Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 21
FRÉTTIR: EVRÓPA
RÁÐSTEFNUHÖLLIN í Cannes. Borgin verður undirlögð af
fundahöldutn leiðtoga ESB og fylgdarliðs þeirra á mánudag og
þriðjudag.
_____________ERLENT
Finnar ánægðir með
Helsinki. Morgunblaðið.
MEIRIHLUTI Finna er ánægður
með aðild þjóðarinnar að Evrópu-
sambandinu, ESB. Aðeins lítill
minnihluti vill hins vegar aðild að
varnarsamstarfi Atlantshafs-
bandalagsins, NATO.
Stærsta dagblað Finna, Hels-
ingin Sanomat, hefur undanfarið
birt í áföngum niðurstöður úr viða-
mikilli könnun Gallup.
Skoðanir Finna á ágæti ESB-
aðildar hafa ekki breyst verulega
frá þjóðaratkvæðagreiðslunni í
október í fyrra. Þá samþykktu
57% aðild en nú mældust 55%
ánægð með aðildina. Eini þjóðfé-
lagshópurinn, sem er eindregið
mótfallinn ESB, er bændur. Nærri
ESB-aðild
allir í þeirri stétt sögðust nei-
kvæðir gagnvart ESB.
Aðeins fjórði hver Finni vill
aðild að NATO en 63% eru ein-
dregið á móti. í nýlegri skoðana-
könnun í Svíþjóð kom í ljós að
aðeins 19% landsmanna vildu ger-
ast aðilar að NATO en 58% voru
andvígir því.
Leiðtogafundurinn í Cannes
Flest deilumál
þegar afgreidd
Atvinnusköpun og utanríkis-
mál efst á dagskrá
París, Lúxemborg, Brussel, London. Reuter.
RÁÐHERRUM Evrópusambands-
ríkjanna hefur tekizt að finna
lausn á — eða ýta til hliðar — flest-
um þeim deilumálum sem hafa
verið mest aðkallandi að undan-
förnu. Þannig komast leiðtogarnir
hjá því átökum um t.d. þróunarað-
stoð og vernd kvikmyndaiðnaðar-
ins og geta einbeitt sér að þeim
málum, sem eru efst á dagskrá
fundarins, þ.e. atvinnusköpun og
ýmis utanríkismál, einkum stríðið
í Bosníu.
Frönsk stjórnvöld féllu í gær frá
því að krefjast ákvarðana á Can-
nes-fundinum um hertar reglur til
að vernda evrópska kvikmynda-
iðnaðinn fýrir Hollywood-fram-
leiðslu. Talsmaður Chiracs forseta,
Catherine Colonna, sagði að ekk-
ert samkomulag væri um málið
og ræða yrði það frekar í forseta-
tíð Spánar, sem hefst um næstu
mánaðamót.
Samkomulag um
þróunaraðstoð
Utanríkisráðherrar ESB-ríkj-
anna náðu svo loks samkomulagi
í gær um útgjöld sambandsins til
þróunaraðstoðar. Um 1.110 millj-
arðar íslenzkra króna munu renna
til aðstoðar við þriðjaheimsríki í
Afríku, Karabíska hafinu og við
Kyrrahaf á næstu fimm árum.
Þetta er samsvarandi þeirri aukn-
ingu frá síðasta fímm ára tíma-
bili, sem Frakkar höfðu lagt til.
Bretar og Þjóðvetjar, sem vildu
ekki hækka útgjöldin, sættust á
að hækka tilboð sín um aðstoð lít-
ið eitt gegn því að ónýttar fjárveit-
ingar yrðu færðar yfír á næsta
fímm ára tímabil.
Bráðabirgðasamkomulag náðist
jafnframt um að veija um 102
milljörðum króna til aðstoðar við
Austur-Evrópuríki á ári hverju og
um 58 milljörðum árlega til Mið-
jarðarhafsríkja.
Áherzla á markaðslausnir
Búizt er við að leiðtogarnir leggi
áherzlu á að fjölga störfum í Evr-
ópu með því að auka samkeppnis-
hæfni evrópskra fyrirtækja með
markaðslausnum í efnahagsmál-
um. Meðal tillagna, sem lagðar
verða fyrir leiðtogana, verða upp-
ástungur um að einfalda löggjöf
ESB, afleggja ríkiseinokun og
gera lokaátak til að fjarlægja
hindranir í vegi fyrir sameiginleg-
um markaði Evrópuríkja.
Hvað varðar stríðið í Bosníu er
ekki búizt við neinum töfralausn-
um. „Fundurinn mun einkennast
af hinni brýnu þörf fyrir að gera
eitthvað og getuleysinu til að gera
það,“ segir Michael Sturmer, for-
stjóri þýzku rannsóknastofnunar-
innar í alþjóðamálum.
ef þús þaiir
á ‘Hátel Tddu. cAllt þetta hídur þúi
Mynteining
ógerleg
ein og sér
• KLAUS KINKEL, utanríkis-
ráðherra Þýskalands, segir að
sögn þýska dagblaðsins Frank-
furter Allgemeine í gær að
mynteining sé ógerleg í Evrópu
nema samsvarandi pólitískur
samruni eigi sér stað samtímis.
Kinkel sagði þetta er hann var
að ræða væntanlegan leiðtoga-
fund Evrópusambandsins í Can-
nes.
• UMHVERFISRÁÐHERRA
Svíþjóðar, Anna Lindh, vakti
athygli evrópskra starfssystk-
ina sinna á fornum siðum norð-
urslóðarbúa á fundi í Lúxem-
borg í gær, þegar hún bauð
þeim upp á snafs og síld í ár-
bít. Vildi ráðherrann sænski
með því mótmæla á vinsamleg-
an hátt fundartímanum, sem
rekst á við hátíðahöld þau sem
tíðkast hafa í heimalandi henn-
ar á lengsta degi ársins síðan á
hinum heiðnu miðöldum.
• DOUGLAS Hurd, utanríkis-
ráðherra Breta, lýsti í gær yfir
nýju átaki til að opna augu
brezks almennings fyrir því, að
Evrópusambandið sé ekki að
framleiða lög og reglugerðir
sem segi fyrir um stærð flat-
baka, hvað þá að froskar séu
„fiskar, sem búi á landi“. Brögð
hafa verið að slíkum þjóðsögum
um starfsemi ESB í Bretlandi.
• FRAMKVÆMDASTJÓRN
Evrópusambandsins hefur falið
Alþjóðaviðskiptamálastofnun-
inni (WTO) í Genf að taka jap-
önsku áfengisskattalöggjöfina
til umfjöllunar. í Japan nýtur
innlend áfengisframleiðsla
óeðlilega mikillar verndar að
mati framkvæmdastjórnarinn-
ar, þar sem til dæmis viský er
skattlagt sjö sinnum hærra en
japanska brennivínið shochu.
d 18 átöðiun á landivui - í alfavaleið.
yerð ágiMmgu ámami: 7 tmeggjas
nianna uppbúnu fierhejrgifirá h: 2.275.
Swefnpakaplááósjrdkn 850 til 1.350.