Morgunblaðið - 29.10.1995, Blaðsíða 14
14 D SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995
HEIMILI
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
HEIMILI
SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995 D 15
Eldhiisinnréttingar - baðinnréttingar - klæöaskápar
Sérsmfðað og staðlað
Erum fluttir f nýtt
og glæsilegt húsnæði f Yiðarhöfða 2.
Málarameistarinn,
Síðumúla 8, s. 568 9045
Nordsjö
ti.tu.ht/eibfisOieH ejæba
huíChíh^ á tfóðu ue&i
Nordsjö 2% gljástig 340,- pr. lítri
Nordsjö 4% gljástig 510,- pr. lítri
Nordsjö 7% gljástig 604,- pr. lítri
Nordsjö 20% gljástig 725,- pr. lítri
Nordsjö 40% gljástig 955,- pr. lítri
í 1 0 I dósum
UN GLIN G AHERBERGI
Gamlir speglar, ísskápar
og gluggatjöld úr gulli
VIÐ sátum við eldhúsborðið og
ræddum um unglingaherbergi
nútímans. Hún fimmtán ..-. við
mamma hennar fáeinum árum
eldri. „Ég man að ég var með
myndir af Donny Osmond og
David Cassidy upp um alla
veggi,“ sagði mamma hennar
skyndilega og horfði beint fram
fyrir sig með fjarrænt blik í
auga. Dóttir hennar leit á hana
undrandi og spurði: „Hver var
þessi Danny Ashmann?" Draum-
kennda blikið hvarf úr augun-
um. Mamman, sem eitt augnablik
hafði orðið fjórtán á ný, varð
fullorðin á augabragði... enn
fullorðnari en hún hafði áður
verið. Stelpunni hefur hinsvegar
fundist hún þurfa að útskýra
þessa hegðun fyrir mér því hún
leit á mig og hvíslaði afsakandi:
„Þessi Danny hefur ábyggilega
verið einhver ýkt geðveikur töff-
ari... fyrir svona um það bil
tuttugu og fimm árum.“ Tónninn
í „tuttugu og fimm“ sagði meira
en nokkur orð ... en samt þurfti
hún að bæta gráu ofan á svart
með því að spyrja; „bíddu, tutt-
ugu og fimm ár ... er það ekki
aldarfjórðungur?“. Ég eyddi
þessu með því að minna hana á
að ég hefði alltaf verið heldur
slök í stærðfræðinni. Þegar ég
leit í baksýnisspegilinn á leiðinni
heim tók ég hinsvegar eftir því
að gráu hárunum hafði fjölgað
all verulega ... og þessi bak-
verkur ... ætli þetta sé ekki
bara gigt...?
GÍSLI Hjörleifsson
„Isskápar eru í
raun frábærir
fataskáparu
SIGYN Blöndal Kristinsdóttir
Morgunblaðið/Kristinn
Glænýtt eða eldgamalt,
það er enginn millivegur
ÞAÐ KOM dálítið fát á Sigyn
Blöndal Kristinsdóttuf þegar
við spurðum hana bara hreint út
hvort það leyndust yfirleitt ein-
hvetjar hrúgur af óhreinum fötum
bak við hurð í herberginu hennar
eins og hjá unglingum allra tíma.
Síðan horfði hún beint í augun á
okkur og svaraði blátt áfram: „Her-
bergið er of lítið til að þar geti
eitthvað leynst... það eru hrúgur
alstaðar." Til útskýringar benti hún
okkur á að herbergið væri aðeins
sex fermetrar; „ég þarf bara að
skipta um föt einu sinni til að það
líti út fyrir að allt sé á hvolfi,“
sagði þessi þrettán ára heimasæta.
„Kosturinn er hinsvegar sá að
maður er líka mjög fljótur að taka
til í svona litlu herbergi." En þó
svo hvorki sé hátt til lofts né vítt
til veggja í vistarverum Sigynjar
er oft æði fjölmennt á þessum fáu
fermetrum. „Það er í rauninni ótrú-
legt hve margir komast þarna inn.
A kvöldin erum við oft níu þarna
inni - sex sitja á rúminu og þrír
á gólfinu og það virðist bara fara
þokkalega um mannskapinn,"
sagði hún og hló.
Gamaldags gluggatjöld
Herbergi Sigynjar er milliblátt
að lit og á veggjunum er „alvöru
myndlist" eins og hún orðaði það.
„Pabbi minn; Kristinn Hrafnsson,
er myndlistamaður og hann hefur
gefíð mér nokkur verk eftir sig.
Mér þykir mjög vænt um þau,“
sagði Sigyn. „Hann og föðurfjöl-
skylda mín gáfu mér líka gamlan
spegil sem mér finnst alveg geð-
veikur. Það má eiginlega segja að
krakkar í dag skiptist í tvo hópa;
helmingurinn vill hafa allt gamalt
inni hjá sér og hinir vilja hafa allt
nýtt með tilheyrandi stáli, gleri og
krómi. Það virðist ekki vera neinn
millivegur í þessu,“ fullyrti hún.
„Ég er í rauninni miklu hrifnari af
þessum antik-stíl og er rosalega
veik fyrir svona gylltum englum,
gömlum myndum og gamaldags
gluggatjöldum," bætti hún við.
„Við flytjum bráðum og þá fæ ég
stærra herbergi sem ég ætla að
innrétta í þessum gamla stíl. Ég
ætla að mála það herbergi antik-
grænt, gult eða í sama bláa litnum
og ég er með í herberginu núna.
Mér finnst sá litur alveg ógeðslega
flottur,“ sagði Sigyn og lagði
áherslu á hvert orð.
Mel Gibson fyrirmömmur
En hvað með „piakötin“ - eru
þau gersamlega horfin úr herbergj-
um unglinganna? „Já og nei,“ svar-
aði Sigyn. „Sko, “plaköt" með
söngvurum og hljómsveitum eru
horfin en sumir eru með myndir
af frægum fyrirsætum uppi á
vegg. Eg er til dæmis með svo-
leiðis myndir á hurðinni í her-
berginu mínu - myndir af
Claudiu Schiffer, Nadiu Auer-
man og Cindy Crawford. Þær
eru rosalega vinsælar ... að ég
tali nú ekki um Pamelu Anderson.
Svo verður náttúrlega allt vitlaust
ef það birtist í Mogganum mynd
af Brad Pitt eða Johnny Depp, þó
hann sé rosalegur drullusokkur,“
sagði hún grafalvarleg. Til að sýna
fram á að við værum með á nótun-
um spurðum við; „En Tom Cruise
eða Mel Gibson?" Sigyn horfði á
okkur samúðarfullum augum, hristi
svo höfuðið og sagði; „Tom Cruise
er svo væminn ... og Mel Gibson
er ágætur svona fyrir mömmur ...
eða kannske frek-
ar ommur.
Hvernig í veröldinni datt þér
þetta í hug? „Ja, bróðir minn átti
þessa hugmynd en við höfum báð-
ir alveg bijálæðislegt hugmynda-
flug,“ útskýrir hann. „Reyndar
finnst mér alveg sorglegt hvað
fólk notar hugmyndaflugið lítið,“
bætir hann við. „Mér fínnst lang-
skemmtilegast að nota þá hluti
sem til eru en nota þá til einhvers
annars en til er ætlast. Gamlir ís-
skápar eru til dæmis frábærir fata-
skápar. Skrifborðið mitt er búið til
úr múrsteinum og plötu. Skrif-
borðsstóllinn er hinsvegar eldgam-
all borðstofustóll _og náttborðið
gamalt símaborð. Ég er líka með
gamla „hermannaskápa“ inni hjá
mér; svona eins og eru í öllum
amerískum skólum,“ útskýrir
hann. „Ég þoli ekki „plaköt“ svo
í staðinn er ég bara með breska
fánann á veggnum hjá mér og
gamla rússahúfu. Þetta er bæði
skemmtilegra, flottara og ódýrara
en að kaupa eitthvað nýtt,“ segir
Gísli.
„Ertu orðinn ruglaður,
drerjgur?"
- En hvemig bregðast nú vinir
og vandamenn við þessari nýju
stefnu í innanhússarkitektúr?
„Mamma og pabbi vita alveg
hvernig ég er,“ svarar hann, „og
þau eru bara ánægð með að ég
noti hugmyndaflugið. Vinum mín-
um fínnst þetta alveg geðveikt en
þegar amma sá þetta
fyrst þá horfði hún
bara á mig og
sagði; „ertu orðinn
eitthvað ruglaður,
drengur?“ - en ég
held nú að hún sé
orðin sátt við þetta
núna.“ Þegar við
berum það undir
Gísla hvort hann
ætli ekkert að hag-
nýta sér þetta hug-
myndaflug í fram-
tíðinni svarar hann
að bragði; „Jú, jú
- ég ætla að verða
arkitekt, það er al-
veg á hreinu. Ég
er góður í að teikna
og svo fínnst mér
alveg æðislega
gaman að hanna
og innrétta her-
bergi, en ég mun
aldrei nota hvítan
lit.“ ,
+
Rósir, málverk og
gyllt gluggatjöld
Morgunblaðið/Kristján
ÞAÐ ER ekki á hveijum degi
sem maður sér fjórtán ára
unglinga rogast með gluggatjöld
út á snúru og úða þau þar með
gylltum lit. Þetta gerðist hinsvegar
á Hvolsvelli fyrr á árinu og_ vitan-
lega vakti það forvitni. „Ég var
að breyta herberginu mínu,“ svar-
aði Ingileif Friðjónsdóttir þegar við
spurðum hana hvað hún hefði
eiginlega verið að bralla. „Ég var
orðin hundleið á gamla herberginu
og ákvað að breyta... eða öllu
heldur umbylta öllu innandyra,"
bætti hún við. „Mig hafði lengi
langað til að mála herbergið rautt
og lét nú loksins verða af því. Loft-
ið er hinsvegar appelsínugult og
skáparnir líka,“ upplýsti hún.
„ Guð minn góður“
- Þykir rauður litur heldur
djarfur — hver voru viðbrögð for-
eldra og vina við þessu litavali?
„Það fannst þetta öllum dálítið
glannalegt fyrst. Mig minnir að
mamma hafi sagt: „Guð minn góð-
ur... “ eða eitthvað í þá áttina
þegar ég sýndi henni litina“, svar-
aði Ingileif og hló, „en núna er hún
mjög sátt við þetta. Gyllti liturinn
gerir svo mikið,“ upplýsti hún. „Ég
“spreyaði“ fullt af þurrkuðum rós-
um með gylltum lit og þær eru
svona vítt og breitt um herbergið
og svo eru rimlagluggatjöldin gyllt,
eins og frægt er orðið,“ sagði hún
og brosti út í annað. „Ég er ofsa-
lega veik fyrir gullinu," bætti hún
við í trúnaðartóni.
Mamma og Van Gogh
En Ingileif á ekki langt að sækja
listræna hæfileika sína og sköpun-
arþrá því móðir hennar er Ingunn
Jensdóttir, myndlistarmaður og
leikstjóri. „Auðvitað er ég með
myndir eftir mömmu,“ sagði hún
þegar við inntum hana eftir því
hvað væri á veggjunum hjá henni.
„Eftir mömmu og Van Gogh .. .
en það er reyndar bara eftirprent-
un,“ viðurkenndi hún glottandi.
„Blómamyndirnar hennar mömmu
eru í stíl við litina í herberginu;
ofsalega fallegar rauðar og appel-
sínugular og að sjálfsögðu i gyllt-
um römmum. Svo er ég líka með
fullt af litlum sætum svart/hvítum
kortum uppi á vegg. Rúmið er
hvítt og frekar breitt og yfir því
er himnasæng sem ég keypti í Ikea.
Svo er ég með gamaldags skatthol
og aragrúa af postulínsstyttum,"
sagði Ingileif. „Ég er að safna
styttum," útskýrði hún, „og seinna
ætla ég að fá mér glerskáp undir
þær.“
Menn eru svo misjafnir
Öll unglingaherbergi eiga það
sameiginlegt að vera alltaf á hvolfi
fullyrtum við og spurðum svo Ingi-
leif - rétt eða rangt? „Rangt,“
svaraði hún án þess að hika. „Ég
skal reyndar viðurkenna að áður
en ég breytti herberginu var oft
dáldið mikið drasl inni hjá mér.
En eftir breytingu þá er allt svaka-
lega fínt,“ sagði hún og svipurinn
Vönduð vinna—góð þjónusla
Kynnið ykkur arkitektaþjónustu okkar
INNRÉTTINGAR
Viðarhöfða 2,
sími 587-5609, fax 587-5610.
Þessi nýi örbylgjuofn frá Whirlpool
hefur margfalt notagildi á við
venjulega örbylgjuofna. í honum
getur þú grillað lærið eða bakað
fiskinn, um leið og þú nýtir þér
örbylgjutæknina til að flýta fyrir þér
við matargerðina. Útkoman er
matur eins og þú vilt hafa hann, á
mun skemmri tíma en þú hefur
áður kynnst.
Umboðsmenn um tand altt.
ÞRÁTT fyrir að Gísli Hjörleifs-
son sé aðeins fjórtán ára hefur
hann þegar getið sér gott orð fyr-
ir hugmyndaauðgi og ákveðna
dirfsku. Hann er búsettur á Akur-
eyri en sögur af sérkennilegu her-
bergi hans og smekkvísi höfðu
engu að síður borist suður yfir
heiðar. „Sko, bróðir minn gerði
þetta,“ sagði Gísli, þar sem við
stóðum á þröskuldinum og störðum
á glitrandi silfurlitt gólfíð í her-
berginu hans. Þegar við litum upp
í loftið sem þakið var blaðsíðum
úr alls konar tímaritum bætti hann
við, rétt eins og það væri að renna
upp fyrir honum ljós; „við bræð-
urnir erum sennilega svolítið öðru-
vísi.“ Og víst er herbergið hans
Gísla „svolítið öðruvísi", svo ekki
sé dýpra í árinni tekið. Fyrst ber
að nefna að „herbergið“ er í raun
bílskúr, sem búið er að breyta.
Veggirnir eru mosagrænir og app-
elsínugul rönd uppi við loftið allan
hringinn. Gólfið er sem fyrr segir
silfurlitt og loftið alsett tímaritum.
Gísli hlær bara þegar við spyijum
hann hvort leti hafi ráðið þessu
vali á loftklæðningu; við höfum
hann grunaðan um að nenna ekki
að halda á blaðinu þegar hann ligg-
ur uppi í rúmi og les.
Vil nota það sem til er
Fljótlega rekum við augun í tvo
stóra ísskápa. Undrunarsvipurinn
verður til þess að Gísli opnar þá
fyrir okkur og viti menn - ísskáp-
arnir eru í raun fataskápar.
Morgunblaðið/Steinunn
Ingileif Friðjónsdóttir
sagði okkur að hún væri að segja
satt. „Ef maður er ánægður með
herbergið sitt þá nennir maður
frekar að taka til í því,“ fullyrti
hún. „Annars er þetta örugglega
einstaklingsbundið,“ bætti hún við
eftir svolitla umhugsun; „það er
svo misjafnt hvernig fólk er gert.
Sumir verða að hafa allt í röð og
reglu eigi þeim að líða vel meðan
aðrir virðast þrífast best með allt
út um allt... og það á jafnt við
um unglinga og fullorðið fólk.“
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SlMI 569 1500
- kjarm malsins!