Morgunblaðið - 16.10.1994, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
GERm HAUN QOœerAUK-
AB> ET4 érA OG SOFA?
U Efer
AÐM'SSA Ap .
. öfeÐO/M þÆTTl
Tommi og Jenni
MAYBE YOU SHOl/LD 6IVE UP THI5 ÍN5ANE LOVE
AFFAIR.. JUST LET THIN6S HAPPEN ..THAT'S UIHAT
|VE DONE UilTH MV SWEET 0ABBOO...
l'M NOT YOUR.
SUJEET BABBOO
Kannski þú ættir að hætta við þetta geðveikislega ástarsamband, leyfðu bara hlutunum að gerast, það
er það sem ég hef gert með sætakrúttið mitt... Ég er ekkert sætakrúttið þitt!
BRÉF
TÍL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
BRÉFRITARI segir að Sinfóníuhljómsveitin sé okkar helsta merki
um það að við búum í menningarriki.
SUS, tíu fyrir-
tæki og gildi
umræðunnar
Frá Ólafi Reyni Guðmundssyni:
GILDI umræðunnar er óumdeil-
anlegt. Það að fólk ræði um þau
vandamál sem upp koma leiðir oft
til þess að hagkvæm lausn finnst,
í það minnsta að hennar sé leitað.
Á hveiju ári koma upp vanda-
mál í þjóðfélaginu sem brýnt er
að leysa. Oftast eru þessi vanda-
mál fjárhagslegs eðlis og eru
sparnaðartillögur ríkisstjórna
þ.a.l. oft bitbein umræðunnar því
þær snerta flesta á einhvern hátt.
Ekki alls fyrir löngu birti Sam-
band ungra sjálfstæðismanna lista
í íjölmiðlum yfir 10 fyrirtæki.
Helmingur þeirra virtist vel rekinn
en hinn helmingurinn illa. Þessi
listi virtist ennfremur valda
nokkru fjaðrafoki og töldu nokkuð
margir sig nauðbeygða til þess að
mótmæla niðurstöðum listans.
Þessi listi var hvorki tæmandi
né nærri því að vera fullkominn á
nokkurn hátt. Ólíkum fyrirtækjum
var þar skellt saman sem erfítt
getur verið að meta hvort vel eða
illa eru rekin þótt þau fari yfir
heimild í fjárlögum.
Sinfóníuhljómsveit íslands
Sinfóníuhljómsveitin er þar gott
dæmi. Hlutverk hljómsveitarinnar
er svo ólíkt öðrum fyrirtækjum að
í raun er ómögulegt að segja til
um það hvenær hún noti of mikið
fjármagn. Hljómsveitin er okkar
helsta merki um það að við búum
í menningarríki. I raun er það
undravert að í svo fámennu ríki
skuli jafn alþjóðlega viðurkennd
Gagnasafn
Morgimblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
hljómsveit starfa. Sinfóníuhljóm-
sveit íslands er þekkt víða um
heim sakir gæða og kunnáttu
meðlima hljómsveitarinnar og vit-
anlega er það stórkostlegt að þetta
örríki okkar eigi slíka hljómsveit
sem hreinlega er boðið til annarra
landa þar sem hún auglýsir land
og þjóð sem menningarríki. Hins
vegar eyðir hún vissulega sífellt
meiru en til er ætlast í fjárlögum.
Þetta er þó ekki kjarni málsins.
Fyrrnefndur listi hafði marga ann-
marka en þó einnig stóran kost.
Hann olli því að jafnvel hinir róleg-
ustu skrifstofumenn ruku upp til
handa og fóta og hófu máls á efni
listans.
Gildi listans fólst þannig ekki
aðeins í þeirri upptalningu sem á
honum var heldur þeirri almennu
umræðu sem hann skapaði. Enda-
laust má deila um það hvort fyrir-
tæki séu vel eða illa rekin en það
er einmitt kjarni málsins. Það að
menn deili um rekstur fyrirtækja
vekur upp almenna umræðu sem
hefur óumdeilanlegt gildi. Hún
vekur menn til umhugsunar og
knýr þá til þess að taka afstöðu
og veitir þannig töluvert aðhald.
Áríðandi að allir taki afstöðu
Hér er ekki aðalatriðið um
hvaða fyrirtæki er að ræða heldur
að menn venji sig á að vera ekki
áhugalausir um það sem gerist í
kringum þá. Það sem máli skiptir
er það að menn gefi sér tíma til
þess að gaumgæfa hluti sem alla
varða og taki afstöðu til þeirra.
Þá er ekki aðalatriðið að hvaða
niðurstöðu menn komast.
Hinn umdeildi listi 10 fyrirtækja
sem SUS birti hefur þannig öðlast
talsvert gildi. Það felst þó ekki í
því að tveir aðilar skrifí greinar í
blað og svari hvor öðrum næstu
vikumar vegna ásakana hins um
sama fyrirtækið (sinfóníuhljóm-
sveitina), heldur í almennri um-
ræðu. Álmenningur láti sig það
máli skipta hvernig fyrirtæki séu
rekin en sé ekki afskiptalaus og
lítt hugsandi um þjóðarhag.
ÓLAFUR REYNIR
GUÐMUNDSSON,
laganemi.