vigdfs Sigtryggsdóttir, Guðmundur Kr. Guðmundsson,
Guðmundur Jón Helgason, Lilja Ægisdóttir,
Ingólfur Árni Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför
ÞÓRÐAR ÞÓRÐARSONAR,
Hvoli,
Eyrarbakka.
Ingibjörg Jóhannesdóttir, Kristín Þórðardóttir,
Guðrún Hulda Ólafsdóttir,
Ingibjörg Þórðardóttir, Ólafur Stefánsson,
Þuríður Þórðardóttir, Smári Arnarson,
Jón Guðmundsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför
sonar okkar, sonarsonar, bróður, fóst-
urbróður og frænda,
HALLDÓRS ÁSMUNDSSONAR,
Baughóli 50,
Húsavfk.
Ásmundur Halldórsson, Sigrún Harðardóttir,
Halldór Ásmundsson, Sigrún Guðmundsdóttir,
Ingólfur Arnarson, Linda Arnardóttir,
íris Dögg Ásmundsdóttir, Ásrún Ásmundsdóttir,
Guðrún Eiríksdóttir, Hörður Eiríksson
og aðrir vandamenn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginkonu minnar,
möður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og systur,
INGIBJARGAR
GUÐMUNDSDÓTTUR,
Ölduslóð 14.
Magnús Gunnarsson,
Olga B. Magnúsdóttir, Stefán Sandholt,
Gunnar Magnússon, Guðrún Björnsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir, Guðmundur Hafliðason,
Björg Magnúsdóttir, Eiríkur Páll Einarsson,
Guðmundur Magnússon, Þorgerður Sigurðardóttir,
Elfn Björg Magnúsdóttir, Óskar Hallgrímsson,
Kári Magnússon,
Helga Magnúsdóttir, Atli Geir Friðjónsson,
Arnfrfður Magnúsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og bræður hinnar látnu.
ARNBJÖRGINGA
JÓNSDÓTTIR
+ Arnbjörg Inga Jónsdóttir
fæddist á Hvalnesi í Stöðv-
arfirði 28. febrúar 1934. Hún
andaðist á Reykjalundi 6. októ-
ber siðastlíðinn og fór útför
hennar fram frá Bústaðakirkju
14. október.
FYRIR tæpum ellefu árum trítlaði
ég árla morguns upp tröppurnar á
Furugerði 13, með dýrmætan bögg-
ul í fanginu. Böggulinn afhenti ég
varfærnislega í hendurnar á henni
Öddu minni, sem tók hlýlega og
blíðlega á móti. Ég var að fara út
á vinnumarkaðinn, og böggullinn
var sex mánaða gamall sonur minn,
Amar að nafni. Eins og gefur að
skilja, fylgdi afhendingunni dálítill
kvíði, enda fýrsta skipti sem hún
fór fram. Kvíðinn varði kannski
einn dag, en næstu ár tóku við til-
finningar ánægju og þakklætis.
Heimili þeirra Óddu, Sverris og
Guðjóns varð fastur punktur í tilver-
unni og stundum þurfti að beita
lagni til að fá Arnar heim með
mömmu sinni þegar hún kom úr
vinnunni, það átti sko ekki að missa
af neinu sem fram fór á þeim bæ!
Aldrei slitnaði upp úr góðri vináttu,
þó svo að við flyttum til Danmerkur
og eftir að heim kom heimsóknir
ekki eins tíðar og ég myndi viljað
hafa, „sökum tímaskorts". Á
sunnudegi fyrir um hálfum mánuði
sagðist Arnar ætla að heimsækja
Öddu, sem hann og gerði. Þegar
langt var liðið á daginn, hringdi ég
svona til að „tékka“ á málunum.
Jú, Amar hafði komið, og meðal
annars hjálpað Öddu að vökva
blómin. Þá um nóttina hafði Adda
„hrapað niður í súrefni" og var því
máttfarin. Hún sagði að kannski
hefði ekki þurft að fara alveg svona,
ef hún hefði bara kvartað fyrr.
Ennfremur sagðist hún að öllum
líkindum fara á Reykjalund á morg-
un. Ég sagði eitthvað á þá leið,
með smá umvöndunartóni að nú
ætti hún að ýta ósérhlífninni til
hliðar og bætti við að við Arnar
kæmum örugglega í heimsókn. Það
hvarflaði ekki að mér að þetta væri
í síðasta skipti sem við töluðum
saman, og að ekkert yrði af heim-
sókninni. Nú er Adda okkar í heim-
sókn á stað sem okkur hinum er
meinaður aðgangur, í bili að
minnsta kosti. Þó svo að við vitum
að eitt sinn skal hver deyja, þá
finnst manni samt eins og að tíma-
setningin sé oftast röng. Þegar ég
sagði Arnari frá andláti hennar
sagði hann, ,já en hún er svo góð“,
eins og að gott fólk gæti ekki dáið.
Adda mín ef ég gæti þakkað þér
alla góðsemina, mundi ég gera það,
en beini því til Sverris og Guðjóns,
sem á svo óeigingjaman hátt opn-
uðu heimili sitt fyrir öll fósturbörn-
in.
Elsku Sverrir, Guðjón og Patty,
megi guð styrkja ykkur.
Kristín og fjölskylda.
Ég sat þögul um stund, eftir að
þjálfarinn okkar í H.L.-stöðinni til-
kynnti okkur að elskuleg vinkona
okkar, hún Adda, væri dáin, hefði
dáið um nóttina eða morguninn.
Hún var búin að vera mörg ár með
mér í þjálfun, fyrst á Háaleitisbraut
11-13 en síðar í íþróttasal Sjálfs-
bjargar í Hátúni 14. Þar bættust
fleiri við sem hún kynntist. Hún
mætti með súrefniskútinn, alltaf í
tæka tíð til þess að geta rabbað við
fólkið, og það má segja að það var
líf í kringum hana. Það var aðdáun-
arvert hve dugleg hún var og hark-
an mikil. Hún var glaðleg þrátt
fyrir erfiðleika með öndun. Það má
segja að hver einasti maður sem
kynntist henni þar bar henni gott
orð og hrósaði henni mikið.
Þegar ég kom á Reykjalund í
fyrrasumar hugsaði ég um það hver
skyldi nú verða herbergisfélagi
minn í þetta sinn, því oft hef ég
verið á Reykjalundi. Þegar ég svo
gekk inn í herbergið, eftir að hafa
verið yfirheyrð af hjúkrunarfræð-
ingi, litum við Adda hvor á aðra
og féllumst í faðma og hlógum
dátt. Hún hafði þá hugsað eins og
ég-
Það var gott að vera stofusystir
hennar, það eru ekki allir eins
heppnir og ég var í þetta sinn. Hún
sagði mér frá ferðalagi til Ameríku,
auðvitað með kútinn í eftirdragi,
en erindið þangað var að heim-
sækja son sinn sem stundaði nám
þar. Ég býst við að það séu ekki
margir sem hafa þennan kjark. En
hún hafði sterka stoð sér við hlið,
Sverri eiginmann sinn, þar vantaði
ekkert á. Maður heyrði á henni að
einkasonurinn Guðjón var auga-
steinninn hennar og ferðin til Amer-
íku var ævintýri líkust fyrir hana.
Eftir að við útskrifuðumst af
Reykjalundi bauð hún mér heim til
sín og þar sá ég hvernig hún hafði
komið sér fyrir með málaradótið
sitt. Hún málaði myndir, bjó til
yndislega falleg jólakort og önnur
tækifæriskort sem voru listavel
gerð. Það gat ekki hver sem er leik-
ið þetta eftir. Hún sagði mér frá
systur sinni Nönnu sem hún dáði
mjög mikið, en Nanna hefur gengið
í gegnum mikið veikindastríð.
Svona er lífið, sumir verða að líða
hálfa eða alla ævina og enginn fær
við neitt ráðið.
í haust hittumst við kátar en
auðvitað óhressar þótt ekki væri
minnst á það. Svo frétti ég að hún
væri farin á Reykjalund aftur. Á
hveijum degi hugsaði ég mér að
heimsækja hana, en einhverra hluta
vegna fannst mér ég hafa svo mik-
ið að gera, var yfir mig þreytt eftir
flutning og fleira og svo sit ég með
samviskubit að hafa ekki farið.
Þess vegna var það svo sárt að
heyra að hún væri dáin. En ég mun
hugsa um hana eins og hún var og
veit að hún fyrirgefur mér. Ég
þakka henni fyrir samveruna og
góðvildina til mín. Mér fannst hún
gefa mér mikið. Guð blessi hana.
Eg votta ástvinum hennar samúð
mína og bið þeim guðs blessunar.
Pálína Magnúsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug vegna andláts og útfarar
ástkærrar móður okkar, systur, tengda-
móður og ömmu,
VILBORGAR JÓNSDÓTTUR,
Austurbrún 37A,
Reykjavík.
Jón Kristján Sigurðsson, Elísabet Árdís Sigurjónsdóttir,
Sigurjón Sigurðsson, Magnea Björk Magnúsdóttir,
Steinþóra Sigurðardóttir, Svanur Kristinsson,
Högni Jónsson,
Ragnhildur Jónsdóttir,
Grímur Jónsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
EINARS SVEINS JÓHANNESSONAR,
og sonarsonar hans,
SIGURÐAR HELGA SVEINSSONAR,
sem lést af slysförum 14. apríl sl.
Sérstakar þakkir til allra þeirra, sem tóku þátt í leitinni að Sig-
urði Helga.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Ágústsdóttir,
Sveinn Einarsson, Þorleif Lúthersdóttir,
Ágústa Einarsdóttir, Ólafur Oddsson,
Dorothea Einarsdóttir, Magnús Sigurðsson,
Elín Brimdfs Einarsdóttir,
Þorbjörg Guðný Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
- Krossar á leiði
I viÖarlit og mólaSir. Mismunandi mynsiur, vönauo vinno. Simi 91-35929 oq 35735
BlémastoJ
fíiðftmts
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
til kl. 22,-eir
ngai
Gjafavörur.