Morgunblaðið - 24.06.1995, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 3
FRÉTTIR
Bjarki Holm úr Vogaskóla fékk 10 í samræmdu prófunum
Morgunblaðið/Þorkell
BJARKI Holm verður í bæjarvinnunni sumarlangt í Heiðmörk en
í haust ætlar hann að hefja nám í Menntaskólanum í Reykjavík.
„EKKERT hefur komið mér jafn-
mikið á óvart,“ sagði Bjarki
Holm 15 ára Reykvíkingur úr
Vogaskóla um árangur sinn á
samræmdu prófunum. Hann
reyndist vera annar af tveimur
nemendum sem fengu 10 í ís-
lensku og eini nemandinn á land-
inu sem vann það einstaka afrek
að fá 10 í einkunn í öllum grein-
um í samræmdum prófum.
Jafnvel þótt Bjarki hafi fengið
háar einkunnir segist hann ekki
vera neinn fyrirmyndarnemandi.
„Prófin voru ekki eins óhugnan-
lega erfið eins og sumar vilja
vera láta en langt frá því að vera
mjög létt,“ sagði hann. Stærð-
fræðin lá vel fyrir Bjarka en
„Er enginn
fyrirmynd-
arnemandi“
hann segir dönsku- og ensku-
prófin hafa verið léttari en hann
átti von á. Islenskueinkunnin
kom honum þægilega á óvart
enda hafði hann aldrei áður
fengið 10 í greininni.
Þegar Bjarki er ekki að vinna
eða læra eiga útivist, íþróttaiðk-
un og skátastörf hug hans. „Ég
hef reynt mig í ýmsum íþrótta-
greinum, stússast í hesta-
mennsku með fjölskyldunni og
er félagi í skátafélaginu Skjöld-
ungum í Vogahverfi." Bjarki seg-
ist hafa eignast flesta bestu vini
sína í skátunum.
Framtíðin virðist við fyrstu
sýn vera fastmótuð í huga skát-
ans. Hann ætlar í Menntaskólann
í Reykjavík í haust ásamt nokkr-
um vinum sinum og telur hann
að námið verði strembnara þar
en í grunnskóla. Hann gæti síðan
vel hugsað sér að fara í lögfræði
eða læra stjórnun. „Ég býst við
að ég sé nokkuð stjórnsamur,"
sagði hann kíminn.
Bjarki hefur einlægan áhuga
á stjórnmálum og kveðst stefna
að stjórnmálaþátttöku. Enginn
núverandi flokka heillar þó hinn
unga námsmann.
„Ég hyggst stofna umbóta-
flokk og set stefnuna á að stýra
landinu," segir hann ákveðinn.
Foreldrar Bjarka eru Bryndis
Kristinsdóttir dagmóðir og
Reynir Holm sendibílstjóri.
- fyrir allal
Vökvastýri
Samlæsing
Litað gler
Framhjóladrif!
gæðabill
ur í
kipta öllu.
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • SÍMI 515 7000
SJöundl hlmlnn