Morgunblaðið - 16.09.1995, Síða 19

Morgunblaðið - 16.09.1995, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 19 ÚRVERINU Sj á var útvegsr áðuneytið krefst 155 millimetra möskva við veiðar okkar í Smugunni SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA hefur undirritað reglugerð þar sem þess er krafizt að ekki sé smærri en 155 millimetra möskvi í átta öftustu metrunum í trolli íslenzkra skipa við veiðar í Smugunni. Það eru sömu reglur og gijda um þorskveið'ar hér við land. Islenzku skipin hafa hins vegar notað mun smærri möskva til þessa. „Það kom okkur á óvart að skip- stjórarnir skyldu nota 135 milli- metra möskva við þorskveiðar á þessu hafssvæði,“ segir Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, í * Noregur Dregið úr styrkjum NIÐURFELLING flutningsstyrkja frá stjórvöldum í Noregi, ógnar nú framtíð bátaflotans í Vestur-Noregi. Jafnframt veltur framtíð um 25 lí- tilla fiskvinnslustöðva á styrkjunum. Flutninfsstyrkir hafa viðgengizt í norskum sjávarútveg um árabil. Bæði styrkir ti! að flytja fiskinn milli staða innan lands og einnig til vegna útflutnings á ferskum og ísuðum físki. Mikill þrýstingur er á stjórnvöld að hætta þessum styrkveitingum frá og með næstu áramótum, meðal annars vegna aðildar að Evrópska efnahagssvæðinu. Ennfremur telur norska fjámálaráðuneytið óeðlilegt að greiða styrki til atvinnuvegar, veiða og vinnslu, sem skilar hagnaði. Formaður Fisksölusamtaka Vest- ur-Noregs, segir að styrkirnir séu undirstaða vinnslu í héruðunum Hörðalandi, Sogni og Fjörðum og framtíð 500 til 600 sjómanna velti á þeim. Þá sé fiskvinnslunni einnig stefnt í voða. Fisksölusamtökin höfði fullnýtt opinbera flutningsstyrki sína í lok júlí í ár og nú skipta vinnslan og útgerðin kostnaðinum á milli sín og greiðir hvor aðili fyrir sig um 3.50 krónur á hvert kíló af fiski, sem flytja þarf. Sölusamtökin höfðu úr að spila styrkjum upp á um 25 millj- ónir króan og hefur bróðurparturinn af því farið í flutninga á lifandi ufsa. Verði styrkveitingum hætt, getur það haft áhrif á lágmarksverðið, sem í gildi er i Noregi. Lágmarksverð á ufsa er um 21 króna á kíló. Leggi sjómenn til 3,50 í flutningskostnað, er hlutur þeirra kominn niður í 17,50 og það telja sjómenn alls ekki nægi- legt. Á hinn bóginn á vinnslan svo erfitt með að bæta öllum flutnings- kostnaði á sig. Hérlendis eru engir styrkir af þessu tagi og kaupandi físks á fiskmörkuðum eða í beinum viðskiptum borgar allan flutnings- kostnað. -----♦ ♦ ♦---- Smábátar seldir til Færeyja FÆREYINGAR hafa keypt nokkuð af notuðum smábátum héðan frá íslandi að undanförnu. Vaxandi framboð er á notuðum bátum hér, en í Færeyjum hafa útgerðarmenn og sjómenn verið að missa frá sér stærri báta og notað tækifærið þejg- ar ódýrir notaðir bátar fást frá Is- landi, að því er framkemur í fær- eyska FF-blaðinu. Þar kemur fram að minnsta kosti 8 bátar 22 til 34 feta langir hafi verið keyptir héðan til Færeyja. Þótt Færeyingar telji bátana ódýra þykir þeim þeir þurfa að leggja of mikinn kostnað í örygg- isbúnað og tryggingar á þessum bátum. í grein í blaðinu talið nauð- synlegt að lækka þennan kostnað með einhveijum hætti og er þar helzt horft til stjórnvalda. Skýringin á „lágu“ verði á smábátunum er sú, að eigendur þeirra hérlendis hafa fengið úreldingarstyrk gegn því að bátarnir verði seldir úr landi, eða fái ekki leyfi til veiða við ísland. Smáfiskarist eða „gluggi“ á trollin kemur til greina samtali við Morgunblaðið. „Við höfum lagt ríka áherzlu á að það ætti að nota sömu gerð af veiðar- færum við þorskveiðar á þessu svæði og á heimamiðum okkar. Þótt þessar mælingar, sem gerðar voru. hafi staðizt norskar viðmiðanir, stóðust þær ekki viðm- iðanir okkar og þess vegna þótti mér einsýnt að gefa þegar í stað út reglugerð sem gerði kröfu um 155 millimetra möskva. Við við erum auk þess að athuga hvort ástæða er til að grípa til frekari aðgerða varðandi notkun flottrolls í Smugunni, svo sem að áskilja sérstakan glugga eða sérstaka smáfiskarist. það eru ákvæði, sem þarfnast frekari skoðuna ráður en hægt er að taka endanlegar ákvað- arnir um það. Við getum ekki verið þekktir fyrir neitt annað en ganga um auðlindina í Smugunni af fullko- minni ábyrgð, eins og við kreíj- umst af okkar á eigin miðum. Slæm umgengi um auðlindina, hvort heldur er á heimamiðum eða ann- ars staðar, skaðar málstað okkar. Við erum í stöðugri baráttu til að veija réttindi okkar í fiskveiðum og til að tryggja afurðum okkar hámarksverð á mörkuðum. Það er þáttur í réttindabarátunni og marksðsetninginunni að sýna fyllstu ábyrgð í umgengninni um auðlindina,“ segir Þorsteinn Páls- son. FLASA/HÁRLOS? Við eigum ráð. ÞUMALÍNA Pósthússtræti 13 - S. 551 2136

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.