Morgunblaðið - 28.04.1996, Side 10
10 B SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
YOGAB
---------------------------§<.
JÓGANÁMSKEIÐ
Grunnnámskeið 30. apríl, þri. & fim. kl. 20.00-21.30 (8
skipti). Kenndar verða m.a. jógastöður, öndunaræfingar,
hugleiðsla og slökun. Leiðbeinandi: Anna Dóra
Hermannsdóttir, jógakennari.
Jóga gegn kvíða
2.-28. maí, þri. -fim. kl. 20.00-22.15 (7 skipti).
Námskeið fyrir þá sem eiga við kvíða og fælni að striða
og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu.
Kenndar verða leiðir til að slaka á og öðlast aukið frelsi og
lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg.
Leiðbeinandi: Ásmundur Gunnlaugsson jógakennari.
AFMÆLI
GUÐMUNDUR
SVEINSSON
Hátúni 6A, 105 Reykjavík, sími 5 I I 3 100.
„Det Nodvendige Seminarium“ í Danmörku
Á síðast liðnum þremur árum höfum við tekið á móti íslenskum námsmönnum á
öllum sviðum. Við viljum sömuleiðis á þessu ári bjóða íslenskum námsmönnun
að hefja nám hjá okkur 1. september.
4 ára alþjóðlegt kennaranám:
Alþjóðlegt nám, 4 mánaða námsferð til Asíu, 6 mánaða starfskennsla við danska
skóla, 8 mánaða starfskennsla í Afríku þar sem þú munt taka þátt í að þjálfa nýja
kennara til starfa við grunnskóla í Mozambique að Angóla.
Að auki er kennsla í öllum undirstöðufogum kennaramenntunarinnar:
Samfélagsfræði, náttúrufræði, danska, evrópsk tungumál, listir, tónlist, íþróttir,
leiklist, kennslufræði, sálfræði.
Námsmenn frá átján mismunandi löndum - Allir námsmenn búa í skólanum.
Upplýsingafundur verður haldinn í Re ykjavík í maí.
Hringið eða sendið okkur fax til að nálgast bæklinga: Sími 00 45 43995544.
Fax: 00 45 43995982.
Det Nodvendige Seminarium, 6990 Ulfborg, Danmörku.
Velgjörðarmaður
okkar og húsbóndi um
sex ára skeið, sá er gaf
okkur meiri menning-
arlega lífsýn en við
áður höfðum notið, er
sjötíu og fimm ára í
dag.
Þessi rnaður er Guð-
mundur Sveinsson,
fyrrverandi skóla-
meistari Fjölbrauta-
skóla Breiðholts,
fæddur 28. apríl 1921
í Reykjavík. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR
1941, guðfræðiprófi
frá HÍ 1945 og var vígður til Hest-
þingaprestakalla í júní sama ár, en
stundaði nám í Danmörku og Sví-
þjóð í fjögur ár í semitískum mál-
vísindum og menningarsögu Aust-
urlanda nær. Ótal námsferðir
fylgdu í kjölfarið til Norðurland-
anna, Bretlands, Sviss, Þýskalands
og Bandaríkjanna, að afla sér þekk-
ingar í guðfræði, menningarsögu
og skólamálum.
Þáttaskil urðu í lífi Guðmundar
er nýráðinn forstjóri SÍS, Erlendur
KYNNINGARMIÐSTÖÐ
EVRÓPURANNSÓKNA
Fundur um umhverfis-
og f jarkönnunarmál
Sameiginlegar rannsóknarstofnanir
Evrópusambandsins
(Joint Research Centre - JRC)
Kynningarfundur á vegum Kynningarmiðstöðvar Evrópu-
rannsókna verður haldinn föstudaginn 3. maí
á Scandic Hótel Loftleiðum kl. 8.30-12.00.
Sameiginlegu rannsóknarstofnanir ESB, sem í daglegu tali eru nefndar JRC, eru tengdar
4. rammaáætluninni um rannsóknir, þróun og nýsköpun. Samkvæmt EES-samningnum eiga
islenskir aðilar fullan aðgang að sjóðum áætlunarinnar og einnig aðgang að þeim möguleikum
sem JRC býður upp á. Þar má nefna sameiginlegar umsóknir í 4. rammaáætlunina, önnur
samvinnuverkefni, dvalarstyrki fyrir vísindamenn og möguleika til doktorsnáms í tengslum við
háskóla.
Sameiginlegu rannsóknarstofnanirnar eru sjö talsins í fimm löndum, sem reknar eru af
Evrópusambandinu. Rannsóknirnar sem stundaðar eru á þessum stofnunum eru á sviðum
umhverfismála, íjarkönnunannála, iðnaðarefna, mælinga og prófana og kjarnorkumála.
Á kynningarfundinum verða sérstaklega kynnt unhverfis- og íjarkönnunarmál og áhersla lögð á
að kynna nýtt verkefni um miðlun ognotkunfjarkönnunargagna(Center for Earth Observation -
CEO). Vakin er athygli á að auglýst hefur verið eftir styrkumsóknum í CEO verkefnið og
rennur umsóknarfresturinn út 14. júní nk.
Dagskrá:
8.30 Ávarp - Ingimar Sigurðsson, umhverfisráðuneytinu.
9.00 Um íjarkönnun á íslandi - Magnús Guðmundsson, Landmælingum íslands.
9.20 Fjarkönnunarmál - Peter Churchill, CEO Unit Head ff, CEO, Ítalíu.
10.00 Kaffi
10.20 Hafrannsóknir - N. Hoepffner, Marine Environment Unit Head, JRC, Italíu.
11.00 Umhverfismál - J. Kanellopoulos, Image Understanding Group, Institute for
Remote Sensing Applications, Italíu.
11.40 Fyrirspurnir.
Eftir hádegi gefst mönnum tækifæri á að ræða hugsanleg samvinnuverkefni íslendinga og JRC
við fulltrúa JRC og aðra möguleika, s.s. sameiginlegar umsóknir íslendinga og JRC í 4.
rammaáætlunina, rannsóknaraðstöðu við stofnanir JRC, námsmöguleika o.fl.
Fundarstjóri: Axel Björnsson.
Fundurinn fer fram á ensku.
Einarsson, kallaði
hann til fundar við sig
í marsmánuði 1955 að
bjóða honum skóla-
stjórastarf Samvinnu-
skólans og sjá um
flutning skólastarf-
seminnar að Bifröst í
Borgarfirði, svo og
skipuleggja skólann á
nýjum forsendum sem
heimavistarskóla og
framhaldsskóla við-
skiptamenntunar.
Lyktaði svo fundi
þeirra að Guðmundur
fékk vikufrest til að
íhuga málið.
Hér stóð Guðmundur Sveinsson
á tímamótum. Auglýst hafði verið
staða prófessors við Háskóla íslands
1954, en þrem árum áður hafði
Guðmundur fengið heimild kirkju-
málastjórnar landsins, ráðherra og
biskups ásamt leyfi forsvarsmanna
í fjórum sóknum prestakalls síns,
Hestþingsprestakalls, til að mega
dvelja erlendis við framhaldsnám í
guðfræði í allt að þtjú ár að ljúka
allviðamiklu vísindalegu verki í
Gamla testamentisfræðum, sem þá
var í smíðum.
En svo fór sem oft að hið póli-
tíska vald ráðuneytis og Háskóla
valdi ekki þann þjón hinnar evang-
elísku Lúthersku kirkju, sem líkleg-
astur var til að bera krossinn sýni-
legan á byltingarkenndum tíma
þjóðarinnar.
Því er óhjákvæmilegt að hafa í
huga að Guðmundur hafði orðið
fyrir barðinu á pólitísku veitinga-
valdi í sambandi við kennarastarf
við Háskóla íslands. Sársauki var
tengdur þessum atburði og að vel
athugðuðu máli tók Guðmundur
tilboði Erlends.
Teningunum var kastað, skóla-
starf varð að aðalstarfi. En skóli
Guðmundar skyldi vera að fordæmi
danska guðfræðingsins Frederik
Grundtvigs að skóli skyldi vera fyr-
ir lífið. En Grundtvig hafði skipað
skólum Vesturlanda í tvær heildir.
í annarri heildinni voru hinar hefð-
bundnu bóknámsskólar er hann
kallaði „hina svörtu skóla“ en í hinni
voru skólar nýrrar tegundar, er
tengdu fræði og daglega önn saman
og urðu því í sannleika að „skólum
fyrir lífið“. Guðmundi hefur eflaust
fundist atvikin hafa neytt sig til
endurmats áþekku því er varð
Grundtvig hvatning og eggjun.
Árin 1955-974. 1. júní 1955 var
brotið blað í lífi Guðmundar hlið-
stætt því og blað var brotið í sögu
Samvinnuskólans, er hann tók þar
við skólastjórn og skólinn fluttist
frá Reykjavík að Bifröst í Norð-
urárdal. Þar mótar hann og byggir
upp á nýtt heimavistarskóla og
gerir hann að einni virðingarmestu
skólastofnun landsins.
Á hann hlaðast störf, á þessum
árum, eins og ritstjórnarstarf Sam-
vinnunnar 1959-63, skólastjóra-
starf Bréfaskóla SÍS og síðar ASÍ
er þau samtök komu til samstarfs
við SÍS um rekstur skólans, for-
stöðumaður, Bifröst - Fræðslu-
deild, verður hann 1960. Og haust-
ið 1973 er Framhaldsdeild Sam-
vinnuskólans stofnuð í Reykjavík.
Enginn hafð barist eins hart fyrir
tilurð hennar og Guðmundur
Sveinsson.
Guðmundur Sveinsson hefur
sjálfur látið þau orð falla að fyrstu
ár starfsævinnar hafi hann lifað að
verulegu leyti í fortíðinni en verið
vakinn til samtíðarskynjunar. Starf-
sævi hans hefur sannað þessi orð.
Hann stóð í fylkingarbrjósti þeirrar
byltingar sem kölluð hefur verið
framhaldsskólabyltingin og skóli sá
sem hann var fenginn til stjórnunar
1974 var byggður á. Það sama ár
kveður Guðmundur Samvinnuskól-
ann Bifröst. Enn var hann kallaður
til að móta og skapa og nú var það
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti. Saga
þess skóla er þegar orðin mikil saga,
mikillar baráttu. Vei þeim er nú
þykjast sjá þess þörf að rústa það
kerfi sem þúsundir æskufólks hafa
fengið notið og munu í framtíðinni
þakka frumherjanum Guðmundi
Sveinssyni að hafa skapað því þá
möguleika með víðtæku valfrelsi í
námi að við námslok er það ekki
lengur statt í blindgötu gamla skóla-
kerfisins.
{ ágústmánuði 1988 lauk farsæl-
um embættisferli Guðmundar
Sveinssonar sem skólameistara.
Nú í dag dvelur hann í hléi þess
skugga, sem allir hræðast mes£,
sjúkdóms er enn enginn ræður við.
Megi andi guðfræðingsins og skóla-
mannsins Guðmundar Sveinssonar
enn um sinn vaka yfir velferð Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti.
Svo verða Guðmundi Sveinssyni
ekki sendar kveðjur og þakkir við
merk tímamót, að Guðlaugar Ein-
arsdóttur konu hans sé ekki getið,
eiginkonunnar, móðurinnar, starfs-
félagans og mannþekkjarans, er
gerði það kleift ásamt „hinum
hæsta" að veita það skjól að hægt
var að sinna, móta og skapa óvenju
árangursríkt lífsstarf.
Hafið heila þökk fyrir vinsemd
ykkar alla.
Guðný og Höskuldur Goði.
Helgarnámskeið 10.—12. maí
Á annað hundrað íslendingar hafa sótt námskeið Dayshaktis og
rnargir þeirra koma aftur og afiur.
Undir öruggri handleiðslu munum við takast á við tilfinningar
sem við höfum ekki fengið útrás fyrir og á þann hátt uppgötva
nýja möguleika og öðlast aukinn skilning á okkur sjálfum og
lífinu.
Námskeið fyrir þá sem efla vilja sjálfitraust sitt og sambönd sín.
Nœstu grunnndmskeið í Jóga:
30. apr.—l6. maí þri./fim. kl. 20—22 6 skipti.
Leiðbeinandi: Ingihjörg Guðmundsdóttir.
6. maí—22. maí mán./mið. kl. 20—22 6skipti.
Leiðbeinandi: Guðfinna St. Svavarsdóttir.
Kenndar verða undirstöðmefingar Kripalújóm, teygjur,
öndunarœfingar, hugleiðsla og slökunaraðferoir sem losa
um spennu, líkamlega og andlega.
Innifalið er tveggja vikna jógakort í framhaldi af
námskeiðinu.
Jógastöðin Heimsljós
Armúla 15,
Sími 588 4200 kl 17
19
lÓGASTÖÐIN
HEIMSLIOS