Morgunblaðið - 02.08.1995, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.08.1995, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ nninaarverði! Við bjóbum nú þessar glæsilegu og vöndubu ryksugur frá einum stærsta og virtasta framleibanda Þýskalands á sérstöku kynningarverbi. EIO ryksugurnar eru tæknilega fullkomnar, lágværar, með stíllanlegum sogkraftí og míkrófilterkerfi. sem hreinsar burt smæstu rykagnir. EXCLUSIVE 1400W meb 6 földu míkrófílterkerfí. Kynningarverð kr. 14.700 eða kr. J3.965' stgr. Soghausinn er á hjólum, svo það er leikandi létt að ryksuga! PREMIER 1300W Glæsilegar ryksugur i glæsilegum litum. með 5 földu míkrófilterkerfí. Kynningarverð kr. 9.900 ^ eða kr. 9.405 stgr. Einar Farestveit & Co hf. Borgartúni 28 ír 562 2901 og 562 2900 ÍDAG BBIPS IJmsjón Guóm. Páll Arnarson ÍTALIR unnu Pólverja 20-10 í fjörugum töfluleik um miðbik Evrópumótsins í Vilamoura. Keppendum voru mislagðar hendur í þessum leik, ekki síst var Pólverjinn Zmudzinski flarri sínu besta. Hann tap- aði þremur gröndum í þessu spili, sem Italinn Lauria vann, en hvorugur spilaði þó vel: Austur gefur, AV á hættu. Norður ♦ 1074 V ÁK1043 ♦ K5 ♦ DG93 Suður ♦ ÁK6 ▼ 92 ♦ G97 ♦ ÁK1085 Útspil vesturs var hjarta- kóngur á báðum borðum. Áður en lengra er haldið ætti lesandinn að gera upp við hvernig hann myndi spila. Zmudzinski drap strax á hjartaás og spilaði hjarta um hæl á níuna og gosa vesturs, sem var ekki hönd- um seinni að skipta yfir í spaða. Það reyndist bana- biti, því vörnin náði þannig að fríspila flmmta slaginn á spaða: Norður ♦ 1074 V Á1043 ♦ K5 ♦ DG93 Vestur Austur ♦ 8532 ♦ DG9 V KDG8 IIIIH 9 765 ♦ 82 111111 ♦ ÁD10643 ♦ 764 ♦ 2 Suður ♦ ÁK6 ▼ 92 ♦ G97 ♦ ÁK1085 Lauria dúkkaði hjarta- kónginn og einnig gosann, sem fylgdi í kjölfarið. Vest- ur gat nú hnekkt geiminu með því að spila spaða, en hann kaus bitlaust lauf. Lauria hafði þá tíma til að byggja upp níunda slaginn á tígul. Besta spilamennskan er að drepa strax á hjarta- kóng, fara síðan heim á laufi til að spila tígli að kóngnum. Vömin hefur þá ekki tíma til að bijóta spað- ann. Furðulega mistök hjá svo sterkum spilurum. skák llmsjón Margeir Pétursson HVÍTUR leikur og vinnur STAÐAN kom upp á World Open skákmótinu í Fíladelfíu í Bandaríkjun- um um síðustu mánaða- mót. Bandaríski stór- meistarinn Joel Benjamin (2.575) hafði hvítt og átti leik, en alþjóðlegi meistar- inn Nelson Gamboa (2.370) frá Kólumbíu var með svart. Svartur lék síð- ast 14. - Df6-g6?? Benjamin var ekki seinn á sér: 15. Dxc6+! og svart- ur gafst upp. Röð efstu manna á mótinu: 1. Jermol- insky, Bandaríkjunum 8 v. af 9 mögulegum 2. Kaid- anov, Bandaríkjunum 7‘/2 v. 3—10. DeFirmian, Benj- amin og Fedorowicz, Bandaríkjunum, Wojtki- ewicz, Póllandi, Norwood, Englandi, Goldin og Episín, Rússlandi og Gamboa, Kól- umbíu 7 v. Pennavinir TVÍTUG Ghanastúlka með áhuga á bókmenntum, ferðalögum og bréfaskrift- um: Millicent Dadzie, c/o Anthony Nelson, Box 754, Takoradi, Ghana. ÁTJÁN ára japönsk stúlka með margvísleg áhugamál: Yuko Ohba, 6-9-2 Nishigotanda, Shinaga wa-ku, Tokyo, 141 Japan. LEIÐRÉTT Sigríður Ella SIGRÍÐUR Ella Magnús- dóttir mezzósópran var ranglega titluð í Morgun- blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Tapað/fundið Karlmannsúr fannst KARLMANNSÚR fannst rétt fyrir ofan Þórsmörk á svokallaðri Laugavegsleið sl. fímmtudag. Upplýsingar í síma 562 7152. Gullkeðja tapaðist GULLKEÐJA tapaðist sl. laugardagskvöld á Lækjartorgi. Finnandi vinsamlegast hafl sam- band í síma 568 2690. Taska tapaðist á Fógetanum BLÁ hliðartaska hvarf á Fógetanum í Aðalstræti aðfaranótt laugardags- ins sl. í töskunni voru skilríki, lyklar, snyrtivör- ur og peningar. Ef ein- hver hefur hugmynd um hvar taskan getur verið vinsamlegast hafið sam- band í síma 565 6762 eða 562 2522. Gleraugu fundust GLERAUGU í bláu hulstri fundust við stræt- isvagnastoppistöð í Suð- urhólum í Breiðholti fyrir u.þ.b. hálfum mánuði. Eigandi getur vitjað gler- augnanna í síma 567 1090. Gæludýr Fressköttur týndur GRÁR, smávaxinn fress- köttur sem er eyma- merktur týndist laugar- daginn 22. júlí í neðra Breiðholti. Þeir sem hafa haft einhveijar spurnir af kettinum hafi sam- band við Lísu í síma 587 7644. Hvolpur fæst gefins SEX vikna hvolpur fæst gefins. Upplýsingar í síma 565 0126 eftir kl. 17. HÖGNIHREKKVÍSI y/ Tfíku hefurþo/ígott, þessL i " Víkveiji skrifar... ISTÓRUM vinahópi Víkveija eru margir áhugamenn um knatt- spymu sem hafa haft orð á því undanfarið að íslandsmótið í knatt- spyrnu væri ekki nægilega spenn- andi vegna þess hve mikla yfirburði íslandsmeistararnir á Akranesi hafa. Eins og knattspyrnuáhuga- menn vita hefur lið Skagamanna ekki tapað leik í sumar og stefnir hraðbyri að því að vinna fjórða ís- landsmeistaratitilinn í röð. Ekki gerir það lið Skagamanna árenni- legra fyrir andstæðingana að þeir hafa nú endurheimt í sínar raðir tvíburana Arnar og Bjarka Gunn- laugssyni. XXX AÐ ER ekki síst athyglisvert við yfirburðastöðu Skaga- manna í íslenskri knattspyrnu að lið þeirra byggist nær eingöngu á heimamönnum. En þrátt fyrir vel- gengnina eru Skagamenn vel af- lögufærir með góða knattspyrnu- menn, eins og sést á vænlegu gengi liðsins í nágrannabyggðarlaginu, Borgarnesi. Margir burðarásar ann- arrar deildar liðs Skallagríms eru einmitt Akurnesingar, kunnir knattspyrnumenn sem hófu sinn feril með liði Skagamanna. xxx ASAMA tíma og um 5.000 manna byggðarlag státar af þessum einstæða árangri í þessari erfiðu og göfugu íþrótt er fátæklegt um að litast á knattspyrnusviðinu í höfuðborginni þar sem hin forn- frægu lið, Fram og Valur, eiga nú í harðri fallbaráttu. Að vísu geta Frammarar nú glaðst yfir því að hafa náð í úrslitaleik bikarkeppn- innar þar sem þeir mæta KR-ing- um. KR er eina Reykjavíkurliðið sem hefur tekist að blanda sér í þá hörðu baráttu sem framundan er um annað sætið á íslandsmótinu. Það er sammerkt með leik reyk- vísku félaganna þriggja, að þar er leikgleðin og nýjungagirnin ekki í fyrirrúmi á knattspyrnuvellinum. Að vísu hafa KR-ingar sýnt talsverð- an frumleika í því að færa sér trú- girni andstæðinga jafnt og dómara í nyt. Er árangur þeirra á því sviði með því eftirminnilegasta frá þessu knattspymusumri, að margra mati. VÍKVERJA var bent á að leiðin milli Þingvalla og Laugar- vatns liggur ekki um Lyngdals- heiði, eins og sagt var í Víkverja fyrir skömmu þegar fjallað var um þennan vegarspotta og nauðsyn vegarbóta þar og að á veginn yrði lagt bundið slitlag. Á það var bent að Lyngdalsheiðin er talsvert sunn- ar en vegurinn og hann liggi um landsvæði sem kennt sé við Gjá- bakka og Laugardalsvelli á landa- kortum af svæðinu. Skylt er að þakka fyrir ábendinguna sem kem- ur frá manni nokkuð kunnugum á þessu svæði, en Víkverji hefur það sér til málsbóta að svo langt sem hann man hefur leiðin milli Þing- valla og Laugarvatns verið kennd við heiðina. Eftir því sem Víkveiji kemst næst er heiðin almennt þekkt undir þessu heiti og hafa margir viðmælendur Víkverja tekið undir það. Nafnið er í öllu falli viðkunnanlegt hvort sem það er rétt eða ekki, en Víkverji ætlar ekki að kveða upp úr með það að svo komnu máli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.