Morgunblaðið - 24.06.1995, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 19
FERÐALÖG
.. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
GOMUL hestaverkfæri verða til sýnis við Hótel Flúðir í sumar.
Ferðir á Langjökul
Borgarfirði — Þjónusta við ferðamenn er vaxandi
þáttur í atvinnustarfsemi í Borgarfírði, eins og ann-
ars staðar. Fyrir þremur árum var endurvakið fyrir-
tækið Langjökull hf og hefur það verið með ferðir
og þjónustu við ferðafólk sem vill fara inn á Langjökul.
Snjóbílaferðir og snjósleðaleiga er á vegum Lang-
jökuls hf, en aðstöðuleysi hefur nokkuð háð starfsem-
ini fram að þessu. Mikil bót varð á þessu þegar fest
voru kaup á 130 fm húsi á Akranesi síðastliðinn vet-
ur. Beðið var færis með að flytja húsið þar til snjóa
tók að leysa. Þá var vegurinn mokaður og látinn
þorna í nokkrar vikur.
Fenginn var dráttarbíll og tengivagn af stærstu
gerð hjá E.T. hf í Reykjavík til flutninga á húinu sem
flutt var í heilu lagi. Vegalengdin er um 130 km og
tók ferðin alls 10 klukkustundir. Gekk flutningur að
óskum og er aðstaða öll miklu betri. Strax daginn
eftir var tekið á móti fyrstu viðskiptavinum í nýja
húsinu.
Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson
HÚSIÐ var flutt 130 kílómetra leið.
Nýjungar á
Hótel Flúðum
Morgunblaðið-Syðra-Langholti
SÍÐASTLIÐINN vetur var breytt
nokkuð tilhögun á rekstri og þjón-
ustu við ferðamenn á Flúðum.
Stofnað var hlutafélag um rekst-
urinn og teknar á leigu þær ein-
ingar sem hafa þjónað ferðafólki,
þar með talin Ferðamiðstöðin og
rekstur tjaldsvæðisins. Jón Gauti
Jónsson var ráðinn hótelstjóri frá
sl. áramótum.
Hann sagði í spjalli við frétta-
ritara að bryddað yrði upp á
nokkrum nýjungum. I Ferðamið-
stöðinni eru á boðstólum heitir
skyndibitaréttir og þar er líka
þvottavél og þurrkari svo ferða-
fólk getur þvegið þvott sinn. Þessi
þjónusta er einnig fyrir sumarbú-
staðaeigendur í Hrunamanna-
hreppnum.
Þá er verið að merkja þijár
gönguleiðir í nágrenni Flúða.
Reiðhjólaleiga er fyrir þá sem
vilja líta í kringum sig á því farar-
tæki. Málverkasýningar verða í
allt sumar og að sjálfsögðu minja-
gripasala. Það áhugaverðasta, að
sögn Jóns Gauta, er að nú er ver-
ið að koma fyrir á flötinni við
félagsheimilið gömlum hesta-
verkfærum, jarð- og heyvinnslu-
tækjum sem voru notuð á fyrri-
hluta aldarinnar.
Allmikil umferð íslendinga hef-
ur verið á Flúðum í þessum mán-
uði og alltaf vinsælt að halda þar
niðjamót. Hvað varðar erlenda
ferðamenn á það sama við sem
annars staðar að Þjóðverjar og
Svíar skila sér ekki nægilega vel
í skipulögðum hópferðum til
landsins í ár.
Burt meb klórin!
Klórvatn hefur inargvísleg
neikvæö áhrif á háriö.
Ultra Swim sjampó og
hárnæring eru þróuó til að
losa klór og klórlykt úr
hári á áhrifaríkan hátt.
Ultra Swim nær um
helmingi meiri klór úr hári
en önnur sjampó.
Ultra Swim inniheldur
Aloe Vera og Whole Wheat
prótein. Þah er einnig
ætlab til almennra nota.
apótek og sportvöruverslanir
um allt land.
Dreiflng; Aqua Sport,
sími 568 8085.
Að nálgast
sjálfan sig og Guð
Siðfræði náttúrunnar
Einsöngur í anda Suzuki
Hin vonlausu „keis"
unglingar / foreldrar
FJOLSKYLDUHATIÐ
AÐ LAUGALANDI í HOLTUM
helgina 30. júní - 2. júlí
Óvenjuleg útihátíð þar sem mjúku gildin verða í hávegum höfð.
Fullorðnir geta valið um 22 námskeið og börnin fá 6 smiðjur til að velja úr.
Trésmiðja Sund Gjöf dagsins
Tónsmiðja Körfubolti Helgistund
Föndursmiðja Fótbolti Gönguferðir
Leiksmiðja Útileikir Dans
Þrautasmiðja Kvöldvaka Söngur
Litla leiksmiðjan Varðeldur Hestaleiga o.fl
Fáðu bækling og frekari upplýsingar í síma 562 1747.
Sólstöðuhópurinn.
...alltfy rir fjölshyU una!
HF.OFNASMIÐJAN
Háteigsvegi 7 • Sírni 511-1100
Þar sem ferðalagið byrjar
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJASLÓÐ 7 101 REYKJAVÍK S, 562-1780