Morgunblaðið - 05.11.1995, Blaðsíða 12
12 B SUNNUDAGUR 5.'NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
""KVIKMYNDIR
Er hún skrýtnari en ,JDelicatessen “?
Borg hinna
týndubama
TVEIR Frakkar, Jean- Pierre Jeunet og Marc Caro,
komu kvikmyndaheiminum verulega á óvart fyrir
eins og fjórum árum með mynd sem þeir kölluðu
„Delicatessen". Hún var víðáttu furðuleg bæði hvað
varðaði innihald og útlit og fékk þegar á sig „cult“
stimpilinn sem menningarfyrirbæri er eignaðist
tryggan hóp aðdáenda, ekki síst hér á íslandi. Jeu-
net og Caro hafa nú sent frá sér nýja mynd sem
komin er í dreifingu um heiminn og heitir Borg hinna
týndu barna og vekur hvarvetna athygli ekki síst
fyrir ævintýralegt innihaldið og frumlegt útlit.
HEILI í krukku; Dominique Pinon í Borg hinna týndu barna.
DRAUMAÞJÓFAR; Emilfork og Pinon ræna börn-
um og stela draumum þeirra.
Svo virðist sem nýja
myndin hafí óteljandi
vísanir í kvikmyndirnar og
margskonar ólík áhrif á
áhorfendur sem sést best á
því að
henni hef-
ur verið
líkt við
hinar
ólíkustu
bíómynd-
ir. Ein-
hver sér
hana sem
sambland af „M“ eftir Fritz
Lang, „The Night of the
Hunter" með Robert Mitc-
hum og teiknimyndinni um
Gosa. Annar segir hana
sambland af Chaplin-
myndinni „The Trarnp" og
hrollvekjunni „A Season in
Hell“ og í henni sé jafn-
framt að fínna sterk áhrif
frá leikstjórum eins og Tim
Burton og Terry Gilliam.
Annar er nákvæmari og
segir' útlitið líkast því í
„Brazil" eftir Gilliam og lýs-
ingum Jules Verne á Frakk-
landi. Hún hafi sömu áhrif
og „Kitty, kitty, bang,
bang“ hafði ef þú sást hana
fyrst fimm ára.
Eitt virðist augljóst. Hér
er mikil ævintýramynd á
ferðinni og heimur hennar
er hinn forvitnilegasti.
Daniel Emilfork leikur ein-
ræktaðan vísindamann sem
ásamt fjórum einræktuðum
bræðrum (Dominique Pinon
úr „Delicatessen" leikur þá
alla) hefst við í stórri flotkví
Qarri landi og stelur draum-
um barna er rænt hefur
verið frá fastalandinu. Þeir
fara eftir skipunum heila
sem þeir geyma oní krukku
og Jean-Louis Trintignant
talar fyrir. Á fastalandinu
stjóma síamstvíburar, sem
gegna heitinu Kolkrabbinn,
ræningjaflokki barna. Þau
eru neydd út á göturnar að
ræna fólk en Kolkrabbinn
hefur þó mestu tekjurnar
af að selja þau einræktuðu
fríkunum. Eigandi flóasirk-
us (Ron Perlman) og vin-
kona hans (Judith Vittet)
reyna að koma börnunum
til hjálpar en verða fyrst
að sigrast á morðóðum
síamstvíburunum, dverg-
um, eineygðum möppudýr-
um og banvænum flóm svo
eitthvað sé nefnt.
Hugmyndin að Borg
hinna týndu barna, sem
Regnboginn hefur sýning-
arréttinn á, varð til á undan
„Delicatessen" eða fyrir ein-
um tíu árum. Jeunet og
Caro kynntu hana fyrir
framleiðandanum Ciaudie
Ossard, sem leist ekki vel á
hugmyndina í fyrstu en
samþykkti að framleiða
aðra sögu frá þeim sem
seinna varð „Delicatessen".
Hún var frumsýnd í Frakk-
landi árið 1991 og vakti
strax mikla athygli. Fjórum
árum síðar voru Jeunet,
Caro og Ossard búin að
gera Borg hinna týndu
barna. Þess má að lokum
geta að Angelo Badamenti
semur tónlistina við mynd-
ina en hann starfaði með
David Lynch við m.a. Tví-
dranga.
eftir Arnald
Indrióason
Fólk
lvx\
MLíkur eru á að næsta mynd
Steven Spielbergs eftir
hina margföldu óskarsverð-
launamynd Lista Schindl-
ers verði vísindaskáldskap-
artryllirinn „Deep Impact“.
Handritshöfundur ér Bruce
Joel Rubin en hvort Spiel-
berg ætli að leikstýra en enn
á huldu. Ekki er heldur vitað
hvort hann komi eitthvað
nálægt gerð tveggja fram-
haldsmynda sem framleidd-
ar verða á vegum hans. Þær
eru Indiana Jones 4 og
Júragarðurinn 2.
MKrossferðamynd þeirra
félaga Paul Verhoevens
og Arnold Schwarzeneg-
gers hefur lengi verið í
burðarliðnum en þikir of dýr
þar sem hún kostar ekki
undir 100 milljónum doll-
ara. Líkur eru þó að af
henni verði og Warner
Bros. kvikmyndaverið sjái
um kostnaðinn. Myndin
segir af tveimur bræðrum í
krossferð til Landsins
helga, annar er góðmenni
(Schwarzenegger) en hinn
hið mesta ómenni. Óvíst er-
hvenær tökur hefjast. Ver-
hoeven mun í millitíðdnni
stýra vísindaskáldska-
partryllinum „Starship
Troopers“.
Carrey
apamaður
FRAMHALDSMYNDIN „Ace Ventura 2: When Nature
Calls“ eða Náttúran kallar verður frumsýnd í Bandaríkjun-
um seinna í þessum mánuði en hún er sem fyrr með Jim
Carrey í hlutverki gæludýraspæjarans Ventura. Vinsældir
Carreys eru með ólíkindum og nú fær hann 20 milljónir
dollara á mynd.
Náttúran kallar gerist í
Afríku en hefst í Tíbet
þar sem Ace, sem kalla má
nútímalegan Dagfinn dýra-
lækni, dvelst hjá munkum
við andlega íhugun svosem
eins og Rambó forðum.
Fyrsta atriðið í myndinni
mun vera grínútgáfa af
fjallaatriðunum í „Cliffhang-
er“. Leikurinn berst svo til
Afríku þar sem okkar maður
leggur fyrir sig dýravernd í
stórum stíl.
Leikstjóri er Steve Oede-
kerk, sem skrifaði handrit
myndarinnar og handrit fyrri
sögunnar um Ace Ventura.
SKOTGLAÐUR; Banderas í „Desperado“.
Rúm 9.000
höfðu séð Netið
Apaspil; Carrey í Nátt-
úran kallar.
höfðu séð íslensku myndina
Tár úr steini eftir Hilmar
Oddsson.
Næstu myndir Stjörnu-
bíós eru Benjamín dúfa, sem
byijar 9. nóvember og verð-
ur einnig í Sambíóunum.og-
_„Desperado“ með Antonio
'Banderas.
Jólamyndir Stjörnubíós
verða „Troublemakers“ með
Trinitybræðrunum og Indj-
áninn í skápnum. Á næsta
ári sýnir bíóið svo m.a.
„Devil in a Blue Dress“ með
Denzel Washington og
„Sense and Sensibility“ með
Emma Thompson og Hugh
Grant.
ALLS höfðu rúmlega 9.000
manns séð spennumyndina
Netið í Stjörnubíói og Sam-
bíóunum eftir síðustu helgi.
Þá höfðu um 4.000
manns séð kvenvestr-
ann Kvikir og dauðir í
Stjörnubíói, Sambíóunum
ög á Ákureyri og
um 13.000 manns
Kviknakinn; Samuel
Leroy í „The Great
White Hype“.
Jackson
leikur í
boxara-
mynd
„ÉG VAR barinn meira í
kynlífsatriðunum með Lindu
Fiorentino. Hún er eina
manneskjan á jörðinni sem á
einhveija möguleika gegn
Mike Tyson," er haft eftir
leikaranum Peter Berg sem
leikur hnefaleikakappa á
móti Samuel L. Jackson í
boxaramyndinni „The Great
White Hype“. Það var greini-
lega lítið mál fyrir Berg að
stíga inn í hringinn í saman-
burði við átökin gegn Fior-
entino í „The Last Seducti-
on“.
Jackson leikur umboðs-
mann Bergs og fær hann
aftur í hringinn eftir langt
hlé að beijast við Damon
Wayans en Jeff Goldblum
leikur umboðsmann hans.
Leikstjóri er Reginald Hudlin
en handritið gerir Ron Shel-
ton, sem á að baki ófáar
íþróttamyndir („Bull
Durahm").
Myndin þykir nokkuð at-
hyglisverð fyrir þá sök að í
henni er nektarsena m_eð
Samuel Leroy Jackson.„Ég
stend kviknakinn upp úr
þessum nuddpotti og segi:
Ég er ameríski draumur-
inn.“.“
ÍBÍÓ
FRÉTTIR af góðu gengi
vegamyndar Friðriks
Þórs Friðrikssonar, Á
köldum klaka, í Bretlandi
eru ánægjulegar en koma
kannski ekki mjög á
óvart. Henni hefur vegn-
að mjög vel í kvikmynda-
húsum í London og
hreppti fyrstu verðlaun á
kvikmyndahátíð Edin-
borgar.
Hún er eins og sniðin
fyrir útlendinga líkt og
bent var á þegar hún var
frumsýnd hér á landi.
Hún segir af Japana sem
kemur til íslands yfir
vetrartímann og ferðast
uppá öræfi og kynnist í
leiðinni íslensku þjóðar-
sálinni og séríslenskum
siðum eins og þorrablóti.
Myndin opnar augu
útlendinga fyrir því sem
er íslenskt, ekki aðeins
fóikinu í landinu heldur
og ekki síst náttúrunni í
fantagóðri kvikmynda:
töku Ara Kristinssonar. í
gamla daga þótti sérstak-
lega varið í íslenskar bíó-
myndir ef þær voru líka
jákvæðar_ landkynningar-
myndir. Á köldum klaka
er svo sannarlega slík
mynd.