Morgunblaðið - 02.08.1995, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Siguijón.
REKSTRARAÐILAR matsöl-
unnar eru hjónin Fjalar Gunn-
arsson og Kay D. Gunnarsson.
Fyrsta mat-
salan opnuð
Súðavík - Fyrsta matsalan sem
opnuð hefur verið í Súðavík, ef frá
er talið mötuneyti Frosta hf. sem
rekið var fyrir nokkrum árum, tók
til starfa í síðustu viku. Ráðgert er
að hin nýja matsala, sem hefur ekki
enn verið gefíð nafn, muni þjóna
þeim verktökum og starfsmönnum
sem koma til með að vinna við upp-
byggingu nýrrar Súðavíkur, auk þess
sem gestum og gangandi verður boð-
ið upp á heimiiislegan mat, kaffi og
meðlæti, daglega frá kl. 9.30-21.30.
Hin nýja matsala er í nýbyggðu
sumarhúsi sem staðsett er við grunn-
skóla staðarins. Eigendur eru þeir
Áki Sigurðsson rafvirkjameistari,
Valgeir Scott pípulagningameistari,
Garðar Sigurgeirsson húsasmíða-
meistari og Fjalar Gunnarsson
starfsmaður hjá Garði.
Hjónin Fjalar Gunnarsson og Kay
D. Gunnarsson sjá um daglegan
rekstur matsölunnar sem er í 60 fm
húsnæði.
Að sögn Fjalars átti Áki Sigurðs-
son hugmyndina að stofnun matsöl-
unnar og kom hún til vegna þess að
út spurðist að tilvonandi verktakar
ætluðu að kaupa alla sína matar-
bakka frá ísafírði. „Það er ekkert
ákveðið hvað við tekur þegar bygg-
ingu nýja hverfisins er lokið, en það
má alveg gera ráð fyrir því að mat-
salan verði opin áfram. Við munum
spila þetta allt eftir hendinni," sagði
Fjalar.
GLÆSILEGAR GJAFAVÖRUR
KR. 4.750
MÖRKINNI 3 • SlMI 588 0640
LAIMDIÐ
Fjölmenni í afmæli
Skeggj astaðakirkju
Bakkafjörður - Haldið var upp
á 150 ára afmæli Skeggjastaða-
kirkju sunnudaginn 30. júlí í
blíðskaparveðri, 20° hita. Gest-
ir voru á fimmta hundrað og
margar konur klæddust ís-
lenskum búningi.
Dagskráin hófst með morg-
untíðum kl. 10 og lauk 12
stundum síðar kl. 22 með
kvöldtíðum. Hátíðarmessa var
kl. 14 og messaði séra Gunnar
Siguijónsson sóknarprestur.
Aðstoðarprestar voru séra
Davíð Baldursson, Eskifirði,
sem las guðspjall, séra Þor-
grímur Daníelsson, Norðfirði
og séra Vigfús Ingvar Ingvars-
son, Egilsstöðum, sem lásu ritn-
ingalestur. Séra Sigmar I.
Torfason, fyrrverandi sóknar-
prestur á Skeggjastöðum og
prófastur, aðstoðaði við altaris-
göngu. Kirkjukór Þórshafnar
og Skeggjastaða sáu um söng.
Orgnisti var Krislján Davíðs-
son frá Vopnafirði.
Kaffi var í boði sóknarnefnd-
ar að hætti þess tíma er kirkjan
var smíðuð. Meðlæti með kaff-
inu var meðal annars lummur,
kleinur, rúgbrauð og kandís í
skálum. Gestir gerðu kaffinu
og meðlætinu góð skil. í erindi
séra Sigmars I. Torfasonar um
sögu Skeggjastaða kom m.a.
fram að kirkjan var reist af
séra Hósíasi Arnasyni árið
1945 og borgaði hann alla
kirkjusmíðina úr eigin vasa.
Leitaði hann aðstoðar bæði hjá
heimamönnum og biskupi en
var synjað. Séra Guttormur
Þorsteinsson, prófastur á Hofi
í Vopnafirði sem átti Skoru-
víkurfjörð á Langanesi, gaf
rekatréð í alla kirkjuna.
Farið var í leiki og dansað
við harmonikkuundirleik til kl.
22 en þá lauk afmælishátíðinni
með kvöldtíðum og mættu um
hundrað manns. í lokin kvaddi
sr. Gunnar Siguijónsson söfn-
uð sinn, en hann hverfur til
starfa í Digranesprestakalli.
Kirkjunni bárust veglegar
peningagjafir og árnaðaróskir.
Að sögn gesta fannst þeim
afmælisbarnið bera aldurinn
vel og jafnvel hafa yngst. Há-
tíðin þótti takast mjög vel þar
sem gott skipulag, veður og
létt lund gesta var í farar-
broddi.
Morgunblaðið/Áki.
FJÖLDMENNT var í Skeggjastaðakirkju á 150 ára afmælinu.
MARGAR konur klæddust íslenskum búningi.
Eyrarbakki - Senn lýkur um-
fangsmiklum viðgerðum á „Hús-
inu“ á Eyrarbakka og hefur það
nú fengið útlit sem næst því er var
í upphafi. Samkvæmt því sem segir
um Húsið í Sögu Eyrarbakka sem
Vigfús Guðmundsson skrifaði og
út kom árið 1949, lét Jens Lassen
kaupmaður byggja þetta hús árið
1765.
Fyrir þrem árum keypti Þjóð-
minjasafnið Húsið af Auðbjörgu
Guðmundsdóttur, en hún hefur búið
þar um margra ára skeið. Það sam-
komulag var gert um eignina, að
Þjóðminjasafnið sæi um viðgerðir á
Húsinu, svo sem fullnægjandi gæti
talist, en síðan tækju sveitarfélög
í Árnesþingi við því til rekstrar og
varðveislu. Eyrarbakkahreppur átti
að sjá um lóð og lóðarframkvæmdir.
Síðan þetta samkomulag var gert
hefur verið unnið að viðgerðunum,
með nokkrum hléum þó. Yfirsmiður
hefur verið Jón Karl Ragnarsson
húsasmíðameistari á Eyrarbakka.
Hann hefur sérhæft sig nokkuð í
viðhaldi gamalla húsa en með hon-
um hafa starfað bræðurnir Guð-
mundur og Gísli Ragnar Kristjáns-
synir húsasmiðir á Eyrarbakka. Um
málningarvinnu hefur séð Öm Lár-
usson málarameistari.
í síðustu viku hófu starfsmenn
Eyrarbakkahrepps vinnu við lóðina
og var byijað á því að lækka hæð
jarðvegs umhverfis húsið. Komu þá
í ljós hleðslur og hellulögn framan
við aðalbygginguna. Inngangur .í
húsið var upþhaflega fyrir miðju
húsi, en veturinn 1864-65 var inn-
gangurinn færður til þess horfs sem
„Húsið“ á Eyrarbakka
Morgunblaðið/Óskar Magnússon.
„HÚSIГ ásamt „Assistenta-
húsinu“ (frá suðri).
nú er, en stéttin hefur þó verið lát-
in vera.
Umhverfis Húsið er voldugur
gijótgarður, einkum að sunnan og
vestan. Sá garður var hlaðinn eftir
svokallað Bátsendaflóð sem varð
1799 og stendur enn sem nýr væri.
Ákveðið er að opna Byggða- og
minjasafn Árnesinga í Húsinu
þriðja ágúst næstkomandi og gefst
þá almenningi kostur á að skoða
þetta merka hús og þær sýningar
sem uppi verða hveiju sinni.
JÓN Karl Ragnarsson (nær) og Gísli Ragnar Kristjánsson.
Víkingaiottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Víkíngalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikmgalotto • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó
Verður fyrsti vinningurinn í Víkingalottóinu
7
Freistaðu gæfunnar - kannski er röðin komin að þér!
• Víkingaiottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingaiotto • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó * Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó
i
!
\
I
>
)
í
i
[
i
I
\
I
I
I
t
I
I
í
l
»
\
»
I-