Morgunblaðið - 16.09.1995, Síða 42
42 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR A MORGUN
Guðspjall dagsins:
Tíu líkþráir.
(Lúk. 17.)
ÁSKIRKJA: Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BUSTAÐAKIRKJA: Upphaf vetr-
arstarfs. Barnaguðsþjónusta kl.
11. Verið með frá byrjun. Foreldrar
hvattir til þátttöku með börnunum.
Guðsþjónusa kl. 14. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. PáhTii
Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11 við upphaf barna-
starfs. Sr. María Ágústsdóttir
prédikar. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson
þjónar fyrir altari. Skírn. Organleik-
ari Marteinn H. Friðriksson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Stefán Lárus-
son messar. Organisti Kjartan Ól-
afsson. Félag fyrrverandi sókn-
arpresta.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Barnakór Grensás-
kirkju syngur. Stjórnandi Margrét
Pálmadóttir. Messa kl. 14. Altar-
isganga. Prestur sr. Halldór S.
Gröndal. Organisti Árni Arinbjarn-
arson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barnasam-
koma og messa kl. 11. Sr. Sigurð-
ur Pálsson prédikar. Organisti
Hörður Áskelsson. Sr. Ragnar Fjal-
ar Lárusson. Kvöldmessa kl. 20 á
vegum Reykjavíkurprófastsdæmis
vestra. Prestar, sóknarnefndir,
starfsfólk, söngfólk og sjálfboðal-
iðar safnaðanna taka þátt í mess-
unni. Kór Langholtskirkju syngur,
stjórnandi Jón Stefánsson. Organ-
isti Hörður Áskelsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Kl. 11. Barna-
guðsþjónusta. Börnin fá afhenta
fallega möppu, poka o.fl. sem
tengist starfi vetrarins. Axel og
Ösp koma í heimsókn. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir. Messa kl. 14.
Organisti Pavel Manasek. Sr. Tóm-
as Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Útvarpsmessa kl.
11. Ellefu ára vígsluafmæli kirkj-
unnar. Prestur sr. Flóki Kristins-
son. Organisti Jón Stefánsson.
Léttar veitingar á vægu verði eftir
messu.
LAUGARNESKIRKJA: Barnastarf-
ið hefst með fjölskylduguðsþjón-
ustu kl. 11. Messa kl. 14. Félagar
úr Kór Laugarneskirkju syngja.
Organisti Gunnar Gunnarsson.
Kaffi eftir messu. Ólafur Jóhanns-
son.
NESKIRKJA: Upphaf barnastarfs
kl. 11. Sr. Frank M. Halldórsson.
Guðsþjónusta kl. 14. Guðmundur
Óskar Ólafsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Organisti Vera Gulasciova.
Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Barnastarfið hefst á
sama tíma í umsjá Elínborgar
Sturludóttur.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14.
Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
Organleikari Marteinn H. Friðriks-
son. Bátsferð úr Sundahöfn kl.
13.30.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta sunnudag kl. 11 við upp-
haf barnastarfs í söfnuðinum að
loknu sumarhléi. Guðsþjónusta kl.
14, ath. breyttan messutíma.
Væntanleg fermingarbörn og for-
eldrar þeirra boðin velkomin í
guðsþjónustuna við upphaf ferm-
ingarfræðslunnar. Fyrirbænastund
í Arbæjarkirkju miðvikudag kl. 16.
Prestarnir.
BREIÐHÓLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta á
sama tíma. Organleikari: Daníel
Jónasson. Samkoma kl. 20 í umsjá
Ungs fólks með hlutverk. Sr. Gísli
Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa á sama
tíma. Altarisganga. Organisti: Sól-
veig Sigríður Einarsdóttir. Sr.
Gunnar Sigurjónsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur: Hreinn
Hjartarson. Organisti: Lenka
Mátéova. Barnaguðsþjónusta á
sama tíma í umsjón Ragnars
Schram.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna-
messa kl. 11. Barnamessa í Rima-
skóla kl. 12.30. Börn í Engja- og
Rimahverfi eru hvött til að mæta.
Umsjón Hjörtur, Rúna og prestarn-
ir. Messa kl. 14. Organisti: Ágúst
Ármann Þorláksson.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta og
kynningarfundur um ferming-
arstarfið Rl. 10.30. Vænst er þátt-
töku fermingarbarna úr Hjallaskóla
og foreldra þeirra. Barnaguðsþjón-
usta kl. 13. Foreldrar eru hvattir
til að fylgja börnum sínum til þátt-
töku í barnastarfinu. Guðsþjónusta
og kynningarfundur um fermingar-
starfið kl. 14.30. Vænst er þátttöku
fermingarbarna í Hjallasókn úr
öðrum skólum en Hjallaskóla og
foreldra þeirra. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Örn
Falkner. Aðalfundur Kársnessókn-
ar verður í Borg að lokinni guðs-
þjónustu. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirs-
son.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar.
Organléikari: Kjartan Sigurjóns-
son. Prestarnir.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Pavel Smid. Cecil
Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14 og ensk messa kl.
20. Aðra rúmhelga daga messur
kl. 8 og kl. 18.
KFUM og KFUK, v/Holtaveg:
Sæludagur á morgun frá kl.
14-18.30. Fjölbreytt dagskrá úti
og inni. Samkoma kl. 17 og barna-
samvera á sama tíma.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
JÓSEPSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
er messa kl. 18.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelf-
ía: Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu-
maður Hallgrímur Guðmannsson.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Carter Wood frá
Bandaríkjunum. Allir velkomnir.
Ath. breyttan samkomutíma.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sigurð-
ur Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskólinn byrjar kl. 11.
Munið skólabílinn. Guðsþjónusta
kl. 14. Vænst er þátttöku ferming-
arbarna og fjölskyldna þeirra. Báð-
ir prestarnir þjóna. Þórhildur Ólafs
og Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Organisti
Kristjana Ásgeirsdóttir. Einar Eyj-
ólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Guðsþjónusta sunnudag kl. 11.
Organisti Steinar Guðmundsson.
Baldur Rafn Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 árd. Prestur sr. Ólafur
Oddur Jónsson. Kór Keflavíkur-
kirkju syngur. Organisti Einar Örn
Einarsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14.
Sóknarprestur kveður. Tómas
Guðmundsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 10.30. Isóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl.
14. Úlfar Guðmundsson.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Almenn guðsþjónusta kl. 11.
Barnasamvera f safnaðarheimili
meðan á prédikun stendur.
Messukaffi. Ath. messunni verður
útvarpað k. 16 á ÚVaff (FM) 104.
KFUM og K Landakirkju kl. 20.30.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta laugardag kl. 11. Stjórn-
andi Sigurður Grétar Sigurðsson.
Messa í kirkjunni sunnudag kl. 14.
Altarisganga. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Guös-
þjónusta verður í Borgarneskirkju
kl. 11. Þorbjörn Hlynur Árnason.
ÍDAG
Meo morgunkaffinu
Ást er...
að fá heimsókn
upp í rúm á sunnu-
dagsmorgni.
TM Rog U.S. Pat. Off. — all righte rosorvod
(c) 1995 Los Angales Tlmaa Syndtcate
grautinn þinn, borðar
pabbi þinn hann.
Farsi
\/iLi þátt i i>amrde<5unum' v
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Vísa um
launamálin
BJÖRGVIN hringdi og
vildi koma á framfæri
eftirfarandi vísu sem
sínu framlagi í umræður
um launamál:
Launin eru lág að vonum,
líkama stórsér á.
Rifin má telja í
ráðherrunum
rúmar tíu mílur frá.
Björgvin Magnússon
frá Geirastöðum.
Tapað/fundið
Lyklakippa fannst
LYKLAICIPPA fannst á
Geirsnefi sl. miðvikudag.
Uppl. í síma 551-2588
Tölvudisklingur
fannst
DISKLINGUR í tölvu
fannst í strætisvagni nr.
110 í síðustu viku. Eig-
andi getur spurt um
disklinginn í síma 587-
7563.
Armband
tapaðist
GULLARMBAND tap-
aðist á leiðinni frá Efsta-
leiti að Ljósheimum fyrir
u.þ.b. hálfum mánuði.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 568-3210
Pennavinir
13 ÁRA stúlka frá Svíþjóð
með áhuga á hestum, tón-
list, skriftum og lestri.
Lisa Hággstam,
Mjölnargatan 15,
S-69550 Finnerödja,
Sweden.
16 ÁRA stúlka frá Svíþjóð
vill skrifast á við íslendinga
á svipuðum aldri.
Marie Dahl,
Pl. 3003 Nyelund,
S-360 14 V&ckelsáng,
Sweden.
17 ÁRA sænsk stúlka sem
hefur áhuga á lestri, bréfa-
skriftum, dansi og mörgu
öðru.
Pernilla Freiholtz,
Plangatan 17,
910 20 Hornefors,
Sweden.
eða 483-4148. Fundar-
laun.
Armband og
jakki týndur
GULLARMBAND tap-
aðist sl. fímmtudag fyrir
hádegi einhvers staðar á
leiðinni frá Reykja-
víkurvegi að Dalshrauni.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 555-0923.
Einnig tapaðist stuttur
gallabuxnajakki á Hard
Rock Café sl. laugar-
dagskvöld. Lyklakippa
var í vasanum og saknar
eigandi hennar sárt.
Finnandi er beðinn að
hringja í ofangreint
númer.
Gæludýr
Páfagaukur
týndur
GULUR páfagaukur
tapaðist úr Fossvoginum
sl. fímmtudag. Finnandi
vinsamlegast hafí sam-
band í síma 568-0058.
Köttur í óskilum
STEINGRÁR fress-
köttur með rauða ól, vel
alinn (t.d. kann að opna
dyr) villtist inn á heimili
í vesturbænum. Eigandi
er vinsamlegast beðinn
um að hafa samband í
síma 561-5441 eða
852-9056.
14 ára stúlka frá Manitoba
vill skrifast á við krakka á
aldrinum 12-15 ára:
Holly Kjartansson,
P.O. Box 432,
Ile des Chenes, Mb.,
ROA OTO,
Canada.
VILJI einhver kynnast fólki
frá Bangladesh getur hann
skrifað til forseta Global
Pen Pals Club þar í landi:
Mr. Shaheen Alam,
Global Pen Pals Club,
Sahid Titumir Road,
P.o./DT. Nilphamari
5300,
Bangladesh.
12 ÁRA sænsk stúlka vill
skrifast á við 13-14 ára
strák.
Erica Svensson,
Hemsjo 2745 Lycke,
44196 Alingsás,
Sweden.
Víkveiji skrifar...
KUNNINGI Víkveija vakti at-
hygli hans á þeirri sérkenni-
legu þverstæðu, sem væri fólgin í
fyrirhugaðri byggingu átöppunar-
verksmiðju Þórsbrunns við Gvend-
arbrunnana í Heiðmörk. Eins og
allir vita er vatnsbólið kennt við
Guðmund góða Arason biskup, sem
vígði vatnsból víða um land. Kunn-
ingjanum fannst skondið að fyrir-
tæki, sem sækir nafn sitt til ásatrú-
ar, myndi nú fá vatn úr hinu vígða
vatnsbóli. Hann stakk jafnvel upp
á að Þórsbrunnur skipti um nafn
og kallaði sig Biskupsbrunn, en
ekki er Víkverji viss um að forráða-
menn Þórsbrunns verði hrifnir af
þeirri uppástungu.
xxx
VÍKVERJI hélt að það væri
löngu liðin tíð að starfsfólk
fyrirtækja reykti á meðan það væri
að þjónusta viðskiptavini. Þetta
reyndi hann hins vegar þegar hann
þurfti að sækja vöru á lager Vífil-
fells hf.. Starfsmaðurinn, sem af-
greiddi hann, var með sígarettu
danglandi í munnvikinu og spjó
reyk yfir Víkveija og annað um-
hverfí sitt. Skrifara þótti þetta þeim
mun annkannalegra sem á vegg
lagerhússins stóð stórum stöfum:
„Reykingar bannaðar."
XXX
ASTÆÐA heimsóknar Víkveija
í Vífilfell var sú, að hann
þurfti að halda veizlu og ákvað að
hjóða gestum sínum upp á bjór.
Odýrasti kosturinn reyndist vera
að kaupa Pripps-bjór á kútum frá
Vífilfelli. Þijátíu lítra kútur kostar
rétt rúmar 7.000 krónur og út frá
því má reikna að hálfs lítra glas
kosti um 117 krónur. Út frá því
geta svo lesendur Víkveija aftur
reiknað, hversu svívirðilega sé verið
að okra á þeim, næst þegar þeir
kaupa sér hálfan lítra af Pripps
kútabjór á einhverri af krám borg-
arinnar, þar sem glasið kostar lík-
ast til 400-500 krónur.
xxx
ÍKVERJI fór á dögunum í
ferðalag um sex ríki, sem
hvert og eitt hafði auðvitað sinn
gjaldmiðil. Á hveijum stað skipti
Víkveiji einum til tveimur fímmtíu
dollara seðlum, sem hann hafði
meðferðis, í gjaldmiðil heimamanna.
Við brottför til næsta ríkis var oft
og tíðum eitthvað eftir af heima-
gjaldmiðlinum, sem þurfti þá að
skipta upp á nýtt í næsta ríki, ásamt
nokkrum dollurum í viðbót o.s.frv.
í lok ferðarinnar reiknaðist Víkveija
svo til að af þeim peningum, sem
hann hefði eytt á ferðalaginu, hefðu
um 4% farið í gjaldeyrisþóknun.
Svona reynsla gerir menn að fylgis-
mönnum sameiginlegs gjaldmiðils,
hvort sem hann yrði evrópskur eða
með einhveiju öðru sniði.