Morgunblaðið - 02.08.1995, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 02.08.1995, Blaðsíða 40
V í K G Ltrit alltaf á Miðvikudögum MORGUNBLADIÐ, KRINGIAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, l'ÓSTHÚLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK 10-11 leigir Kaup- félagið í Mosfellsbæ STJÓRN Kaupfélags Kjalarness- þings hefur samþykkt að leigja verslun félagsins í Mosfellsbæ til verslunarinnar 10-11. Hefur 16 starfsmönnum Kaupfélagsins verið sagt upp og eru þeir með þriggja mánaða uppsagnarfrest. Samþykkt stjómarinnar er gerð með fyrirvara um samþykki féJags- fundar Kaupfélagsins sem verður haldinn í Hlégarði þann 10. ágúst. Eiríkur Sigurðsson, eigandi 10-11 verslananna, segir að hug- myndin sé að setja á stofn verslun með svipuðu sniði og fimm verslan- ír fyrirtækisins í Reykjavík og hann álíti að slíka verslun vanti á þetta markaðssvæði. Hann segir vel hugsanlegt að einhverjir starfsmanna Kaupfélags- ins, sem sagt hefur verið upp störf- um, verði endurráðnir. Örlítið tap á rekstrinum Sveinbjörn Eyjólfsson, formaður stjórnar þess, segir að rekstur kaup- félagsins hafi ekki gengið nógu vel. Órlítið tap hafi verið á rekstrin- um undanfarin fimm ár og í fyrra hafi hann numið 500 þúsund krón- um. Þess vegna hafi komið upp sú hugmynd innan stjórnarinnar hvort einhver annar aðili væri fáanlegur til að reka matvöruverslun í hús- næðinu. Alls eru félagsmenn Kaupfélags- ins á bilinu 180-200 og er endanleg ákvörðun um leigusamninginn í þeirra höndum. Sveinbjörn segir að ef tillagan verði ekki samþykkt verði litið þannig á að félagsmenn vilji halda áfram rekstri kjörbúðar- innar og hann myndi þá segja af sér formennsku stjórnar til að rýma fyrir þeim aðilum sem hafa önnur og betri úrræði. Tekur við rekstrinum 1. nóvember Sveinbjörn segir að tillagan geri ráð fyrir að 10-11 leigi húsnæði Kaupfélagsins, kaupi lager og reki þar matvöruverslun. Mun verslunin taka við rekstrinum þann 1. nóvem- ber. Eiríkur segir að þá verði farið í að breyta húsnæðinu miðað við þarf- ir 10-11 verslana og er ráðgert að opna aftur þann lO.nóvember þegar fyrirtækið verður fjögurra ára. Morgunblaðið/Albert Kemp Tveggja tonna úthafsveiðiskip NÆRRI 500 tonn af úthafsrækju- kvóta hafa ásamt kvóta í ýmsum öðrum tegundum verið færð á 2ja tonna trillu, Kredit, sem legið hefur ónotuð á Fáskrúðsfirði í nokkur ár. Aflinn er jafnóðum færður af trillunni á önnur skip þar sem eig- andinn, vestfirsk útgerð, notar hana aðeins sem millilið í kvóta- viðskiptum. Sumar einstaklingsút- gerðirnar hafagripið til þess ráðs að skrá hjá sér báta sem ekki er ætlunin að nota til veiða, einungis til að auka svigrúmið í meðferð kvótans. Geta menn þannig selt allan kvóta á nafni eins báts og keypt hann á nafni hins og síðan fært á milli að vild. ■ 5001 af úthafsrækju/B8 Stórbrotnir ' íshellar MANNSKEPNAN virðist ósköp lítilvæg í samanburði við íshell- ana í norðvestanverðum Torfa- jökli sem ljósmyndari Morgun- blaðsins heimsótti á sunnudag. Þessar stórbrotnu hvelfingar myndast vegna mikils jarðhita sem er undir jöklinum og bræðir stöðugt ísinn, en norðvestur af Torfajökli er stærsta háhita- svæði landsins. Samsvarandi hellar eru meðal annars í Gríms- vötnum og i Kverkfjöllum. Hell- arnir stækka lengi stöðugt en á endanum síga þeir saman og hrypja með vissu millibili, en myndast síðan að nýju. Kunnugir segja að hellarnir séu óvenju fallegir í ár og hafi sjaldan verið fegurri, auk þess sem auðveldara er að komast að /þeim en oft áður. Arður einstaklinga af hlutabréfum lækkaði í fyrra en hækkar í ár Arðgreiðslur samtals um 1.200 milljónir króna ARÐUR af hlutabréfaeign landsmanna var um- talsvert lægri á árinu 1994 en árið 1993. Sam- kvæmt skattframtölum einstaklinga fyrir árið 1994 lækkaði útgreiddur arður um 14,2% og framteljendum arðs fækkaði um nærri 1.300. Að sögn Bjarna Ármannssonar, forstöðumanns fjár- vörzlu- og markaðssviðs Kaupþings hf., er megin- skýringin sú að Flugleiðir hf. greiddu engan arð á síðasta ári. Bjarni segir hins vegar stefna í að einstaklingum, sem eiga í fyrirtækjum, verði greiddar um 1.200 milljónir króna í arð á þessu ári. Samkvæmt skattframtölum var útgreiddur arð- ur af hlutabréfum fyrirtækja samtals 949 milljón- ir árið 1993, en 814 milljónir árið 1994, sem er um 135 milljónum króna minna. Jafnframt fækk- aði þeim, sem gefa upp arðgreiðslu á skattfram- tali, úr 17.748 í 16.465 eða um 1.283. Þannig lækkaði meðalarðgreiðsla á hvern hlutafjáreig- anda úr 53.000 krónum í um 49.000. Bjarni Ármannsson segir að meginskýringin á þessu sé sú að Flugleiðir hf. hafi ekki greitt arð til hluthafa sinna á árinu 1994 vegna rekstrarárs- ins 1993, en árið 1993 hafi félagið greitt 144 milljónir króna í arð. Um 4.400 hluthafar eiga félagið og skýrir það sennilega að miklu leyti fækkun þeirra, sem fengu arðgreiðslu á síðasta ári, að sögn Bjarna. Hann segir það jafnframt kunna að spila inn í að hjá sumum smærri fyrir- tækjum, sem ekki eru skráð á hlutabréfamark- aði, hafi arðgreiðsla verið lægri í fyrra en árið á undan vegna slæmrar afkomu á árinu 1993. í ár greiða Flugleiðir 7% arð til hluthafa. Bjarni segir að afkoma hlutafélaga, sem skráð séu á hlutabréfamarkaði, fari nú batnandi og arðgreiðsl- ur séu að meðaltali um 25% hærri en í fyrra. „Okkur sýnist að einstaklingar muni telja fram um 1.200 milljónir króna í arðgreiðslur á árinu 1995, sem lýsir batnandi afkomu fyrirtækjanna," segir hann. Morgunblaðið/RAX Laugarvatn Varað við böðum UNNIÐ er að því að útbúa skilti til að vara almenning við því að baða sig í Laugarvatni vegna gerlamengunar og verður varnað- arorðunum komið fyrir við vatnið. Birgir Þórðarson, umhverfisskipu- lagsfræðingur hjá Heilbrigðiseftir- liti Suðurlands, segir að fráveitu- búnaði við vatnið sé ábótavant. Birgir sagði að gera þyrfti brag- arbót á fráveitubúnaði á svæðinu. „Þarna eru stórar byggingar, skól- ar, hótel og veitingahús, og þó rotþrær séu við þær fer fráveitu- vatnið frá rotþrónum nánast óhreinsað í vatnið," sagði hann. Hann sagði að flestar byggingarn- ar væru í eigu ríkisins og mennta- málaráðuneytinu hefði því verið sent erindi í tengslum við niður- stöðu sýnatökunnar. Aðspurður um hvaða úrbóta væri þörf sagðist Birgir telja að sameina þyrfti fráveitulagnir og byggja einfalda hreinsistöð við vatnið. Kostnaður við framkvæmd- irnar myndi væntanlega nema á bilinu 5 til 10 milljónum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.