Morgunblaðið - 16.09.1995, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
VÍB deilir á notkun skammtímaávöxtunar í auglýsingum verðbréfafyrirtækja
„ Gefa ekki
rétta mynd“
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ís-
landsbanka birti í gær auglýsingu
þar sem kemur fram gagnrýni á
notkun skammtímaávöxtunar í
auglýsingu um fjárfestingarkosti.
Auglýsing þessi kemur í kjölfar
auglýsingar Kaupþings fyrr í þess-
ari viku, þar sem settar eru fram
tölur yfir ávöxtun verðbréfasjóða
fyrirtækisins undanfarna 3-6
mánuði.
Gefur ranga mynd
Bjöm Jónsson, sjóðsstjóri hjá
VIB, segir tilgang þessarar aug-
lýsingar ’ vera að vekja athygli á
því að rétt sé að horfa til lengri
tíma en þriggja mánaða þegar
fjárfestingannöguleikar séu skoð-
aðir. Hann segir að þessari auglýs-
ingu sé ekki beint neitt sérstaklega
gegn Kaupþingi en þó hafi auglýs-
ing þeirra gefið þeim tilefni til
þess að benda á þessi mál.
„Við teljum það ekki rétt að
taka ákvörðun um fjárfestingar-
kosti út frá þessum upplýsingum
einungis. Við teljum að það verði
að horfa til svolítið lengri tíma en
þriggja mánaða þegar verið er að
tala um ávöxtun fjármuna, nema
um sé að ræða skammtímafjár-
festingu.“
Björn segist líta á verðbréfa-
sjóði sem langtímaávöxtunar-
möguleika fyrst og fremst og því
sé rétt að láta tölur um ávöxtun
þeirra a.m.k. undanfarin 1-2 ár
fylgja með tölum um skammtíma-
ávöxtun.
Olíkar aðferðir
Bjarni Ármannson, forstöðu-
maður hjá Kaupþingi, segir þetta
alltaf vera álitamál. „Þetta mál
er erfitt að því leytinu til að ávöxt-
un aftur í tímann er ekki endilega
vísbending um ávöxtunina fram í
tímann. Ávöxtun 3-6 mánuði
aftur í tímann þarf ekki endilega
að segja neitt meira en þegar ver-
ið er að auglýsa þessa sjóði reyn-
um við að auglýsa það sem okkur
finnst vera að koma vel út hveiju
sinni og við teljum lýsandi fyrir
stöðu mála í dag.“ Hann segir
þessa sjóði hafa komið vel út til
lengri tíma litið þannig að ekki sé
verið að reyna að fela eitt eða
neitt í þeim efnum.
Bjami segir engan algildan
sannleik í þessum efnum og þann-
ig megi líka draga í efa gildi
ávöxtunartalna langt aftur í tím-
ann. Þeir skuldabréfavextir sem
bjóðist í dag séu mun lægri en það
sem tíðkaðist fyrir 2-3 árum síð-
an, og því sé langtímaávöxtunin
ekki lýsandi fyrir það sem nú tíðk-
ast.
Viðskiptajöfrar skoða
fjárfestingarmöguleika
FIMM bandarískir viðskiptajöfrar
eru væntanlegir hingað til lands á
sunnudag til að kynna sér íslenskt
atvinnulíf og fjárfestingarmögu-
leika á íslandi.
Að sögn Guðmundar Franklíns
Jónssonar, verðbréfasala í New
York, tilheyra fímmmenningamir
óformlegum hópi, sem stofnaður
var að frumkvæði Davids Carpent-
ers, fyirverandi forstjóra og stórs
hluthafa í Zink Corporation of
America. Carpenter hefur komið
hingað vegna hugmynda um stofn-
un zinkverksmiðju og fengið mik-
inn áhuga á íslandi. Áformað er
að hópurinn verði fimm daga á
íslandi, skoði fyrirtæki og stofnan-
ir og ræði við frammámenn úr
stjórnsýslu og athafnalífi.
Förðunarkeppni í da
ídag er förðuna.
BoK'm^ZTlepT TF0R fi/f« f
Kwmu, m klimki noo
„ Ukert kenlÖ ■mÓdeliri
M er ðlll Sl
Allar frekari upplýsingar og skráning er í Make up
for ever-búðinni, Borgarkringlunni, sími 588 7575.
Hrávöru-
markaður
London. Reuter.
VERÐ á kopar lækkaði um 160
dollara tonnið og verð á kaffi um
290 dollara, en verð á hveiti hækk-
aði allt í einu um 11 sent skeppan
og verð á platínum um 10 dollara
únsan.
Sérfræðingar höfðu talið víst að
lágir vextir í heiminum mundu leiða
til hækkandi verðs á málmum, en
ýmsir ijárfestar töldu íjárfestingar
í hlutabréfum vænlegri kosti.
Verð á kaffi lækkaði í vikunni í
kjölfar spár um hækkandi verðs á
næsta ári. Spáð er rigningu eftir
hálfgerða þurrka í Brasilíu og meiri
uppskeru í Kólombíu.
I Chicago er verð á hveiti með
því hæsta í 20 ár (4,72 dollarar
skeppan) á sama tíma og því er
spáð að náttúrhamfarir kunni að
valda kreppu, þar sem kornbirgðir
í heiminum séu í lágmarki.
Skortur hefur verið á platínum á
Vesturlöndum, en suður-afrískur
sérfræðingur spáði því að að birgð-
ir frá Rússlandi mundu fullnægja
eftirspurn í rúmlega tvö ár. Áhugi
á platínum jókst og verðið hækkaði
um tæplega 10 dollara únsan í rúm-
lega 340 dollara.
Verð á álií framvirkum samning-
um var 1.765,00 dollarar tonnið kl.
11.30 í gær, en 1.815,00 dollarar
viku áður.
Ferða-
skrifstof-
ur missa
leyfi
TVÆR ferðaskrifstofur,
Ferðabær og Ratvís hafa misst
leyfi sín til reksturs ferðaskrif-
stofa þar sem bankatrygging-
ar, sem settar eru sem skilyrði
fyrir leyfinu, skortir.
Ragnhildur Hjaltadóttir,
skrifstofustjóri í samgöngu-
ráðuneytinu, segir ferðskrif-
stofuleyfi falla sjálfkrafa niður
ef ekki liggja fyrir allar nauð-
synlegar tryggingar. Það sé
raunin í þessu tilfelli og í ljósi
þessa hafi ráðuneytið talið
nauðsynlegt að vekja athygli
manna á þessu máli. „Það er
auðvitað alvarlegt mál ef að
ferðaskrifstofur halda áfram
að selja farmiða og ferðir án
þess að hafa fyrir því neinar
tryggingar. Viðskiptavinir
þeirra eru ekki mjög öruggir
á meðan."
Brot varða sektum
Ragnhildur segir að brot á
þessum lögum varði sektum.
Hætti ferðaskrifstofa, sem
misst hefur leyfi, ekki starf-
semi sinni verði ráðuneytið að
leyta aðstoðar lögreglu til að
stöðva starfsemina.
Morgunblaðið náði tali af
Birgi Sumarliðasyni, eiganda
Ferðabæjar, þar sem hann er
staddur á ferðaráðstefnu Vest-
ur-Norðurlanda í Færeyjum.
Hann vildi lítið láta hafa eftir
sé um málið að svo stöddu en
sagði hins vegar að hann hafi
rætt við viðskiptabanka sinn
áður en hann hafi haldið utan
um endurnýjun á tryggingu.
Þar hafi menn sagt honum að
vera rólegur og hafa samband
næstkomandi mánudag. Síðan
hafi hann ekkert frétt fyrr en
þar ytra.
Ekki náðist í Halldór Jó-
hannsson, hjá Ratvís, en hann
er einnig staddur á ferðaráð-
stefnunni í Færeyjum.
Dollar yfir
103jen
New York, London. Reuter.
DOLLARINN hækkaði í yfir
103 japönsk jen í New York
og London í gær og staða
hans styrktist vegna stuðn-
ingsyfirlýsinga ráðamanna í
Washington og Tokyo.
Staðan styrktist einkum
vegna þeirra ummæla jap-
anska viðskipta- og atvinnu-
ráðherrans Ryutaro Hashi-
moto að hann væri því fylgj-
andi að dollarinn hækkaði í
um 110 jen.
Japanska stjórnin mun
bráðlegga leggja fram frum-
varp, sem á að örva japanskt
efnahagslíf, og kunnugir telja
að það kunni að auka banda-
rískan útflutning til Japans,
en það mundi auka eftirspurn
eftir dollurum.
Dollarinn hefur einnig
styrkzt vegna þeirrar yfirlýs-
ingar aðstoðarfjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, Lawr-
ence Summers, að sjö helztu
iðnríkjum heims (G7) hafi orð-
ið mikið ágengt í þeirri við-
leitni að að rétta við gengi
dollarsins og að Bandaríkja-
menn séu reiðubúnir til sam-
vinnu á þessu sviði.
í London varð ný methækk-
un á FTSE-vísitölunni, sem
mældist 3.587,0 stig. Þýzk
hlutabréf hækkuðu einnig
talsvert í verði og Dax-vísital-
an mældist 2.313,63 stig.