Morgunblaðið - 15.12.1994, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994
SIEMENS
MORGUNBLAÐIÐ
#JOl4GJAFA
Það er gaman að gefa vandaða gjöf
-þú getur alltaf treyst á Siemens gœði.
A
Matvinnsiuvél sera fékk hæstu
cinkunn í þýska neytendablaðinu
Test. Handa öllum mathákum.
Verð kr. 13.900,-
¥ Símtæki
Símtæki í miklu úrvali.
Pýsk völundarsmíð.
Ýmsar stærðir og gerðir.
Verð firá kr. 5.600.-
Brauðrist
Brauðrist með hitahlif,
uppsmellanlegri smábrauðagrind
og útdraganlegri myknuskúffu.
Verð kr. 4.300.-
Handryksuga
Handryksuga í vegghöldu.
Þráðlaus og þægileg.
Helsti óvinur smákusksins.
Verð kr. 3.750,-
Djúpsteikingarpottur
Djúpsteikingarpottur fyrir
mest 2,3 1. Fyrir hvers kyns mat.
Franskar á færibandi!
Verð kr. 10.900.-
¥ Blástursofn
Blástursofn - góðvinur
í vetrarkuldum.
Tvær hitastillingar, 1000 og 2000 W.
Verð kr. 4.800.-
Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru:
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs • Borgames: Glitnir • Borgarfjörður Rafstofan Hvítárskála • Hellissandun
Blómsturvellir ■ Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson • Stykkishólmur Skipavík • Búðardalur Ásubúð
isafjörður Póllinn • Hvammstangi: Skjanni Sauðárkrókun Rafsjá ■ Siglufjörður Torgiö • Akureyrí:
Ljósgjafinn • Húsavík: öryggi • Þórshöfn: Norðurraf • Neskaupstaðun Rafalda • Reyðarfjörður.
Rafvélaverkst. Árna E. • Egilsstaðin Sveinn Guðmundsson • Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson ■ Höfn í
Hornafirði: Kristall • Vestmannaeyjar Tréverk ■ Hvolsvöllur Kaupfélag Rangæinga ■ Selfoss: Árvirkinn
Garður Raftækjav. Sig. Ingvarss. ■ Keflavík: Ljósboginn • Hafnarfjöröur. Rafbúð Skúla, Álfaskeiði
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 628300
FRETTIR: EVROPA
Helmut Kohl á Evrópuþinginu
Innri umbætur
nauðsynlegar
fyrir stækkun
Strassborg. Reuter.
HELMUT Kohl,
kanzlari Þýzkalands,
sagði í ræðu á Evr-
ópuþinginu í Strass-
borg í gær að innri
umbætur í Evrópu-
sambandinu yrðu að
eiga sér stað áður en
hægt væri að veita
Austur-Evrópuríkjum
aðild að sambandinu.
Hann benti jafnframt
á að Austur-Evrópu-
ríkin gætu ekki gert
ráð fyrir að aukaaðild-
arsamningarnir, sem
þau hafa nú fengið,
leiddu sjálfkrafa til
fullrar aðilar.
„Forsendur framtíðarþróunar
[ESB] eru annars vegar innri
umbætur í sambandinu og hins
vegar sú staðreynd að aðildarvið-
ræður við lönd, sem vilja ganga í
bandalagið, verða að fara fram á
þeim grunni að ríkin uppfylli skil-
yrði aðildar hvert og eitt,“ sagði
Kohl.
Hann benti hins vegar á að
þótt Austur-Evrópuríkin aðlöguðu
efnahagslíf sitt og stjórnkerfí regl-
Helmut Kohl
um ESB, þýddi það
ekki að þau gætu
gengið að aðildarvið-
ræðum sem gefnum.
Ríkin mættu ekki gera
sér falskar vonir.
Norðmenn ávallt
velkomnir
Kohl lagði áherzlu á
að dyr ESB stæðu
Norðmönnum ávallt
opnar, þótt aðild hefði
ekki verið samþykkt í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hvatti hann Norðmenn
til að vinna áfram að
málinu og reyna inn-
göngu í sambandið í þriðja sinn.
Delors mikill Evrópumaður
Kohl tileinkaði Jacques Delors,
fráfarandi forseta framkvæmda-
stjórnar ESB, hluta ræðu sinnar.
„Kæri Jacques, þú ert einn af þeim
fáu, sem gátu séð fyrir hinar bylt-
ingarkenndu breytingar, sem áttu
sér stað í Austur-Evrópu frá
1989,“ sagði kanzlarinn. „Þú ert
mikill Evrópumaður ... og átt
mikið þakklæti skilið.“
KORTAMAPPAIBIUNN
Vönduð mappa sem passar í hanskahólfið eða hurðar-
vasann. Inniheldur tvö kort af landinu og þrjá auka plast-
vasa fyrir smurbók bflsins, skoðunarskírteini ofl.
Kærkomin gjöf fyrir bfleigandann.
Verð kr 1950.-
VEGGKORT Fallegt íslandskort úr plasti með upphengi sem hentar i flest ,, - • r 4 ; herbergi heimilisins. ' ‘ 'ýpj Stærð50x60cm. kr 1450.- PÚSSLUSPIL ; Verö kr 300.- og 1800-^^Sjf
KORTASAGA ÍSLANDS
I. og H. bindi eftir
Harald Sigurðsson.
Stórvirki í íslenskri
menningarsögu.
Verö kr 14.500.-
Verö kr 1950.-
ÍSLANDSKORT FRÁ LIÐNUM
Glæsileg listaverk
kortagerðar-
manna
miðalda.
Gefum íslenslcaLr jólaLgjafir.
Greiðslukortapiónu^
LANi
'DMÆUNGAR
ISLANDS
KORTAVERSLUN • LAUGAVEGI178 • REYKJAVÍK • SÍMI 91-680 999
Brezku
pylsunni
bjargað
• RÁÐHERRAR landbúnaðar-
mála í Evrópusambandinu náðu
í gær málamiðlunarsamkomulagi
um heilbrigðisreglur fyrir hakk-
að lgöt. Niðurstaðan varð að
hafa vægari reglur um meðferð
hakks, sem notað er í pylsur og
aðrar soðnar kjötvörur. Þetta
þýðir að hinni hefðbundnu
brezku pylsu verður bjargað frá
því að verða óhóflega dýr í fram-
leiðslu, en hún hefði goldið þess
að heyra undir sömu reglur og
hrátt kjöthakk, sem margar meg-
inlandsþjóðir snæða af ákefð.
„Ég er afar ánægður með að nú
skuli vera hægt að leggja til
hinztu hvílu gömlu draugasög-
una um að Brussel ætli að banna
brezku pylsuna," sagði William
Waldegrave, brezki landbúnað-
arráðherrann.
• BRETAR þrýsta nú á ríkis-
stjórn nýlendu sinnar Gíbraltars
um að taka upp reglur ESB í
banka- og tollamálum til að koma
í veg fyrir peningaþvott og eitur-
lyfjasmygl. Douglas Hurd utan-
ríkisráðherra sendi forsætisráð-
herra Gíbraltars, Joe Bossano,
bréf þessa efnis í september síð-
astliðnum. Brezkir embættis-
menn bera hins vegar til baka
blaðafréttir um að hótað hafi
verið að setja Gíbraltar undir
beina stjórn London, yrði ekki
orðið við tilmælunum.
• KLAUS Kinkel, utanríkisráð-
herra Þýzkalands, segir að Tyrk-
ir verði að bæta orðstír sinn í
mannréttindamálum, eigi að
vera raunhæft að þeir nái samn-
ingum við ESB um tollabandalag.
Kinkel sagði í ræðu á Evrópu-
þinginu í gær að fangelsisdómar
í Tyrklandi yfir átta kúrdískum
þingmönnum hefðu ekki greitt
fyrir samningum.
„BÁKNIГ
í Brussel
Starfsmannafjöldi fram-
kvæmdastjórnar ESB eftir deildum
Deild Starfsmenn
Skrifstofurframkv.stj.manna 307
DG I: Utanríkisviðskipti 786
DG IA: Utanríkismál 462
DG II: Efnahags- og fjármál 252
DG III: Iðnaðarmál 389
DGIV: Samkeppnismál 341
DG V: Atvinnu- og félagsmál 364
DG VI: Landbúnaðarmál 855
DG VII: Samgöngumál 180
DG VIII: Þróunarmál 685
DG IX: Starfsm.mál og stjórnsl. 2.031
DG X: Fjölm.-/uppl.-/menn.mál 475
DG XI: Umhverfismál 236
DG XII: Vísindi, ranns. og þróun 161
DG XIII: Fjarskipti og uppl.m. 249
DG XIV: Fiskveiðimál 177
DG XV: Innri mark. og fjármálaþj. 243
DG XVI: Byggðamál 260
DG XVII: Orkumál 447
DG XVI11: Lánastarfs. og fjárf. 104
DG XIX: Fjárhagsáætlanir 286
DG XX: Fjármálastjórn 190
DG XXI: Tollar og óbeinir skattar 255
DG XXII: Ferðamál, samv.f. o.fl. 84
Skrifstofa aðalritara 470
Lögfræðiþjónusta 186
Skrifstofa fjölmiðlafulltrúa 55
Hagtöludeild 409
Birgðaskrifstofa Euratom 23
Öryggisdeild 74
Túlkunar- og ráðstefnuþj. 467
Útgáfudeild 421
Verkefnisstjórn mannauðs o.fl. 117
Neytendamálaþjónusta 66
Þýðingarþjónusta 1-645
Embætti eftirlitsmanns 21
Gagnatæknideild 257
ECHO 44
Verke.stj. vegna stækkunar ESB 44
SAMTALS 14.096
Þessar upplýsingar komu fram í svari
framkvæmdastjórnarinnar við fyrirspurn á
Evrópuþinginu fyrr á árinu. Stjórnsýsla ESB
er ekki mjög fjölmenn miðað við stjórnsýslu
aðildarríkjanna, hefur til dæmis álíka marga
starfsmenn og brezka iðnaðarráðuneytið,
en í brezku stjórnsýslunni starfar yfir hálf
milljón manna. í stjórnsýslu Islenzka rikisins
störfuðu um 4.000 manns árið 1988._____