Morgunblaðið - 04.12.1994, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994 9
FRÉTTIR
5 þúsund sjónvörp í happdrætti
FIMM þúsund sjónvörp eru á
vinningaskrá Happdrættis DAS
og er fyrsta sending þeirra kom-
in. Þetta eru sjónvörp, sem
Heimilistæki flytja inn fyrir
happdrættið og er verðmæti
þeirra 119.940.000 krónur, en
hvert sjónvarpstæki, sem er 5,5
tommu, kostar tæplega 40 þús-
und krónur. Dregið verður á
miðvikudaginn kemur. Myndin
er tekin, þegar starfsmenn
Heimilistækja tóku tækin úr
gámi, sem þau voru flutt í til
landsins.
Eldvarnardagur slökkviliðsmanna
50 þús. skóla-
börn taka þátt
Slökkviliðsmenn heimsækja
140 skóla á morgun
UNDIR formerkjum „Eldvarnar-
dags“ fyrsta mánudag í desember,
sem að þessu sinni er á morgun,
5. desember, munu slökkviliðs-
menn um land allt koma í skólana
þann dag og ræða um eldvarnir
við nemendur. Um er að ræða 140
grunnskóla, þar af 45 á höfuð-
borgarsvæðinu, með tæplega 50
þúsund grunnskólabörnum og
unglingum.
Landssamband slökkviliðs-
manna vekur athygli á því að á
þessum árstíma er notkun opins
elds, rafmagnstækja og annars
búnaðar í hámarki, og af þeim
sökum hafi hlotist bæði eldsvoðar
og alvarleg slys. Hefur brunavarn-
arátak Landssambánds slökkvil-
iðsmanna miðað að því að hvetja
til varkárni í umgengni við eld og
jafnframt að huga að þeim búnaði
sem mögulegt er að geti valdið
íkveikju. Þá þurfi að gæta þess
að hafa eldvarnarbúnað heimilis-
ins í lagi, t.d. slökkvitæki, reyk-
skynjara, eldvarnarteppi o.s.frv.
Telja slökkviliðsmenn að þetta
átak þeirra hafi ótvírætt sannað
gildi sitt.
Eldvarnagetraun
Jafnhliða ákveðinni umíjöllun
um slysa- og eldættu mun umræð-
an í skólunum á morgun byggja
á eldvarnargetraun og vísbending-
um um hvernig rétt megi standa
að svari. Getraunin birtist í lands-
málablöðunum og barnablöðum
Morgunblaðsins og DV. Svörunum
á að skila til Landssambands
slökkviliðsmanna í pósthólf 4023
124 Reykjavík, en skilafrestur er
til 6. janúar næstkomandi. Dregið
verður 17. janúar og verða marg-
vísleg verðlaun veitt.
Brunavarnarátaki slökkviliðs-
manna lýkur með sérstökum varn-
aðarorðum og ábendingum sem
birtast í landsmálablöðunum um
jól og áramót.
Alþjóðlegur LEO
dagur á morgun
ALþJÓðLEGUR Leodagur er hald-
inn hátíðlegur 5. desember ár hvert
og nota Leofélagar gjarnan daginn
til að vekja athygli á Leostarfinu,
einnig til námstefnuhalds, hátíða-
halda eða til að sinna þjónustu-
verkefnum. Fyrsti Leoklúbburinn
var stofnaður í Pensylvaníu í
Bandaríkjunum 5. desember 1957.
í dag eru nálægt 5.000 Leoklúbbar
í 122 löndum, með um 120 þúsund
félagsmenn.
LEO er unga fólkið í Lionshreyf-
ingunni. Á Islandi eru starfandi
tveir Leoklúbbar, einn í Reykjavík
og annar á Suðurnesjum. Flestir
félagarnir í klúbbunum á íslandi
eru á aldrinum 16-20 ára. Fyrir-
hugað er að stofna fleiri Leoklúbba
á Islandi á næstunni.
í Leoklúbbnum starfar ungt fólk
sem hefur áhuga á félagsstarfi og
eru tilbúið að axla ábyrgð. Auk
þess að vinna að mannúðarmálum
er lögð áhersla á að auka þekkingu
og reynslu í félagsstörfum t.d. með
þjálfun í ræðumennsku, fundar-
stjórn og að skipuleggja verkefna-
vinnu. Þannig er hægt að auka
sjálfsöryggi, samstarfshæfileika
og þjálfun til forystustarfa. Leo
er félagsskapur sem hvetur til já-
kvæðra lífsviðhorfa, segir í frétta-
tilkynningu frá Lionshreyfingunni.
Lögð er áhersla á þrjá mikil-
væga þætti í Leostarfinu. Kjörorð-
in felast í orðinu L E O: Forysta,
reynsla og tækifæri (Ledership,
Experience, Opportunity).
Álþjóðleg samskipti Leoklúbba
eru töluverð. Leonámstefnur eru
haldnar á alþjóðaþingum Lions,
einnig á Evrópu- og Norðurlanda-
þingum. Á næsta Norðurlanda-
þingi sem haldið verður í Dan-
mörku í janúar nk. fara 4 íslensk-
ir Leofélagar. Leofélagar taka
einnig þátt í unglingaskiptum Li-
ons og sérstökum Leobúðum. Þar
gefst Leofélögum tækifæri 4 að
kynnast, skiptast á skoðunum og
reynslu og fræðast um Leo- og
Lionsstarf. Margir Leoklúbbar eiga
vinaklúbb (Twin Club) í öðrum
löndum sem þeir skrifast á við og
jafnvel heimsækja þeir hvor annan.
Tilkynntum líkams-
meiðingum hefur fjölgað
TILKYNNTUM líkamsmeiðingum
hefur fjölgað síðustu ár. Alvarleg-
um líkamsmeiðingum, sem Rann-
sóknarlögregla ríkisins rannsakar,
hefur einnig fjölgað, eins og fram
kom í blaðinu á föstudag.
Vegna þeirrar fréttar hefur
Ómar Smári Ármannsson, aðstoð-
aryfirlögreglujónn í Reykjavík,
bent á að líkamsmeiðingum, sem
tilkynntar séu lögreglunni í
Reykjavik, hafi fjölgað síðustu ár.
Það séu allar líkamsmeiðingar sem
hljótist af hrindingum, ryskingum,
slagsmálum og þaðan af alvarlegri
átökum.
Árið 1989 voru 380 líkamsmeið-
ingar tilkynntar lögreglunni í
Reykjavík, árið 1990 voru þær
454, 495 árið 1991, 498 árið 1992,
512 árið 1993 og til loka nóvemb-
ermánaðar á þessu ári 496.
Ómar segir að í yfirliti um lík-
amsmeiðingar á íslandi síðustu ár,
sem hann hafi tekið saman, komi
fram að alvarlegum líkamsmeið-
ingum hafi fækkað í Reykjavík en
fjölgað á landsbyggðinni.
- kjarni málsins!
■
Aðyentutilboð!
^^/olunum fylgir bakstur, þrif og uppþvottur.
Við viljum létta þér störfin og bjóðum því þessi fjögur gæða-heimilistæki
frá Siemens og Bosch á sérstöku tilboðsverði.
Bakstursofn
SIEMENS BOSCH
MUM 4555EU
Fjölvirkur Siemens baksturofn. Yfir- og undirhiti, blástur,
glóðarsteiking með og án blásturs. Rafeindaklukka,
létthreinsikerfi, sökkhnappar. Gæði hvert sem litið er.
Og verðið er einstakt. Tilboðsverð kr. 49.900 stgr.
Ryksuga
Fjölhæf Bosch hrærivél sem gegnir dyggu hlutverki á mörg
þúsund íslenskum heimilum. Líklega mest selda hrærivélin
á (slandi undanfarin ár. Blandari, hakkavél og grænmetis-
kvörn fylgja með. Og verðið slær enginn út.
Tilboðsverð kr. 17.900 stgr.
Uppþvottavél
Létt og lipur Siemens ryksuga sem auðveldar þér að halda
híbýlunum hreinum. 1200 W, sjálfinndregin snúra, fylgihlutir
geymdir I vél, hleðsluljós. Og þær gerast vart ódýrari.
Tilboðsverð kr. 12.900 stgr.
Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru:
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs ■ Borgarnes: Glitnir ■ Borgarfjörður: Rafstofan
Hvítárskála • Hellissandun Blómsturvellir • Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson
Stykkishólmur. Skipavík Búðardalur. Ásubúð • Isafjöröur. Póllinn • Hvammstangi:
Skjanni • Sauðárkrókur: Rafsjá • Siglufjörður: Torgið • Akureyri: Ljósgjafinn •
Húsavík: öryggi • Þórshöfn: Norðurraf Neskaupstaður: Rafalda Reyðarfjörður:
Rafvélaverkst. Árna E. Egilsstaðir: Sveinn Guðmundsson Breiðdalsvík: Stefán N.
Stefánsson • Höfn í Hornafirði: Kristall • N/estmannaeyjar. Tréverk • Hvolsvöliur.
Kaupfélag Rangæinga • Selfoss: Árvirkinn • Garðun Raftækjav. Sig. Ingvarss. •
Keflavik: Ljósboginn Hafnarfjörður: Rafbúð Skúla, Álfaskeiði
Viljirðu endirrgu oggæði-
Velvirk, sparneytin og hljóðlát Siemens uppþvottavél.
Tekur borðbúnað fyrir 12 manns.
Og Kttu á verðið.
Tilboðsverð kr. 59.900 stgr.