Morgunblaðið - 24.06.1995, Page 42
42 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
SKÁK
IDAG
Karpov dregnr á
Kasparov
SKAK
Nýr skákstigalisti
FIDE
GILDIR FRÁ 1. JÚLÍ 1995
íslenski listinn
ísiendingar á lista FIDE eru eft-
irtaldir. P’jöldi reiknaðra skáka frá
1. des. 1994—31. maí 1995 eru í
sviga fyrir aftan nýju stigin:
ANATÓLI Karpov, FIDE heims-
meistari, hefur saxað mikið á forskot
Gary Kasparovs, heimsmeistara at-
vinnumannasambandsins PCA. Ka-
sparov hefur nú 2.795 stig, en
Karpov hefur 2.775 stig. Kasparov
lækkar vegna slakrar frammistöðu
sinnar á Ólympíuskákmótinu í
Moskvu, en Karpov hækkar vegna
öruggs sigurs á Hvít-Rússanum Gelf-
and í undanúrslitum FIDE-heims-
meistarakeppninnar.
Úkraínumaðurinn Va-
sílí ívantsjúk er í þriðja
sæti og munar mestu
um sigur á stórmótinu
í Linares.
Þeir Kasparov og
Anand munu tefla
heimsmeistaraeinvígi
PCA í Köln í haust, en
allt er enn í óvissu um
einvígi þeirra Karpovs
og Kamskys um FIDE
titilinn. Fyrirhugað er
síðan að halda svonefnt
sameiningareinvígi
samtakanna tveggja á
næsta ári og það er því
ekki ljóst hvort Kamsky
yrði viðurkenndur
FIDE-heimsmeistari,
1.7.95 1.1.95
1. Jóhann Hjartarson 2.570 (37) 2.590
2. MargeirPétursson 2.565 (29) 2.535
3. JónL.Ámason 2.545 (9) 2.530
4. HannesH.Stefánss. 2.520 (36) 2.530
5. Karl Þorsteins 2.500 (0) 2.500
6. HelgiÓlafsson 2.470 (40) 2.520
7. FriðrikÓlafsson 2.465 (0) 2.465
8. Helgi Áss Grétarss. 2.440 (21) 2.450
9. Þröstur Þórhallsson 2.420 (30) 2.420
10 Héðinn Steingrimss. 2.410 (0) 2.410
ll.Björgvin Jónsson 2.390 (7) 2.395
12. IngvarÁsmundsson 2.365 (0) 2.365
13. JónG. Viðarsson 2.335
KARPOV er aðeins
20 stigum frá Ka-
sparov.
sá 14. í röðinni, þótt honum tækist
að sigra Karpov.
Alþjóðlegi listinn: 1.7.95 1.1.95
1. Kasparov.Rússl. 2.795 2.805
2. Karpov,Rússl. 2.775 2.765
3. ívantsjúk, Úkraínu 2.740 2.700
4. Kamsky, Bandar. 2.735 2.710
5. Kramnik, Rússl. 2.730 2.715
6. Anand, Indlandi 2.725 2.715
7. Shirov, Lettlandi 2.695 2.710
8. Gelfand, Hv-Rússl. 2.685 2.700
9. Salov.Rússl. 2.685 2.715
10. Júsupov, Þýskal. 2.680 2.660
11. Drejev, Rússl.. 2.670 2.650
12. Adams, Englandi 2.660 2.655
13. Tivjakov, Rússl. 2.655 2.625
14. Khalifman, Rússl. 2.655 2.635
15. Beljavskí, Úkraínu 2.650 2.650
16. Barejev, Rússl. 2.650 2.675
17. Short, Englandi 2.645 2.655
18. Lautier, Frakkl. 2.645 2.655
19. Vaganjan, Armeníu 2.645 2.640
20. Nikolic, Bosníu 2.645 2.645
21. Topalov, Búlgaríu 2.640 2.630
22. Episín, Rússl. 2.640 2.635
23. Kortsnoj, Sviss 2.635 2.635
24. Svidler, Rússl. 2.635 2.585
25. Hracek, Tékklandi 2.635 2.595
26. Júdit Polgar, Ung. 2.635 2.630
27. Hansen, Danmörku 2.635 2.630
28. Almasi, Ungvl. 2.630 2.590
29. I. Sokolov, Bosníu 2.630 2.645
30. Smirin, Israel 2.630 2.630
31. Júdasín, ísrael 2.630 2.615
32. Ehlvest, Eistlandi 2.630 2.615
33. Hubner, Þýskal. 2.630 2.620
,34. 011, Eistlandi 2.630 2.610
'35. Morosevitsj, Rúss. 2.630 2.605
36. Andersson, Svíþj. 2.630 2.630
(10) 2.345 _
Aðrir Islendingar á
listanum eru Andri Áss
Grétarsson 2.330, Gylfi
Þórhallsson 2.330, Ró-
bert Harðarson 2.325,
Ágúst S. Karlsson
2.315, Halldór G. Ein-
arsson 2.315, Guð-
mundur Gíslason 2.305,
Bragi Kristjánsson
2.305, Benedikt Jón-
asson 2.300, Þorsteinn
Þorsteinsson 2.300,
Haukur Angantýsson
2.295, Sævar Bjama-
son 2.295, Þröstur
Árnason 2.295, Lárus
Jóhannesson 2.290,
Guðmundur Halldórs-
son 2.285, Rúnar Sigurpálsson
2.285, Davíð Ólafsson 2.275, Snorri
Bergsson 2.275, Tómas Bjömsson
2.275 Amþór Einarsson 2.265, Bragi
Halldórsson 2.265, Þráinn Vigfússon
2.260, Júlíus Friðjónsson 2.255, Sig-
urður Daði Sigfússon 2.255, Amar
Þorsteinsson 2.250, Ólafur Kristjáns-
son 2.245, Áskell Öm Kárason
2.235, Magnús Öm Úlfarsson 2.230,
■Dan Hansson 2.230, Hrafn Loftsson
2.230, Bjöm Freyr Bjömsson 2.225,
Arinbjöm Gunnarsson 2.220, Krist-
ján Eðvarðsson 2.210, Sigurbjöm
Bjömsson 2.210, Ægir Páll Frið-
bertsson 2.200, Bragi Þorfínnsson
2.185, Magnús Pálmi Ömólfsson
2.180, Stefán Briem 2.180, Ámi Á.
Ámason 2.165, Ólafur B. Þórsson
2.160, Torfí Leósson 2.160, Matthías
Kjeld 2.155, Jón Viktor Gunnarsson
2.145, Amar E. Gunnarsson 2.135,
Stefán Þór Siguijónsson 2.125, Páll
Agnar Þórarinsson 2.065, Bjöm
Þorfínnsson 2.060, Magnús Sól-
mundarson 2.035.
59 Islendingar eru nú á listanum
en vom 64 síðast.
Sumaratskákmót Hellis
Fyrsta sumaratskákmót Taflfé-
lagsins Hellis hefst þriðnudaginn 27.
júní kl. 20. Mótinu verður fram hald-
ið fímmtudaginn 29. júní kl. 20.
Tefldar verða 25 mínútna skákir, 6
umferðir og fer mótið fram í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi í Breið-
holti. Hellir hefur undanfarin ár hald-
ið voratskákmót sem notið hafa vin-
sælda og þykir því rétt að brydda
upp á þessari nýjung í starfseminni.
Mótið er öllum opið.
Margeir Pétursson.
Innilegar þakkir til allra, sem heiðruðu mig
með heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum á
85 ára afmœlinu mínu 15. júní sl.
Guð blessi ykkur öll.
Guðjón Gunnar Jóhannsson
frá Skjaldfönn.
- kjarni málsins!
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Sér og sig
PÉTUR Pétursson, þulur,
hringdi í Velvakanda. Hann
sagði leitt til þess að vita
að fjölmenntaðar konur,
eins og Jóhanna Vilhjálms-
dóttir og Kolfmna Bald-
vinsdóttir, ruglist á merk-
ingu orðanna að „halda sig“
og „halda sér“, eins og
sýnilegt sé af svargrein
þeirra til Helga Halfdanar-
sonar í Morgunblaðinu sl.
þriðjudag. Konur halda sér
til, en haida sig fjarri ef
því er skipta.
Fyrirspurn til
Boga
Agústssonar
BJÖRN BJARNASON
hringdi og vildi koma þess-
ari fyrirspum til Boga Ág-
ústssonar á Sjónvarpinu til
skila:
í vikunni sagði G. Pétur
Matthíasson fréttamaður
frá „harmlausum þörung-
um“ í Breiðafirði í sjón-
varpsfréttunum. Hvað þýð-
ir þetta og á hvaða tungu-
máli er þetta?
Björn Bjarnason,
skrifstofumaður.
eftirlætissjali og gömlum
skoskum regnhatti, hvort
tveggja tapað. Nú treysti
ég á skilvísan finnanda og
fundarlaun eru vís.
Þegar ég ætlaði að taka
sjalið mitt á síðustu sýn-
ingu íslensku óperunnar,
greip ég í tómt - það var
ekki á sínum stað. Þetta
sjal nota ég aðeins í leik-
húsum, óperum_ - einstaka
samkvæmum. Ég er búin
að spyija eins og óviti í öll-
um konserthúsum, árang-
urslaust.
Sjalið sem ég keypti í
Júgóslavíu fyrir mörgum
árum er ferkantað, nokkuð
stórt og þunnt ullarsjal,
ijómahvítt að lit með skær-
rósóttum blómabekk á allar
hliðar og silkikögri.
Hatturinn er kominn til
ára sinna og nokkuð lúinn.
Hann er köfióttur, það sem
Skotar nefna Black/Watch
(græn/svartur) dálitið líkur
karlmannshatti, fóðraður.
Hvorki hattur né sjal voru
merkt, því miður. Vertu nú
svo góður, kæri finnandi
að hringja til mín í síma
553-5081 eða til Birgis í
síma 552-9333.
Anna S. Snorradóttir.
Tapað/fundið
Taska tapaðist í
Hafnarfirði
LJÓSBRÚN leðurtaska
(poki) tapaðist við Reykja-
víkurveg í Hafnarfirði sl.
miðvikudag. Uppl. í síma
565-6388.
Gasgrill hvarf úr
Fossvogi
GASGRILL og kútur hurfu
aðfaranótt fimmtudags úr
garði í Huldulandi 24 í
Fossvogi. Ef einhver hefur
orðið var við mannaferðir
og bílaumferð þessa nótt,
eða veit eitthvað um grillið,
vinsamlegast hafið sam-
band í síma 553-2090.
ast hafíð samband við
Selmu Sif í síma
568-9074.
Kisa mín er týnd
SVÖRT kisa með hvítar
loppur, hvíta bringu og
hvítan blett á nefínu týnd-
ist 17. júní frá Lundar-
brekku í Kópavogi. Hún
er innikisa þannig að hún
þekkir sig ekkert í um-
hverfinu. Ef einhyer hefur
séð kisu vinsamlegast
hringið í síma 564-4396.
Kettlingur gefins
FALLEGUR og fjörugur
ljósgrár kettlingur, læða,
óskar eftir góðu heimili.
Uppl. í síma 552-9286.
Dimrnalimm er
týnd
HÚN Dimmalimm hvarf
frá heimili sínu á Holtinu
í Hafnarfirði fímmtudag-
inn 15. júní. Hún er svört
með hvítar loppur, bringu
og trýni, smávaxin með
fjólubláa hálsól setta
skrautsteinum. Hún er
eyrnamerkt með G4037.
Hennar er sárt saknað.
Hafi einhveijir séð hana
sl. viku þá vinsamlegast
hringið í síma 565-2383.
Páfagaukur í
óskilum
GRÁR dísarpáfagaukur
fannst í Súðarvogi sl.
þriðjudag. Uppl. í síma-
boða 846-1818.
Hálsmen tapaðist
HÁLSMEN týndist ein-
hvers staðar í kringum
Tjörnina 17. júní. Hálsmen-
ið er úr gulli með einni
perlu. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 567-9234.
Tapað sjal og hattur
EKKI er það gott. Búin að
leita út um allt að mínu
Gæludýr
Týndur
páfagaukur
GULUR og grænn páfa-
gaukur slapp út um
glugga í Álfheimum 40 sl.
miðvikudag. Ef einhver
hefur séð hann vinsamleg-
BRIDS
llmsjón Guómundur l’áll
Arnarson
„ÞEIR eiga 600“ „Og
hundrað. Það eru 13, nei
12 IMPar. Við eigum...“
„Bíddu, bíddu! Hvað var
spilað?" „Ha, þijú grönd,“
„Og töpuðust þau!?“ „Ja,
ég fór vitlaust í spilið."
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ ÁG3
f K74
♦ DG105
♦ K95
Vestur Austur
♦ K876 ♦ D1052
V D65 Hll V G983
♦ 8762 111111 ♦ Á3
♦ 87 ♦ D106
Suður
♦ 94
f Á102
♦ K94
♦ ÁG432
Vestur Norður Austur Suður
1 lauf
Pass 1 tígull Pass 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Útspil: spaðsexa.
Suður hafði greinilega
meiri áhuga á að tala um
eitthvað annað en hrakfarir
sínar í þessu spili, en auðvit-
að komst hann ekki upp með
neinn moðreyk. Sveitarfélag-
ar hans vildu ólmir fá að
vita hvemig hægt var að
tapa svo gráupplögðu spili.
Það gerðist þannig:
Austur fékk fyrsta slaginn
á spaðatíu og spilaði drottn-
ingunni um hæl. Sterkur og
úthugsaður leikur. Sagnhfí
dúkkaði, en fékk næsta slag
á spaðaás. Fór síðan í tígul-
inn. Austur tók strax á ásinn
og spilaði síðan hjartaníu!!
Okkar maður þóttist nú viss
um að spaðinn lægi 5-3. Þar
með var óhætt að gefa austri
slag á lauf. Hann tók því á
hjartaás, spilaði laufi að
blindum og lét níuna duga
þegar vestur fylgdi með smá-
spili. Austur átti slaginn og
dró nú fram vel varðveittan
spaða.
„Það er engin skömm að
falla flatur fyrir vöm af
þessu tagi,“ sögðu félagamir
hughreystandi.
Víkverji skrifar...
SÍÐUSTU misserin hefur þjóð-
kirkjan átt undir högg að
sækja. Ástæðan er tvíþætt að mati
Víkverja dagsins. í fyrsta lagi hafa
átök innan kirkjunnar veikt stöðu
hennar. í annan stað hefur hún
ekki samlagað sig nægilega þeim
breytingum sem orðið hafa í þjóðfé-
laginu.
Pétur Pétursson, doktor í félags-
fræðum og prófessor í guðfræði,
segir í viðtali við „Sæmund á seln-
um“, tímarit Háskóla íslands:
„Sú gagnrýni hefur komið fram
að þjóðkirkjan hafi staðnað og ekki
brugðizt rétt við þjóðfélagsbreyt-
ingum undanfarinna áratuga. Þess
vegna hafi kirkjusókn minnkað og
fólk leitað annarra leiða til að fá
útrás fyrir trúarþörf sína...
Kirkjan er orðin of einskorðuð
við vitræna tjáningu trúarinnar.
Dulúðin hefur orðið útundan. Tákn-
mál kirkjunnar er í raun ríkt af
dulúð en fólk áttar sig ekki á því
- og kirkjunnar menn hafa ekki
verið nógu duglegir að benda á það
... Það þarf að laða fólk að nýju
að drama og dulúð guðsþjónustunn-
ar.“
xxx
TVENNS konar nýtrúarhreyf-
ingar hafa tyllt tám á trúarak-
ur þjóðarinnar, ef Víkveiji skilur
mál prófessorsins rétt.
í fyrsta lagi nýkarismatískar
hreyfíngar. Dæmi um slíkar eru
Vegurinn og Krossinn. Vegurinn
klofnaði út úr þjóðkirkjunni árið
1982. Fyrirmynd hans var hreyfing-
in New Testament Church í Banda-
ríkjunum, sem leitast við að endur-
vekja þann anda sem ríkti í frum-
kristninni. Krossinn mun ávöxtur
af akri hvítasunnumanna. Báðir
þessir söfnuðir leggja áherzlu á
skírn í heilögum anda og lækninga-
mátt bænarinnar. Að mati Víkveija
eiga þeir og þjóðkirkjan að geta
starfað saman í kristilegri sátt.
í annan stað er Nýöldin, sem
prófessorinn segir eiga rætur að
hluta í hippamenningunni. Að hluta
í spíritisma og guðspeki. Að hluta
í austrænum hugmyndum búdd-
isma og hindúisma, samanber kenn-
inguna um endurholdgun, sem
gengur þvert á kenningar kristninn-
ar. „Nýaldarmenn stunda bæði
„hjátrú“ og „hjálækningar", segir
prófessorinn, „sem ekki eru í sam-
ræmi við opinberar leiðir..."
xxx
PÉTUR Pétursson segir í viðtal-
inu við tímarit Háskólans að
þjóðkirkjunni sé ekki ógnað af ný-
trúarhreyfingum. „Þær hafi þegar
náð hámarksútbreiðslu sinni. Hins
vegar séu þær aðvörunarmerki til
forystumanna kirkjunnar."
„Pétur bendir á,“ segir í tilvitn-
uðu riti, „að þjóðkirkjan þurfi að
tileinka sér vissa þætti í starfi ný-
trúarhreyfinganna, einkum þá sem
snerta dulúð trúarinnar. Það þarf
að laða fólk að nýju að dulúð guðs-
þjónustunnar."
Víkveiji telur ábendingar guð-
fræðiprófessorsins í meira lagi at-
hyglisverðar. Kirkjan getur eflaust
orðið sterkari segull á fólk en hún
er, ef kirkjunnar menn laga sig að
samtímanum, án þess að hvika frá
grunnkenningum kristninnar.
xxx
HUGLEIÐUM tvo möguleika,
sem kirkjan getur nýtt til að
ná til fólks með kenningar kristn-
innar.
Víkveiji staldrar fyrst við æva-
forna en síunga leið, kirkjulist; list
orða, mynda og tóna. Trúlega
kemst maðurinn aldrei nær Guði
sínum en í ægifegurð kirkjutónlist-
ar. í henni á og kirkjan kraftmikinn
segul, sem dregur til sín milljónir
manna um heim allan.
í annan stað hlýtur kirkjan- í
næstu framtíð að nýta betur sam-
skiptatækni nútímans, prentmiðla,
sjónvarp og útvarp. Skammt fram-
undan er þúsund ára afmæli kristni-
töku Islendinga, merkasta löggjörn-
ings í gjörvallri íslandssögunni.
Hvernig nýtir kirkjan það gullna
tækifæri til að ná eyrum alþjóðar
- og fylgd hennar inn í nýja öld?
Því tækifæri mega kirkjunnar menn
ekki mæta girtir sundrungu og
þröngsýni.