Morgunblaðið - 04.12.1994, Síða 22
22 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
RUNÓLFUR GÍSLASON, forstöðumaður verndaðs vinnustaðar í Vestmannaeyjum.
KERTALJOS
í TILVERUNNI
vœaamarviHNuiiF
ÁSUNNUDEGI
►RUNÓLFUR Gíslason, betur þekktur í Eyjum sem Runi á
Hvanneyri, er fæddur í Vestmannaeyjum 1950. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá bóknámsdeild Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja
1967. Runólfur starfaði lengi í Fiskimjölsverksmiðju Einars Sig-
urðssonar, meðal annars sem löggiltur vigtarmaður. Hann var
ráðinn starfsleiðbeinandi hjá kertaverksmiðjunni Heimaey, sem
er verndaður vinnustaður í Vestmannaeyjum, í september 1991
og skipaður forstöðumaður í júní 1993.
eftir Guðna Einorsson
að var jólalegt um að litast
í kertaverksmiðjunni
Heimaey í Vestmanna-
eyjum þegar blaðamaður
og Ijósmyndari komu þar í heimsókn
í nóvember. Verið var að steypa
knallrauð jólakerti og pakka inn
hvítum kubbakertum. í loftinu lá
hlýr vaxilmur og kertasteypuvélin
másaði og púaði meðan hverri
kertasyrpunni af annarri var difíð
í bráðið vaxið. Runólfur Gíslason
forstöðumaður leiddi okkur um sali
kertaverksmiðjunnar og fræddi um
hvernig jólaljósin verða til.
Verndaður vinnustaður
í haust voru tíu ár frá því að
starfsemi hófst í kertaverksmiðj-
unni Heimaey. Nokkru lengra er
þó liðið frá því að undirbúningur
hófst að stofnun verndaðs vinnu-
staðar í Vestmannaeyjum. Vernd-
aður vinnustaður merkir að þar er
sköpuð starfsaðstaða fyrir þá sem
vegna skertrar starfsgetu eiga
óhægt með að stunda vinnu á al-
mennum vinnumarkaði. Fyrsti
fundur stjórnar verndaða vinnu-
staðarins í Eyjum var haldinn 3.
maí 1981. Hafíst var handa við
húsbyggingu og leit hófst að hent-
ugri starfsemi ti! að hafa í húsinu.
Ýmislegt var athugað, svo sem
sælgætisframleiðsla og saumaskap-
ur. Eftir talsverða yfírvegun var
var tekin ákvörðun um að setja upp
kertaverksmiðju og var Bjarni Jón-
asson ráðinn framkvæmdastjóri.
Tæki voru keypt notuð frá Dan-
mörku og hófst kertaframleiðslan
6. september 1984.
Fljótlega komst sú skipan á að
skipta vinnudeginum í tvær fjög-
urra tíma vaktir og gildir hún enn
í dag. Laun hinna fötluðu nema 80%
af tímakaupi verkafólks. Stjómend-
ur þiggja laun eftir launakerfi opin-
berra starfsmanna. Nú vinnur 21
starfsmaður á vinnustaðnum, þar
af eru 17 með skerta starfsgetu.
Forstöðumaður og einn starfsleið-
beinandi eru í fullu starfí, auk þess
eru starfsleiðbeinandi og meðferð-
arfulltrúi í hálfu starfí hvor.
Að sögn Runólfs fá flestir vinnu
hjá Heimaey sem eftir henni leita
og eru 75% öryrkjar. Nú er fremur
yfirmannað en þrír starfsmenn
hætta um áramót vegna aldurs.
Verndaði vinnustaðurinn í Eyjum
laut fyrstu árin stjórn heimamanna
en þegar lögum um málefni fatl-
aðra var breytt 1992 féll hann und-
ir Svæðisskrifstofu um málefni fatl-
aðra á Suðurlandi sem er staðsett
á Selfossi. Svæðisstjóri er Eggert
Jóhannesson. Við þessa tilfærslu
urðu nokkrar breytingar á starfí
forstöðumanns kertaverksmiðjunn-
ar að sögn Runólfs. Auk daglegrar
stjórnunar annast hann gerð launa-
skýrslna og forvinnu bókhalds sem
síðan er fært hjá Ríkisbókhaldi.
Stuðningxir og samkeppni
Verndaði vinnustaðurinn í Vest-
mannaeyjum er í eigu hins opinbera
og stjórnendur eru ríkisstarfsmenn.
Runólfur segir að ríkissjóður greiði
laun stjórnenda og að auki 1400
þúsund krónur á ári upp í launa-
kostnað annarra starfsmanna. Til
samanburðar má geta þess að í
október voru útborguð laun al-
mennra starfsmanna hjá Heimaey
462 þúsund krónur.
Runólfur segir að þótt vinnustað-
urinn njóti stuðnings hins opinbera,
þá lifí hann fyrst og fremst af kerta-
framleiðslunni. „Við erum í bullandi
samkeppni við innflutning,“ segir
Runólfur. „Mér finnst vanta á að
fólk hafí það hugarfar að velja held-
ur íslenskt, - ekki síst þegar um
er að ræða vöru frá vernduðum
vinnustað. Með því eru fatlaðir
studdir til sjálfsbjargar. Það væri
ósköp einfalt að segja öllum upp
og fara að flytja inn kerti, eins og
hinir kertasalarnir. En þá gleymd-
um við þeim sem hér fá vinnu.“
Runólfur segir að hráefnið og
vinnulaun séu stærstu kostnaðarlið-
irnir. Ársvelta fyrirtækisins hefur
verið nokkuð rokkandi undanfarin
ár og hefur það einkum ráðist af
þeim verkefnum sem vinnustaður-
inn hefur fengið í viðbót við kerta-
gerðina. Árið 1991 var veltan til
dæmis 12 milljónir en 8 í fyrra.
Þrátt fyrir stuðning hins opinbera
segir Runólfur erfitt að láta enda
ná saman í rekstrinum.
Yfir 100 vöruflokkar
. Að sögn Runólfs er Heimaey eina
innlenda kertaverksmiðjan sem
eitthvað kveður að um þessar
mundir. Heimaey framleiðir yfir
100 vöruflokka, bæði dýfð kerti og
steypt. Árlega eru notuð til fram-
leiðslunnar um 50 tonn af parafíni
og um 15 tonn af ódýrara efni sem
fer í útikerti. Árssalan hefur aftur
á móti verið um og yfir 40 tonn
af kertum.
í dýfðu kertunum er um þtjár
mismunandi lengdir að ræða, svo-
nefnd hátíðar-, veislu- og kvöld-
kerti. „Kvöldkertin hétu áður að-
ventukerti, en við breyttum nafn-
inu, því fólk hélt að það væri ekki
hægt að kveikja á þeim nema á
aðventunni," segir Runólfur.
Kubbakertin eru steypt í fjórum
lengdum. Þá eru framleidd útikerti,
jólasveinakerti, lampakerti og frið-
arkyndlar. Kertin eru framleidd í
alls 15 staðallitum og segir Runólf-
ur að vinsældir litanna séu talsvert
árstíðabundnar. Nú á haustmánuð-
um er áherslan lögð á að framleiða
jólalitina, hvítt og rautt, enda
reynsla fengin af því að þau kerti
njóta mestra vinsælda um hátíðirn-
ar. Á aðventunni vill fólk einnig fá
fjólublá kerti og fyrir páskana selj-
ast þau gulu. Runólfur segir yngra
fólk sýna meiri dirfsku í litavalinu
en það eldra og nefnir því til sönn-
unar vaxandi sölu í nýjustu litunum,
dökkbláum og dökkgrænum.
Útikertin vinsæl
Mikil aukning hefur verið á sölu
útikerta. í fyrra seldust um 24
þúsund útikerti og er gert ráð fyrir
að um 30 þúsund seljist nú. Heima-
ey hefur framleitt friðarkerti fyrir
Hjálparstofnun kirkjunnar og pant-
anirnar hafa stækkað ár frá ári.
Runólfur lýsti sérstakri ánægju
sinni með samstarfið við Hjálpar-
stofnun og sagði það á allan hátt
hafa verið lyftistöng fyrir verndaða
vinnustaðinn. Pantanir hafa borist
með góðum fyrirvara og því hægt
að framleiða friðarkertin utan
mesta annatímans. „Við höfum lagt
metnað okkar í að hafa þetta góð
kerti," segir Runólfur. „Útikertin
og friðarkertin eru steypt úr vaxi
sem við flytjum sérstaklega inn til
að nota í útikerti. Friðarkertin eru
steypt í blikkdósir sem Hjálpar-
stofnun leggur okkur til. Við fáum
einnig frá þeim merkimiða, sem
límdir em á dósirnar."
Jólasveinakerti hafa verið steypt
og handmáluð hjá Heimaey. Nú er
verið að þróa minjagripi úr kerta-
vaxi sem tengjast Vestmannaeyj-
um. Runólfur dró upp frumgerð af
glæsilegu lundakerti sem vafalaust
verður bæði vinsælt hjá ferðamönn-
um og í úteyjakofum. Reiknað er
með að framleiðsla hefjist fyrir
næstu ferðamannavertíð. Þessi nýj-
ung gæti orðið til að örva kertasöl-
una á þeim árstíma sem fæstum
dettur í hug að tendra kertaljós.
Fjöldi vöruflokkanna gerir að
verkum að lagerhald er mikið.
Vörugeymslan verður of lítil þegar
dregur að jólum og til dæmis fylltu
útikertin 40 feta vörugám fyrir
utan verksmiðjuna.
Loga lengi
Heimaeyjarkertin hafa verið
auglýst undir slagorðinu Loga lengi
- leka ekki. Runólfur segir að þetta
sé ekki innantómur söluáróður
heldur hafi brennslutími kertanna
verið kannaður sérstaklega. Nú er
settur merkimiði á pokana þar sem
vakin er athygli á þessu. Runólfur
tekur dæmi af innfluttri kertateg-
und sem er svipuð hátíðarkertum
Heimaeyjar. Hann segir að inn-
fluttu kertin hafi logað í 9 tíma en
Heimaeyjarkertin gert gott betur
og logað í 12 tíma. „Við erum
reyndar aðeins dýrari en innflutn-
ingurinn, en kertin okkar loga líka
lengur,“ segir Runólfur.
Vaxandi sala
Eins og vænta má er skammdeg-
ið og jólin aðalsölutími kerta. Run-
ólfur telur að Heimaey hafi milli
10% og 15% af kertasölu hér á
landi. Hann segir að yfir 80% árs-
sölunnar fari fram í október og
nóvember. Þegar líður á desember
dregur úr sölunni því þá eru versl-
anirnar að mestu búnar að birgja
sig upp af kertum.
Hans Petersen hf. tók við sölu
og dreifíngu Heimaeyjarkertanna
um síðustu páska. Að sögn Runólfs
hefur höfuðborgarsvæðið verið aðal
markaður kertanna, en unnið hefur
verið að því að auka dreifinguna
út urh landið. Hann er ánægður
með þetta samstarf og telur söluna
vera talsvert að aukast. Þannig var
salan í nýliðnum október helmingi
meiri en í sama mánuði í fyrra.
„Mér sýnist stefna í það sama með
nóvember," segir Runólfur. „Við
höfum gert betur en að halda okk-
ar hlut á markaðinum."
Þótt Vestmannaeyjar séu fjarri
aðal markaðssvæðinu og um sjóveg
að fara segir Runólfur afgreiðslu
kertanna til umboðsaðilans í
Reykjavík mjög greiða. „Okkur eru
sendar pantanir í símbréfi. Pantan-
irnar eru teknar til samdægurs og
settar í vöruflutningabíl sem fer
með Heijólfi daginn eftir. Varan
er því komin til dreifingaraðilans í
Reykjavík síðdegis daginn eftir að
hún er pöntuð."
Um tíma voru Heimaeyjarkerti
framleidd fyrir Svíþjóðarmarkað.
Meðal annars voru þau seld þar til
sænsku hirðarinnar og þóttu sóma
sér vel í konungsranni. Runólfur seg-
ir að sænski kaupandinn hafí pantað
kertin í sérblönduðum litum en pant-
animar ekki reynst nógu stórar.
Mikil rýmun varð á hráefninu og
þessi framleiðsla borgaði sig ekki.
Sjóveiki og skreiðarpokar
Árstíðasveiflur em í kertasölunni
og því er tekið fegins hendi öðrum
verkefnum til að nýta aðstöðu og
vinnuafl hjá Heimaey. Nú hefur
verndaði vinnustaðurinn fengið það
verkefni að hefta saman öskjur úr
vaxbornum pappa fyrir Heijólf.
Þessar kirnur þekkja sjóveikir far-
þegar Heijólfs af illri reynslu og
vildu ábyggilega fæstir neitt af
þeim vita. Runólfur sér þó aðeins
jákvæðar hliðar á þessu máli og
segir að nú geti farþegar Hetjólfs
orðið sjóveikir með góðri samvisku,
því hver dallur efli starfsemina og
styrki gott málefni!
Runólfur segir ýmis önnur verk-
efni til skoðunar. Þannig hafa verið
gerðar tilraunir með körfugerð og
segir Runólfur líklegt að sú fram-
leiðsla eigi eftir að verða fastur lið-
ur í starfseminni.
Yerndaði vinnustaðurinn hefur
einnig fengið það verkefni að
sauma strigapoka undir skreiðar-
hausa. Vinnnslustöðin hf. í Eyjum
hefur keypt allt að fjögur þúsund
skreiðarpoka á ári. Þegar mest hef-
ur verið að gera í skreiðarpokunum
vinna tveir starfsmenn á hvorri
vakt við saumaskapinn. Þessi fram-
leiðsla er þó sveiflukennd og fer
eftir markaðsaðstæðum á skreiðar-
mörkuðum hveiju sinni.
I
I
\
)
I
\
\
\
í
í
I
>
í
!
I
!