Morgunblaðið - 04.12.1994, Síða 35

Morgunblaðið - 04.12.1994, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994 35 FRÉTTIR Námí fjöl- skyldu- meðferð ENDURMENNTUNARSTOFNUN Háskóla Íslands og ráðgjafar- og fræðsluþjónustan Tengsl sf. standa í sameiningu að tveggja ára námi í fjölskyldumeðferð sem hefst í jan- úar á næsta ári. Námið er skipulagt í samstarfi við Institut för Familjeterapi í Gautaborg og er ætlað fagfólki í félagsmála- og heilbrigðisþjónustu. Miðað er við að fólk geti stundað það samhliða starfi. Kenndar verða 420 klst. á tveimur árum og verður tekið mið af aðstæðum, menningu og sérstöðu íslensku fjölskyldunnar. Með verkefnavinnu samsvarar námsvinnan 18 eininga námi á há- skólastigi. Skilyrði fyrir þátttöku er a.m.k. þriggja ára grunnnám í meðferðarfræðum, þriggja til fimm ára reynsla á sviði meðferðarstarfa, möguleikar til að vinna með fjöl- skyldur í daglegu starfi, samþykki yfirmanns til að nota efnivið úr starfi við námið og samþykki til að stunda námið að hluta í vinnutíma. Aðalkennarar eru Nanna K. Sig- urðardóttir MSW og fil. dr. Sigrún Júlíusdóttir frá Tengslum sf., viður- kenndum meðferðaraðilum á sviði fjölskyldumeðferðar. Gestakennar- ar verða Kristín Gústavsdóttir og Karl Gustaf Piltz frá Institut för Familjeterapi í Gautaborg. Hvert misseri kostar 65.000 kr. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Endur- menntunarstofnunar. ----» ♦ --- Háskóla- fyrirlestur ERIK Skyum-Nielsen, lektor í dönsku í heimspekideild Háskóla íslands, flytur opinberan fyrirlestur á vegum deildarinnar miðvikudag- inn 7. desember kl. 17.15 í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn nefnist „Novellen som genre i Danmark i dag“. Þar er því lýst í megindráttum hvernig smásögur og aðrar stuttar frásagn- ir hafa þróast í Danmörku frá því um 1980. Litið verður á efnið frá sjónarhóli bókmenntasögu og kenn- inga um bókmenntategundir. Dreift verður bókaskrá ásamt textadæm- um. Erik Skyum-Nielsen (f. 1952) er agister í dönsku frá Kaupmanna- hafnarháskóla 1974 og var danskur 1978. Hann hefur nú aftur starfað sem danskur lektor við háskólann þetta misseri en er senn á förum. Erik Skyum-Nielsen er þekktur bókmenntagagnrýnandi í Dan- mörku og hefur unnið mikið starf við að þýða og kynna íslenskar bókmenntir þar í landi. Hann hefur einnig kennt við Kaupmannahafn- arháskóla og birt rannsóknir á dönskum nútímabókmenntum. Fyrirlesturinn verður fluttur á dönsku og er öllum opinn. SAMmí samwá Athugið að Sambíólínan hefur fengið nýtt símanúmer 99619599 Takið þátt í fjölskylduleik á Sambíólínunni 99519699 þar sem 10 heppnum fjölskyldum verður boðið út að borða á stórglæsilegt jólahlaðborð hjá Pottinum og pönnunni, veitingahúsi fjölskyldunnar, í Brautarholti 22. Sýnd í Sagabíó kl. 2,30,4.40, 6.5Ó', 9 og 11.15 Bíóborg kl. 2.30, 4.40, 6.50, 9 og 11.15 Borgarbíó, Akureyri kl. 3 og 9.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.