Morgunblaðið - 16.10.1994, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.10.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ________MIIMIMIMGAR_____ KA TRÍN ÞÓRÐARDÓTTIR SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1994 29 EIGNAMIÐLUNIN % Sínii 88 • 90 • 90 - Fax 88 • 90 • 95 - SítSumúla 21 + Katrín Þórðardóttir fædd- ist í Reykjavík 6. septem- ber 1941. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 21. september síðastliðinn og fór útför henn- ar fram frá Bústaðakirkju 29. september. HÚN Kata frænka er dáin og samt var hún bara nýorðin 53 ára. Kata, yngsta systirin í stórum systkina- hópi, var alin upp í miklum kvenn- afans í Meðalholtinu og þótt þær eldri systurnar hafí ef til vill farið troðnari slóðir í sínu lífí fékk hún í veganesti sjálfstæði og þor, já, það er hægt að segja að Kata hafi verið svolítill töffari. Hún lagðist snemma í ferðalög, hélt á vit hins óþekkta og dvaldi megnið af sínum fullorðinsárum erlendis. Sem stelpur lásum við póstkortin sem hún sendi mömmu frá fjarlægum heimsálfum og lét- um okkur dreyma um líf í fram- andi löndum sem hlyti að vera svo allt öðruvísi en heima hjá okkur. Svo kom hún stundum heim til Islands og þá var slegist um að fá að fara með út á flugvöll að taka á móti þessari konu, sem leit út eiginlega alveg eins og mamma, en var samt svo ólík öðrum konum sem við höfðum kynnst. Það var mikilvægt fyrir ungar stúlkur að eiga sér fyrirmyndir í lífinu. Líka fyrirmyndir sem lifa öðruvísi þar sem ævintýrin gerast og allt er mögulegt. Kata frænka var okkur slík fyrirmynd. Hún var kona sem fór ekki hefðbundnar leiðir, en gerði það sem hana lang- aði til. Kata hætti aldrei að ferðast. Þrátt fyrir erfið veikindi síðastliðin ár var hún alltaf á ferðinni, bæði hér innanlands og utan. Þegar lík- amskraftinn þraut bar hugarflugið hana áfram. En nú hefur hún lagt upp í sitt síðasta ferðalag og held- ur enn á vit hins óþekkta. Elsku frænka, við þökkum þér samfýlgd- ina og vottum ykkur, Steini, Bjössi og Kata litla, dýpstu samúð. Þínar frænkur, Ingibjörg og Drífa. Við vinkonumar kynntumst Katrínu fyrir nokkrum árum er við störfuðum saman í Álafossbúðinni. Við vorum fáar sem unnum saman og fyrir vikið kynntumst við mjög vel, m.a. í gegnum fjörugar sam- ræður í kaffitímum, en á kaffistof- unni var Katrín að jafnaði hressust allra og hafði hún alltaf frá mörgu að segja. Okkur þótti Katrín alltaf vera ákaflega hreinskilin, samkvæm sjálfri sér og óhrædd við að segja meiningu sína, m.a. um okkur yngri stelpumar sem henni fannst stund- um vera agalega vitlausar. Við emm sammála um að Katrín hafí verið ein sú lífsglaðasta manneskja sem við höfum kynnst og skopskyn hennar var með eindæmum. Það var alltaf mikill kraftur í Katrínu; hún vildi fá sem mest út úr lífínu og virðist aldrei sitja auð- um höndum. Katrín hafði yndi af golfi og ferðalögum, en fjölskyldan var henni mikilvægust. Kom það m.a. fram í tali hennar hversu hreykin hún var af Bjössa sínum og það var greinilegt hversu mikla ham- ingju hann og Steini veittu henni. Við höfðum ekki hitt Katrínu lengi og voru fréttirnar af alvarleg- um veikindum hennar okkur mikið áfall. Stundir okkar með henni á kaffistofunni eru þó ógleymanleg- ar. Katrín mun lifa áfram í huga vina og vandamanna. Kleppsvegur 62, þjónustuíbúðir Eigum enn nokkrar óseldar íbúðir íþessu vinsœla^ Leitið frekari upplýsinga hjá söiumönnum okkar HÚSAKAUP FASTEIGNAMIÐLUN SÍMI68 28 00 FAX 68 28 08 Við þökkum henni samveru- stundirnar og vottum fjölskyldu hennar samúð okkar. Ása, ^teinunn og Valgerður. Ég get ekki látið hjá líða að skrifa nokkur kveðjuorð í minningu Katrínar Þórðardóttur, Kötu eins og vinimir kölluðu hana. Ég hafði aðeins þekkt hana í þrjú ár, en hefði ekki þurft það langan tíma til að uppgötva að hún var einstök greindarkona sem hafði mikla útgeislun. Ég minnist skemmtilegu matarboðanna hjá þeim Kötu og Steina sem maður verður að nefna í sömu andrá, all- ar skemmtilegu sögurnar um öll undrin sem þau höfðu upplifað saman enda umfram allt einlægir vinir og félagar. Ég er ríkari eftir þessar stundir. Ég votta Steina og Bjössa mína dýpstu samúð og virðingu. Kötu þakka ég þessi stuttu en góðu kynni. Blessuð sé minning hennar. „Góðum manni verður ekkert illt gjört, hvorki lífs né liðnum og guðunum er ekki sama um afdrif hans.“ (Sókrates.) Hildur Edda Hilmarsdóttir. Þrastahólar 10 - opið hús Mjög falleg 120,4 fm íbúð á 3. hæð í góðu fimm-býli. 24,5 fm bílskúr. Sérþvottahús. 5 svefnherb. Nýtt park- et á stofum og svefnherb. Nýstandsett baðherb. Áhv. ca 2 millj. Verð 9,9 millj. Hjálmtýr og Anna taka á móti gestum í dag frá kl. 14.00-17.00. ' Öpíðhús N Gautland 17, Rvík Vorum að fá í sölu fallega 4ra herb. íbúð á 2. hæð til hægri á þessum vinsæla stað. 3 svefnherbergi Parket á stofu. Góðar suðursvalir. Verð 7,9 millj. Áhv. hús- bréf 4,0 millj. Eignin verður til sýnis í dag frá kl. 14-17. Gjörið svo vel að Ifta inn. MNGIIOLT Suöurlandsbraut 4a Sími 680666 Dhuimnél^P SPORTBUÐIN Ármúla 40 • Slmi 813555 og 813655 ULPUR iflitcf- og vatnsheltiur Bctrnaúlpur St. 6-14 í sambandi vib neytendur frá morgni til kvölds! - kjarni málsins! Lára Margrét í © sætið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.