Morgunblaðið - 16.10.1994, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.10.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1994 7 ERLEIMT Ný bók um hring breskra njósnara sem voru á mála hjá Sovétmönnum í kalda stríðinu Rothschild lávarður „fimmti maðurinn“? Lundúnum. Reuter. ROTHSCHILD lávarður, sem er í þekktri breskri bankafjölskyldu, var „fimmti maður- inn“ í frægum njósnahring undir forystu Kims Philbys, að því er fram kemur í bók sem gefin verður út síðar í mánuðinum. Titill bókarinnar er „Fimmti maðurinn" og hún er eftir ástralska blaðamanninn Roland Perry. Hann heldur því fram að Rothschiid, sem lést árið 1990, hafi komist hjá rannsókn á sögusögnum um að hann væri í njósna- hringnum með því að notfæra sér auð sinn og_ áhrif. í njósnahringnum voru Harold „Kim“ Philby, Anthony Blunt, Guy Burgess og Donald Macle- an en aldrei hefur fengist staðfest hver fimmti maðurinn var. John Cairncross, fyrrverandi embættismaður, hefur nokkrum sinnum verið nefndur í þessu sambandi. Perry segir útilokað að Cairncross hafi verið í njósnahringnum. „Reyndar taldi sovéska leyniþjónustan hann „látinn“ eða gagnslausan árið 1947,“ segir hann. Modín veitti upplýsingar Perry kveðst hafa fengið margar vísbending- ar sínar frá sovéska útsendaranum Júrí ívano- vítsj Modín, sem segist hafa stjómað mörgum breskum njósnurum í kalda stríðinu. „í viðtölun- um í Moskvu kom skýrt fram að fimmti maður- inn hafði hlotið vísindamenntun. Hann hafði aflað sér sérfræðiþekkingar á rannsóknum á efna- og kjarnavopnum," segir Perry. „Hann vann fyrir [bresku leyniþjónustuna] MI5 í stríð- inu. Hann hafði tengsl við Winston Churchill.“ Perry segir þessa lýsingu alla eiga við Roths- child lávarð. „Samkvæmt tveimur heimildar- mönnum varð Victor Rothschild öryggisvörður hjá MI5 árið 1942, þannig að hann hafði að- gang að öllum helstu rannsóknarstöðvum. Hann vissi um hönnun allra breskra (og oft bandarískra) vopna í smáatriðum." Rothschild var þekktur íþróttamaður, jass- leikari, vísindamaður, rithöfundur og fjármála- maður. Á námsárum sínum í Cambridge- háskóla á fjórða áratugnum var hann í mál- fundaféiagi með Burgess, Maclean, Philby og Blunt. í heimsstyrjöldinni síðari notuðu Burg- ess, Philby og Blunt íbúð hans í Lundúnum og hann sótti oft klúbb þar sem Philby, Burg- ess og Blunt voru fastagestir. Thatcher hafnaði rannsókn Nokkrir þingmenn lögðu til árið 1986 að rannsakað yrði hvort Rothschild hefði njósnað fyrir Sovétmenn. Margaret Thatcher, þáver- andi forsætisráðherra, hafnaði því og Rot- hschild vísaði því harðlega á bug að hann hefði verið á mála hjá Sovétmönnum. Perry segir að Rothschild hafi notfært sér stöðu sína og áhrif til að komast hjá rannsókn eftir að Burgess og Maclean flúðu til Sovétríkj- anna árið 1951. Clinton gagnrýnir Rússa BILL Clinton Bandaríkjafor- seti sagði í gær að yfirlýsing Andrejs Kozyrevs, utanríkis- ráðherra Rússlands, í Bagdad um að Iraksstjórn væri reiðu- búin að viðurkenna landamæri Kúveits, væri ekki í samræmi við fyrri ummæli Borísar Jelts- íns Rússlandsforseta. Clinton sagði að Jeltsín hefði sam- þykkt að „engar viðræður kæmu til greina við íraks- stjórn, alls engar“. Deilt um greind kyn- þátta NÝ BÓK, þar sem því er hald- ið fram að blökkumönnum farnist almennt illa vegna þess að þeir séu ekki jafn greindir og hvítir menn, hefur valdið miklu uppnámi í Bandaríkjun- um. Annar af höfundum bókar- innar, félagsfræðingurinn Charles Murray, hefur sætt harðri gagnrýni í dagblöðum og New York Times kallaði hann „hættulegasta íhalds- mann Bandaríkjanna". Murray heldur því fram að greindarvísitala manna sé að miklu leyti arfgeng en um- deildust er sú kenning hans að meðalgreindarvísitala bandarískra blökkumanna sé 85, en hvítra manna 100. Boston Globe, sem þykir fijálslynt blað, tók að gagn- rýna bókina fyrir „háa fá- viskuvísitölu" mörgum mán- uðum áður en hún kom út. Murray, sem er fræðimaður við Amerísku framtaksstofn- unina í Washington, er ánægð- ur með umræðuna sem bókin hefur komið af stað en kveðst óttast um líf sitt og fjölskyldu sinnar vegna hinna hörðu við- bragða. Kvartað yfir háum launum RITT Bjerregaard, sem hefur verið tilnefnd sem fulltrúi Dana í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, kveðst óánægð með launin sem hún fær í nýja starfínu. Hún segir þau einfaldlega of há. Fyrir skatt fær hún sem svarar 15 milljónum króna á ári, tvöfalt meira en forsætisráðherra Dana, en eftir skatt er munur- inn enn meiri. Bjerregaard tel- ur hæfilegt að fá rúmar tíu milljónir króna í árslaun. getur þú valið... Við hjá Tryggingamiðstöðinni önnumst brunatryggingar þínar ásamt öllum öðrum tryggingum. Nánari upplýs- ingar færðu hjá starfsfólki Tryggingamiðstöðvarinnar og umboðsmönnum um allt land. Notaðu tækifærið og veldu hvar þú tryggir húseign þína. Skilafrestur uppsagna er til 30. nóvember næstkomandi. *Með nvjum lögum um hrunatryggingar huseigna oðtast húseigendur retí tii þess að ák\eða hvar þeír brunatryggja húseignir sínar frá og með 1. janúar 1995. TRYGGINGA MIÐSTÖÐIN HF. - þegar mest á reynir! Aðalstræti 6-8,101 Reykjavík, sími 26466. YDDA/SlA F16.9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.