Morgunblaðið - 24.06.1995, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 13
Fjölskyldudagur
í Minjasafni
Fjögnr skemmtiferðaskip komu til Akureyrar í gær með tæplega 1.900 farþega
Ratleikir
á safna-
slóðir
FJ ÖLSKYLDUDAGUR verður í
Minjasafninu á Akureyri á morgun,
sunnudaginn 25. júní frá ki. 13-17.
Boðið verður upp á tvenns konar
ratleiki, annars vegar um Minjasafn-
ið þar sem fjölskyldan verður að
vinna saman að því að leysa gátur
og spurningar sem leiðir hana í
gegnum sýningar safnsins og hins
vegar ratleik sem hefst við Laxdals-
hús eftir kl. 13.30 en þar verður
vísbending sem á að leiða þátttak-
endur á safnaslóðir í Innbænum og
Fjörunni.
Laxdalshús verður opnað á morg-
un og verður það opið á sunnudögum
í sumar, frá kl. 13.00 til 17.00 en
þar er ljósmyndasýningin „Akureyri-
svipmyndir úr sögu bæjar“ til sýnis.
Hún sýnir þróun byggðar á Akur-
eyri. Einnig er það sýnt myndbandið
„Gamla Akureyri".
Fyrsta gönguferð sumarsins verð-
ur farin frá Laxdalshúsi á morgun
kl. 13.00. Gengið verður um gömlu
kaupstaðalóðina, inn eftir Fjörunni
og endað við Minjasafnið.
Síðasta sýningarhelgi er á verð-
launagripum Handverks-reynslu-
verkefnis í Minjasafninu. Safnið er
opið daglega frá kl. 11.00 til 17.00.
------» -------
Messur
AKUREYRARPRESTAKALL:
Messað verður á Fjórðungssjúkra-
húsinu á morgun, sunnudag kl.
10.30. f.h. Guðsþjónusta verður í
kapellu kirkjunnar á morgun kl.
11.00. Messa á Dvalarheimilinu
Hlíð kl. 16.00.
GLERÁRPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta verður í Lögmannshlíðar-
kirkju sunnudaginn 25. júní kl.
21.00. Ef veður leyfir verður fjöl-
skylduguðsþjónusta sama dag í
Kvenfélagsgarðinum kl. 14.00. Að
henni lokinni verða veitingar á veg-
um Kvenfélagsins Baldursbrár.
Sýning á verkum Hauks Stefánssonar í Listasafninu á Akureyri
Tengslin við
fortíðina efld
SÝNING á verkum Hauks Stef-
ánssonar hefur staðið i Lista-
safninu á Akureyri, en henni lýk-
ur nú um helgina.
Aðsókn á sýninguna hefur
verið með ágætum, á annað þús-
und manns hafa séð hana.
Með því að efna til sýninga á
verkum þeirra, sem á einn eða
annan hátt hafa rutt braut
myndlistarinnar á Akureyri, vilja
forráðamenn safnsins efla tengsl
við fortíðina og gefa fólki kost
á að skilja betur þá þróun sem
að baki liggur. Þannig hefur
Listasafnið á Akureyri talið sér
skylt að kynna sérstaklega ár
hvert norðlenskan listamann og
var ákveðið í samráði við fjöl-
skyldu Hauks Stefánssonar að
efna til sýningar á málverkum
hans að þessu sinni. Jafnframt
gaf safnið í samvinnu við fjöl-
skyldu listamannsins út bók í
tilefni af sýningunni. Ritstjóri
bókarinnar sem ber nafn höfund-
ar er Haraldur Sigurðsson.
Ingvar Haukur Sigurðsson
eyddi uppvaxtarárum sínum í
Kanada og bjó þar fram á fer-
tugsaldur er hann flutti til ís-
lands. Hann bjó ásamt fjölskyldu
sinni á Akureyri og var hann
einn helsti frumheiji og kennari
listmálara og húsamálara í bæn-
um um 20 ára skeið en þar vakti
hann áhuga stórs hóps manna.
Hann var forystumaður frí-
stundamálara, leiktjaldamálari
og málaði og skreytti kirkjur,
skóla og samkomuhús auk fjölda
einkaíbúða en hann málaði vegg-
myndir á heimilum fólks og eru
þrjú þeirra varðveitt enn í dag,
gangur í Hafnarstræti 88, nú
Hótel Harpa, en það verk þarfn-
ast viðgerðar, þá er verk í Odd-
eyrargötu 34 þar sem málað er
upp stiga og pall í einum litatón
og í Strandgötu 2 er málaður
gangur. Haukur sá einnig um
að mála leiktjöld fyrir Leikfélag
Akureyrar.
Farþegar settu
svip á bæjarlífið
AKUREYRARHÖFN skartaði
sínu fegursta, fánum og blómum
skreytt í blíðskaparveðri í gær-
dag þegar fjögur skemmtiferða-
skip lögðu þangað leið sína. Svo
mörg skemmtiferðaskip hafa
ekki komið í einu til Akureyrar
áður. Farþegarnir sem eru á bil-
inu 1.800 til 1.900 talsins settu
svip sinn á bæjarlífið.
Skipin sem voru á Akureyri í
gær eru Kazakhstan, með um
500 farþega, Berlin, með um 400
farþega, Southern Cross, með
tæplega 400 farþega og Arkona,
með tæplega 600 farþega.
Vel skipulagt
Tvö þau fyrst nefndu eru á
vegum Samvinnuferða-Landsýn-
ar og sagði Hildur Jónsdóttir hjá
innanlandsdeild að farþegar
hefðu farið í skoðunarferðir,
m.a. að Mývatni, að Laufási og
Goðafossi og þá var boðið upp á
flugferð til Grímseyjar. Akur-
eyri er lokaviðkomustaður
beggja skipanna, en héðan fara
þau til Grænlands og Noregs.
„Koma þessara skipa hefur verið
nyög vel skipulögð á Akureyri,
hingað hafa komið rútur víða
af á landinu til að anna öllum
þeim ferðum sem boðið er upp
á fyrir þennan fjölda. Það er
gaman að sjá hversu vel hefur
verið staðið að verki,“ sagði
Hildur.
Böðvar Valgeirsson hjá Atl-
antic sem sér um Southern Cross
og Arkona sagði að flestir far-
þeganna hefðu farið í skoðunar-
ferð að Laufási og Goðafossi.
„Við erum mjög ánægðir fyrir
hönd hafnarinnar," sagði Gunn-
ar Arason hjá Akureyrarhöfn.
Hálfblautur
Vaglaskóg-
ur opnaður
VAGLASKÓGUR var opnaður
fyrir almennri umferð í gær, föstu-
dag, sem er nokkru seinna en
vant er, en þar er bæði um að
kenna miklum snjóalögum á liðn-
um vetri og geysimiklum flóðum
þar nú nýlega.
Sigurður Skúlason skógarvörð-
ur sagði að skógurinn væri enn
hálfblautur og ekki yrði hægt að
hleypa fólki á neðri tjaldstæðin
strax. „Þar er allt enn rennblautt
eftir flóðin,“ sagði hann. Hluti
hjólhýsasvæðisins syðst í skógin-
um er einnig mjög blautur. „Það
er enn óskaplega blautt hér og
dúar allt undir manni.“
Þröng á þingi
„Það stefnir allt í að verði mjög
margt fólk hér um helgina,“ sagði
Sigurður. „Það má búast við að
þröng verði á þingi,einkanlega þar
sem öll tjaldsvæðin hafa ekki ver-
ið opnuð enn vegna bleytunnar.“
Að sögn Sigurðar er enn tölu-
verður snjór í Þórðarstaðaskógi í
Fnjóskadal. „Þar er allt á kafi
ennþá og virðist þiðna afar hægt.“
Gera má ráð fyrir nokkrum
vandræðum vegfarenda fyrst í
stað í kjölfar þess að brúin yfir í
skóginn féll í F'njóská í flóðunum
fyrir skömmu og verða menn af
þeim sökum að aka gamla veginn
um Hálsmelana. „Við byijuðum
að moka snjó af þeim vegi daginn
sem brúin hrundi og hann hefur
verið eitt drullusvað þar til nú,“
sagði Sigurður en fyrirhugað er
að setja á hann burðarlag í næstu
viku. Ekki gerði skógarvörður ráð
fyrir að brúin kæmist í gagnið að
nýju fyrr en í lok sumars eða
seinnihluta ágústmánaðar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
ÁSTRÍÐUR Jósefsdóttir, ekkja Hauks Stefánssonar, og tvö
eftirlifandi barna þeirra, Snorri og, Anna við sjálfsmynd af
listamanninum við opnun sýningarinnar.
ÞEIR lögðu hönd á plóginn við útgáfu bókarinnar um Hauk
Stefánsson, Haraldur Ingi Haraldsson forstöðumaður safnsins,
Haraldur Sigurðsson ritstjóri bókarinnar og Haraldur Bessa-
son sem sá um enska þýðingu.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
HALLDÓR Blöndal sam-
gönguráðherra var ánægður
í gærdag þegar hann virti
fyrir sér skemmtiferðaskipin
fjögur sem komu til Akur-
eyrar, en farþegarnir settu
mikinn svip á bæjarlífið.
„Það er mjög gaman að sjá ár-
angurinn af því markaðsstarfi
sem við höfum verið að vinna
að og ekki spillir fyrir þetta fína
veður sem fólkið færi meðan það
dvelur hér.“
Skipin létu úr höfn eitt af
öðru í gærkvöld.