Morgunblaðið - 02.06.1995, Side 12

Morgunblaðið - 02.06.1995, Side 12
12 D FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ NOTENDUR aðgangur með mótaldi eða fastri tengingu Hönnun Framleiösla Rannsóknir og þróun Aörir gagnagrunnar Undirverktakar Byggingarframkvæmdir Söluaðilar Flutningsaðilar SKÝRINGARMYNd af öflugum gagnabanka, sem komið hefur verið upp í Finnlandi fyrir byggingariðnaðinn þar í landi. Þessi gagna- banki veitir byggingariðnaðinum þar nyög mikilvægan stuðning. J Byggingarlínan opnar íslenzkum byggingariðn- aði dyr út um allan heim Víða um lönd hefur verið komið upp öflugum gagnabönkum á byggingasviðinu og nú er verið að tengja þá saman. Magnús Sigurðsson ræðir hér við Gest Ölafssonarkitekt. VÍ er gjaman haldið fram, að íslenzkir byggingar- aðilar og byggingavöru- framleiðendur standist fyllilega samanburð við erlenda aðila, en kunni ekki að sama skapi að vekja athygli á sér og framleiðslu sinni. Þetta hafi komið mörgum í koll í vaxandi samkeppni erlendis frá. Útlendar byggingavörur og til- búnir, innfluttir byggingarhlutar eins og verksmiðjuframleiddir gluggar hafa flætt inn á íslenzka markaðinn á undanfömum árum. Þetta hefur átt sér stað samtímis því, sem íslenzki byggingamark- aðurinn hefur verið að dragast saman vegna minni nýbygginga. Þá vaknar sú spurning, hvort íslenzkir byggingarmenn geti ekki snúið vörn í sókn með því að leita í meira mæli að verkefn- um erlendis og hvemig bygginga- vöruframleiðendur hér á landi geti aflað markaða þar. Fyrir svömm verður Gestur Ólafsson arkitekt og framkvæmdastjóri Byggingaþjónustunnar hf., en hún er aðili að alþjóðasamtökum byggingarmiðstöðva, Union of Building Centres og fær frá þeim margskonar upplýsingar og stuðning. — Byggingastarfsemin í heiminum er stöðugt að verða alþjóðlegri og á næstu árum má búast við, að erlendir aðilar muni í enn meira mæli Ieita inn á ís- lenzka markaðinn, en orðið er, segir Gestur. — Víða um lönd hefur verið unnið að því að koma upp öflugum gagnabönkum á byggingasviðinu á undanförnum árum og nú er í sífellt meira mæli verið að tengja þessa gagna- banka saman. Aðgangur að upp- lýsingum um íslenzka bygginga- markaðinn verður því sífellt greið- ari. — Við íslendingar stöndum frammi fyrir þeirri áleitnu spurn- ingu, hvort við viljum taka þátt í þessari þróun eða gefast upp gagnvart henni, heldur Gestur áfram. — Við getum látið okkur nægja að sinna helzt viðhaldi á þeim byggingunm, sem við erum búnir að koma upp. Við getum líka tekið hinn kostinn, sem er ólíkt vænlegri og felst í því að safna saman á einn stað þeirri þekkingu, sem til er á mörgum sviðum í íslenzkri byggingarstarf- semi, í því skyni að markaðssetja hana erlendis. Mörg tækifæri Að mati Gests eru tækifærin ótal mörg, ekki bara í nálægum löndum heldur alls staðar i heim- inum en það þurfi að bera sig eftir þeim. — Til þessa höfum við sofið á verðinum, segir hann. — Þörf fyrir verkefni erlendis var auðvitað lítil eða engin, á meðan eftirspurn var meiri en framboð í nýbyggingum hér. Nú eru ástand og horfur í þessari grein allt önnur og verri en var og brýn þörf á auknum verkefnum. — íslenzkir byggingarmenn eru harðduglegt fólk, heldur Gest- ur áfram. — Þetta þykist ég geta fullyrt, eftir að hafa starfað með þeim í áratugi og þeir hafa kunn- áttu og þjálfun í að starfa við mjög erfið skilyrði. íslenzk bygg- inga- og verktakafyrirtæki búa líka yfir margvíslegri sérkunn- áttu. Það eru t. d. ekki mörg fyrir- tæki erlendis, sem kunna að leggja malarvegi og undirbýggja þá við erfið skilyrði. íslendingar kunna líka öðrum þjóðum betur að slá upp fyrir staðsteypu. Sú kunnátta er naum- ast fyrir hendi hjá mörgum þjóð- um. Hér er líka til staðar sérþekk- ing í að hlaða veggi úr torfi og grjóti. Þó að ekki væru hér nema tvö fyrirtæki, sem sérhæfðu sig á því sviði og myndu markaðs- setja sig vel, þá gæti þar skapazt umtalsverð vinna fyrir marga. íslendingar hafa líka getið sér gott orð erlendis, þar sem þeir hafa látið til sín taka t. d. við virkjunarframkvæmdir og þá sér- staklega við virkjun jarðhita. Héðan hafa farið sérfræðingar og iðnaðarmenn til slíkra starfa í Ungveijalandi og Kamtsjaka austast í Rússlandi og hlotið þar góðan orðstír. Hér væri einnig hægt að bjóða upp á ýmsar byggingarannsóknir. Vegna lofslagsins er hægt að gera hér margvíslegar prófanir í mjög hörðu veðri til þess að fá raunhæfa reynslu á byggingar- efni og byggingarhluta, sem ekki eru tök á annars staðar. En hér er líka þörf á greiðum aðgangi að upplýsingum um rannsóknir í öðmm löndum, sem gætu komið sér vel hér á landi. Við höfum líka það forskot, að arkitektar, verkfræðingar og aðr- ir tæknimenntaðir menn hér á landi eru margir hveijir menntað- ir í mismunandi löndum. Þeir hafa einnig gjarnan viss sambönd og þekkingu á staðháttum þar, sem getur verið mikils virði. Islenzkur arkitekt, menntaður í Bandaríkj- unum, ætti t. d. að hafa forskot þar í landi fram yfir danskan arki- tekt, sem menntaður eru í heima- landi sínu og íslenzkur verkfræð- ingur, menntaður í Þýzkalandi, ætti að hafa forskot þar fram yfir sænskan verkfræðing, sem menntaður er í Svíþjóð. Undanfarin ár hefur átt sér stað héðan stórfelldur útflutning- ur á vikri, sem notaður er sem byggingarefni erlendis. Tækifær- in á því sviði kunna að vera fleiri, þar á meðal í framleiðslu á þilplöt- um eða fullunnum byggingarhlut- um í stað þess að flytja efnið út sem hráefni. Gestur kveðst álíta það óþarfa minnimáttarkennd, þegar því er haldið fram, að íslenzk bygg- ingarfyrirtæki geti ekki haslað sér völl erlendis og segir: — Fyrir- tækið Ger hf., sem er í eigu ís- taks og Ármannsfells, hefur t. d. þegar hafið íbúðarbyggingar með árangri í Þýzkalandi. Þar hafa m. a. verið notaðar íslenzkar eld- húsinnréttingar. Menn frá Byggðaverki hafa verið að störf- um í Flórída og svo mætti lengi telja. Þegar íslenzk fyrirtæki geta náð fótfestu í þessum löndum, þá ættu þau ekki síður að geta náð fótfestu í norðlægum löndum eins og Grænlandi, Kanada og Rúss- landi. Þar gæti reynsla íslenzkra byggingarmanna kannski komið að mestu gagni. Tenging við internetið En til þess að geta markaðs- sett þessa kunnáttu og náð í verk- efni, sem tengjast henni, þurfa að vera fyrir hendi handhægar upplýsingar um hana og það þarf að vera hægt að koma þeim á framfæri á ódýran hátt. Þetta hefur ekki verið hægt til þessa. Hjá Byggingaþjónustunni hef- ur verið komið upp gagnabanka yfir íslenzk byggingarfyrirtæki og nú hefur hann verið tengdur internetinu svonefnda og þar með sams konar gagnabönkum í öðr- um löndum. Þessi lína hefur feng- ið heitið Byggingarlínan. Undir- búningur hefur staðið í nokkur ár og þessi viðleitni fengið mikinn hljómgrunn hér. Þannig veitti Húsnæðisstofnun ríkisins Bygg- ingarþjónustunni myndarlegan styrk í þessu skyni fyrir skömmu. Lágmarkskostnaður við að vera skráður hjá Byggingarlín- unni er nú um 1.000 kr. á mán- uði. — Að mínu mati er þetta ekki dýrt miðað við ávinninginn, sem getur verið ómetanlegur, segir Gestur. — Með því er fyrir- tækið komið inn í alþjóðlegan gagnabanka, þar sem hægt er að fá upplýsingar um alla starfsemi þess, bæði í síma og á internet- inu. Um leið fær fyrirtækið að- gang að alls konar upplýsingum út um allan heim. Markmiðið með Byggingarlínuninni er því ekki bara að koma íslenzkum fyrir- tækjum á framfæri erlendis', held- ur einnig að gera þeim kleift að finna verkefna þar. Fyrirspurnir eru þegar farnar að berast og það jafnvel frá fjar- lægum löndum eins og Araba- löndunum um fyrirtæki hér, sem geti tekið að sér viss verkefni þar. Þarf að svara strax — En slíkum fyrirspurnum verður að vera hægt að svara strax, segir Gestur. — Það þýðir ekki að segja, að þessar upplýs- ingar sé hægt að senda eftir viku eða hálfan mánuð. Upplýsingarn- ar verða að vera fyrir hendi, þeg- ar á að nota þær og þær verða að vera réttar. Ef fyrirspurn kem- ur um arkitekt, sem er sérhæfður í að hanna frystihús, þá þarf að vera hægt að svara henni þegar í stað. Svíum hefur orðið mjög vel ágengt á alþjóðlegum bygginga- markaði og m. a. tekizt vel að hasla sér völl í Bandaríkjunum. — Svíar hafa komið sér upp öflugum gagnagrunni á þessu sviði, segir Gestur. — Hann nær yfir sænskar byggingarvörur og sænsk bygg- ingarfyrirtæki, ekki bara heima fyrir heldur hvar sem er í heimin- um. Svíar hafa verið mjög fram- sæknir og m. a. keypt upp miðl- ungsstór byggingafyrirtæki í öðr- um löndum til þess að styrkja þar stöðu sína. Svipuðu máli gegnir um hin Norðurlöndin. Árangurinn hefur líka ekki lát- ið á sér standa. Þannig var það dótturfyrirtæki sænska bygg- ingafyrirtækisins Skanska, sem fékk það verk að gera við stór- bygginguna World Trade Center í New York, eftir að hún skemmd- ist mikið í sprengingu fyrir nokkr- um árum. Tyrkir hafa hafið mikla sókn á þessu sviði og leitað að bygginga- verkefnum um alla Evrópu, bæði í austri og vestri og orðið mjög vel ágengt. Þegar Jeltsin Rúss- landsforseti leitaði eftir aðilum til þess að gera við Hvíta húsið í Moskvu eftir árásina á það, var það tyrkneskt fyrirtæki, sem fékk verkefnið, en ekki rússneskt, finnskt eða þýzkt fyrirtæki. Gestur kveðst álíta, að nú sé kominn tími til, að íslenzkir bygg- ingaraðilar, stórir og smáir, leiti fyrir sér erlendis í miklu meira en verið hefur. Með Byggingarlín- unni sé komin til sögunnar sú tækni, sem gerir litlum bygginga- raðilum kleift, hvar sem er á land- inu, að leita að verkefnum ogjafn- framt koma sjálfum sér á fram- færi á mjög ódýran hátt. Þessi tækni opni ótal möguleika, sem hafa ekki áður staðið til boða. Tenging við Útboðsbanka Evrópu — Byggingalínan er þegar komin í samband við útboðsbanka Evrópu um öll verk, sem þar eru í gangi, segir Gestur. — Þeir aðil- ar, sem áhuga hafa á að bjóða í verk þar, geta átt mjög greiðan aðgang að þessum útboðum fyrir tilstilli Byggingarlínunnar og geta einnig fengið að vita, hvaða tilboð berast í verkin. Kostir Byggingarlínunnar fyrir rannsóknarvinnu eru líka augljós-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.