Morgunblaðið - 04.12.1994, Qupperneq 52
Verií tímanlega
flieð jólapóstinn
PÓSTUR OG SÍMI
MORGUNBLADID, KRINGLAN I 103 REYKJAVtK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Krabbameins-
deild Landspítala
Endurnýja
-þarf geisla-
meðferð-
artæki
FYRIRSÉÐ er að setja þurfí
krabbameinssjúklinga á biðlista ef
ekki verður keypt nýtt geislameð-
ferðartæki á krabbameinsdeild
Landspítala. Tvö tæki eru notuð á
deildinni til geislameðferðar, línu-
hraðall, sem keyptur var með að-
stoð Lions-hreyfingarinnar árið
1989, og kóbalttæki, sem keypt
/L.V-ar árið 1968. Kóbalthleðsla tæk-
isins hefur verið notuð í sex ár
en helmingunartími hennar er 5,2
ár. Ekki verður ráðist í að end-
urnýja hana einu sinni enn vegna
aldurs tækisins og ef kaup á nýju
tæki dragast verður notkun kób-
alttækisins hætt og sjúklingar
settir á biðlista.
Að sögn Þórarins Sveinssonar,
yfírlæknis á krabbameinsdeild
Landspítalans, yrði nýr línuhrað-
all, minni en sá sem fyrir er, keypt-
í stað kóbalttækisins. Nýja
tækið kostar að sögn Þórarins
milli 50 og 60 milljónir með þeim
aukabúnaði sem nauðsynlegur er.
Búið er að ganga frá útboðsgögn-
um vegna kaupa á tækinu í sam-
ráði við stjómendur og segir Þór-
arinn að nú sé aðeins beðið eftir
heimild til að fá að senda þau út
en það sé ekki hægt fyrr en fjár-
lagaheimild liggi fyrir.
Komið yfir æskiiegan
notkunartíma
Þórarinn segir að lengi hafi legið
fyrir að ráðast þurfí í kaupin nú
vegna þess að línuhraðall sá sem
fyrir er sé fullnýttur og kóbalttæk-
ið sé nú þegar komið fram yfir
æskilegan notkunartíma. Það stafi
þó engin hætta af notkun þess en
meðferðartími sjúklinga lengist.
Vegna þessa þurfi að ganga þann-
ig frá málum að hægt verði að
taka nýtt tæki í notkun á fyrri
hluta næsta árs.
Á kóbalttækinu og línuhraðlin-
um voru gefnir 15.600 geisla-
skammtar á síðasta ári, þar af um
20% á kóbalttækinu. Tæplega 400
sjúklingar komu í 6.753 skipti til
meðferðar en þeir sjúklingar sem
koma oftast til meðferðar koma
allt að 40 sinnum á ári.
íslandsbanki breytir vaxtaálagi í kjörvaxtaflokkum
GRÝLA
©Leendert
Jólaverslunin
að hefjast
ÞEIR horfa hugfangnir á jóla-
skreytingarnar í verslunar-
glugganum þessir ungu menn.
Jólin eru hátíð barnanna og fyrr
á tímum fengu börnin gjarnan
kerti og spil í jólagjöf. Langt er
um liðið frá því sá siður var við
lýði og nú er margt freistandi í
búðargluggunum, sem ungir
menn óska sér og skrifa langa
óskalista. Hvort þær óskir rætast
kemur svo í ljós eftir aðeins 20
daga.
Traustar ábyrgðir
og veð fá lægra álag
ÍSLANDSBANKI hefur gert
breytingar á vaxtaálagi í kjör-
vaxtaflokkum, þannig að álagið
lækkar á' lánum með fasteigna-
veði og traustum sjálfskuldar-
ábyrgðarlánum, en hækkar í
tveim flokkum lána þar sem
tryggingar eru ekki eins góðar.
Miðað við óbreytta samsetningu
lántaka hjá bankanum er ekki
gert ráð fyrir að þessi breyting
skili bankanum auknum tekjum,
en ef áhættusömum lánum fækkar
við þessa breytingu mun það leiða
af sér tekjulækkun fyrir bankann,
en jafnframt minni áhættu, að
sögn Sigurveigar Jónsdóttur,
blaðafulltrúa íslandsbanka.
Kjörvaxtaflokkar Islandsbanka
eru sex, þrír á lánum með fast-
eignaveði og þrír á lánum með
sjálfskuldarábyrgð. Kjörvaxtaálag
á lán með fasteignaveði í b- og
c-flokki lækkar um 0,25 prósentu-
stig og verður 2,50% og 3,25% til
viðbótar kjörvöxtum. Sama gildir
um a-flokk lána með sjálfsskuldar-
ábyrgð, kjörvaxtaálagið lækkar
úr 2,25% í 2%. Hins vegar hækkar
álag á lán með sjálfskuldarábyrgð
í b- og c-flokki. í fyrra tilfellinu
hækkar álagið um 0,25 prósentu-
stig, úr 3,75% í 4%, og í því síð-
ara um 0,50 prósentustig og verð-
ur 4,75% í stað 4,25%. Kjörvextir
óverðtryggðra lána eru 8% og
verðtryggðra lána 5,5%.
Meiri munur
Breytingarnar taka giidi nú um
mánaðamótin og taka einungis til
nýrra lána bankans, þar sem álag
á kjörvexti er fast í lánasamning-
um íslandsbanka. Segist bankinn
vera hinn eini hér á landi sem
býður viðskiptavinum sínum upp
á það. Sigurveig sagði að þessar
breytingar væru gerðar til að
hygla þeim viðskiptavinum sem
stæðu sig vel í viðskiptum og byðu
fram góðar tryggingar. Jafnframt
verði meiri munur á stuttum lánum
ætluðum til neyslu annars vegar
og fjárfestingarlánum til lengri
tíma hins vegar og sé það í takt
við þróunina almennt.
-----♦ » ♦------
Bensíngjaldshækkun
Skuldir
heimila
hækka um
110 millj.
SKULDIR heimilanna munu hækka
um 110 milljónir króna vegna bensín-
gjaldshækkunarinnar, sem kom til
framkvæmda í gær. Talið er að
hækkun bensíngjaldsins orsaki um
0,04% hækkun lánskjaravísitölu, en
skuldir heimilanna eru rúmlega 270
milljarðar króna.
Miðað við að meðalfjölskylda
skuldi 4,5 millj. kr. hækkar höfuð-
stóll lánsins um 1.800 krónur.
Talið er að framfærsluvísitalan
hækki um 0,12% vegna bensíngjalds-
hækkunarinnar. Ætla má að rekstur
meðalfjölskyldubíis hækki um rúm-
lega 2.000 krónur á ári, skv. upplýs-
ingum frá Hagstofu.
310-330 miiy. kr. í stað 200
milljóna upphaflega
Upphafleg áætlun um að hækka
bensíngjald í tveimur áföngum á
næsta ári, 1. janúar og 1. júlí, hefði,
að sögji Steingríms Ara Arasonar,
aðstoðarmanns fjármálaráðherra,
skilað um 200 milljónum króna til
átaksverkefnis í vegamálum næsta
ár. Hækkunin í gær ásamt hækkun
þungaskatts 1. janúar skilar hins
vegar 310-330 milljónum.
Að sögn Steingríms Ara var ráð-
gert í upphafi að fyrirhugaðar vega-
framkvæmdir fyrir 3,5 milljarða
dreifðust jafnt á fimm ára tímabil;
framkvæmt yrði fyrir 700 millj. á
ári. Jafnframt hefði verið gengið út
frá að helmingur kostnaðar yrði fjár-
magnaður með hærra bensíngjaldi
og þungaskatti, sem samtals skilaði
350 milljónum á ári þessi fímm ár.
inorgunuiauiu/ wu
Fulltrúar á ráðstefnu fiskvinnslufólks uggandi um atvlnnuöryggi í greininni
Áhersla á bætt
starfsöryggi
„ATVINNUÖRYGGIÐ er nánast
ekkert í fískvinnslunni. Það er
þetta óöryggi sem brennur heitast
á fiskvinnslufólki enda líður varla
sá dagur að eitthvert fyrirtæki
segi ekki upp kauptryggingar-
samningum," segir Karítas Páls-
dóttir, formaður fiskvinnsludeildar
Verkamannasambands íslands, en
80 manna ráðstefna fískvinnslu-
l'ólks lauk í gær.
Á ráðstefnunni fóru fram al-
mennar umræður og bar hæst
kröfur um að tryggt verði starfsör-
yggi fiskvinnslufólks og kom fram
að áhersla verður lögð á endur-
skoðun kauptryggingarsamninga
í næstu kjarasamningum.
Bjarnfreður Ármannsson úr
Hafnarfirði sagði núverandi fyrir-
komulag með öllu óviðunandi og
dæmi væru þess að atvinnurek-
andi vildi ekki fara á fiskmarkað
til að kaupa fisk því hann ætti
ekkert fé í buddunni og segði því
upp fastráðningarsamningum
starfsmanna sinna vegna hráefn-
isskorts. í máli þingfulltrúa kom
einnig fram áhersla á umtalsverð-
ar launahækkanir í næstu samn-
ingum og var nefnd helmings
hækkun lægstu launa í umræðun-
um.
Allt bendir til átaka
eftir áramót
Þórunn Kristinsdóttir frá
Grundarfirði sagði að fiskvinnslan
væri vanvirt starfsgrein og sú
staða væri að koma upp að ófag-
lært starfsfólk á íslandi yrði bóta-
þegar sem byggi í leiguíbúðum í
stað þess að sækja út á vinnu-
markaðinn sökum þess hve launin
væru lág.
Karítas sagði í samtali við
Morgunblaðið að meðal annarra
mála sem rætt yrði um væru hluta-
skiptasamningar fiskvinnslufólks
auk kröfunnar um launabreyting-
ar. Sagði hún að nú væri komið í
ljós að sumir hefðu rofið þjóðar-
sáttina frá 1990. „Það er eins og
við séum annars flokks fólk í þjóð-
félaginu á meðan verið er að gera
alla vega leyniskúffusamninga við
ýmsa aðila, sem ég kalla oft á tíð-
um sjálftökuliðið," sagði hún. Að-
spurð sagði Karítas allt benda til
þess að til átaka kæmi á vinnu-
markaði í vetur.
Öll hækkunin tekin út strax
„Síðan var tekin ákvörðun um að
flýta framkvæmdunum innan tíma-
bilsins, og er nú miðað við að á
næsta ári verði framkvæmt fyrir
1.250 milljónir, árið 1996 fyrir einn
milljarð, árið 1997 fyrir 750 milljón-
ir og fyrir 500 milljónir árið 1998.
í framhaldi af þessu þótti ekki stætt
á öðru en að taka því sem næst alla
hækkunina út strax frá fyrsta ári.
Þungaskattshækkunin er eftir en
möguleg heimild er fyrir allt að 4,5%
hækkun hans frá og með 1. janúar.
Að þeirri hækkun meðtalinni má
gera ráð fyrir að það náist inn
310-330 milljónir strax á næsta ári.
Við erum að tala um fjármögnun á
fimm árum vegna framkvæmda sem
verða í fjögur ár. Síðan stöndum við
frammi fyrir því að hallinn miðað
við forsendur fjárlagafrumvarpsins
að öðru óbreyttu vaxi um 900 millj-
ónir,“ sagði Steingrímur Ari.