Morgunblaðið - 22.10.1995, Síða 14
14 B SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1995 B 15
Gengið á
Cho Ovo
FJALLGONGUMENNIRNIR
Björn Ólafsson, Hallgrímur
Magnússon og Einar Stefáns-
son, voru oftsinnis spurðir að
því er undirbúningur stóð sem
hæst, hvað í veröldinni vekti
fyrir þeim. Vinirnir þrír voru
þó sjálfir aldrei í vafa um hvers
vegna þeir væru að þessu.
„Við höfum stundað fjalla-
mennsku og klifur í rúmlega
15 ár og þetta er orðið hluti
af okkar lífsstU. Að fara og
finna eitthvað nýtt til að tak-
ast á við, erfiðari klifurleiðir,
óklifna tinda, ósnertar fannir
að skíða niður. Þessi þörf hef-
ur oft rekið okkur út fyrir
landssteinanna í leit að nýjum
viðfangsefnum og hærri tind-
um en heimahagarnir bjóða
upp á. Fyrir okkur var þetta
einungis nýtt verkefni til að
leysa þó svo að það væri stærra
i sniðum en venjulega. Við
spurðum okkur hvort við vær-
um að ætla okkur um of. Hvort
við værum að hætta Iífi okkar.
Svarið var nei, númer eitt var
og er ævinlega að stofna lífi
okkar ekki í hættu,“ segir
Björn.
Og að lokum: „Við vorum
auðvitað gríðarlega ánægðir
þegar toppinum var náð, en
þó vorum við hálfdofnir af
þreytu og súrefnisleysi. Menn
eyða allri orkunni í að fara upp
og niðurferðin getur verið
hættuleg ef menn gæta sín
ekki. Við fórum ekki að hugsa
um það fyrr en niður var kom-
ið hvað þetta var stórkostlegt.
Líka það að komast allir, en
líkurnar á því voru ekki mikl-
ar. Af 27 sem lögðu upp kom-
ust aðeins 8 á toppinn."
■■■■■nHnnnE
Á LOKADEGI. Einar Stefánsson skammt frá toppinum.
ÞESSI hirðingjadrengur var
viðloðandi leiðangurinn
VINALEGUR öldungur
í Katmandu.
SENDILL að störfum
á götum Katmandu.
TINDURINN í öllu sínu veldi. í forgrunni blakta bænaflögg sherpanna, fylgdarmanna okkar.
ÞARNA er stutt í toppinn á lokadegi klifursins.
HALLGRIMUR Magnússon á leið í efstu búðirnar, í 7600 metra hæð.
EFSTU BÚÐIRNAR í 7600 metra hæð. Veðrið lék tjöldin illa.