Morgunblaðið - 24.06.1995, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 15
Löng bamamessa
á Melstað
Hvammstanga - MIKIÐ var um að
vera á Melstað í Miðfirði nýlega.
Um 50 böm dvöldu þar við leik
og störf fram eftir degi og luku
þar með stopulu barnastarfi vetr-
arins í kirkjunni.
Með þessum hætti var lokið
barnastarfi í sóknum Melstaða-
prestakalls, sem ná yfir Miðfjörð,
Línakradal og Víðidal. Sóknar-
presturinn sr. Guðni Ólafsson
leiddi samveruna, með aðstoð
barnafræðara, sem starfa í kirkj-
unum. Samveran hófst kl. 10 ár-
degis á bænastund, þá var næst
unnið að verkefnum og um hádeg-
ið grillað og farið í leiki. Eftir
hádegi vom sungnir söngvar,
lesnar sögur og lokið við verkefn-
in. Að lokum var guðsþjónusta
fyrir börain og um kl. 16 var hald-
ið heim.
Að sögn sóknarprestsins, sr.
Guðna Þórs Ólafssonar gerði blíð-
skaparveður þessa samveru nijög
skemmtilega. Þar sem erfið
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
BARNAHÓPURINN ásamt presti og leiðbeinendum.
vetrartíð hamlaði hefðbundnum
slitum barnastarfsins var þessi
nýbreytni tekin upp og var á börn-
unum að heyra að þau væm vel
sátt við þessa nýbreytni.
Sr. Guðni sagði mikilvægt að
börn í dreifbýlinu fengju að njóta
barnastarfs í kirkjunum, ekki síð-
ur en börn í þéttbýli. Þátttaka í
þessari samveru væri um 70 af
hundraði barna á þessum aldri í
sóknum Melstaðarprestakalls.
Til gamans má geta hér, að
börn úr Prestbakkaprestakalli
luku sínu vetrarstarfi í júníbyijun,
með heimsókn í Breiðabólstaðar-
kirkju og Barnaskóla Þverár-
hrepps. Vom þau þar í fylgd sinna
leiðbeinenda, hjónanna frú Guð-
rúnar og sr. Ágústs Sigurðssonar.
Póstur og
sími minnist
100 ára af-
mælis Seyð-
isfjarðar-
kaupstaðar
Seyðisfírði - Póstur og sími ætlar
að gleðja Seyðfirðinga í tengslum
við 100 ára afmælishátíð þeirra sem
verður eftir rúmlega viku. Fyrir-
tækið hefur látið gera og leyft notk-
un á fjórum mismunandi sérstimpl-
um sem verða notaðir meðan af-
mælishátíðin stendur yfir.
Nýtt safn, Tækniminjasafn Aust-
urlands, verður opnað á Seyðisfirði
29. júní. Þar verður rekið pósthús
með gömlu sniði þá daga sem af-
mælishátíð Seyðisfjarðarkaupstað-
ar stendur yfir og verða sérstimpl-
arnir notaðir þar, einn fyrir hvern
dag, frá 29. júní til 2. júlí 1995. Á
hveijum stimpli er mynd af einu
merkishúsi bæjarins. Fyrst kemur
gamla símstöðin frá 1894, sem var
íbúðarhús Ottó Wathnes og fyrsta
símstöð landsins og pósthús, en
hýsir nú bæjarskrifstofur kaupstað-
arins og Tækniminjasafn Austur-
lands. Þá kemur mynd af Seyðis-
fjarðarskóla frá 1905, síðan mynd
af Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar frá
1898 og að lokum mynd af Seyðis-
fjarðarkirkju, sem var endurbyggð
á núverandi stað eftir flutning af
Vestdalseyri árið 1923.
Þess má líka geta að Póst- og
símamálastofnun gaf út fyrr á árinu
Seyðisfjarðarfrímerki með mynd af
verki Kristjáns Guðmundssonar,
Útlínur, sem verður sett upp á mið-
bæjartorginu nýja á næstunni.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Pijónaðir Bárð-
dælingar
Laxamýri - Goðafossmarkaður er
tekinn til starfa. Handverkskonur
milli hciða reka þessa starfsemi
sem einkum er ætluð ferðamönn-
um.
Mjög margt er á boðstólum, s.s.
mikið af lopapeysum af öllum
gerðum, skartgripir, glerlista-
verk, nytjamunir ýmsir svo og
smávörur úr beinum og hornum.
Fleira mætti nefna, svo sem pijón-
aða „Bárðdælinga", bændur,
bændakonur, ýmsar brúður og
sveina.
Nokkuð er mismunandi hve
mikið er að gera, en á góðviðris-
dögum er jafnan mikil sala.
komduí
Ihíirscm cr
-hvcnærscm crl
KRINGMN
sjá Kringlukastsblad sem fylgdi
Morgunblaðinu í vikunni