Morgunblaðið - 16.09.1995, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 37
AFMÆLI
MAGNUSBLONDAL
JÓHANNSSON
HUÓTT hefur farið í
opinberum fjölmiðlum
um stór tímamót í ævi
eins helsta frumherja
svokallaðrar nútíma-
tónlistar á íslandi.
Langar mig því að
gera fátæklega tilraun
til að bæta þar um.
Magnús Blöndal Jó-
hannsson er fæddur á
Skálum á Langanesi
8. september árið
1925 og er hann því ný orðinn 70
ára. Er hann sonur hjónanna Jó-
hanns Kristjánssonar og Þorgerðar
Magnúsdóttur. Til er í endurminn-
ingum Sigurðar Thoroddsen
skemmtileg lýsing á Magnúsi sem
bami en þar segir m.a.:
„Meðan ég dvaldi að Skálum bjó
ég hjá Jóhanni Kristjánssyni. Þar
bjuggu þá í stóra húsinu hann og
kona hans, sonur þeirra Magnús
Blöndal og Marínó Kristjánsson
bróðir Jóhanns ... húsgögn voru
þar af skornum skammti, aðeins
hið nauðsynlegasta. Þó var þar
gott píanó, grammófónn og hlaði
af hljómplötum. Magnús Blöndal
var þá á þriðja ári, og benti allt
til þess að hann væri undrabarn
að því er laut að söng og tón-
mennt, enda varð hann tónsmiður
síðar meir. Hann spilaði algeng lög
á píanóið eftir eyranu, notaði við
það sína smáu putta og báðar hend-
ur. Annað var þó engu ómerkara
að hann ólæs lék. hvaða plötu úr
hlaðanum, sem hann var beðinn
um að setja á glymskrattann, og
brást aldrei að hann veldi þá réttu.“
Það er eins og örlög hans hafi
verið ráðin þarna strax í byijun
hvað varðar tónlistína. Bæði píanó-
ið og svo hin nýja tækni á þessum
árum, grammófónninn. Það tæki,
og síðar segulbandið, og enn síðar
tölvan áttu eftir að gegna stóru
hlutverki í tónsköpun hans. Sex
ára gamall var hann farinn að
semja lög á píanóið og tíu ára gam-
all, þá fluttur til Reykjavíkur með
foreldrum sínum, innritaðist hann
í Tónlistarskólann í Reykjavík sem
þá hafði aðeins starfað í þijú ár,
og hóf nám undir handleiðslu dr.
Franz Mixa, og síðar hjá dr. Ur-
bancic. Rúmlega tvítugur sigldi
Magnús, ásamt foreldrum sínum
með bandarísku herflutningaskipi
til New York þar sem hann átti
eftir að búa og nema næstu átta
árin. Stundaði hann þar nám í Juill-
ard School of Music í hljómsveitar-
stjórn, tónsmíðum og píanóleik, eða
fram til ársins 1954.
Magnús fluttist til íslands árið
1954 og hóf störf á tónlistardeild
Ríkisútvarpsins. Átti hann eftir
að starfa þar næstu mörg árin.
Árið 1959 hóf nútíminn innreið
sína af alvöru í tónsköpun Magn-
úsar og áttu næstu tíu árin í tón-
smíðaferli Magnúsar eftir að vera
þau ár sem mest hefur verið og
mest mun verða fjallað um í tón-
smíðaferli hans - einn róttækasti
frumherji íslenskrar nútímatón-
listar. Á tónleikum Musica Nova,
sem stofnað var árið 1960 en
Magnús var meðal stofnenda þess,
voru fyrstu „nútíma“ verk Magn-
úsar flutt. Áttu þau eftir eftir að
ýta allhressilega við fastmótuðum
skoðunum fólks á því
hvað væri tónlist. Og
hvemig var nú öllu
þessu „moderniteti"
tekið af gagnrýnend-
um? Mér sýnist á
heimildum frá þessum
tíma að Magnúsi hafi
tekist að víkka tónlist-
aráru þeirra sem
höfðu fýrirfram mót-
aðar skoðanir á því
hvað væri tónlist í
nýja átt - þ.e. að þessu sinni niður
til skrattans. Um verkið Punktar
frá árinu 1962 má lesa m.a. í
bæjarblöðunum: „Það er rúið flest-
um þeim eiginleikum, sem að al-
mennu mati - og ekki endilega
íhaldssömu - gera muninn á músík
og venjulegum hávaða.“ Einnig
má lesa eftirfarandi: „Punktar
Magnúsar Bl. Jóhannssonar
standa vel undir sínu nafni, nema
hvað mikið skortir á samhengi
þeirra á milli. Höfundur aðhyllist
auðheyrilega þau elektronisku
áhrif, sem nú hertaka yngri kyn-
slóðina. Er þarna um að ræða
samsetningu - hljóma - hljóða og
óhljóða, þar sem segulbandið
gegnir feiknarhlutverki og það eitt
að stjórna því jaðrar við „virtuos-
eri“.“ Einnig má lesa á prenti frá
þessum tíma um verk hans: „En
þeir, sem heyrðu hin elektrónísku
„tónverk“ þessa kvölds, - hljóta
þeir ekki flestallir að gera sér þess
grein, að hér með er öfugþróun
listarinnar komin á leiðarenda?
Héðan af á hún ekki nema um
tvennt að velja: Lokaskrefið út í
tómið kalt og dimmt og dautt eða
afurhvarf að hinum lifandi upp-
sprettulindum allrar sannrar list-
sköpunar.“ Með öðrum orðum; allt
á hraðri leið niður til andskotans!
En það voru ekki bara elektrón-
ísk verk sem Magnús samdi. í Birt-
ingi 1-4 hefti árið 1964 má lesa
mjög góða umfjöllun eftir Atla
Heimi Sveinsson um verkið Sonor-
ities, sem Atli flutti ásamt verki
sínu Fönsun á tónleikum Musica
Nova í febrúar 1965. Má hér til
gamans nefna að þessi tvö verk
eru þau fyrstu á íslandi þar sem
notuð er svokölluð grafísk nótna-
skrift - þ.e. ekki nótur heldur graf-
ík til að leika eftir. Eru slíkir partít-
úrar oft hinar glæsilegustu teikn-
ingar og má þess geta að í tengsl-
um við flutning verkanna var hald-
in á kaffíhúsinu Mokka sérstök
sýning á grafískri nótnaskrift af
verkum eftir þá Magnús og Atla,
ásamt verkum nokkurra erlendra
tónskálda. Sagði mér maður sem
þekkir vel til fyrir stuttu að þessi
sýning hefði að hans mati verið
meðal þeirra bestu sem á Mokka
hafa verið. Komið var af fullum
krafti inn í íslenska tónlistarlífíð
hið margupplifaða þema mankyns-
sögunnar frá upphafí; barátta góðs
og ills. Fyrir mörgum voru allir
þessir Musica Nova menn af hinu
versta sauðahúsi í list sinni, og var
Magnús þeirra verstur í upphafí.
Um áðurnefnda tónleika þar sem
verkin eftir Atla Heimi og Magnús
voru flutt, og tengdust sýningunni
á Mokka, má lesa í Morgunblaðinu
frá þessum tíma „... Hljóðin er
sumir hljóðfæraleikaramir náðu úr
IÐNAÐARHURÐIR - BILSKURSHURÐIR
ÞAK- OG VEGGSTÁL
ISVÁL-BORGÁ rliF
HÖFÐABAKKA 9 -112 REYKJAVÍK - SÍMI: 587 8750 - FAX: 587 8751
hljóðfærum sínum voru hreint og
beint hrollvekjandi og líkast sem
verið væri að ákalla illa vætti.
Nótnaskriftin var samansafn af
alls konar galdratáknum og í fyrstu
gat maður haldið að þetta væri
eftirprentun af Gráskinnu.“ Sem
betur fer komust þessir fordómar
í verki ekki lengra en á prent og
liggja þeir nú láréttir í bókahillum
fyrir komandi kynslóðir að kynna
sér. Geta menn því til samanburðar
kynnt sér síðari tíma fordómalausa
umíjöllun um verk Magnúsar.
En eitt er ljóst að þó svo beinin
í Magnúsi séu hvorki sver né löng,
þá hafa þau bæði mátt og fengið
að þola ýmislegt. Kannske sjógus-
an sem hann fékk inn um kýraug-
að á herflutningaskipinu á leiðinni
yfir hafið upp úr stríðinu hafí hert
bæði bein og sál gegn þessu brim-
roki íslenska menningargeirans og
öðrum áföllum í lífinu. Við nánari
skoðun á verkum Magnúsar stenst
að mínu mati þessi gagnrýni eng-
an veginn og er verkið
Constellation frá árinu 1960 meðal
þeirra íslensku elektrónísku verka
sem hvað oftast og víðast hafa
verið flutt, ef það er þá ekki bara
í 1. sæti hvað það varðar. Verk
Magnúsar frá árunum 1960-1970
hafa einnig mikið sögulegt gildi
fyrir íslenska tónlistarsögu. Hann
var fyrstur með marga hluti og
meðal þeirra fyrstu með aðra.
Fyrstur með serialismann í Ab-
straktionir frá árinu 1951; fyrstur
með verk fyrir segulband og hljóð-
færi (Elektronísk stúdía, 1959);
fyrstur með verk fyrir segulband
(Constellation, 1960); fyrstur með
aleatoriska músík; fyrstur með
verk fyrir segulband og hljómsveit
(Punktar, 1962) og ýmislegt ann-
að. Það sem gerði Magnúsi kleift
að semja tónlist fyrir segulband
var að hann var starfsmaður Rík-
isútvarpsins til fjölda ára. Það var
ekki á færi nema stofnana að eign-
ast slík tæki á þeim árum og fékk
Magnús leyfi til að vinna að sköp-
un sinni að loknum vinnudegi hjá
Útvarpinu. Verður þessi nánast
tilviljun í íslenskri tónlistarsögu
lengi í minnum höfð.
Það eru rúmlega tvö ár síðan
ég hitti Magnús fyrst og höfum
við síðan átt mörg persónuleg
samtöl og skrifast á. Eru þeir
margir kaffibollarnir og mörg vín-
arbrauðin sem við höfum notið
saman á þessum tíma við að vinna
úr handritum hans á heimili hans.
Ég tel það til sérréttinda að fá
tækifæri til að kynnast og komast
svo nálægt tónsköpun tónskálds
sem ég hef fengið að njóta frá
hendi Magnúsar. Vil ég nota hér
tækifærið og þakka þér, Magnús,
innilega fyrir gefandi samveru-
stundir síðastliðin tvö ár og megi
þær verða sem flestar á komandi
árum.
Það eru ótal hlutir sem ekki
hefur verið minnst hér á og má
þar m.a. nefna þátttöku Magnúsar
í Svifflugfélagi íslands, kaflann
úr sögu hans sem ljósmyndara,
flugmanns, skútusiglara, leikhúss-
manns, hljómsveitarstjóra, píanó-
leikara, á kvikmyndatónlistina né
leikhústónlistina, svo nokkuð sé
nefnt. Ekki hefur heldur verið
minnst á persónuleg áföll í lífi
hans sem manneskju né baráttuna
við þröskuld gleðinnar. Ég hef
valið að benda á nokkur atriði sem
snúa að tónlistinni og þá aðallega
þátt hans í því að innleiða nútíma-
tónlist inn í landið. Á tímabilinu
1970-1980 samdi Magnús enga
tónlist, en verkið Adagio frá árinu
1980 kom honum af stað aftur
og fylgdu mörg verk fast á eftir.
Er þar um að ræða eins konar
nýrómantískar tónsmíðar, mjög
rólegar og dreymandi og höfða til
fjölda fólks.
Ekki er hægt að ljúka þessari
upprifjun án þess að minnast á
lagið Sveitin milli sanda úr sam-
nefndri kvikmynd frá árinu 1962.
Varð það lag til í bíltúr í miðjum
Hvalfirði og hripaði Magnús það
niður á blað í snarhasti í einni
beygjunni. Hefur þetta lag yljað
þúsundum íslendinga til fjölda ára
í gullfallegri meðferð Ellýjar Vil-
hjálms.
Ég vil að lokum vitna í áður-
nefnda grein Atla Heimis Sveins-
sonar í Birtingi frá árinu 1964 en
þar segir m.a.:
„Núna er það jafn nauðsynlegt
tónskáldum og þeim sem fást við
raunvísindi að fylgjast vel með í
sínu fagi og láta ekkert fara fram
hjá sér. Magnús varð fyrstur allra
íslenzkra tónskálda að fást við
mörg þau vandamál sem efst hafa
verið á baugi seinustu ár. Hann
varð fyrstur hérlendra manna að
vinna á grundvelli seríutækninnar,
beizla tilviljunina, nota rúmið sem
formeigind, og hefur auk þess
verið brautryðjandi í sköpun
elektróniskrar tónlistar hér á
landi, sem hann hefur unnið að
við frumstæð skilyrði og erfiðar
aðstæður."
Megi verkin hans Magnúsar,
bæði „hlý“ og „köld“ gleðja okkur
um ókomna framtíð. Til hamingju
með tímamótin, Magnús Blöndal
Jóhannsson.
Bjarki Sveinbjörnsson.
Timberiand JaS-tir
20% alsláttur á öllum
Timterland sfeóm
föstuá., laug’ará. ogf mánu dag’. eL-Icí bara leður.Tttnberfeuid leáur.
Leáurskór, fóáraáir
meá GORE-TEX.
Klassískir alkliáa
leáurskór. Herra-
og kvennstæráir.
Herra- og' kvennstæráir.
Háir, vatnskeldir,
rúskinnskór íkornir
Silicon og fóáraáir meá
I kinsulate®einangi-un, til í tveim litum.
Háir, vatnskeldir leáurskór,
Tkinsulate® einangrun.
HANZ
KRINGLUN N l
SSSSSfSSSSSSSSSSfSSSSfSfSSSSfSSSSS
| húfor
Eins oq húfur
eiga að vera
:■ Mjúk bómull að innan
k' Hlý ull að utan
Bankastréeti 10 • 5ími 552-2201
sssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss
ssss