Morgunblaðið - 02.08.1995, Page 20

Morgunblaðið - 02.08.1995, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995 21 JMttrgonfcliifeffe STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. STJÓRNARFORMAÐUR: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. JAFNRETTITIL FÆÐINGAR- ORLOFS RÉTTUR til greiðslna í fæðingarorlofi er afar mismunandi hér á landi og fer bæði eftir starfsgreinum og kynjum. í fréttaskýringu, sem birtist hér í blaðinu síðastliðinn laugardag, kemur fram að réttur feðra til greiðslna í fæðingarorlofi er afar takmarkaður. Þar kemur jafnframt fram að á almennum vinnu- markaði eru greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi lágar, eða í mesta lagi um 60.000 krónur. Ýmsar starfstéttir hafa þó samið um að fá greidd full laun eða umtalsverðan hluta þeirra í fæðing- arorlofi. Mestan rétt að þessu leyti eiga konur, sem starfa hjá ríkinu. Sá böggull fylgir þó skammrifi að barnsfeður þeirra og karlar, sem starfa hjá ríkinu, eiga engan rétt til launa eða greiðslna frá Tryggingastofnun, vilji þeir vera hjá barni sínu fyrstu mánuð- ina í lífi þess. Fyrirkomulag þessara mála hér á landi leiðir til þess að mjög fáir feður taka sér fæðingarorlof; í fyrra fengu 5.499 mæður greitt fæðingarorlof frá Tryggingastofnun, en aðeins sextán feður! Þessi munur er fáránlegur, jafnt með tilliti tii þeirra umræðna um jafnrétti kynjanna, sem átt hafa sér stað á Vestur- löndum undarifarna áratugi, og þegar horft er til þarfa ungra barna, sem þurfa ekki síður á tengslum við föður sinn en móður að halda fyrstu mánuðina eftir fæðingu. Líkast til verður aldrei alger jafnstaða með kynjunum að þessu leytinu, vegna þess að konur fæða börnin og gefa þeim brjóst og eru því bundnari þeim en karlar. Hins vegar er stór munur á ástandinu hér og í Sví- þjóð, þar sem um 40% feðra taka að meðaltali sex vikur af fæðingarorlofi því, sem hjón eiga rétt á. Hinar lágu greiðslur Tryggingastofnunar eru fólki með miðl- ungstekjur eða meira auðvitað almennt ekki hvatning til að taka sér fullt fæðingarorlof og eyða tíma með nýfæddum börnum sínum, eins og fram kemur í áðurnefndri fréttaskýringu. Hins vegar er líklegra, þegar hjón ákveða hvort þeirra eigi að taka fæðingarorlof eða hvernig þau eigi að skipta því á milli sín, að eiginkonan verði fyrir valinu, einfaldlega vegna þeirrar stað- reyndar að launamunur kynjanna er svo mikill, að heimilið miss- ir minni tekjur ef karlinn heldur áfram að vinna á meðan konan tekur sér leyfi. Sú viðtekna venja að það sé konan, sem tekur fæðingarorlof, á aftur á móti þátt í því viðhorfi margra stjórnenda að konur séu „óáreiðanlegri" vinnukraftur en karlar. Jafnframt er hætta á að konur, sem starfa í umhverfi þar sem samkeppni er mikil, dragist aftur úr körlunum og eigi þar af leiðandi erfiðara með að klífa metorða- og launastigann. Þetta á ef til vill fremur við í einkageiranum, þar sem réttur kvenna til greiðslna í fæðingar- orlofi er yfirleitt lakari en hjá ríkinu. Þannig eru þessi mál komin í eins konar vítahring. Leiðir, sem líklegar eru til að ijúfa hann, eru í fyrsta lagi að jafna rétt kynjanna til töku fæðingarorlofs og greiðslna meðan á því stend- ur, í öðru lagi að tekjutengja greiðslurnar í auknum mæli til samræmis við það, sem gerist í nágrannalöndum okkar, og í þriðja lagi að draga úr launamun karla og kvenna, sem er marg- staðfestur og til háborinnar skammar. BROTALÖM í STEFNUMÓTUN GISLI Olafsson, bæjarstjóri í hinu nýja sveitarfélagi Vestur- byggð, sem áður var fjórir hreppar, segir í viðtali við Morgunblaðið síðastliðinn sunnudag að íbúunum finnist samein- ing hreppanna ekki hafa uppfyllt þær vonir, sem við hana voru bundnar. Félagsmálaráðuneytið og fulltrúar þess hafi gyllt kosti sameiningar um of. Þó segist bæjarstjórinn telja að sameiningin hafi verið gæfuspor, en hún muni skila sér á lengri tíma en menn hafi haldið fram. Gísli bætir hins vegar við að um næstu áramót standi jafnvel til að Vesturbyggð, sem reynslusveitarfélag, taki við öldrunar- þjónustu og málefnum fatlaðra af ríkinu. Þótt komið sé fram yfir mitt ár sé enn allt í lausu lofti um framkvæmdina, þar á meðal um tekjustofna, sem standa eigi undir sambærilegri eða betri þjónustu. Kostir sameiningar sveitarfélaga verða ekki dregnir í efa. Fækkun og stækkun sveitarfélaga stuðlar að betri meðferð fjár skattgreiðenda, stækkun atvinnusvæða og styrkingu sveitar- stjórna gagnvart ríkinu og hamlar gegn fólksflótta af lands- byggðinni. Hins vegar er auðvitað óþolandi að fyrirkomulag mála eftir sameiningu skuli ekki hafa legið fyrir löngu áður en ákveðið var að ráðast í átak til sameiningar sveitarfélaga. Þessi brotalöm í stefnumótun hins opinbera átti eflaust stóran þátt í því að sameiningartillögum var hafnað í atkvæðagreiðslum víða um land árið 1993. Áframhaldandi seinagangur og óvissa í málefnum reynslusveitarfélaganna, sem eiga að vera öðrum fyrirmynd, stuðlar ekki að því að betur takist til í framtíðinni. Drög að reglugerð um varnarvirki og húseignir á hættusvæðum tilbúin MANNSKÆÐ snjóflóð féllu í vetur sem leið, meðal annars í Súðavík og Reykhólasveit, auk þess sem ítrekað þurfti að rýma mannvirki sök- um snjóflóðahættu. íbúar sem áttu um sárt að binda eða óttuðust um öryggi sitt fluttu margir af snjóflóðasvæðum. Atburðir vetrarins juku mjög kröfur um að flýta gerð reglugerðar um varnarvirki og húseignir á hættusvæðum, sem nú er til í drögum. TJONÞOLUM MISMUNAÐ EFTIR VALIÁ BÚSETU Vinnuhópur á vegum félagsmálaráðuneytis hefur nú samið drög að reglugerð um vamar- virki o g húseignir á hættusvæðum. Drögin hafa verið til umsagnar hjá ýmsum aðilum seinustu vikur og voru þeir beðnir um að skila athugasemdum sínum fyrir 25. júlí sl. í saman- tekt Sindra Freyssonar kemur fram að ekki eru allir á eitt sáttir um fyrirliggjandi drög. HELGI Hallgrímsson, for- maður ofanflóðanefndar, segir að hún hafi unnið drög að reglugerð sem hafi verið vísað til félags- málanefndar Alþingis og loks til vinnuhóps félagsmálaráðuneytis. „Þarna er um hápólítískt mál að ræða. Okkur var því ljóst að það yrði í öllu falli að fara fyrir hið pólítíska vald og að ráðuneytið skipaði að lok- um vinnuhóp til að ljalla um það, eins og var síðan gert,“ segir Helgi. Meðal þeirra aðila sem hafa haft drögin til umsagnar eru Samband íslenskra sveitarfélaga, fjármála- ráðuneytið, Fasteignamat ríkisins, dómsmálaráðuneytið, forsætisráðu- neytið. Anna G. Guðmundsdóttir, fulltrúi félagsmálaráðuneytis í vinnuhópnum, segir að aðeins ein umsögn um drögin hafi borist, en hinna sé eflaust að vænta á næstu dögum. Tilefni ófaglegrar afgreiðslu Reglugerðardrögin gera m.a. ráð fyrir að rísi ágreiningur um hvert sé markaðsverð eignar sem ofanflóða- sjóður greiði, geti húseigandi, sveit- arfélag eða ofanflóðasjóður leitað til dómskvaddra matsmanna. Gagnrýnt er að reglugerðin kveður á um að þeir skuli vera tilnefndir hveiju sinni af héraðsdómi í því umdæmi sem húseign er, þar sem auðvelt er að túika textann svo að matsmenn eigi að vera heimamenn, auk þess sem ekki sé kveðið á um faglegar kröfur til matsmanna um að þeir hafi víð- tæka þekkingu á markaðsverði og kostnaðarmati. Ekki er tal- ið forsvaranlegt að svo sé, enda óeðlilegt ef t.d. Súð- víkingar hefðu verið fengn- ir til að meta tjónið í Súða- vík, svo dæmi séu tekin. „Þetta ákvæði er öðruvísi en ofan- flóðanefnd var búin að leggja til og enn er um að ræða drög sem vinnu- hópurinn telur sig ekki bundinn af. í raun hef ég ekki lýst mig sammála þessu ákvæði, enda lagði ofanflóða- nefnd annað til,“ segir Guðjón Peters- en, framkvæmdastjóri Almanna- varna, sem situr af hálfu ofanflóða- nefndar í vinnuhópi þeim er vinnur að endanlegri gerð reglugerðarinnar. „Við bíðum hins vegar eftir að fá umsagnir um drögin og gerum okkur grein fyrir að eflaust verði þær þess eðlis að þörf sé á að endurskoða ýmis ákvæði.“ „Þetta ákvæði getur kallað á spill- ingu, hrossakaup kunningja og ófag- lega afgreiðslu mála,“ sagði einn við- mælanda Morgunblaðsins. „Ekki að- eins getur þetta sett viðkomandi matsmenn í afar óþægilega aðstöðu, heldur er það ótækt að matsmatur geti átt einhverra hagsmuna að gæta, beint eða óbeint." Anna G. Guðmundsdóttir kveðst skilja umrætt ákvæði svo að héraðs- dómstólar í viðkomandi umdæmi eigi að skipa matsmenn en það sé ekki hugsað svo að þeir komi úr sama umdæmi. „Þetta var alls ekki hugsað þannig og það eru fordæmi fyrir því í öðrum lögum að dómstólar skipi matsmenn. Auðvitað treystir maður dómurum til að skipa menn sem eru hlutlausir og með þekkingu á því sem þeir eiga að gera,“ segir Ánna. Hún tekur fram að um frumdrög sé að ræða, sem hópurinn telji sig ekki bundinn af. „Við munum skoða þessi drög í ljósi umsagna eftir að þær berast og taka mið af þeim,“ segir hún. Ekki sömu bætur Sérstaklega er gagnrýnt ákvæði um að ef húseigandi eigi ekki kost á „sambærilegri húseign í sveitarfélag- inu til kaups og byggi hann nýja húseign í sveitarfélaginu til íbúðar fyrir sig og fjölskyldu sína, er heim- ilt að miða greiðslu við brunabótamat húseignar. Sé brunabótamat hærra en endurbyggingarverð skal miða við endurbyggingarverð." Þarna er bent á tvo alvarlega galla. í fyrsta lagi sé gert upp á milli þeirra sem byggja í viðkomandi sveitarfélagi eða flytja í burtu. Menn njóti með öðrum orðum ekki sama réttar eftir ákvörðun sem þeir taka um búsetu. Lög leyfi al- mennt ekki mismunun og því sé þetta ákvæði staðleysa, auk þess sem þeir er flytja burt geta gert kröfur um sömu bætur og þeir sem eru um kyrrt og byggja á staðnum. í áliti félagsmálanefndar Alþingis segir að „áhersla er lögð á að sveitar- félagið nái samningum við húseig- endur og hljóta þar að vera lagðir til grundvallar heildarhagsmunir sveitarfélagsins. Félagsmálanefnd lítur svo á að sé slíkt lagt til grund- vallar sé eðlilegt að sveitarfélagið geri samninga um mismunandi greiðslur eftir því hvort verið sé að greiða fjárhæð vegna þess að viðkom- andi hyggist byggja að nýju innan sveitarfélagsins eða hvort viðkom- andi ætli að kaupa sér annað hús- næði. Nefndin álítur því sanngjarnt að sveitarfélög geti lagt til grundvall- ar sem viðmiðun að sé eiganda hús- eignar, sem keypt er vegna varnarað- gerða, úthlutað lóð undir nýtt hús í sama sveitarfélagi, skal greiða fyrir eignina vátryggingaijárhæð viðlaga- tryggingar (bmnabótamat) og skal greiða ijárhæðina eftir því sem bygg- ingaframkvæmdum miðar. Að öðrum kosti skal greiða samkvæmt fast- eignamati.“ „Ofanflóðanefnd var ekki með þetta í sínum drögum, en það sem ræður þessu er að í nefndaráliti fé- lagsmálanefndar Alþingis er gert ráð fyrir að frekar sé hvati til að byggja aftur í sama sveitarfélagi. Emb- ættismenn ráðuneytisins töldu sig bundna af þess- um vilja Alþingis um að koma þessu fyrir einhvers staðar í texta. Ofan- flóðanefnd hefur hins vegar talið að ekki megi mismuna fólki,“ segir Guð- jón. „Ofanflóðanefnd taldi raunar varasamt að vera með svo nákvæm- lega leiðbeinandi reglur, en meiri- hluti vinnuhóps félagsmálaráðuneytis taldi sig vera bundinn af þessu áliti félagsmálanefndar af því að það væri grunnur að þeim lögum sem sett verða, eða frekari lögskýring.“ Álit félagsmálanefndar viðmiðun Anna segir að hafa verði í huga að hópurinn hafi talið sig talsvert bundinn af áliti félagsmálanefndar Alþingis. „Álitið er að mínu mati lög- skýringargagn á lögunum og þar eru sett fram ákveðin sjónarmið varðandi húsakaup sem við tókum mið af. Meginreglan er sú að fólk sé í sömu stöðu og það var, þannig að miðað er við að gera fólki kleift að kaupa húseign á sama stað og það hefur búið á. Þessari undantekningareglu varðandi brunabótamatið á því bara að beita ef fólk á ekki kost á húseign í sama sveitarfélagi. Annars vil ég sem minnst tala um þessi drög, því að þau eru á frumstigi og finnst ekki tímabært að tjá mig um einstök atr- iði,“ segir Anna. Samkvæmt reglugerðardrögunum má einnig bæta húseiganda allt að nývirði hússins, þ.e. kostnað við að byggja nýtt hús. „Ef menn hugsa sér hálfkarað eða illa farið hús með háu brunabótamati, jafnvel hærra en ný- virði hússins, í litlu sveitarfélagi þar sem ekki er neina lausa eign að finna, getur húseigandi fengið bætur sem samsvara kostnaði við að byggja nýtt hús. Flestir hljóta að sjá hversu afleitt þetta ákvæði er og ekki við hæfi að menn geti hagnast á tjóni sem þeir verða fyrir, umfram umfang tjónsins," sagði einn viðmælanda Morgunblaðsins. Ekki sé rætt um atvinnuhúsnæði í þessu ákvæði sem þyki einnig orka tvímælis. Einnig er bent á að í sjö- undu grein reglugerðarinn- ar er talað um að ofanflóðasjóður greiði ekki kostnað vegna kaupa á löndum og lóðum, nema það sem nauðsynlegt sé vegna bygginga varn- arvirkja. Spurt er um lóðir sem til- heyra húseignum, hvort þær eigi ekki að fylgja með í kaupunum eða fylgja með án greiðslu fyrir. Þörf á að endurskoóa ákvæði Ekki faglegar kröfur til matsmanna Áhrif jarðskjálfta á raforkukerfi TOGNAZZINI telur að Landsvirkjun hafi gert ýmsar nauðsynlegar ráðstafanir til að draga úr áhrifum jarðskjálfta á raforkukerfið. Mínni áhrif með réttum ráðstöfunum Landsvirkjun hefur staðið sig prýðilega í því að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að draga úr áhrifum j arðskj álfta á mannvirki fyrirtæk- isins að mati Ronalds A. Tognazzini jarð- skjálftafræðings frá Bandaríkjunum. RONALD segir þetta athyglis- vert í ljósi þess, að jarðskjálftar hafi aldrei haft áhrif á starfsemi Landsvirkjunar. Ronald hefur síðustu daga gert úttekt á spennistöðv- um Landsvirkjunar og hugsanlegum áhrifum jarðskjálfta á raforkukerfi landsins í boði Landsvirkj- unar. Hann segir að íslend- ingar verði að gera ráð fyrir stórum jarðskjálfta og undirbúa sig sam- kvæmt því. Landsmenn verði jafnframt að gera sér ljóst að hægt er að draga verulega úr áhrifum jarðskjálfta og spara fjármuni um leið með því að gera ráðstafanir til að vernda raf- veitumannvirki. Eigum margt eftir ólært Jarðskjálftafræðingurinn hefur um langt árabil starfað fyrir Department of Water and Power í Los Angeles og hefur sérhæft sig í því hvemig vernda megi raforkukerfi fyrir skað- legum áhrifum jarðskjálfta. „Ég tel að stóri jarðskjálftinn í Los Angeles árið 1994, sem var 6,7 á Richter, hafi fyrst og fremst leitt í ljós hvað við eigum margt eftir ólært,“ sagði Ronald í viðtali við Morgunblaðið. „Jarðskjálftinn í Los Angeles olli gífurlegum skemmdum. Sumt er hægt að meta til fjár og lauslega áætlað nam heildartjón um 20 milljörðum dollara. Fjárhagslegt tjón rafveitu Los Angeles-borgar nam nokkrum tugum milljóna dollara eða um 9 milljörðum íslenskra króna. Ekki er hægt að meta til fjár skaðleg áhrif jarðskjálft- ans á íbúa, einkum börn og unglinga." Tjón gat orðið þrefalt meira Ronald segir að raforkukerfið hafi fallið saman og borgin myrkvast al- gjörlega eftir skjálftann. Spennibreyt- ar biluðu og varaaflskerfi borgarinnar hafði ekki undan. Hann segir að áhrif jarðskjálftans hafi orðið miklu meiri en menn gátu átt von á. Engu að síð- ur telur Ronald að þær ráðstafanir sem gripið hefur verið til eftir jarð- skjálftann í Los Angeles árið 1971, sem var jafn stór og skjálftinn í fyrra, 6,7 á Richter, hafi dregið mjög úr áhrifum stóra skjálftans á raforku- kerfin á svæðinu og kom- ið í veg fyrir enn frekan''- skemmdir. „Óhætt er að áætla að tjón hefði orðið þrefalt meira ef ekki hefði verið gripið til þessara ráðstafana." Uppbygging raforkukerfis framúrskarandi á íslandi Margar ráðstafanir Landsvirkjunar til að búa sig undir stóran jarð- skjálfta og óumflýjanleg áhrif slíkra náttúruhamf- ara eru áhugaverðar og fagmannlegar að mati jarðskjálftafræðingsins. _ „Uppbygging raforkukerfisins og lega háspennulína er til að mynda framúr- skarandi og mun fullkomnari en í mínu heimalandi. Háspennulinur mynda heilan hring um landið sem gerir það að verkum að minni hætta er á rafmagnsleysi á stórum svæðum fyrir áhrif óhapps á einum stað,“ seg- ir Ronald. Þyldi ekki stóran skjálfta að fullu Að óbreyttu þyldi þó raforkukerfíð ekki að fullu stóran jarðskjálfta, að mati Ronalds, þar sem hluti tækjabún- aðar er.of gamall. Afleiðing þess yrði rafmagnsleysi og tjón á búnaði. „í mörgum tilfellum má aftur á móti gera lagfæringar á hönnun og skipu- lagi raforkukerfisins til áð koma í veg fyrir skemmdir. Ég hef veitt ráðlegg- ingar um hvernig taka megi á þessum vandamálum, einkum í smáum, tækni- legum atriðum. Fulltrúar Landsvirkj- unar koinu til Los Angeles eftir skjálftann í fyrra í því skyni að læra af reynslunni og eins mun ég koma hingað til lands ef stór jarðskjálfti skekur ísland í því skyni að méta áhrif jarðskjálftans og tjón af völdum hans á raforkukerfið." Ronald taldi erfitt að spá fyrir um hugsanleg áhrif skjálfta á raforkuver og önnur mannvirki. I því efni skipti stærð hans og upptök lykilmáli. Skjálfti sem mældist 5 á Richter ylli ekki skemmdum nema upptök væru mjög nálægt mannvirkjum. Skjálfti sem mældist 7 á Richter gæti aftur á móti haft víðtækari áhrif jafnvel þótt upptök væru fjarri byggð og mannvirkjum. Ronald A. Tognazzini

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.