Morgunblaðið - 15.12.1994, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands klappar á maga jólasveins í Belfast eftir að hafa set-
ið ráðstefnu stjórnenda fyrirtækja á N-írlandi. Á milli þeirra sést Norma, eiginkona Majors.
Fjárfestingar í kjölfar friðarþróunar
Bjartara útlit
á N-írlandi
Belfast. Reuter.
JOKN Major, forsætisráðherra
Bretlands, greindi frá því í gær
að bresk, bandarísk og japönsk
fyrirtæki hefðu ákveðið að stofna
til mikilla fjárfestinga á Norður-
Irlandi. Sagði hann þetta vera
fyrsta efnahagslega árangurinn
af friðarþróunmni.
Major greii.di frá þessu í ræðu
sem hann hélt á ráðstefnu um
fjárfestingar er haldin var í Belf-
ast og sótt var af um 250 fyrir-
tækjastjórnendum frá þrettán
ríkjum. Hvatti breski forsætisráð-
herrann þá til að fjárfesta á Norð-
ur-írlandi.
Alls hafa fimm fyrirtæki þegar
ákveðið að fjárfesta í héraðinu
fyrir samtals 60 milljónir punda,
rúmlega sex milljarða króna.
Stærsti hluti fjárfestinganna verð-
ur á vegum British Telecom en
bifreiðaframleiðandinn Ford, efna-
fyrirtækið DuPont, vörulyftara-
framleiðandinn NACCON og
tölvufyrirtækið Fujitsu hafa einnig
uppi áform um ijárfestingar.
Major boðaði einnig áætlun á
vegum bresku stjórnarinnar sem
hefði það að markmiði að koma
fólki er lengi hefur verið atvinnu-
laust út á vinnumarkaðinn á ný.
Yfirmenn herja þinga í Haag vegna Bosníumálsins
Ræða hvemig efla
megi friðargæsluna
Brussel. Reuter.
YFIRMENN heija Bandaríkjanna,
Bretlands, Frakklands og fleiri
ríkja koma saman í Haag á mánu-
dag til að reyna að bjarga friðar-
gæslustarfi Sameinuðu þjóðanna
í Bosníu, að sögn háttsettra emb-
ættismanna í Brussel í gær.
William Perry, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, beitti sér
fyrir fundinum, og markmið hans
er að efla friðargæsluna til að
koma í veg fyrir að stríðið í Bosn-
íu breiðist út. Á sama tíma og
skýrt var frá fundinum ræddu
varnarmálaráðherrar Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) áætlun um
verndun 23.000 friðargæsluliða í
Bosníu ef svo færi að flytja þyrfti
þá á brott þaðan.
Yfirmenn heijanna eiga að ræða
hugsanlegar breytingar á friðar-
gæslunni, til að mynda hvort heim-
ila eigi friðargæsluliðum Samein-
uðu þjóðanna að svara árásum á
þá með meiri hörku og hvernig
opna eigi nýja leið fyrir hjálpar-
gögn til Sarajevo. Ráðgert er að
þeir sendi síðan Sameinuðu þjóð-
unum og Atlantshafsbandalaginu
skýrslu um tiilögur sínar, að sögn
embættismannanna.
John Shalikashvili, forseti
bandaríska herráðsins, verður á
fundinum á mánudag ásamt yfir-
mönnum heija Bretlands, Belgíu,
Kanada, Danmerkur, Ítalíu, Hol-
lands, Noregs, Spánar og ef til
vill Rússlands og fleiri ríkja sem
hafa sent hermenn til friðargæslu
í Bosníu.
Árás á Bihac
Fjögurra ára stúlka beið bana í
gær í sprengjuvörpuárás Bosníu-
Serba á „griðasvæðið" svokallaða
í Bihac í norðvesturhluta landsins.
Slíkar árásir hafa verið daglegt
brauð á svæðinu frá því NATO
hætti loftárásum á serbnesk skot-
mörk í grenndinni í síðasta mánuði.
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, sagði í gær á Evrópu-
þinginu að friðargæsluliðið ætti
að vera áfram í Bosníu eins lengi
og þörf væri fyrir það og ið reyna
bæri til þrautar að fá Serba til að
fallast á nýjustu friðaráætlunina.
Mandela
segir frá
NELSON Mandela, forseti
Suður-Afríku, hélt blaða-
mannafund í Jóhannesarborg
í gær í tilefni þess að ævisaga
hans, „Long Walk To Free-
dom“ (Frelsisgangan langa)
kom út. Gagnrýnandi í danska
blaðinu Berlingske Tidende
segir ritið valda vonbrigðum
vegna þess að ekki bregði fyr-
ir neinni gagnrýni á störf og
stefnu leiðtoga blökkumanna-
hreyfingar Mandela, Afríska
þjóðarráðsins (ANC). Hvergi
sé t.d. minnst á skýrslu þar
sem skýrt var frá pyntingum
er beitt var í herbúðum ANC
á útlegðarárunum, auk þess
hurfu hundruð manna spor-
laust. Mandela sat sjálfur í
fangelsi er þessir atburðir
urðu.
Reuter
SJÓNVÚRP
FRAMTÍÐARINNAR
28" OG 29" SUPER SVARTUR,
J FLATUR SKJÁR______________
V) STAFRÆN MYND
DIGITAL KAMFILTER
1GO HZ FLEKKLAUS MYND
512 SÍÐNA
INSTANT" TEXTAVARP
INNBYGGÐ TÖLVUSTYRING MEÐ
VALMYND
þá EINFÖLD MARGNOTA
J MÚSAFJARSTÝRING
>) GLÆSILEG HÖNNUN
|| VISA - EURO - MUNALÁN
RONNII
HEIMIUSTÆKJADEILD
BORGARTÚNI 24
SÍMI 568 5868
Uppstokkun á Tævan
Viðskipti
við Kína
aukin
Taipei. Reuter.
STJÓRNARFLOKKURINN á Tæv-
an, Þjóðarflokkurinn, samþykkti í
gær uppstokkun í stjórn landsins
og ákveðið var að fijálslyndur hag-
fræðingur skyldi annast tengslin
við meginland Kína þar sem komm-
únistar ráða.
Uppstokkunin nær til 12 emb-
ætta, en mikilvægasta breytingin
er að Vincent Siew, sem farið hefur
með efnahagsmál, var skipaður for-
maður ráðs sem mótar stefnuna í
samskiptunum við Kína.
Talið er að Siew móti raunsærri
stefnu í samskiptunum við Kína og
ræða sem hann flutti á þriðjudag
þykir til marks um talsvert fijáls-
lyndi á tævanskan mælikvarða.
Hann lagði þá til að hafnar yrðu
beinar siglingar milli Tævans og
Kína og að viðskipti ríkjanna yrðu
aukin.
Verði tillagan samþykkt bindur
hún í raun enda á áratugagamalt
bann við beinum tengslum við Kína.
Hingað til hafa Tævanar, sem vilja
flytja út vörur til Kína, þurft að
leita til fyrirtækja í öðru landi um
milligöngu og hið sama er að segja
um öll viðskipti og fjárfestingar.