Morgunblaðið - 04.12.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.12.1994, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ÞÓRÐUR RAGNARSSON + Þórður Ragn- arsson fæddist í Reykjavík 24. nóvember 1936. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík hinn 21. nóvember síðastliðinn. For- eldrar Þórðar voru hjónin Margrét Þorvarðardóttir og Ragnar Þórðarson sem lengi var stýri- maður á togurun- um Röðli og síðar starfsmaður í Áburðarverk- smiðju ríkisins. Þau eru bæði látin. Þórður var elstur tjög- urra systkina. Næstelst er Jó- hanna, sjúkraliði, þá Ragnar Þorsteinn, tölfræðingur, og yngstur Birgir, skipatækni- fræðingur. Þórður kvæntist Inge Jensen frá Álaborg í Dan- mörku og eignuðust þau þrjú börn, Ragnar, Evu og Þorstein. Þau búa nú í Álaborg. Þórður og Inge slitu samvistum. Þórð- ur kvæntist síðar Guðrúnu Jensdóttur. Þau slitu samvist- um eftir stutta sambúð. Þriðja eiginkona Þórðar var Sigríður Tryggvadóttir. Þau slitum samvistum. Utför Þórðar fer fram frá Fossvogskapellu á morgun. ÞEGAR hringt var í mig og mér tjáð að vinur minn Þórður Ragn- arsson væri látinn var mér brugð- ið. Ekki voru liðnir nema nokkrir dagar frá því Þórður hringdi í mig og við töluðum saman um heima og geima. Hann sagði mér meðal annars að hann væri að hugsa um að flytja til Danmerk- ur til að geta verið nær bömunum sínum þrem sem öll búa í Álaborg. En svona er lífið. Enginn ræður sínum næturstað. Þórður lærði vél- smíði hjá vélsmiðjunni Meitli en eigendur hennar vora þeir Bjöm Magnússon og Theó- dór Guðmundsson, báðir miklir völundar. Verkstæði þetta sér- hæfði sig í viðgerðum og flutningum á prentvélum. Eftir að Þórður lauk námi vann hann áfram hjá Meitli um nokkurt skeið. Hann rómaði mjög yfirmenn sína, taldi sig hafa lært mikið af þeim og menntunin nýst sér vel þegar út í lífið kom. Þórður vildi læra meira, fór í Vél- skóla íslands og útskrifaðist þaðan með góðum vitnisburði enda var hann góður námsmaður. Eftir námið í Vélskólanum réðst Þórður sem vélstjóri til Eimskip- afélags íslands og fleiri skipafé- laga. Eftir að hafa verið nokkur ár á sjónum kom Þórður í land og fór þá að vinna í Álverinu í Straumsvík. Einnig vann hann í Stálsmiðjunni. Síðasta starf hans var við afleysingar í Álverinu. Þórður var hörkuduglegur til vinnu, hafði gott verksvit og var vandvirkur. Á yngri árum stundaði Þórður íþróttir í Knattspymufélaginu Vík- ingi, bæði knattspyrnu og meira þó handbolta. í handboltanum var hann markvörður. Þórður var einn- ig góður skákmaður þótt hann flík- aði því lítt, en ég er viss um að i-jnu LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 —■ sími 871960 -----------------r----------------------\ Opið hús - Háaleitisbraut 111, Rvík Snyrtileg 122 fm íbúð á 4. hæð fyrir miðju ásamt 25 fm bílskúr. Bjart- ar stofur með góðum suðursvölum. Mikið útsýni til norðurs og suðurs. íbúðin er öll í góðu standi. Húsið nýmálað að utan. Verð 9,2 millj. Möguleg skipti á stærri eign í sama hverfi. Eignin verður til sýnis í dag kl. 14-17. Gunnar og Hrund sýna. V___________ÞINGHOLT - 680666_____________J LAUFÁS FASTEIGNASALA SlÐUMÚLA 17 Skipti mö( Sogavegur nýtt á skrá Hlýlegt og mikið endurnýjað einbýlishús, hæð og ris, ásamt stórum bílskúr. 3 svefn- herbergi, stór stofa (setustofa og borð- stofa), eldhús, bað, þvottahús og geymsla. Mjög stór og vel gróin lóð með verönd. juleg á góðri 3ja-4ra herbergja séríbúð. LAUE\S FASTEIGNASALA SÍÐUMÚLA 17 =812744 ^ ' F»x: 814419 ^ legt hús á í húsinu er um bílskú bært útsý Stærri íbi holi, eldhú in eru 2 s\ baði, eldh Þetta er e það besta Ártúnsholt Einstakt tækifæri - 2ja íbúða hús Vorum að fá í sölu óvenju vandað og glæsi- allra besta stað í Ártúnsholti. u 2 íbúðir: Önnur er ca 230 fm með innbyggð- r, hin er ca 120 fm með sérinngangi. Frá- ni vestur yfir borgina úr báðum íbúðunum. iðin er með 5 svefnherbergjum, 2 stofum, si, baði, þvottahúsi og geymslum. Minni íbúð- /efnherbergi (geta verið 3), 2 stórum stofum, úsi, þvottahúsi og geymslu. gn fyrir fjársterkan kaupanda sem vill aðeins . Eignaskipti möguleg. MINNINGAR hann hefði getað náð langt í skák- íþróttinni ef hann hefði stundað hana meira. Mannganginn lærði hann af mömmu sinni sem var lið- tæk skákkona enda oft teflt á heimilinu. Við Þórður kynntumst vel þegar hann og Inge leigðu hjá okkur íbúð í Litlagerði 6. Við þekktumst þó fyrir því að Þórður var bróðursonur konu minnar. Með okkur tókst vin- átta sem aldrei brást. Við þökkum Þórði samfylgdina, en eftir lifir minningin um góðan dreng. Ég og fj'ölskylda mín sendum börnum Þórðar, systkinum hans og öðrum ættingjum innilegustu samúðarkveðjur okkar. Megi sá er öllu ræður milda sorg þeirra. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Guðmundur L. Þ. Guðmundsson. Kveðja til Þórðar Ragnarssonar Hann Daddi mágur minn er dáinn. Ó, hve maðurinn með ljáinn kemur manni alltaf í opna skjöldu. Það er svo ótrúlega stutt bilið milli lífs og dauða en samt er maður aldrei undir dauðann búinn. Þó vitum við svo vel að það er eðli alls lífs að deyja að lokum. Daddi minn. Jólin verða svolítið öðru vísi núna þegar þú ert farinn. Engar stríðnislegar athugasemdir og hlátur yfir taflinu innan úr stofu. Það verður hálf tómlegt við matarborðið. Þú varst jafn sjálf- sagður hluti jóladagsins og hangi- kjötið á diskunum. Þegar dauðinn heggur svona nálægt manni minnir það mann óþyrmilega á að taka engu sem sjálfsögðum hlut. Lífið er ekkert sjálfsagt og þaðan af síður ham- ingjan. Það verður að hlúa að lífinu sem manni er gefið, taka skrefin af varkárni, vanda sig að lifa. Þá er möguleiki að maður öðlist svo- litla hamingju. Kæri Daddi. Nú heldur þú þín jól með æðri verum þar sem þján- ing og áhyggjur eru ekki til. Ég veit að þar fínnur sál þín hamingju og frið. Ég veit, minn ljúfur lifir lausnarinn himnum á, hann ræður öllu yfír, einn heitir Jesús sá, sigrarinn dauðans sanni sjálfur á krossi dó og mér svo aumum manni eilíft líf víst til bjó. (H.P.) Nú kveð ég þig Daddi minn. Guð veri með þér á eilífðarbraut- um. Ég votta þeim samúð sem syrgja. Júlía Hannam. -U Óli Kristinn * Jónsson, verka- maður, var fæddur á Vopnafirði 26. júní 1908. Hann lést á Vistheimilinu Seljahlíð hinn 25. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar Óla voru Jón Ingfvar Jónsson frá Vatns- leysuströnd og kona hans Þórunn Jóhanna Óladóttir frá Reyðarfirði. Óli var annar í röð fímm systkina. Hin voru: Guðjón, f. 1907, lést á fyrsta ári, Ingibjörg, f. 1909, Þórhallur Ingvar, f. 1910, d. 1992, og Helga Jónína, f. 1913, d. 1988. Óli Kristinn kvæntist 1947 Öldu Jónsdóttur og eign- uðust þau eina dóttur, Hrafn- hildi Kristínu, f. 1. október 1947. Hún er gift Vilmundi Þór Gíslasyni og eiga þau þijú börn, Laufeyju, f. 1968, Óla Kristin, f. 1973, og Sævar Þór, f. 1975. Laufey er í sambúð með Hermanni Hinrikssyni og eiga þau tvö börn, Hinrik Nik- ulás, f. 1993, og Öldu Guð- rúnu, f. 1994. Óli og Alda slitu samvistir. Óli var í sambúð með Ingibjörgu Ingimundar- dóttur, f. 10. janúar 1918, d. 3. október 1994. Útför Óla Kristins fer fram frá Foss- vogskirkju á morgun. MEÐ ÖRFÁUM orðum langar mig að minnast föður míns, Óla Krist- ins Jónssonar. Pabbi var alltaf góður faðir og traustur vinur. Hann studdi okkur hjón alla tíð og var góður afí og hvers manns hugljúfí. Alltaf gat ég leitað til pabba þegar á bjátaði. Ég minnist jóla í bemsku, allir vinir mínir og ættingjar þurftu að fá pakka á jólum. Alveg var sama þó ég væri í vondu skapi og óstýri- -lát, aldrei skipti pabbi skapi og hafði einstakt lag á að fá mig til að vera káta. Ég þakka pabba farinn veg með þessum ljóðlínum: Vertu, Guð faðir, faðir minn í frelsarans, Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. Hönd þín, Drottinn, hlífí mér, þá heims ég aðstoð missi, en nær sem þú mig hirtir hér, hönd þína' ég glaður kyssi. (H.P.) Hrafnhildur Kristín. Nú verður elsku- legur afi okkar borinn til grafar á morgun. Það verður erfitt að fá aldrei að sjá hann aftur, en við eigum góðar minningar um hann og við munum aldrei gleyma honum. Hann var góður afí og kom til okkar um helgar þegar við vor- um lítil eða að við fórum til hans. Um helgar átti ég oft góð- ar stundir með afa á Ásvallagötunni og reyndi sem oftast að vera hjá hon- um. Hann vann í Bæjarútgerðinni í Reykjavík við Meistaravelli í 30 ár og hann var dugmikill til vinnu. Hann hefur eflaust kennt mörgum handtökin við fískinn, hvort sem var að fletja, salta eða annað. Afí bjó með Ingibjörgu Ingi- mundardóttur sem ég kallaði alltaf Imbu ömmu. Hún lést í byijun október sl. og seinustu árin reyndi hann að annast hana í veikindum hennar, þótt hann væri orðinn hálfblindur sjálfur. Þegar Imba amma komst inn dvalarheimilið á Blesastöðum fluttist afí í Seljahlíð. Amma var orðin það veik að hann gat ekki lengur annast hana. Hann spurði samt um hana og reyndi að heimsækja hana þegar heilsa hans leyfði. Þegar Hinrik Nikulás, bama- barnabarnið hans, fæddist gladdi það hann mikið og ári seinna fæddist Alda Guðrún. Þau voru hans sólargeislar síðustu árin. Við eigum eftir að sakna hans afa mjög mikið en við vitum að honum líður vel og er laus við all- ar þjáningar. Núna er hann kom- inn á góðan stað þar sem honum hefur verið tekið opnum örmum. Elsku afí, við systkinin viljum þakka þér allar góðu stundirnar og það að hafa verið afi okkar. Við vitum að þú munt alltaf vera meðal okkar. Að lokum viljum við þakka starfsfólki Seljahlíðar fyrir frá- bæra umönnun. Blessuð sé minning þín. Barnabörnin Laufey, Óli Kristinn og Sævar Þór. Úti er þetta ævintýr. Yfir skuggum kvöidið býr. Vorsins glóð á dagsins vönpm dvin. Þögnin verður þung og löng þeim, sem unnu glöðum söng og trúað hafa sumarlangt á sól og vín. OLIKRISTINN JÓNSSON pVerð áður kr«. 39:900 stpr. c- q r.» SamsungSF-40 <y filvalið faxtæki vj o fyrir Ijaimili og o fyyiríækiA ^ q 0 Fullkominn ^ % fúxskynjarj oéb 0 „ 0 Vorð #ur kív 56.90p.stgr Samsung SF+2250 .. fullk&miöríaxtaeki .1 Q hlaöi^ eiginleiki/m-i csqm nýtast ]/el.Q ti ^ í 9 9 ZH C’Jj 5* □ t> j o 'pvsvmwniiDpo Kr. asös 1> a n 1> fl f1 ö ^ o Dytcom 398S D Sími með neon Ijósi. ,2 Ejósið logar stöðtígt o p ,eða blikkar þfgai j o í+. i~. stmmn hrmgir.. Kj , Kj . ... ttj r G tt"~s ^ Q * 'v i* ^ 4 ''2' 1 'J H 9 G 1 Ö 9 oVerð'áður kr. 4.090,stgr. 0 3 0 SíjéfmkepY % c ftlMeisfið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.