Morgunblaðið - 16.09.1995, Page 29

Morgunblaðið - 16.09.1995, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 29 Þetta voru kratabæir með fjölskylduna í öndvegi SÍÐAN í vor hefur aftur og aftur verið vikið að því hve sveitarfélögin í landinu séu orðin skuldsett. Um- Qöllun um skuldir og lántökur ríkis- ins eru sífellt í umræðunni en í raun og veru er sáralítið fjallað um skuld- ir sveitarfélaganna nema rétt í kringum afgreiðslu fjárhagsáætlana og þegar reikningar sveitarfélaga eru afgreiddir í sveitarstjórn. En til hvers er svo sem að ræða skuldir sveitarfélagsins, myndi ein- hver spyija og vísa jafnframt til þess að þær komi lítið við íbúana og svo sé nú hægt að matreiða þær á alla vegu þannig að sitt sýnist hveijum. Það er einmitt þetta sjón- armið sem ég kýs að gera að umtals- efni og það hvernig áróður hefur verið rekinn um skuld- ir bæjarfélaganna í mínu kjördæmi. Áróð- ur sem hitti í mark á sínum tíma en seinna reyndist illmögulegt að koma staðreyndum til skila, ef til vill vegna þess að í millitíðinni hafði skuldatal náð því hámarki að fólk var farið að slá skollaeyr- um við slíkri umræðu. Þá var áróðursbragðið „skuldasöfnun vinstrimanna" í kosningabarátt- unni í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningamar 1990 var rekinn linnulaus áróður gegn ríkjandi stjórnarmeirihluta sem Al- þýðuflokkur og Alþýðubandalag mynduðu. Sá áróður beindist fyrst og fremst að fjármálum bæjarins og því var haldið fram að allt væri á heljarþröm, fjármálastjórn væri slök og skuldasöfnun óhófleg. Því var ótæpilega haldið fram að ef ekki yrði söðlað um og vikið frá vinstri villu myndi þetta blómlega bæjarfélag enda á gjörgæslu. Áróð- urinn náði eyrum kjósenda og meiri- hlutinn féll. Þegar þetta gerðist námu heildarskuldir bæjarins sam- tals um 1,3 milljörðum króna en í dag nema heildarskuldir bæjarins rúmum 4 milljörðum króna sem eru um 258% af skatttekjum sl. árs. í lok ársins 1989 námu nettóskuldir Kópavogsbæjar 60% af skatttekjum ársins, sem var síðasta heila ár þess meirihluta. Nettóskuldirnar námu hinsvegar við síðustu áramót um 178% af skatttekjunum en á sama tíma hafa skatttekjur bæjarins auk- ist iítið eða aðeins um liðlega 10 prósent. Skuldirnar sem svo hátt var haft um á sínum tíma hafa því þrefaldast á þeim 5 árum sem nú- verandi meirihluti hefur stjórnað. Miðað við nettóskuldir er skuldsetn- ingin 161 þúsund á hvern íbúa en fer í 233 þúsund þegar tekið er mið af heildarskuldum. Hver hefði trúað að sú yrði raunin miðað við mál- flutninginn fyrir fimm árum? Á þessum tíma liefur mikið verið framkvæmt í bænum en að sama skapi hefur hin rómaða félagslega þjónusta í bænum verið dregin sam- an. Og það er kjarni málsins að fyrst og síðast snúast stjórnmál um áhersl- ur og forgangsröðun ráðamanna. Hamrað á því sama gegn krötunum fyrir sunnan Harður skuldaáróður var mark- visst rekinn í Njarðvík og Keflavík á sama tíma og seinna í Hafnarfirði með ti- lætluðum árangri. í þau fjögur ár sem Al- þýðuflokkurinn var við stjórnvölinn í Njarðvík og Keflavík hömruðu sjálfstæðismenn á þessum sömu nótum við undirspil Fram- sóknar í Keflavík. Sú félagslega uppbygging sem átti sér stað var gerð tortryggileg og óreiðuáróður hafður uppi. í umfjöllun um reikninga hins samein- aða sveitarfélags í sumar var sýnt ræki- lega fram á það hvem- ig fjármál hafa þróast í samtölu Keflavíkur og Njarðvíkur frá þeim tíma síðan Sjálfstæðisflokkur og Framsókn tóku við völdum í Kefla- vík. Á línuriti sem þá var birt kem- ur fram að heildarskuldir voru 812 þúsund árið 1990 - við lok stjórnar- tíma Alþýðuflokksins - en vom í árslok 1994 orðnar um 1.390 þús- und krónur. Á sama tíma minnkaði greiðsluafkoma úr -102 þúsund nið- ur í -412 þúsund og peningaleg staða bæjarfélagsins var á sama róli því nettóskuldir voru 442 millj- ónir árið 1990 en í árslok 1994 em þær orðnar um 960 milljónir. Ekki er annað að heyra en Framsókn og Sjálfstæðisflokkur láti sér aukna skuldasöfnun í léttu rúmi liggja, því nú eru það þau sem stjórna. Sú orrahríð sem gerð var að meirihluta Alþýðuflokksins í Hafnarfírði fyrir síðustu bæjarstjómarkosningar fór ekki framhjá nokkmm manni sem eitthvað fylgist með fréttum. Þar var sams konar kosningabarátta rekin af sjálfstæðismönnum - já og reyndar framsóknarmönnum - í Hafnarfirði og staðhæfingar um fjármálaóreiðu og skuldir Hafnar- fjarðar urðu að slíku ástríðumáli að Framsóknarflokkurinn bauð lausnir á vanda atvinnulausra og skuldsettra, segir Rannveig Guðmunds- dóttir, en á skortir efndir loforðanna. því var haldið gangandi í marga mánuði eftir kosningamar og meiri- hlutaskiptin (hin fyrri) í fyrravor. En þarna tala tölur líka sínu máli og við skulum líta á þær. í bókun bæjarfulltrúa Aiþýðuflokksins í bæj- arstjórn kemur fram að sjálfstæðis- meirihlutinn jók halla bæjarsjóðs um hálfan milljarð króna á árinu 1994 umfram það sem stefndi í um mitt ár þegar þeir tóku við og niðurstaða löggiltra endurskoðenda staðfesti í september 1994. Þar kemur einnig fram að heildarskuldir bæjarsjóðs Hafnarfjarðar jukust um 1.500 milljónir milli ára þar af um 1 millj- arð á þremur síðustu mánuðum árs- ins samkvæmt milliuppgjöri frá 30. september 1994. Peningaleg staða versnaði um 1.700 milljónir, þar af 1.100 milljónir síðustu 3 mánuði ársins og hallinn jókst um nær 1.400 milljónir. Síðustu þijá mánuði ársins myndaðist einnig helmingur hallans. Það er mikilvægt að Alþýðuflokk- urinn er aftur kominn við stjórnvöl- inn í Hafnarfirði og ég er sannfærð um að bæjarbúar fá á þessu kjör- tímabili raunsanna mynd af því að það skiptir máli hveijir stjórna. Það vekur til umhugsunar En hversvegna að vera að draga þessa skuldaumræðu fram nú, myndu margir spyija. Það er mín skoðun að það hafi fyrst og fremst verið harður skuldaáróður sem felldi meirihlutann í þessum blómlegu bæjum þar sem markviss fjölskyldu- stefna var í fyrirrúmi og áherslan var á félagslega uppbyggingu. Sú staðreynd blasir hinsvegar við að þegar reynt var fyrir síðustu bæjar- stjórnarkosningar að upplýsa bæj- arbúa, t.d. í Kópavogi, um hina raunverulegu stöðu og þar með leiða fólki fyrir sjónir að allt spamaðartal- ið hafi verið hjóm eitt því skuldirnar hefðu margfaldast með nýjum stjórnarherrum, var eins og slíkt skuldatal væri gjörsamlega hætt að ná eyrum íbúanna. Það vekur alvar- lega til umhugsunar hve fólk stend- ur ráðþrota gagnvart bæði loforða- flaumi og gagnrýni sem fram er farið með á vettvangi stjómmál- anna. Þegar allt um þrýtur eru það tilfinningarnar sem ráða og á það er oft ótæpilega spilað. í kosninga- baráttunni fyrir síðustu þingkosn- ingar sagði Sjálfstæðisflokkurinn aðallega „pass“ meðan Framsóknar- flokkurinn sagði „grand“ í stóm málum fjölskyldnanna. Framsókn- arflokkurinn bauð vinnu fyrir alla og fullkomna lausn fyrir fjölskyldur í húsnæðis- og skuldabasli og hann sló í gegn. Allir vita nú að við þessi stóm orð verður ekki staðið, Alþýðu- flokkurinn setti á oddinn hvernig hann teldi raunsætt að taka á mál- um og vinna sig áfram út úr vanda, hann var málefnalegur og raunsær í kosningabaráttu en náði ekki nauð- synlegu fylgi. Ég tel það alvarlegt áhyggjuefni hve erfítt er fyrir fólk að átta sig á staðreyndum og sann- leiksgildi þess sem fyrir það er bor- ið og það er umhugsunarefni fyrir okkur öll sem á stjórnmálasviðinu störfum hve „pólitíkusinn" er' orðinn rúinn trausti almennings. Höfundur er alþingismnður og formaður þingflokks Alþýðu- nokksins-Jafnaðarmannaflokks íslands. HLUTABREFAMARKAÐUR VERÐBRÉFAÞING - SKRÁÐ HLUTABRÉF Varð m.vlrðl A/V Jöfn.% Siðaatl viöak.dagur Hegat. tilboð Hlutafélag l«gat haeat •1000 hlutf. V/H Q.hlf. afnv. Daga. •1000 lokav. kaup 4,26 5.48 8.621.826 1,89 15.47 1.67 20 15.09.95 687 5.30 •0.06 5.30 6.38 t.46 2.40 4 832 869 2,98 7.75 1.04 13 09 95 2468 2.35 1.91 2.30 2 353 175 3.72 15.40 1.47 15.09 95 645 2.16 1,07 1.30 4 615617 3.36 25.02 0.99 15.09 95 OUS 1.91 2.75 1.742000 3.85 17.10 0.93 14.09.95 520 2.60 í, 10 6.40 3 899 653 1.77 16.25 1.10 10 31.08 95 2 70 6.66 5.65 3.52 4.40 2 367 729 2.38 18.95 0.96 10 15.09 95 245 4.20 3.55 Ulgerðadéiag Ak ht 2.60 3.20 2 208 038 3.45 14.22 1.13 20 07.09 95 2900 2.90 0.02 i.OO 1.08 176 040 12.60 1.05 13 09 95 1.17 1.25 368 591 17.41 1.13 07.09 95 863 1.24 isienski hiutabfS/ ht. 1.22 1.33 581 155 3.01 32.48 1.07 14.09 95 359 1.33 1.22 1.40 493 005 5L10 1 18 15.09 95 270 1.37 fcignath.léiag AlpyóoO ht 1.08 1.10 757 648 4.17 0.79 25 07.95 216 1.08 1.62 1.90 448 400 4.21 40.40 0.98 06.09 95 Hampiöian ht 1.75 3.02 974 211 3.33 10.79 1.27 06.09.95 4104 3.00 0.04- 2.95 3.09 1.63 2.45 980000 2.46 9.52 1.40 07.09 95 294 2.45 1.31 1.40 169 921 1.43 60.70 1 14 31 08 95 280 1.40 0.04 1.41 1.46 1.31 1.84 637 234 4.47 10.34 1.17 15.09.95 148 1.79 1.80 1.85 2.15 2.16 133 447 4.65 2.15 3! 08.95 646 2.15 2.15 2.28 Lytiav íslands ht 1.34 2.00 600000 2,00 37.18 1.40 1509.95 2.60 3.55 389883 1.69 26,32 2.34 07.09 95 365 3.55 0.85 3.26 3.59 2.43 3.15 1008000 L90 6.99 1.40 20 07.09.95 315 3.15 0.46 3.07 3.12 Skagsitendingui ht 2.15 3.10 491627 6.00 2.09 14 09 96 199 3.10 3.00 SR M,oi hl 1.50 2.08 1352000 4.81 9.95 0.96 13.09.95 265 2.08 2.04 2.70 3.30 305439 3.03 30.12 1.19 10 29 08 96 330 3.30 0.65 3.30 1.00 1.05 587838 1.66 1.51 06.09.95 136 1.01 1.01 •Þo'móðut tamfni ht 2.05 3.25 1357200 3.08 10.73 1.97 20 06 09 95 163 3.25 1.32 3.10 3.24 OPNI TILBOÐSMARKAÐURINN - óskrAd hlutabréf Siðaatl viðaklptadagur Hagatvöuatu tilboð Hlutalélag Daga 1000 Lokaverð Breyting Kaup Sala 13 04 94 3600 1.00 Atmannstell ht 27.07 96 1000 1.00 0.03 1.00 22.03 95 360 0.90 Hraðlryslihus Eskitjatöar h' 30 08 96 2800 2.80 0.25 2.65 3,00 íslenskat siávatalufðif hl 15 09 95 205 Islenska utvatpstélagið ht 11 09 95 25 08.95 238 6.30 24 08 95 850 0.85 0,10 0.90 Samvmnusioður Islands hl. 29 12 94 2220 1.00 Sameinaöifvetktakarht 28 08 96 Solusamband islenskra liskttamlei 14 09.96 2985 1.80 1.80 S|óvaAlmennat ht 11 04 95 381 6.10 ■0.40 Skmnaiðnaðuf ht 03 07 95 2600 2.60 Samvinnulerðu Landsyn hl 06 02 95 400 2.00 0.70 2.00 11 08 94 61 6.00 Tollvotugeymslanhi 24 08 95* 136 1.00 ■0.10 1.02 20 07 96 4557 1.53 Tolvusamskipu ht 13 09 95 273 2.20 •0.05 2.20 2.75 Þröunaríéiag islands ht 21 08 95 175 1.25 0,05 ' Upphaað allra vtðsklpta aiðaata viðakiptadaga ar gefln i délk ‘1000, verð er margfeldi af t kr. nafnverða. Veröbrélaþlng lelanda annaat rakatur Opna tllboðamarkaðarlns fyrlr þlngaðlla en aetur engar reglur um markaðinn eða hafur afaklptl af honum að ööru laytl. Rannveig Guðmundsdóttir „Húsið“ á Eyrarbakka MORGUNBLAÐIÐ birti mjög athygiisverða grein þ. 3.8. sl. um Húsið á Eyrarbakka, en þann dag var það af- hent Byggðarsafni Ár- nesinga til afnota fyrir safnið. Er þar .rætt um þau miklu menningar- áhrif er 'þaðan bárust. En eitt var þar sem vakti undrun mína. í greininni stendur: „Húsið var miðstöð allr- ar menningar Hellis- heiðar og eitt mesta höfðingjasetur landsins um 70 ára skeið." Nú langar mig að fræðast um hve margir íbúar voru á Hellisheiði á árunum 1874- 1916, svo vitnað sé í greinina og var þar ef til vill rekinn stórbúskapur? Síðar í greininni er þess og getið að um 1926 hafi hlutverk Hússins, sem heimili verslunarstjórans verið lokið, er verslunarmiðja héraðsins færðist frá Eyrarbakka að Selfossi. Hér langar mig að bæta við. Árið 1919 er Peter Nielsen og kona hans í dag væri ekkert byggðasafn í „Húsinu“ og trúlega engin hús á staðnum, segir Auður Stefánsdóttir, ef Ragn- hildar og Halldórs hefði ekki notið við. Eugenia hætta búsforráðum í Hús- inu flytja þau í Assistentahúsið og búa þar til 1930. Sama ár, eða, 1919 flytur í Húsið Guðmundur Guðmundsson. kona hans Ragnheið- ur Blöndal og börn þeirra, en Guð- mundur var kaupfélagsstjóri Kaup- félagsins Heklu á Eyrarbakka. Voru þau þar búsett til 1928 að þau flytj- ast að Selfossi. Einnig býr í Húsinu frá 1920-1925 Haraldur Blöndal ljósmyndari ásamt konu sinni og börnum. 1930 flytur í Assistentahús- ið Haraldur frá Háeyri ásamt fjöl- skyldu sinni, en hann var faðir Leifs Haraldssonar skálds og þeirra systk- ina, svo sjá má að fleiri skáld en Guðmundur Daníelsson og Laxnes hafa búið þar. Húsið, Assistentahúsið, útihús eða öll torfan komst svo í eigu Lands- banka íslands. Um 1930 auglýsir bankinn eignina til sölu undir nafn- inu „Garður" og getur þess jafn- framt að hún verði seld til niðurrifs. Ástand húsanna var vægast sagt mjög bágborið, enda þeim enginn sómi sýndur um langt árabil. Sjónar- mið bankastjórnar mega teljast eðli- leg, þeir hafa sjálfsagt viljað losna við óarðbæra eign, enda ekki í þeirra verkahring að varðveita og halda við sögulegum minjum. Það er í maí 1932 að þau stór- huga og mætu hjón Ragnhildur Pét- ursdóttir og Halldór Kr. Þorsteins- son, skipstjóri í Háteigi, kaupa eign- ina og bjarga þar með fágætum verðmætum frá glötun. Þar með hófst hið mikla verk lagfæringa og endur- bóta. Halldór fékk Eirík Gíslason, trésmið á Eyrarbakka, til að hafa umsjón með þessu vandasama verki. Jafn- Sr framt var gerð nákvæm lýsing á allri gerð Húss- ins, en það er hlaðið úr gildum bjálkum eða stokkbyggt. Ekkert var til sparað að gera svo vel, sem kostur var á, en miklar skemmdir komu í Ijós er viðgerð hófst. Fyrir utan sjálft Húsið er svo Assistentahúsið, útihús og stór hlaða, sem því miður er nú fallin, en útveggir hennar standa við göt- una sunnan við Húsið. Brunnurinn var hlaðinn upp að nýju og byggt yfir hann og fallega hlaðinn sjóvarn- argarður grasi vaxinn var einnig lagfærður. Um 1939 ræður Ragnhildur fyrir hönd Heimilisiðnaðarfélags íslands unga konu Guðrúnu Jónsdóttur til starfa við vefnað. Hún var þá ný- komin heim frá námi í Noregi með kennararéttindi. Er sú vefstofa sett upp í Húsinu og vann þar Guðrún ásamt nokkrum stúlkum í 2-3 ár, mismörgum hveiju sinni. Það er þó ekki fyrr en 1945 að þau Ragnhildur og Halldór ásamt dætrum sínum fara að nýta Húsið sem sumarhús. Um það leyti er f Reykjavíkurborg á hraðleið í aust- urátt, svo kúabúskapur þeirra í Há- teigi varð að víkja, en fram að þeim tíma voru þau bundin við heyannir öll sumur. Að auki var Assistenta- húsið og hluti Hússins hersetið um tíma á stríðsárunum. Öll sumur er ég kom þangað var verið að lagfæra og „ditta“ að eign- inni og oft mátti sjá Halldór mála glugga, hurðir og girðingar eða sveifla hamri af þeirri natni er hon- um var svo eiginleg. Það var gott að vera gestur þar og finna umhyggju og virðingu fólksins, sem var svo einlæg fyrir þessum eignum. Hver sem þangað kom varð fyrir áhrifum þess og skynjaði betur væntumþykju þeirra á staðnum. Er ég rölti um Húsið fyrir skömmu varð mér hugsað til vina minna Ragnhildar og Halldórs, fyrir stór- mannlegt framtak þeirra að varð- veita og bjarga frá glötun þessum dýrgripum. I dag væri ekkert Byggðasafn í Húsinu og trúlega engin hús á staðnum ef þau hefðu ekki komist í þeirra hendur. Slíkt vill því miður of oft gleym- ast og sannaðist það þar, því þótt ég leitaði fann ég ekki einu sinni iV. mynd af þeim mætu hjónum, sem myndi þó prýða staðinn. Að lokum vil ég svo óska Árnes- ingum til hamingju með safnið og vona að það megi stækka og dafna um ókomna tíð. Höfundur er fyrrv. bankastarfs- maður. Auður Stefánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.