Morgunblaðið - 04.12.1994, Side 6
6 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Bob Dole fer fyrir meirihluta repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings
Þrautreyndur og markað-
ur af harðri lífsbaráttu
Bob Dole öldungadeildarþingmaður verður
valdamestur repúblikana á Bandaríkja-
þingí eftir að valdaskiptin hafa farið fram
í janúar. Karl Blöndal, fréttaritari Morg-
unblaðsins í Bandaríkjunum, gerir grein
fyrir ferli þessa áhrifamikla þingmanns
og segir frá þekktustu samheijum hans.
BOB Dole á fundi í höfuðstöðvum NATO á þriðjudag.
LEIÐTOGAHÓPUR repú-
blikana á Bandaríkja-
þingi, sem tekur við
völdum í janúarmánuði,
vill róttækar breytingar en er um
margt ósamstæður hópur. Mest
völd verða í höndum Bobs Dole,
leiðtoga repúblikana í öldunga-
deildinni, sem fyrir áratug sagði
um Newt Gingrich, væntanlegan
forseta fulltrúadeildarinnar: „Það
er mikill hávaði í honum, en ég
sé ekki að hann hafi nein áhrif.“
Dole hefur gegnt stöðu sinni um
nokkurt skeið og fór meira að
segja fyrir meirihluta repúblikana
í öldungadeildinni um tveggja ára
skeið í forsetatíð Ronalds Reag-
ans. Dole er hófsamari í stjórn-
málaskoðunum sínum en
Gingrich. Ekki er þó þar með sagt
að hann eigi eftir að verða Bill
Clinton forseta leiðitamari.
Eftir sigur repúblikana í þing-
kosningunum í byijun nóvember
óttuðust menn að þeir myndu
koma i veg fyrir staðfestingu
GATT-samkomulagsins um tolla
og viðskipti. Hótanir í þá veru
höfðu borist frá nokkrum þekkt-
ustu talsmönnum Repúblíkana-
flokksins þ.á m. Dole. Hann sneri
við blaðinu og á fimmtudag var
GATT-samningurinn staðfestur
endanlega í öldungadeild þingsins
en áður Dole tekist að knýja fram
breytingar sem myndu auðvelda
Bandaríkjamönnum að ijúfa sam-
komulagið fínnist þeim hallað á
sig í alþjóðaviðskiptum.
Þótt Dole hafi snúist bendir
hátterni hans til þess að hann
muni hafa sama háttinn á og
undanfarin tvö ár þar sem hann
beitti málþófí hvað eftir annað til
að kæfa frumvörp demókrata í
fæðingu.
Vandasöm ár í vændum
Næstu tvö ár verða vandasöm
fyrir Dole. Hann gerir sér vonir
um að verða næsta forsetaefni
repúblikana og þarf því að halda
rétt á spilunum. Hann má ekki
vera of samvinnuþýður við Clinton
því að það gæti aukið líkumar á
því að hann verði endurkjörinn,
en hann verður einnig að varast
það að leggjast gegn öllum málum
og hindra framgang þeirra.
Dole, sem er fæddur 1923, var
kosinn fulltrúadeildarþingmaður
fyrir Kansas árið 1960 og árið
1968 var hann kosinn öldunga-
deildarþingmaður.
Richard Nixon gerði Dole að
formanni landsnefndar Repúblik-
anaflokksins árið 1971. Þegar
Nixon var endurkjörinn forseti
árið 1972 vildi hann hins vegar
fá einhvern blíðlyndari með meiri
yfirstéttarsvip í starfið og skipti
Dole út fyrir George Bush. Dole
var varaforsetaefni Geralds Fords
árið 1976 og árið 1980 sóttist
hann eftir útnefningu flokksins
til forsetaframboðs, en laut í
lægra haldi fyrir Ronald Reagan.
Sagt er að Dole hafi ekki syrgt
það mjög er Bush tapaði fyrir
Clinton fyrir tveimur árum. Þegar
Dole bauð sig fram gegn Bush í
forkosningum repúblikana hamr-
aði hann á því að andstæðingur
sinn hefði verið sveipaður dýrðar-
ljóma í flughemum í heimsstyij-
öldinni síðari á meðan hann var
hafður að skotskífu í landhemum.
Tímaritið The New Yorker
heldur því fram að fáir bandarísk-
ir stjómmálmenn séu jafn meðvit-
aðir um stétt sína. Fjölskylda
Dole neyddist til að búa í kjallara
húss síns svo hægt væri að leigja
út efri hæðirnar. Dole varð fyrir
sprengjubrotum í heimsstyijöld-
inni og lá í þijú ár á sjúkrahúsi
meðan hann var að jafna sig og
beið þó aldrei fullar bætur. Sagt
er að hann geti ekki hneppt skyrt-
unni sinni án þess að fínna til
sársauka en hægri hönd hans er
nánast gagnslaus.
Hörð lífsbarátta hefur sett
mark sitt á Dole og kemur það
oft fram í eitruðum skotum hans.
Brandarar hans em allajafna með
svipuðu sniði: „Ég hef góðar frétt-
ir og slæmar fréttir að færa,“
sagði Dole þegar Clinton var kos-
inn forseti. „Góðu fréttirnar eru
að hann fær að njóta hveitibrauðs-
daga í Washington. Slæmu frétt-
irnar eru að hann verður undir
mínu eftirliti á meðan.“
í aukahlutverkum verða ...
Gingrich og Dole em ekki einu
repúblikanamir sem kveða mun
að á næstunni. Næstráðandi
Gingrich í fulltrúadeildinni verður
Richard Armey, þingmaður frá
Texas. Armey er með doktorsgr-
áðu í hagfræði, dýrkar Adam
Smith og þykir standa lengra til
hægri en Gingrich. Armey svaf á
hermannabedda í leikfímisal full-
trúadeildarinnar í spamaðarskyni
og flutti fletið inn í skrifstofu sína
þegar fundið var að þessu við
hann.
Tímaritið Newsweek segir svo
frá að hann hafi lítt hugleitt feril
í stjórnmálum þar til kvöld eitt
árið 1985 er hann horfði á umræð-
ur á þingi með konu sinni.
„Elskan, þetta fólk hljómar eins
og hópur af erkifíflum," varð Ar-
mey að orði og svaraði kona hans
að bragði: „Já, þetta gætir þú
gert.“
Armey fór í framboð og sigraði
öllum að óvörum. Hann fékk 77
prósent atkvæða þegar hann var
endurkjörinn 8. nóvember. Armey
kvaðst ekki hafa tíma til að leita
hefnda gegn demókrötum eftir
sigur repúblikana og hann hefur
sagt að ekki hafi verið viðeigandi
að líkja Hillary Clinton við Karl
Marx.
Repúblikanarnir í öldungadeild-
inni eru öllu litríkari. Þar ber
fyrstan að telja Jesse Helms frá
Norður Karolínu, sem komst ær-
lega í fréttimar þegar dagblað í
hans kjördæmi birti ummæli þess
efnis að Clinton væri svo illa lið-
inn í hemum að líf hans yrði í
hættu ef hann léti sjá sig í her-
stöð í Norður Karolínu. Demó-
kratar sögðu að ummæli Helms
jöfnuðust við á morðhótun gegn
forsetanum og ekki.bætti úrgkák
að þau birtust 22. nóvember,
sama dag og John F. Kennedy
var skotinn í Dallas árið 1963.
Helms mun taka við for-
mennsku í utanríkismálanefnd
öldungadeildarinnar í janúar.
Hann hefur verið yfirlýsingaglað-
ur undanfarnar vikur; hvatt til
þess að GATT umræðum yrði
frestað til næsta árs, eggjað til
innrásar á Kúbu og lagst gegn
því að bandarískir hermenn verði
í friðargæslusveitum í Gólan-hæð-
um.
Dagblaðið The New York Tim-
es sagði nýlega að „skuggi
Helms" hvíldi yfir friðarumleitun-
um fyrir botni Miðjarðarhafs og
í leiðara daginn eftir voru um-
mæli hans um Clinton gerð að
umtalsefni með þeim orðum að
Helms væri orðinn „til trafala um
allan heim“.
Helms hefur aldrei farið troðn-
ar slóðir þau 22 ár, sem hann
hefur setið á þingi. Hann hefur
háð harðvítuga baráttu gegn
kommúnistum utanlands og
fijálslyndi innanlands. Hommar
eru eitur í hans beinum og um
konu eina, sem tilnefnd var til
embættis í stjóm Clintons, sagði
hann að hun væri „engin venjuleg
lesbía, heldur herská, fram-
kvæmdasöm, illvíg lesbía“, sem
ekkert erindi ætti í embætti.
Helms sér hvarvetna végið að
kristilegu siðgæði og reynir lítið
að tempra skoðanir sínar.
Hótanir D’Amato
Sömu sögu er að segja af Al-
fonse D’Amato, öldungadeildar-
þingmanni frá New York. D’A-
mato á í vændum formennsku í
bankanefnd öldungadeildarinnar
og mun hann hafa rannsókn
Whitewater málsins með höndum.
Búast má við því að hann muni
einskis láta ófreistað til að þyrla
upp moldviðri í þeirri von að hægt
verði að hanka Clinton fyrir mis-
ferli í sambandi við fasteignavið-
skipti sín i Whitewater.
„Við ætlum að komast til botn
í þessu máli,“ sagði D’Amato dag-
inn eftir kosningar. D’Amato er
sjálfur ekki barnanna bestur.
Hann hlaut vítur siðanefndar
þingsins árið 1991 fyrir að leyfa
bróður sínum afnot af skrifstofu
sinni meðan hann gekk erinda
verktaka fyrir herinn. Hann hefur
einnig verið vændur um að vera
handgenginn mafíunni.
Ef eitthvað mun stöðva D’A-
mato eru það flokksbræður hans.
Whitewater-málið er flókið og
hefur farið fyrir ofan garð og
neðan hjá almenningi. Langar
yfírheyrslur vegna Whitewater
eru ekki Iíklegar til að afla repú-
blikönum vinsælda og þær gætu
staðið í vegi fyrir öðrum stefnu-
málum þeirra á þingi.
Repúblikanarnir eru mislit
hjörð, en hugmyndafræðingurinn
er Gingrich. Stefnuskrá repúblik-
ana um að skerða framlög til fé-
lagsmála, taka á vanda einstæðra
mæðra og takmarka þingsetu ein-
stakra stjórnmálamanna er tekin
úr kosningaplaggi, er nefndist
Sáttmáli við Bandaríkin, og
minnir um margt á fyrsta repú-
blikanann í forsetastóli eftir að
Gingrich komst á þing.
„Þetta er Reaganismi án Reag-
ans og án mannbætandi dyggða
hans blíða persónuleika," sagði
Mario Cuomo, sem var fórnarlamb
repúblikana í ríkisstjórnarkosn-
ingunum í New York, samtali við
fréttastofuna AP í vikunni. „Þetta
er Reaganismi með fúkyrðum og
reiði... Liðið í fulltrúadeildinni
er eins konar stormsveitir repú-
blikana."
Drottning
sættist við
Manchest-
erbúa
Manchester. The Daily Telegraph.
ELÍSABET Bretadrottning heimsótti
borgina Manchester á fimmtudag til
að bæta samskiptin við borgarbúa.
Það vakti mikla athygli er haft
var eftir Bretadrottningu, meðan á
opinberri heimsókn hennar í Rúss-
landi stóð í október, að Manchester
væri „óskemmtilegur staður". Emb-
ættismenn konungshallarinnar hafa
ávallt haldið þvi fram að ummælin
hafi verið ranglega höfð eftir drottn-
ingu en hún átti að hafa láti þau
falla í léttu spjalli við ungan háskóla-
nema í Pétursborg.
Margir íbúar Manchester móðguð-
ust þrátt fyrir það og því varð að
skipuleggja heimsóknina með sömu
diplómatísku nákvæmni og við-
kvæma opinbera heimsókn til erlends
ríkis. Er hún talið hafa heppnast
mjög vel og að allir borgarbúar hafi
tekið drottningu sína í sátt á ný.
Það vakti athygli að Bretadrottn-
ing vísaði beint til blaðaskrifanna í
ræðu sem hún hélt. „Ef sú er raunin
að einhver ykkar hafa trúað ákveðn-
um nýlegum blaðaskrifum þá vil ég
láta ykkur vita ég hef hlakkað mjög
til að heimsækja Manchester. íbúar
Manchester hafa ávallt tekið einstak-
lega hlýlega á móti okkur,“ sagði
Elísabet.
-----»-♦ ♦------
Svín sem líffæragjafar
Svínastíur
við sjúkrahús
í náinni
framtíð?
Kaupmannahöfn. Morgnnblaöiö.
SÆNSKIR læknar, sem hafa notað
svínalíffæri í menn, spá því að eftir
tíu til fimmtán ár verði svínalíffæri
og önnur dýralíffæri notuð í sjúklinga
í stað líffæra úr mönnum. Þar með
verði rökrétt að sjúkrahús komi sér
upp svínarækt til að sjá fyrir þörfun-
um. Þetta kom fram á þingi sænsku
læknasamtakanna í vikunni.
Framboð á líffærum úr mönnum
er miklu minna en þörfin og því er
óspart leita nýrra leiða. Ýmis dýralíf-
færi hafa verið athuguð, en svínin
virðast gefa besta niðurstöðu, auk
þess sem ódýrt er og einfalt að rækta
þau. I Svíþjóð hafa verið gerðar til-
raunir til að nota líffæri úr svínum
og hafa þær gefið góða raun að því
er segir í frétt „Svenska Dagbladet"
af læknaþinginu. Meðal annars hafa
verið fluttar frumur úr svínafóstrum
í sykursýkissjúklinga til að sjá þeim
fyrir insúlíni. Læknar, sem vinna á
þessu sviði álíta því eðlilegt að í
náinni framtíð komi sjúkrahús sér
upp svínarækt til að geta nálgast
svínalíffæri eftir þörfum.
-----»--» ♦-----
Bandaríkin
Minnsta
atvinnu-
leysi í 4 ár
Washington. Reuter.
ATVINNULEYSI dróst verulega
saman í Bandaríkjunum í nóvemb-
ermánuði og hefur ekki verið minna
í fjögur ár.
Bandaríska vinnumálaráðuneytið
sagði að atvinnuleysi hefði mælst
5,6% í síðasta mánuði úr 5,8% í októ-
ber. Ekki hefur mælst minna at-
vinnuleysi frá því í ágúst 1990.
Mikil uppsveifla hefur verið í
Bandaríkjunum undanfarið og hefur
fíölgun atvinnutækifæra farið fram
úr bjartsýnustu spám efnahagssér-
fræðinga.
Margir hagfræðingar eru þeirrar
skoðunar að þegar rætt sé um „fulla
atvinnu” eigi að miða við 6%. Það
séu þau mörk þar sem þrýstingur
um launahækkanir fari að ýta undir
verðbólgu.
í
(-