Morgunblaðið - 02.08.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.08.1995, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Guðmundur Sv. Hermannsson Dyttað að trillunni í fjöruborðinu ÞEIR hafa verið að fiska þokka- lega, trillukarlarnir í Hrísey, að undanförnu. Ragnar Vík- ingsson, sem rær á trillu sinni Nonna EA-32, gaf sér tíma í blíðviðrinu til að dytta aðeins að bátnum og dró hann í því skyni upp í Qöru en það gera þeir Hríseyingar þegar um tré- báta er að ræða. Fáir eru hins vegar eftir í eynni sem róa á trébátum, flestir aðrir en Ragn- ar og Árni Tryggvason eru komnir á plastbáta. .. A Timburhús í Hafnarfirði Til sölu er húsið nr. 2 við Skerseyrarveg, byggt 1930, hæð, kjallari og ris alls 100 fm. Á hæðinni eru tvö herb., eldhús og snyrtiherb., í risi 2 herb. og rúmgóður kjallari. Húsið er allt nýstandsett að utan. 20 fm bílsk. (úr timbri). Ekkert áhv. Laust strax. Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, sími 555 0764. 7 Setbergshlíð - Hfj. Eigum nokkrar íbúðir eftir í þessu vandaða húsi við Klukkuberg. Allar íbúðir með sérinngangi, til afhendingar strax tilbúnar undir tréverk inni, lóð og hús að utan fullfrágengið. Sérmerkt stæði í bílgeymslu og/eða bílskúr getur fylgt. Frábært útsýni, nýr golfvöll- ur í hlaðvarpanum. Sveigjanleg greiðslukjör. Lyklar á skrifstofu. Nánari upplýsingar hjá: As fasteignasölu, Fjarðargötu 17, Hafnarfirði, sími 565-2790. AKUREYRI Hafnarsljórn segir upp samningi um skipulag Oddeyrartanga HAFNARSTJÓRN Akureyrar hef- ur samþykkt að segja upp verk- samningi um skipulagsvinnu við Teiknistofuna Form hf. sem er frá því í mars árið 1991 „þar sem upplýst hefur verið að teiknistofan hefur tekið að sér verkefni sem samrýmast ekki vinnu að skipulagi fyrir Akureyrarhöfn,“ eins og seg- ir í tillögu sem Björn Jósef Arn- viðarson, fulltrúi í hafnarstjórn, lagði fram og samþykkt var á fundi stjórnarinnar á mánudag. Teiknistofan Form hefur unnið að deiliskipulagi á Oddeyrartanga fyrir Akureyrarhöfn og er verkið á lokastigi, einungis á eftir að skipta svæðinu í lóðir, en um er að ræða um 45 þúsund fermetra svæði. Þar er fóðurvörudeild KEA staðsett og fyrir liggja umsóknir frá Eimskipafélagi íslands og Flutningamiðstöð Norðurlands um lóðir fyrir starfsemina. Skipta þarf svæðinu sem til umráða er á milli félaganna tveggja. Verktakinn, Teiknistofan Form, hefur tekið að sér að teikna vöruskemmu fyrir Flutningamiðstöð Norðurlands á þessu svæði. Ekki hægt að uppfylla ýtrustu óskir „Það er ljóst að ekki er hægt að uppfylla ýtrustu óskir beggja félaga og því er að mínu mati um óeðlilega hagsmunaárekstra að ræða þegar teiknistofan hefur jafnframt tekið að sér vinnu fyrir annað félagið,“ sagði Björn Jósef Arnviðarson, flutningsmaður til- lögunnar. „Hún getur þá ekki þjónað okkur sem hlutlaus aðili." Björn Jósef sagði það vissulega vont að þetta mál kæmi upp nú þegar verið er að ljúka skipulags- vinnunni, en það hefði ekki komið honum á óvart að tillagan var samþykkt samhljóða í hafnar- stjórn þar sem augljóslega væri verið að bijóta þær reglur sem verktaki ætti að starfa eftir. Einar Sveinn Ólafsson, formað- ur hafnarstjórnar, sagði að sam- þykkt stjórnarinnar yrði tekin til umfjöllunar og afgreiðslu á fundi bæjarráðs á morgun, fimmtudag. í framhaldi af því yrði væntanlega gerður verklokasamningur við Form og að því loknu myndu menn væntanlega snúa sér til skipulags- deildar Akureyrarbæjar um að ljúka því sem eftir er af skipulags- vinnunni á hafnarsvæðinu. Koma í veg fyrir óánægju „Menn telja að þarna skarist hagsmunir þar sem Form hefur tekið að sér að vinna fyrir annan þann aðila sem sótt hefur um lóð á Oddeyrartanga og með þessari samþykkt viljum við koma í veg fyrir að upp komi óánægja,“ sagði Einar Sveinn. Bjarni Reykjalín hjá Teiknistof- unni Formi hf. vildi ekkert segja um málið fyrr en það hefði hlotið fullnaðarafgreiðslu í bæjarráði. Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson ÆTTARMÓT Helga magra markar upphafið að Síðsumri í Eyjafjarðarsveit sem stendur í ágústmánuði. Hreiðar Bjarni Hreiðarsson og Gunnar Valur Eyþórsson ásamt Kristinu Brynj- arsdóttur voru í óða önn að setja upp sölutorgið í gær. Síðsumar í Eyjafjarðarsveit Ættarmót Helga magra um verslunarmannahelgi leikir og gamlir heyskapar- hættir, útimarkaður og tísku- sýning. Þá verður þar hátíðar- samkoma Helga magra og skoðunarferð um Grundarreit. Meðal þeirra sem fram koma á mótinu eru þeir Helgi Schiöth á Frissa fríska og Ein- ar Gunnlaugsson á Norðdekk- drekanum, Pálmi Gunnarsson, sr. Pétur Þórarinsson, Einar Georg Einarsson, Iiaraldur Bessason, glímudeildir KR og HSÞ, harmonikuhljómsveitin Þuríður formaður og háset- arnir ásamt Guðjóni Pálssyni, Einari Guðmundssyni, Jóni á Á og Braga Hlíðberg. ÆTTINGJAR landnáms- mannsins Helga marga ætla að safnast saman að Hrafna- gili í Eyjafjarðarsveit um kom- andi helgi, verslunarmanna- helgina, en þar efnir félagið Lifandi land til samkomu sem nefnist Ættarmót Helga magra. Þetta ættarmót markar upphafið að röð viðburða að Hrafnagili nú í ágústmánuði, sem nefnist Síðsumar í Eyja- fjarðarsveit. Að loknu ættar- móti tekur við sýningin Hand- verk ’95 sem stendur dagana 10.-13. ágúst og í kjölfarið verður efnt til sýningarinnar Iðnaður ’95. Undirbúningur stendur nú sem hæst, búið er að reisa stórt tjald á svæðinu þar sem verður veitingasala og skemmtanir og þá er af fullu kappi unnið við að setja upp sölutorg við anddyri skólans að Hrafnagili. Heyskaparhættir og harmonikukvöld Boðið verður upp á fjöl- breytta dagskrá á mótinu um helgina, m.a. verður þar tor- færusýning, dráttarvéla- keppni, kajakróður, grill- veisla, harmonikukvöld, fornir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.