Morgunblaðið - 26.11.1995, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995 B 25
ATVINNUA UGL YSINGA R
Þroskaþjálfar!
Svæðisskrifstofa Suðurlands auglýsir eftir
þroskaþjálfa á vistheimili fyrir fjölfötluð börn
á Selfossi.
Við bjóðum upp á spennandi uppbyggingar-
starf, skemmtilegt starfsumhverfi, lifandi
starfssvið.
Um er að ræða 100% stöðu. Upplýsingar á
Svæðisskrifstofu Suðurlands, í síma 482 1922
eða 482 1839, Nína Edda eða Dóra.
Sölumaður/sölustjóri
KJARAN
SKRIFSTOFUBÚNAÐUR
SlÐUMÚU 14, 108 REYKJAVlK, SfMI 5813022
óskar að ráða kröftugan sölumann/sölu-
stjóra til starfa í skrifstofutækjadeild til
sölu á Ijósritunarvélum og öðrum
skr if stof utækj u m.
Tilvalið tækifæri fyrir duglegan einstakling
sem hefur reynslu/þekkingu á þessu sviði
að komast í gott framtíðarstarf hjá traustu
og öflugu fyrirtæki.
Farið verður með allar umsóknir sem
algjört trúnaðarmál.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Guðna Jónssonar, Háteigs-
vegi 7, og skal umsóknum skilað á sama
stað fyrir 3. desember.
QjðntTónsson
RÁÐGIÖF & RÁDNINGARÞIÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 5-62 13 22
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Forstöðumaður
tölvudeildar
Staða forstöðumanns tölvudeildar Lands-
bankans er laus til umsóknar.
Bankinn hefur mótað nýja stefnu varðandi
upplýsingavinnslu sína. Landsbankinn er
með eigin tölvudeild en auk þess er hann
einn af eignaraðilum Reiknistofu bankanna.
Upplýsingakerfi bankans byggja m.a. á
Microsoft NT netstýrikerfum, biðlara/miðlara
högun, UNIX gagnaþjóni, hlutbundinni
gagnavinnslu, forritunarmálinu Visual C++
og öðrum hugbúnaði frá sama framleiðanda.
Starfið felur í sér:
- Stjórnun og umsjón með uppbyggingu og
rekstri upplýsingakerfa bankans.
- Kerfis- og þarfagreiningu.
- Umsjón með áætlanagerð á sviði tölvu-
mála og hugbúnaðargerðar.
- Samskipti við seljendur tölvubúnaðar.
Gerðar eru kröfur um:
- Háskólamenntun í viðskipta-, tölvunar-
eða verkfræði auk góðrar þekkingar á
tölvu- og upplýsingatæknimálum, æski-
legt að hafa stundað nám erlendis.
- Góða skipulags- og stjórnunarhæfileika.
- Lipurð í mannlegum samskiptum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum S.Í.B.
og bankanna.
Umsóknarfrestur er til 15. desember nk.
Umsóknum sé skilað til Ara F. Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra starfsmannasviðs
bankans, Laugavegi 7, 4. hæð, 101 Reykja-
vík. Hann gefur einnig nánari upplýsingar.
Húshjálp - Noregur
Norsk/íslensk fjölskylda í Haugasundi óskar
eftir barnagæslu og húshjálp í sex mánuði.
Laun á mánuði 2.500 norskar kr. auk lítillar
íbúðar í sama húsi og fæðis.
Upplýsingar í síma 561 1629.
BJÖRK
Fimleikafélagið Björk
óskar eftir starfskrafti.
Starfið felst í:
a) Aðstoð við þjálfara í sal.
b) Umsjón með launum og reikningum.
c) Umsjón með útgáfu fréttabréfs og fjáröfl-
unum.
d) Önnur störf sem stjórn felur starfskrafti.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
um áramót ’95-'96.
Umsóknir berist í pósthólf 11,222 Hafnarfjörð-
ur, merkt: „Starfskraftur", fyrir 10/12 1995.
Skrifstofustarf
- Akureyri
Þekkt þjónustufyrirtæki á Akureyri óskar
að ráða reglusaman og drífandi starfskraft
til almennra skrifstofustarfa.
Vlnnutími frá kl. 13-18, alla virka daga, og
aðra hverja helgi er unnið á laugardögum
frá kl. 10-13 og á sunnudögum frá kl. 10-12.
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu
okkar. Umsóknarfrestur er til kl. 16 föstu-
daginn 1. desember nk.
Guðni Jónsson
RÁDGjÖF & RÁÐNINGARÞIÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22
Tölvunarfræðingar
Kerfisfræðingar
Nú er tækifæri til að breyta til
Framtíðarstörf hjá traustum fyrirtækjum,
hugbúnaðarhúsum og stofnunum eru laus
til umsóknar eða losna á næstu mánuðum.
Óskum því eftir að komast f samband við
tölvumenntaða einstaklinga sem vilja
breyta til.
í boði eru fjölbreytt og faglega áhugaverð
verksvið
Bæði koma til greina nýútskrifaðir og aðilar
með reynslu.
Láttu reyna á hvort við höfum eitthvað
fyrir þig !
Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir
sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veita Torfi Markússon
og Auður Bjarnadóttir frá kl. 9-12.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs fyrir 9. desember nk. merktar:
„Tækifæri - trúnaðarmál".
RAÐGARÐURM
STJÓRNUNAR OG REKSIRARRÁÐGJÖF
FURUGERÐI5 108 REYKJAVÍK •& 533 1800
Ritari
Eldklár ritari óskast á endurskoðunarskrif-
stofu.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 3.
desember merktar: „Ritari - 11185“.
Nýtt söluverkefni
Óskum eftir sölumanni sem getur bætt við
sig verkefnum. Um er að ræða vörusölu til
smásöluaðila og sölu auglýsingavara til fyrir-
tækja.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. merktar: „VE“.
Eigendur/stjórn-
endur ítréiðnaði
<
47 ára gamall tréiðnfræðingur og rekstrar-
fræðingur, með langa reynslu af stjórnunar-
störfum, óskar eftir framtíðarvinnu.
Áhugasamir leggi svör inn á afgreiðslu Mbl.,
merkt: „Tréiðnaður- 123“,fyrir2. desember.
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra
á Reykjanesi
Forstöðumaður
óskast
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykja-
nesi óskar eftir að ráða til starfa forstöðu-
mann við vistheimilið Tjaldanes í Mos-
fellsbæ. Launakjör skv. kjarasamningum
opinberra starfsmanna, launaflokk 506-248.
Umsóknareyðublöð eru afhent á Svæðis-
skrifstofunni, Digranesvegi 5, Kópavogi,
sími 568 1822.
Styrkþegastaða
Staða styrkþega (lausráðins sérfræðings) við
Stofnun Árna Magnússonar á íslandi er laus
til umsóknar.
Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráð-
herra f.h. ríkissjóðs og Félags háskólakennara.
Umsækjendur skulu hið minnsta hafa lokið
meistaraprófi eða öðru sambærilegu prófi á
fræðisviði stofnunarinnar frá viðurkenndum
háskóla. Ætlast ertil að sá, sem ráðinn verð-
ur í stöðuna, stundi rannsóknir á sviði ís-
lenskra fræða, einkum þær, sem reistar eru
á könnun handrita, og taki að öðru leyti þátt
í almennum skyldustörfum starfsliðs stofn-
unarinnar.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilega skýrslu um námsferil sinn, starfs-
feril og fræðistörf, ritsmíðar og rannsóknir,
ásamt eintökum af fræðilegum ritum sínum,
ritgerðum og skýrslum, prentuðum sem
óprentuðum, sem þeir óska eftir að tekið
verði tillit til við hæfnismat. Jafnframt er
æskilegt að umsækjendur geri stutta grein
fyrir verkefni eða verkefnum, sem þeir hafa
hug á að vinna að, fengju þeir starfið.
Umsóknir skulu sendar Stofnun Árna Magn-
ússonar á íslandi, Árnagarði við Suðurgötu,
101 Reykjavík, fyrir 31. desember nk.
Stofnun
Árna Magnússonará íslandi.