Morgunblaðið - 02.08.1995, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.08.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995 25 MIIMIMINGAR C! 4 4 JONAS PÁLSSON + Jónas Pálsson sjómaður var fæddur á Raufarhöfn 12. nóvember 1947. Hann lést 13. júlí 1995 og var jarðsunginn frá Raufarhafnarkirkju 20. júlí síð- astliðinn. 4 <a 4 4 4 « 4 Ö 'VsiUngohú/ið GAPi-inn Sími 555-4477 eins ÞAÐ er sólríkur sumardagur. Gróð- urinn sem óðast að komast í fullan skrúða eftir harðan vetur. Þá berst okkur fregnin um andlát Jónasar Pálssonar. Svo skyndilega og óvænt, það er eins og ský dragi fyrir sólu. En staðreynd engu að síður sem ekki verður umflúin. Kynni Jónasar og fjölskyldunnar hófust þegar hann og Madda okkar hófu sambúð sína. Við fyrstu kynni virtist hann stundum svolítið harður og jafnvel htjúfur, eins og stundum er um duglega menn. En fljótt fund- um við að það risti ekki djúpt, og undir bjó mikil hlýja og góðvild sem við nutum í ríkum mæli. Jónas fór snemma að vinna eins og títt var um unga menn á þeim árum. Sfldar- árin kröfðust þess að allir þeir sem vettlingi gátu valdið tækju til hend- inni. A vetuma fór hann á vertíð suður með sjó eða var á togurum. Trilluútgerð hóf Jónas ásamt bróður sínum Arnþóri, en síðar eignaðist hann sinn eigin bát og stundaði grásleppu og handfæraveiðar frá Raufarhöfn. Þrátt fyrir að sjósókn og vinna við sjávarafla væri aðal- starf Jónasar lét hann ekki síður til sín taka við sveitastörf. Nutum við hér á Smjörhóli dugn- aðar hans og atorku í ríkum mæli. Alltaf var hann boðinn og búinn til aðstoðar, hvort heldur sem var við heyskap eða annað. Göngur og rétt- ir vora í miklu uppáhaldi hjá hon- um, og flest haust fór hann í göng- ur í Oxarfirði og Þistilfirði. Jónas hafði gaman af hestum og nú hin síðari ár átti hann hesta sjálfur. Hann var á sínum uppáhalds hesti þegar kallið kom. Með þessum fátæklegu orðum viljum við þakka Jónasi alla hans aðstoð og þann velvilja sem hann sýndi okkur tengdafólki sínu. Elsku Madda okkar. Missir þinn og íjöiskyldu þinnar er mikill. En minningarnar eru margar og ljúfar. Við biðjum góðan guð að styrkja ykkur í sorginni. Einnig sendum við öldruðum föður, systkinum hans og fjölskyldum þeirra hlýjar kveðj- ur. Megi minningin um góðan dreng lifa. Svava, Birgir, Mæja, Magnús og fjölskyldur. Kveðja frá kirkjukór Raufarhafnar Það Var mikil harmafregn er við fréttum að vinur okkar og söngfé- lagi til margra ára, Jónas Pálsson, væri allur. Við gátum vart trúað því að við sæjum hann ekki aftur, mundum ekki hitta hann úti á götu eða hafa hann með okkur á æfing- um framar. Þetta var svo snöggt og óvænt. Það er ekki auðvelt að viðurkenna og sætta sig við að maður á besta aldri sé hrifinn frá fjölskyldu og vinum svo fljótt. Það hefur verið okkur í kórnum mikil ánægja og heiður að hafa fengið að kynnst og umgangast Jónas í gegnum árin, og fá að kynn- ast þeim manni sem hann hafði að geyma. Hann hafði mjög ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og hikaði ekki við að segja þær umbúðalaust ef honum sýndist svo. Það var oft óhjákvæmilegt að það líkaði ekki öllum en um slíka menn er oft sagt að þeir komi til dyranna Crfisdrvkkjur og þeir eru klæddir og það gerði Jónas Pálsson. Jónas var glaðvær og hafði mik- ið skopskyn og þó að þeir sem ekki þekktu hann kynnu ekki alltaf að meta kímni hans var hún vinum hans sem gimsteinn og eitt af hans dýrmætu persónueinkennum. Þeir sem voru svo heppnir að fá að kynn- ast Jónasi og ná að meta hann að verðleikum, þeim var hann sannur vinur og félagi og gamansemi hans oft uppspretta mikillar kátínu. Við í kirkjukómum höfum verið svo lán- söm að hafa haft hann sem félaga og vin til fjölda ára og söknum hans sárt. Hann var alla tíð áhuga- samur kórfélagi og söngmaður góð- ur. Jónas hafði yndi af hestum og hin síðari ár varði hann meiri og meiri tíma til að sinna því áhuga- máli sínu. Það var á slíkri stundu sem kallið kom. Hann var í útreið- artúr á einum hesta sinna þegar hann varð bráðkvaddur. Við félagar í kirkjukórnum vitum að það er svo sannarlega margs að minnast á kveðjustund en víst er að minning- arnar um þennan góða dreng munu lifa. Margs er að minnast margt er hér að þakka Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margser að minnast margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Hvíl í friði kæri vinur, friður Guðs þig blessi. Með þessum orðum viljum við minnast hans og sendum fjölskyldu hans og öðram aðstandendum ein- lægar samúðarkveðjur. UNNUR ÞORDIS SÆMUNDSDÓTTIR + Unnur Þórdís Sæmunds- dóttir fæddist í Heydalsseli við Hrútafjörð 17. nóvember 1936. Hún lést á sjúkrahúsinu á Akranesi 18. júlí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akraneskirlgu 25. júlí. ELSKU Unnur mín er dáin. Þessi frétt kom eins og reiðarslag, ég sem hélt að ég væri tilbúin fyrir þessa fregn. En það er víst ekki hægt að undirbúa sig undir slíkar sorgar- fréttir. Þá vissi ég fyrst hvað tregi er og tár sem tungu heftir - brjósti veitir sár er flutt var sú feigðarsaga hörð að framar ei þig sæi, hér á jörð. Þér þakka ég fyrir trú og tryggð, á traustum grunni var þín hugsun byggð. Þú stríddir vel uns stríðið endað var og starf þitt vott um mannkærleika bar. (Jóhann M. Bjarnason) Kæri Villi, ég sendi þér og fjöl- skyldu þinni mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Dóra Sveinbjörnsdóttir. Elsku amma, minningarnar um þig eru svo góðar. Það var alltaf svo gott að koma til þín. Faðmur þinn var alltaf opinn. Nú ertu farin, en ekki langt því minningin um þig mun ávallt vera í hjarta mér. Svo veit ég að við munum hittast aftur og á meðan mun góður Guð annast þig- Elsku amma, ég kveð þig með söknuði, en ég veit að þú ert komin á góðan stað og vel tekið á móti þér eins og þú hefur alltaf tekið á móti mér. Þú varst blíðheimsblóm sem reifði brosi og angan hjartans djúp. Þú varst logskært ljós sem dreifði lífsins kulda og rökkurhjúp. Þú varst líkt og lindin, grefur litla slóð og dulin fer, sem þó allan himin hefur hreinleikann í faðmi þér. Elsku afí, ég bið góðan Guð að styrkja þig og líta eftir þér. Guðrún Björk Elísdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni ÐOS-texta- skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word- perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til biaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs- ingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og háifa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega lfnulengd — eða 3600-4000 slög. Höf- undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Við þökkum samúð við andlát SIGURJÓNU SVEINBJÖRNSDÓTTUR, Grundarstíg 1. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sólvangs fyrir góða umönnun. Ástríður Ólafsdóttir, Ingibjörg Einarsdóttir, Sveinbjörn Einarsson, Sigrún Einarsdóttir, Asta Einarsdóttir, Hulda Hjörleifsdóttir, Hróbjartur Einarsson. 'y FOSSVOGI isegmr an mr cíö hðn mnaum Utfararstofa Kirkjugar&anna Fossvogi Sími 551 1266 Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- | hlaðbord, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar í síma 5050 925 og 562 7575 FLUGUEIÐIR 1ÍTEL LOFTlÆIUIIt t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARGRÉT ÞÓRARINSDÓTTIR frá Minna—Knarrarnesi, Vatnsleysuströnd, verður jarðsungin frá Kálfatjarnarkirkju fimmtudaginn 3. ágúst kl. 14.00. Þeir, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag íslands. Brynjólfur Brynjólfsson, Sesselja Sigurðardóttir, Þórarinn Brynjólfsson, Jóhanna Magnúsdóttir, Elísabet Brynjólfsdóttir, Reynir Ásmundsson, Sæunn Guðjónsdóttir, Reynir Brynjólfsson, Ólafía Brynjólfsdóttir, Garðar Brynjólfsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Helga Auðunsdóttir, t Alúðarþakkir til allra þeirra sem heiðr- uðu minningu ÓLAFS ÓLAFSSONAR frá Hallsteinsnesi. Guð blessi ykkur öll. Þorbergur Ólafsson, Olga Pálsdóttir. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar BOGA Þ. FINNBOGASONAR skipstjóra, Höfðavegi 17, Vestmannaeyjum. Dagný Þorsteinsdóttir, Guðný Bogadóttir, Dagný Hauksdóttir, Erlendur Bogason, Anna Breiðfjörð Sigurðardóttir. t Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa * r og langafa, JÓNS EIRÍKS GUÐMUNDSSONAR, Viðigrund 5, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Akraness og starfs- fólks dvalarheimilisins Höfða fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Helga Jónsdóttir, Diðrik Jóhannsson, Elísabet G. Jónsdóttir, Jóhann Jóhannsson, Guðrún Jónsdóttir, Guðmundur Stefánsson, Haraldur Jónsson, Sólveig Jóhannesdóttir, Guðmundur Páll Jónsson, Sigurlína Júliusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JENNÝAR ÁGÚSTSDÓTTUR, Hrafnistu, áður til heimilis á Brunnstig 4. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki St. Jósefsspítalans, Hafnarfirði, og Hrafnistu fyrir alúð og umönnun henni sýnda. Þorsteinn Sigurðsson, Steinvör Sigurðardóttir, Ágúst G. Sigurðsson, Garðar Sigurðsson, Sigrún Sigurðardóttir, Reimar Sigurðsson, Hafsteinn Sigurðsson, Bergur Sigurðsson, Gestur Breiðfjörð Sigurðsson, Sigurður Jens Sigurðsson, Kolbrún Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. íris Kristjánsdóttir, Einar Borg Þórðarson, Guðrún Lárusdóttir, Erla Jónatansdóttir, Kristján Þórðarson, Gislína Jónsdóttir, Ágústa Hjálmtýsdöttir, Elisabet Hauksdóttir, Jóhanna Ósk Sigfúsdóttir, Benedikt Steingrímsson,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.