Morgunblaðið - 02.06.1995, Síða 2

Morgunblaðið - 02.06.1995, Síða 2
2 D FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Verzlunin Liverpool er í þessu húsi, sem er nú til sölu hjá fast- eignasölunni Hóli. Verðhugmynd er um 95 millj. kr., en ekkert hvílir á eigninni. Laugavegur18B til sölu HÚSEIGN Liverpool að Laugavegi 18B er nú til sölu hjá fasteignasöl- unni Hóli. Hér er um að ræða 1.817 ferm. verzlunar- og skrifstofuhús- næði í steinsteyptu húsi, sem er fimm hæðir og kjallari. Húsið var byggt í þremur áföngum á árunum 1955- 1960 af Páli Sæmundssyni, en hönn- uður þess var Hannes Kr. Davíðsson arkitekt. Verðhugmynd fyrir allt húsið er 95 millj. kr., en ekkert hvíl- ir á því. í húsinu er rekin leikfangaverslun á jarðhæð og annarri hæð, en heild- verzlun á þriðju hæðinni. Skúrbygg- ing er á suðurhlið hússins, þar sem hægt er að taka inn vörur, m.a. upp á þriðju hæðina, en þar eru hleðslu- dyr með talíu. Skrifstofur hafa verið á fjórðu og fimmtu hæð, en þessar hæðir eru báðar tvískiptar, en geta verið þrískiptar. Mjög stórar svalir eru á fjórðu hæðinni eða 164 ferm. en 51 ferm. svalir fylgja fimmtu hæðinni. Húsið er í eigu fyrirtækis sem heitir IngólfshvoII hf. og hefur svo verið frá upphafí. Danfosskerfí er í öllu húsinu, tvö- falt gler í flestum gluggum og lyfta í sameign. Að sögn Guðlaugs Amar Þorsteinssonar, sölumanns hjá Hóli, er húsið í góðu ástandi. Þannig var þakið endumýjað í fyrra. Önnur og þriðja hæðin eru lausar nú þegar, en aðrir hlutar háðir samkomulagi. Verðhugmjmd fyrir allt húsið er 95 millj. króna, sem að framan segir og er þá miðað við að 30% séu greidd á árinu en hitt á 7 árum með 7% vöxtum. Á eigninni er ekkert áhví- landi. Brunabótamat er tæplega 159 millj. kr. en fasteignamat húss og lóðar 60,5 millj. kr. — Þetta hús er gullið tækifæri fyrir íjárfesta eða þá sem vilja koma upp verzlunarstarfsemi eða annarri starfsemi á einum bezta stað í borg- inni, sagði Guðlaugur Öm Þorsteins- son að lokum. Húsbréfaviðskipti Hjá okkur nýtur þú ávallt hagstæðs verðs og góðrar ráðgjafar í húsbréfaviðskiptum. Vettvangur húsbréfaviðskipta. L Landsbanki íslands BankJ ailra landsmanna LANDSBRÉFHF. Löggilt veröbrófafyrirtæki. AOili aö Veröbrófaþingi íslands. Landsbréf hf. eru viðskiptavaki húsbréfa skv. sérstökum samningi við Húsnæðisstofnun ríkisins. Vandað tveggja íbúða hús við Silungakvísl Til sölu er hjá fasteignasölunni Laufási tveggja íbúða hús við Sil- ungakvísl á Ártúnsholti. Að sögn Magnúsar Axelssonar í Laufási er um að ræða glæsilegt hús sem stendur á brekkubrún með stórfenglegu útsýni yfír höfuðborgina og nágrenni. „Þetta hús er sérstaklega vandað með sérsmíðuðum innréttingum í eld- húsi og sérpöntuðum tækjum í bað- herbergjum. Minni íbúðin er 120 ferm. með sérinngangi. Stærri íbúðin er með tómstundaiými og öllu um 260 ferm. Alls er húsið um 400 ferm. með bílskúrum“ sagði Magnús. „Hús þetta er teiknað af Sigurþór Aðalsteinssyni arkitekt og reist 1991,“ sagði Magnús ennfremur. „Það var nokkuð lengi í byggingu, en innréttingum var ekki lokið fyrr en 1993. Útsýni er úr báðum íbúð- unum. Húsið er með þjófavamar- kerfí og símstöð, þannig að hægt er að gefa símtöl á milli herbergja. Lóðin er hellulögð, með hitalögnum og grasi gróin. Tijágróður er lítill til að hindra ekki útsýni. Að sögn Magnúsar er mjög vel vandað til beggja íbúðanna og sér þvotthús í þeim báðum. Á húsið eru settar 34 millj. kr. og kvað Magnús það vera mjög hagstætt verð, en byggingarkostnaður við slíkt hús væri eflaust langtum meiri. Fasteignasalan Laufás er nýlega flutt í nýtt húsnæði, að Suðurlands- braut 12, götuhæð. „Við bjóðum nú upp á gluggaútstillingar," sagði Magnús. Þegar talið barst að fast- eignamarkaðinum sagði Magnús: „Breytingin á fasteignamarkaðnum er varanleg og hann er sífellt að líkj- ast meira og meira fasteignamarkaði í nágrannalöndum okkar. Markaður- inn einkennist af framboði umfram eftirspum, en það gerir allt verðmat og verðlagningu miklu vandasamari en áður. Það getur dæmt eign til að vera á söluskrá í mörg ár, ef hún er verð- lögð 10% of hátt. Sumir seljendur hafa það á tilfinningunni að það sé lítið að gerast á markaðinum, en það helgast af þessu framboði umfram eftirspum en ekki af því að viðskipti eigi sér ekki stað. Það eru gefin út húsbréf fyrir 12 til 15 milljarða á ári sem bendir til að viðskipti með fasteignir séu á bilinu 20 til 30 millj- arðar króna. En það m£ segja að markaðurinn sé eins og hillurnar í stórmarkaði. Það er verslað og verslað en alltaf nóg í hillunum. Ég hef orðið var við aukningu í fyrirspurnum og hef trú á því að framundan sé aukin sala,“ sagði Magnús Axelsson að lokum. Fasteignasölur í blabinu í dag Agnar Gústafsson ms 23 Berg ws. 24 Borgareign ws. 14 Borgir ws 23 Eignamiðlun bis. 4 Eignasaian us. 7 Fasteignamark. bis 5-8 Fasteignamiðlun ws .19 Fold / bis. 15 Framtíðin ws 22 Gimli bis. 10-11 Hóll Hraunhamar Húsakaup Húsvangur Kjörbýli Óðal Sef Séreign Skeifan Stakfell Valhöll Þingholt bis. 20-21 bls 3 bls. 13 bte.11 bls. 6 bls. 6 bls 16 bls. 16 bls. 9 bls. 22 bis. 18 bls. 17 Húsið stendur við Silungakvísl á Ártúnsholti. Heildarverð er 34 millj. kr., en söluaðili er fasteignasalan Laufás. Reglulegt viðhald íbúðarhúsnæðis - kjarni málsins! MARKAÐURINIM Húsakostur hér á landi er með því yngsta, sem þekkist, segir Grétar J. Guðmundsson, rekstrar- stjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins. Búast má við, að þörfin fyrir viðhald og endurbætur aukist verulega á næstu árum. að á við um íbúðarhúsnæði eins og flest annað, að reglulegt viðhald eykur endingartíma og stuðlar að lægri endurbótakostnaði. Umræður um viðhald, endurbætur og endumýjun á eldra íbúðarhús- næði hafa aukist að undanfömu. í því sambandi má nefna sérstaklega þá kynningu sem byggingaverktak- ar, efnissalar og fleiri, sem starfa í byggingariðnaði, efndu til nýlega, til kynningar á því hvers byggingar- iðnaðurinn er megnugur á húsbygg- ingarmarkaðnum. Þar kom ekki síst vel fram sá þáttur sem snýr að við- haldi, endurnýjun og endurbótum á íbúðarhúsnæði. Jafnframt má benda á athyglisverða nýjung, sem nefnd hefur verið „íbúð á efti hæð“, á vegum Þróunarfélags Reykjavíkur. Þar er um tilraunaverkefni að ræða, sem felur í sér að breyta auðu og illa nýttu húsnæði í miðborg Reykja- víkur í íbúðir. Hugmyndin að baki þessu verkefni er fengin frá Eng- landi, en þar hefur vel tekist til við sambærilegt. Líklegt er að viðhald og endurbætur á eldra íbúðarhús- næði verði stærri þáttur í starfsemi byggingariðnaðarins á næstunni en verið hefur. Minni nýbyggingaþörf Eflaust eru auknar umræður um viðhald og endurbætur á íbúðarhús- næði eðlileg afleiðing af minnkandi þörf fyrir nýbyggingar. Það hefur dregið vemlega úr byggingu nýrra íbúða hér á iandi að undanfömu og það er ekkert sem bendir til þess að á næstunni verði aukning þar á svo nokkru nemi. Húsakostur hér á landi er með því yngsta sem þekkist, en af u.þ.b. 100 þúsund íbúðum hafa um tvær af hveijum þremur verið byggðar á síðastliðnum 40 ámm. Með hliðsjón af þessu má búast við að þörfín fyrir viðhald og endurbæt- ur muni aukast vemlega á næstu árum. Lánamöguleikar Möguleikar íbúðareigenda á lánsfjármagni vegna viðhalds og endurbóta á íbúðarhúsnæði hafa aukist að undanförnu, því banka- stofnanir hafa verið að taka upp sérstök lán til allt að 12 til 15 ára sem sérstaklega eru ætluð til þess- ara framkvæmda. Þeir íbúðareig- endur sem þurfa að fara út í meiri háttar endurbætur og endurnýjun á íbúðarhúsnæði sínu geta hins vegar átt kost á húsbréfalánum vegna framkvæmdanna. Þau lán eru hag- stæðari en bankalán, en eru ein- göngu ætluð til meiri háttar end- urbóta og endurnýjunar á íbúðar- húsnæði. Það sést m.a. af því, að eitt af skilyrðunum fyrir afgreiðslu er að kostnaður við framkvæmdirn- ar sé yfir einni milljón króna. Miðað er við, að ef kostnaður er lægri sé ekki ástæða til láns til eins langs tíma og húsbréfalánin eru, þ.e. til 25 ára. Umsókn um húsbréfalán Það er grundvallaratriði varðandi afgreiðslu húsbréfalána vegna meiri háttar endurbóta og endurnýjunar á notuðu íbúðarhúsnæði, að sækja þarf um áður en framkvæmdir eru hafn- ar. Þessu grundvallaratriði flaska of margir á og lenda oft í greiðsluvand- ræðum í lqölfarið. Slíkt er óþarfí. Hafí íbúðareigandi í hyggju að sækja um húsbréfalán vegna meiri háttar endurbóta og endurnýjunar á notuðu íbúðarhúsnæði þarf fyrst að sækja um greiðslumat hjá fjármálastofnun. Þar er metið hvað íbúðareigandinn er talinn geta ráðist í dýrar fram- kvæmdir. Því næst þarf að reikna út áætlaðan kostnað framkvæmd- anna, en með umsókn um húsbréfa- lán verður að fylgja sundurliðuð kostnaðaráætlun á sérstöku eyðu- blaði, þar sem fram kemur hvemig kostnaður skiptist á einstaka verk- þætti svo sem á vinnu og efni. Að þessu búnu er unnt að leggja fram umsókn um húsbréfalán hjá Hús- æðisstofnun ríkisins. Að fengnu skriflegu samþykki frá stofnuninni getur umsækjandinn hafíð fram- kvæmdir. Þegar 80% af endurbótum er lokið getur umsækjandinn fengið húsbréfalán afgreitt. Húsbréfalán getur numið allt að 65% af sam- þykktum endurbótakostnaði, en þó aldrei hærri §árhæð en um 3,2 millj- ónum króna. Lífaldur íbúðarhúsnæðis er oft taiinn í öldum. Reglulegt viðhald eykur líkumar á að svo verði í raun. Þrátt fyrir reglulegt viðhald kemur engu að síður að því í flestum ef ekki öllum íbúðum, að nauðsynlegt verður að fara út í meiri hátta end- urbætur og endumýjun. Þá skiptir miklu máli að standa rétt að hlutun- um, bæði hvað varðar framkvæmd- imar sjálfar sem og undibúning þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.