Morgunblaðið - 04.12.1994, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994 45
ImÍASK
Komdu og sjáðu THE MASK,
skemmti legustu, stórkost-
legustu, sjúkleg-
ustu, brjáluðustu, bestu,
brengluðustu, fyndnustu, fárán-
legustu, ferskustu, mergjuðustu,
mögnuðustu og eina mestu
stórmynd allra tíma!
★ ★★ Ó.T. Rás 2
★ ★★ G.S.E. Morgun
pósturinn
★★★ D.V. H.K
Nú hafa 31
manns séð
GRÍMUNA.
Hún ,er 'óstöðvandi
og sumir koma
aftur og aftur
aftur og...
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
í hinni Nýju martröð hefur Wes Craven misst stjórn á öllu. Sköpunargleði hans og
hugarflug úr myndum Freddy Krueger hefur öðlast sjálfstætt líf og leikarar Álmstrætis
myndanna verða fyrir svæsnustu ofsóknum.
(Frá sömu aðilum og gerðu „Nightmare on Elmstreet 1.")
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð börnum yngri en 16 ára.
S • I • R • E • N • S
Skemmtileg erótísk gamanmynd með Hugh Grant úr
„Fjögur brúðkaup og jarðarför."
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 12 ára.
Nýtt í kvikmyndahúsunum
Heimsfrumsýning í Regnboganum
REGNBOGINN frumsýnir í
dag, sunnudag, bandarísku
gamanmyndina Trapped in
Paradise með Nicolas Cage,
Jon Lovitz og Dana Carvey í
aðalhlutverkum, og er þetta
heimsfrumsýning á myndinni
sem tekin verður til sýninga
í Bandaríkjunum innan
skamms. Myndin fjallar um
þijá bræður, smákrimma frá
New York, sem eyða jólafríinu
sínu í smábænum Paradís.
Örlæti og velvilji bæjarbúa er
hins vegar að gera út af við
þá bræður og reyna þeir allt
hvað þeir geta til að koma sér
á brott úr bænum.
Kvikmynd-
in Rall sýnd
í bíósal MÍR
KVIKMYNDIN Rall verður
sýnd í dag 4. desember kl.
16 í bíósal MÍR, Vatnsstíg
10. Þetta er mynd frá átt-
unda áratugnum, gerð í
Lettlandi undir stjórn Aloiz
Brents.
í kvikmyndinni segir frá
því hvernig alþjóðlegir lista-
verkabraskarar og þjófar
leita allra ráða til að komast
yfir dýrmæt listaverk og
smygla þeim milli landa og
reyna m.a. að smygla verk-
unum með rallbílum sem
taka þátt í aksturskeppni
milli Moskvu og Berlínar
með viðkomu í Varsjá.
Meðal leikenda eru Vi-
tautas Tomkus, Roland Zeg-
orskis og Valentina Titova.
íslenskur texti. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimill.
Tónleikar á
Tveimur
vinum
KEFLVÍSKU rokksveitirnar
Kolrassa krókríðandi og
Texas Jesús halda tónleika
sunnudaginn 4. desember á
Tveimur vinum við Frakka-
stíg. Tónleikarnir hefjast upp
úr kl. 22 og er aðgangur
ókeypis.
Tom Arnold
og Julie
Champnella.
Arnold
kvænist
aftur
►LEIKARINN Tom Arn-
old, 35 ára, og unnusta
hans undanfarna fjóra
mánuði, Julie Champn-
ella, 21 árs, nemi við East-
ern Michigan-háskólann,
hafa ákveðið að gifta sig
22. júlí á næsta ári. Þetta
verður fyrsta hjónaband
Julie, en annað hjónaband
Arnolds. Skilnaður hans
við leikkonuna Roseanne
gengur í gildi 9. desember
næstkomandi.
fRtffglUlMafeffr
- kjarni málsins!
SIMI 19000
Frumsýning í dag
^vcofas
CAGE
Jon
LOVITZ
Dana
CARVEY
¥> ak/ca|)r aeðttifJ
PARADIS
TRAPPED IN PARADISE
Splunkuný og sprenghlægileg grínmynd sem frumsýnd er samtímis í
Bandaríkjunum og á islandi. Myndin segir af þremur treggáfuðum bræðrum
sem álpast til að ræna banka í smábænum Paradís á jólunum og sannkölluðum
darraðardansi sem fylgir í kjölfarið.
Frábær mynd sem framkallar jólabrosið í hvelli!
Aðalhlutverk: Nicholas Cage (Red Rock West, Guarding Tess og It Could Happen To You),
Jon Lovitz (Loaded Weapon, Wayne's World, City Slickers 2) og Dana Carvey (Wayne's
World).
Sýnd kl. 3, 5, 7,9 og 11.
*★★★★ E.H., Morgunpósturinn.
★★★★ Ö.N. Tíminn.
★★★’/> Á.Þ., Dagsljós.
★★★V» A.l. Mbl.
★★★ Ó.T., Rás 2.
REYFARI
Quentin
Tarantino, höf-
undur og leik-
stjóri Pulp Fiction,
er vondi
strákurinn í
Hollywood sem
allir vilja þó eiga.
Pulp Fiction er
ótrúlega mögnuð
saga úr
undirheimum
Hoilywood.
Sýnd kl. 5,
7, 9 og 11.
B.i. 16 ára.
Undirleikarinn
Gagnrýnendur
hafa í hástert
lofað þessa
átakamiklu
mynd er segir af
frægri
söngkonu og
uppburðar-
litlum
undirleikara
hennar undir
þýsku hernámi í
Paris.
Sýnd kl. 5,
7, 9 og 11.
Allir heimsins morgnar Sýnd kl. 5. S V i k r á ð (RESERVOIR DOGS) Sýnd kl. 11. B.i. 16 ára.
Þrjúbíó 1 Fyrir alla
LILLI ER TYNDUR
Tæplega 15.000 manns á öllum
aldri hafa þegar fylgst með
ævintýrum Lilla. Meðmæli sem
engan svíkur.
„Bráðskemmtileg. bæði fyrir börn og full-
orðna og því tilvalin fjölskylduskemmtun."
G.B., DV.
„Hér er ekki spurt að raunsæi heldur grini og
glensi og enginn
skortur er á því." A.I. Mbl.
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Tommi og Jenni
íslenskt tal.
Sýnd kl. 3.
Verð 400 kr.
Prinsessan og durtarnir
fslenskt tal.
Sýnd kl. 3.
Verð 400 kr.
Teiknimyndasafnið
Sýnd kl. 3.
Verð 300 kr.