Morgunblaðið - 02.08.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.08.1995, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Dj ass er við allra hæfí VEIGAR Margeirsson trompetleikari og Óskar Guðjónsson saxofónleikari. Fjöldi tónlistarmanna á íslandi sem fæst við djasstónlist fer sívaxandi. Þór- oddur Bjarnason talaði við Veigar * Margeirsson og Qskar Guðjónsson djass- leikara um þátttöku þeirra í úrvalssveit ungra djassleikara frá Norðurlöndum fyrrísumar. SKAR Guðjónsson er 21 árs gamall Garðbæingur. Hann fór ungur að leika á saxofón og hefur m.a. numið í tónlistarskóla FÍH undir hand- leiðslu Sigurðar Flosasonar saxo- fónleikara og Hilmars Jenssonar gítarleikara. Veigar Margeirsson er 23 ára Keflvíkingur sem hefur lært trompetleik hjá Jónasi Dag- bjartssyni, Ásgeiri Steingrímssyni og Eiríki Emi Pálssyni auk náms erlendis. Þeir hafa báðir komið víða við og spilað með mörgum þekkt- ustu tónlistarmönnum landsins undanfarin ár, bæði á tónleikum og geisladiskum. Stórsveit Norðurlanda Þeir voru valdir sem fulltrúar íslands í úrvalssveit ungra djass- leikara sem hittist til námskeiðs- og tónleikahalds í sænska bænum Skurup dagana 5.-19. júlí síðastlið- inn. Valin var 22 manna stórsveit sem æfði undir stjóm þeirra Bengt Ame Wallin frá Svíþjóð og Slide Hampton frá Bandaríkjunum. „Bengt Arne er gamall jálkur og einn þekktasti stórsveitarmaður þeirra Svía. Slide Hampton, sem var aðalstjómandinn, er goðsögn í djassheiminum og hefur unnið með öllum frægustu nöfnum djass- heimsins í gegnum tíðina,“ sögðu þeir Óskar og Veigar. „Slide er mjög fínn karl, fullur af visku og þekkingu og við lærðum mikið af honum.“ Skurup er smábær syðst í Sví- þjóð. „Æfingar stóðu yfir í viku og var æft frá kl. 9.30-17. í frítím- anum var lítið annað að gera en að hlaða batteríin, ekki veitti af því þetta var mjög strembið og maður var farinn að láta veruiega á sjá líkamlega og þá eigum við einkum við varimar því mest mæðir á þeim hjá blásurum. Það myndi engum detta í hug að æfa íþróttalið svona. Það var einn mikilvægasti hluti ferðarinnar að kynnast fólki í ná- grannalöndunum sem er að gera svipaða hluti og maður sjálfur og það var ómetanlegt að mynda sam- bönd sem við eigum eftir að búa að ævilangt ,“ sögðu þeir. Eftir þessa fyrri viku tók tónleikahald við og spilað var á femum tónleik- um. Fyrst voru haldnir tónleikar í Skump áður en haldið var á alþjóð- lega djasshátið í Árósum í Dan- mörku. Þá var spilað í Kristianstad í Svíþjóð og að lokum á alþjóðlegri djasshátíð í Molde í Noregi sem er mjög þekkt og um 30.000 manns leggja leið sína þangað hvert sinn er hún er haldin. Við fengum góða innsýn í það hvemig það er að vera „on the road“, á tónleikaferðalagi. Langar rútuferðir og margir tón- leikar á stuttum tíma.“ Ég hlusta á alla tónlist nema djass Mörgum þykir erfítt að átta sig á djasstónlist og fínnst hún bara fullt af nótum sem ekki er hægt að skilja. „Fyrir mörgum er þetta ein stór og mikil óreiða. Fólki finnst það ekki heyra neina laglínu og veit ekki hvenær verið er að spinna og hvenær laglínan er leik- in og gefur sér engan tíma til að kynna sér eðli þessa tónlistar- forms. Ég lendi oft í því að fólk spyr mig hvað ég verði þegar ég lýk námi, hvort ég verði einhvers konar tónlistarfræðingur. Þá leyfi ég fólki oft að hlusta á djass og þá verður það gjarnan hrifið og áttar sig á af hve miklu og fy'öl- breytilegu efni er að taka,“ segir Veigar. „Fólk er matað á dægur- tónlistinni sem gerir minni kröfur til þess. Sumir skilja hreinlega ekki tónlist sem ekki er sungin." Djasstónlist grandvallast eins og önnur tónlist á ákveðnu formi þar sem laglína og úrvinnslukaflar skiptast á. En hvernig lærir maður að vinna úr laglínum, spinna? 80% af tímanum sem maður notar í æfingar fer í að æfa hendingar, (,,lick“) og hlusta á plötur annarrá djassleikara og læra og bæta þar með við forða sinn. Þetta er svipað því að læra að tala, þú grípur orð og frasa hér og þar sem þú bætir við orðaforða þinn og aðlagar þeim sem fyrir er. Síðan býrðu til setn- ingar, spinnur úr þessum forða.“ Lifað af tónlistinni Djass er 20. aldar tónlist sem byijaði að þróast um síðustu alda- mót og hefur kvíslast í ýmsar átt- ir síðan. í dag spila menn bæði hefðbundinn djass og fijálsan djass og allt þar á milli. Á íslandi er lít- ið um staði sem þú getur labbað inn á og hlustað á lifandi djasstónl- ist. Helst er það Jassbarinn við Lækjargötu en þó segja þeir félag- ar að þar sé núorðið farið að spila ýmislegt annað en djass; „það gef- ast flestir staðir upp“, segja þeir. En þegar ekki er hægt að lifa eingöngu á leika djass á Islandi verða menn að vera tilbúnir að spila annars konar tónlist til að hafa fyrir salti í grautinn. „Ég hef trú á fjölhæfni,“ segir Veigar. „Ég vinn og mennta mig þannig að ég sé fær í flestan sjó. Það sést best á því að ég hef bæði leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Islands og farið í tónleikaferðir með hljóm- sveitinni Mezzoforte, sem dæmi. Ég hef einnig leikið inn á fjölda geisladiska með ýmsum tónlistar- mönnum. í dag er ég í plötuupptök- um með Stórsveit Reykjavíkur." Þeir segja að sumir i „bransan- um“ séu á móti því að spila t.d. ýmsa popptónlist eða sígilda tón- list. þeir Veigar'og Óskar segja að það dugi ekki ef lifa á af tónlist- inni. „Oft er þetta minnimátt- arkennd vegna þess að þeir sem hér eiga í hlut geta kannski ekki hlaupið í hvað sem er.“ Veigar starfar nú í sumar með hljómsveitinni Páll Óskar og millj- ónamæringamir en er á fömm til Coral Gables í Flórida í ágúst þar sem hann ætlar að stúnda fram- haldsnám. Óskar er að ljúka prófí í haust frá tónlistarskóla FÍH. Hann er nú í hljóðveri með hljómsveitinni Mezzoforte og áætlað er að fylgja væntanlegri plötu úr hlaði með tón- leikum erlendis .m.a. Auk þessa er hann að spila í söngleiknum Rocky horror picture show sem fmmsýnd- ur verður í ágúst. Lenging höfundarréttar í sjötíu ár „Skref aftur á bak“ Er það bókmenntunum til heilla að lengja vemdartíma höfunda í sjötíu ár? Þröstur Helgason kannaði hug bókaútgefenda og höfunda til málsins. MORGUNBLAÐIÐ greindi frá því í síðustu viku að að til standi að lengja hö- undarrétt um tuttugu ár, úr fímmtíu ámm í sjötíu. Það þýðir að ekki má gefa út verk látins höfundar fyrr en sjötíu ámm eftir dauða hans nema með leyfí erfíngja. Ástæðan fyrir þessum breytingum mun einkum vera sú að samræma þarf íslensku löggjöfina ákvæðum tilskipana ESB á sviði höfundarréttar. Blaðamaður leitaði álits útgefenda og höfunda á þessari breytingu og voru flestir á því að hún væri ekki bókmenntunum til framdráttar. Nóg þrengt að bókaútgáfu fyrir Ólafur Ragnarsson, formaður Fé- lags bókaútgefenda og frám- kvæmdastjóri Vöku-Helgafells, seg- ir að lenging verndartíma höfundar- réttar muni við fyrstu sýn geta haft ýmis áhrif á íslenska bókaútgáfu. „Hún gæti orðið hemill á endurút- gáfu ýmissa bókmenntaverka sem væri æskilegt að væm aðgengileg almenningi. íslendingar em aðilar að ýmsum alþjóðasáttmálum um höfundarrétt sem miða við að vemd- artíminn sé fímmtíu ár og er því spurning hvort ástæða sé til að breyta þeirri gmndvallarreglu þótt boð berist þess efnis frá Brussel. Eins og sakir standa þykir okkur útgefendum nóg þrengt að okkur með skattlagningu og því síður ástæða til að leggja fleiri steina í götu greinarinnar og takmarka um leið bókaval á íslenskum markaði. Búast má við að bækur höfunda sem eru látnir fyrir fimmtíu árum eða fyrr og eru á markaði hækki sem höfundarlaunum nemur ef og þegar frumvarpið verður að lögum. Þannig kæmi þessi breyting beint niður á neytendum.“ Ólafur segir að almennt séð hafí fimmtíu ára reglan verið mjög ásætt- anleg fyrir alla aðila. „Þegar sjötíu ár eru liðin frá láti höfundar má hins vegar gera ráð fyrir að hundrað ár séu liðin frá því að verkið var skrifað og gefíð út í fyrsta sinn. Lengingin gæti orðið til þess að fá slík verk yrðu gefín út aftur eftir að þau væru komin úr höfundarrétti vegna þess að þau væm svo fjarri smekk og áhuga þeirra kynslóða sem þá væru uppi. Um þetta er þó erfítt að alhæfa. Líkurnar á að verk lifi meðal þjóðarinnar eru hins vegar óneitanlega meiri ef þau em til á prenti og endurútgefin í aðgengilegu formi handa nýjum kynslóðum.“ Skref aftur á bak Ingibjörg Haraldsdóttir, formaður rithöfundasambandsins, telur breyt- inguna vera skref aftur á bak, m.a. vegna þess að eftir því sem lengra líður frá láti höfundar verða þeir fleiri sem þarf að greiða fyrir útgáfu- rétt, útgjöld til höfundarrétt- Ólafur Ingibjörg Ragnarsson Haraldsdottir Bragi Þórðarson Ami Einarsson argreiðslna verða því meiri hjá út- gefendum en þá penninga mætti nýta á annan hátt. „Réttara væri að mínu mati að nýta þessa peninga frekar til eflingar lifandi bókmennta, láta þá renna til útgáfu þeirra höf- unda sem eru að skapa bókmenntir í dag en ekki til afkomenda höfunda sem eru látnir. Það er óréttlátt." Ingibjörg bendir einnig á að þar sem greiðslur vegna nota á bókum á ýmsum söfnum séu í formi einnar fastrar upphæðar sem dreifist niður á rithöfunda þá skipti það máli Nýjar bækur • ÚT er komið Ársrit Skógrækt- arfélags íslands, Skógræktarritið 1995. Kápan er prýdd mynd eftir Þómirinn B. Þorláksson (1867-1924) listmálaraen hann var einn af brautryðj- endum íslensks landslagsmál- verks. Myndin frá Húsafelli sýnir vel stíl- bragð Þórarins en kyrrð og íhygli einkenndu hand- bragðið. Skógræktarritið er að þessu sinni litskrúðugt og fjölmargar fróðlegar greinar er þar að finna. Meðal efnis má nefna grein eftir Guðjón Friðriksson, sagnfræðing þar sem rakin er saga tijáræktar í höfuðborginni í máli og myndum. Sagt er frá fræsöfnunarferð til Kamtsjatka. Bjarni Guðmundsson, kennari á Hvanneyri greinir frá rannsóknum á sprettulíkum aðal- blábeija. Sigurður Blöndal, fyrrv. skógræktarstjóri rekur sögu sitka- grenis í Sveinbjarnarlundi í Elliða- árdal. Fjallað er um skjólveggi og mikilvægi frágangs í grein eftir Kristin Þorsteinsson og Þorstein Egilsson. Grein um kynbætur á birki fyrir íslenska tijárækt eftir Þorstein Tómasson. Ritið er sent áskrifendum en hægt er að gerast áskrifandi eða kaupa ritið á skrifstofu Skógrækt- arfélags íslands, Ránargötu 18. Ritið er 160 síður oggefið út í 4.500 eintökum. Sigurður Blöndal • ÚT er komin bókin High Days and Holidays in Iceland eftir Áma Bjömsson þjóðháttafræðing í þýð- ingu Önnu H. Yates. High Days and Holida- ys in Iceland er byggð á bók Áma um Sögu daganna (1993) en stytt verulega og löguð að þörf- um ferðafólks og Björnsson annarra útlendra manna sem áhuga hafa á íslendingum, siðvenj- um þeirra og sögu. Útgefandi er Mál og menning. Bókin er 120 blaðsíðurmeð um 70 myndum ogkostar 1.290kr. hversu margir séu um hituna. „Lenging á höfundarrétti þýðir lægri greiðslu til starfandi höfunda." Þrengir að okkur Bragi Þórðarson hjá Hörpuútgáf- unni segir að sér lítist fremur illa á þessa breytingu. „Mér sýnist þetta muni frekar þrengja að okkur en hitt. í breytingunni felst a.m.k. eng- in ávinningur fyrir íslenska bóka- útgefendur en við verðum sennilega að fylgja Evrópu í þessu eins og öðru. Breytingin sýnist mér að muni fyrst og fremst gera hlutina flókn- ari og erfíðari í bókaútgáfu, hópur- inn sem við þurfum að semja við um útgáfu bóka verður stærri og var hann þó oft nógu stór fyrir.“ Engin veruleg áhrif Ámi Einarsson hjá Máli og menn- ingu segir að þessi breyting muni ekki hafa veruleg áhrif á útgáfu forlagsins. „Það hefur aldrei haft úrslitaáhrif í vali á bók til útgáfu hvort hún hafi verið í höfundarrétti eða ekki og ég á ekki von á að það breytist neitt við þessa Iagabreyt- ingu. Hún gæti þó hækkað verðið á örfáum titlum.“ Árni segir hins vegar að honum hafi ætíð þótt það mjög þekkileg hugmynd að verk verði almennings- eign eftir ákveðinn tíma. „Að þau verði hluti af arfi mannkyns sem allir geta nýtt og komist í á ódýran hátt. Ég hef aftur á móti enga skoð- un á því hvort þessi verndunartími eigi að vera þijátíu, fimmtíu eða sjö- tíu ár.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.