Morgunblaðið - 24.06.1995, Page 4
4 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fjölmenni fagnaði LIF
Flugfloti Landhelgisgæslunn
ar almenningi til sýnis í dag
TF-LÍF, ný björgunarþyrla íslend-
inga, kom heim í gær. Fjölmargir
lögðu leið sína að bækistöðvum
Landhelgisgæslunnar við Reykja-
víkurflugvöll, til að fylgjast með því
þegar þyrlan lenti þar kl. 15 og
ámaðaróskir til starfsmanna Land-
helgisgæslunnar og íslendinga allra
einkenndu ræður forstjóra Land-
helgisgæslunnar, dóms-
málaráðherra og biskups
íslands við móttökuat-
höfn í flugskýii Gæsl-
unnar. Flugfloti Gæsl-
unnar verður almenningi
til sýnis í dag, laugardag, kl. 13-17.
Nýja þyrlan lagði af stað frá
Frakklandi snemma á fímmtudags-
morgun og lenti í Stornoway í Skot-
landi um kvöldið. í gærmorgun var
lagt af stað til Reykjavíkur, en kom-
ið við í Vestmannaeyjum.
Skömmu fyrir kl. 15 sást þyrlan
yfír Reykjavík og fylgdu henni tvær
þyrlur Landhelgisgæslunnar, TF-
SIF og TF-GRO, sem höfðu flogið
á móti henni. Eldri þyrlurnar lentu
við flugskýli Landhelgisgæslunnar,
en TF-LÍF flaug yfír borgina. Kl.
15 kom þyrlan inn yfír austur-vest-
ur flugbraut Reykjavíkurflugvallar
og flaug lágt austur yfír henni, þar
til hún lenti á móts við flugskýli
Gæslunnar.
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, og hr. Ólafur Skúlason
biskup tóku á móti Þorsteini Páls-
syni, dómsmálaráðherra, Hafsteini
Hafsteinssyni, forstjóra
Landhelgisgæslunnar og
áhöfn þyrlunnar, en Þor-
steinn og Hafsteinn fóru
um borð í Vestmannaeyj-
um. Á heimleið var
áhöfnin skipuð þeim Páli Halldórs-
syni, yfirflugstjóra, Benóný Ás-
grímssyni, flugstjóra, og flugvirkj-
unum Einari Bjarnasyni og Jóni
Pálssyni. •»
Fullkomin þyrla
Hafsteinn Hafsteirtsson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, sagði við
móttökuathöfnina að nafn þyrlunn-
ar væri sótt í Vafþrúðnismál:
Líf og Lífþrasir
en þau leynast munu
í holti Hoddmímis.
Morpndöggvar
þau sér að mat hafa
en þaðan af aldir alast.
„Við höfum eignast nýtt líf, nýja
þyrlu,“ sagði Hafsteinn. „Þessi Sup-
er Puma þyrla er með fullkomnum
búnaði, meðal annars afísingarbún-
aði, hún getur haft allt að 830 sjó-
mílna flugdrægi og flutningur á
slösuðum og veikum verður mun
öruggari en nú er. í þyrluna er
hægt að setja samtímis allt að 9
sjúkrabörur, eða hún getur borið
þijú tonn af björgunartækjum.
Þyrlan getur einnig nýst til gæslu-
flugs, eða tekið 20 manns í sæti,
auk áhafnar."
Hafsteinn sagði að áhöfnin hefði
verið í þjálfun frá því í nóvember
í fyrra. „Þessi vél er sem ný, því
henni hafði aðeins verið
flogið í 350 stundir þegar
íslendingar festu kaup á
henni. Þá vil ég nefna
stórhug Rauða krossins,
sem gaf 4 milljónir króna
svo bua mætti hana lækningatækj-
um. Ég óska þjóðinni allri til ham-
ingju með daginn.“
Leiðarljós í
björgunarmálum
„Það er stór dagur í björgunar-
sögu landsins þegar við fögnum
þeim kjörgrip sem hingað er kom-
inn,“ sagði Þorsteinn Pálsson,
dómsmálaráðherra, í ávarpi sínu.
Hann rakti aðdraganda þyrlukaup-
anna og sagði að sumum hefði þótt
biðin æði löng. Ráðherra nefndi
sérstaklega að sér hefði þótt
ánægjulegt að fá að taka á móti
þyrlunni í Vestmannaeyjum fyrr um
daginn.
„Nú eru 75 ár síðan Björgunar-
félag Vestmannaeyja hafði forystu
um að kaupa fyrsta björgunar- og
eftirlitsskipið til landsins. Til þess
hefur örugglega þurft kjark, dugn-
að og áræði. Við eigum
öllum þeim, sem unnið
hafa að björgunarmálum
margt að þakka og nú
hafa enn orðið kaflaskil.
Mikil ábyrgð hvílir á
þeim sem eiga að fara með þetta
góða tæki og þeim fylgja góðar
óskir allra. Eg hef fyrir satt að
fyrsta tækið, sem var keypt um
borð í björgunar- og eftirlitsskipið
Þór hafí verið ljós og voru kaupin
skýrð þannig, að ljósinu væri ætlað
að draga landhelgisbijóta út úr
skugganum, en vera öðrum leiðar-
ljós á hafinu. Ég vona að TF-LÍF
verði okkur leiðarljós í björgunar-
málurn."
Ný hátíð
Biskup Íslands, herra Ólafur
Skúlason, sagði hátíðir einkennast
af hefðum, en nú væri ný hátíð að
beija að dyrum, við komu nýrrar
björgunarþyrlu.
„Blessi Guð þyrluna, vaki yfir
þeim sem um borð starfa, hjálpi
þeim sem í hættu eru staddir og
gefi þeim kjark, þor og áræði, svo
Líf megi gagnast um framtíð og
þessi dagur verða sá hátíðardagur
sem til er stofnað," sagði biskup.
Öruggari
fiutningur
slasaðra
Stór dagurí
björgunar-
sögu landsins
Morgunblaðið/RAX
FORSETI íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, var meðal þeirra sem fögnuðu áhöfn nýju þyrlunnar
við komuna til Reykjavíkur. í áhöfninni voru þeir Páll Halldórsson, yfirflugstjóri, Benóný Ásgríms-
son, flugstjóri og flugvirkjarnir Einar Bjarnason og Jón Pálsson.
Morgunblaðið/Golli
AÐ LOKINNI móttökuathöfn gæddu gestir sér á tertu, sem skreytt var mynd af þyrlunni. Meðaí
þeirra, sem fengu sér tertubita, voru frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, Hr. Ólafur Skúla-
son, biskup, Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, Þorsteinn Pálsson, dómsmála-
ráðherra og Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis.
„HEIMFERÐIN gekk vel frá
upphafi til enda,“ sagði Páll
Halldórsson, yfirflugstjóri
Landhelgisgæslunnar, sem
flaug TF-LIF heim í gær.
Páll sagði að heimferðin
hefði verið löng, því lagt var
af stað frá Frakklandi á
fimmtudagsmorgun, áð í Skot-
landi í fyrrinótt og þaðan flog-
ið heim í gær. „Við vorum að
Heimferðin
gekk vel
flýta okkur heim í tertuna,“
sagði yfirflugstjórinn bros-
andi, en að lokinni móttökuat-
höfninni í gær var boðið upp
á stóra tertu, sem skreytt var
mynd af nýju þyrlunni.
Páll sagði að þyrlan hefði
reynst jafn vel á heimleiðinni
og hann hefði vonað. „Þessi
þyrla uppfyllir allar okkar ósk-
ir og er bylting að vissu leyti.
TF-LÍF og TF-SIF eru ólík
tæki, þótt sú síðamefnda sé
fyrir löngu búin að sanna sig
og falli ekki í skuggann af
þessari.“
FYRSTA þyrlan kom til landsins 30. apríl árið 1965
og hlaut hún nafnið TF-EIR.
LANDHELGISGÆSLAN hefur rekið tíu þyrlur undanfarin
30 ár og nýja Super Puma-þyrlan verður sú ellefta.
Þyrlukosturinn hefur verið sem hér segir:
TF-EIR. af gerðinni Bell 47J, frá 1965-1971.
TF-GNA, af gerðinni Sikorsky HH 52A, 1972-1975.
TF-HUG og TF-MUN, af gerðinni Bell 47G voru rekn-
ar árin 1973-1977.
TF-GRÓ, af gerðinni Hughes 500C, frá 1976-1980.
TF-GRÓ, önnur þyrlan með því nafni og af gerðinni
Hughes 500D, 1981-1986.
TF-GNÁ var af Sikorsky-gerð og önnur þyrlan sem
Landhelgisgæsian eignaðist.
Þyrlur í 30 ár
TF-RÁN, Sikorsky S-76A, árin 1980-1983.
TF-SIF, leiguþyrla af gerðinni Aerospatiale SA 365N,
frá 1984-1985.
TF-SIF, Dauphin-yél, sams konar og fyrri SIF, frá 1985.
TF-GRÓ, sú þriðja með því nafni, af gerðinni Aerospat-
ÁRIN 1980-1983 var TF-RÁN í notkun hjá Landhelg-
isgæslunni. Hún var af Sikorsky-gerð.
iale AS 350B, frá árinu 1986.
Nú á og rekur Landhelgisgæslan þijár þyrlur, nýju þyrl-
una TF-LÍF, af gerðinni Aerospatiale AS 332L1 Super
Puma, sem tekur 20 manns í sæti, auk þriggja mánna
áhafnar og að auki TF-GRÓ og TF-SIF. Þá á Gæslan einn-
ig Fokker F27-vélina TF-SÝN.
Landhelgisgæslan hefur aldrei haft jafnstóra þyrlu til
umráða og TF-LÍF. Næstar henni komast Sikorsky-þyrlurn-
ar GNÁ og RÁN og Dauphin-þyrlan SIF, sem hafa tekið
8 manns í sæti, auk áhafnar.