Morgunblaðið - 28.04.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996 B 23
Bókband
Óskum eftir að ráða fólk vant bókbandsstörf-
um. Reyklaus vinnustaður.
SVANSPRENT HF
Auðbrekku 12 Sími 4 27 00
Kennari óskast
Kennari óskast að Grunnskólanum í Breið-
dalshreppi næsta skólaár. Kennslugreinar:
Almenn kennsla.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 475-
6683/475-6696 og formaður skólanefndar í
síma 475-6648.
Umsóknarfrestur er til 19. maí.
Skólastjóri.
>“<
Heilsugæslustöðin Sólvangi
Hafnarfirði
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru tvær stöður hjúkrunarfræðinga
við Heilsugæslustöðina Sólvangi frá og með
1. ágúst nk.
Einnig er laus staða hjúkrunarfræðings með
Ijósmóðurmenntun frá og með 1. júlí 1996.
Umsóknir berist fyrir 1. júní nk.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 565-2600.
Rafeindavirki
Innflutningsfyrirtæki óskar eftir að ráða raf-
eindavirkja í framtíðarstarf.
Starfið felst í viðgerðum og uppsetningu á
siglinga-, fiskileitar- og fjarskiptatækjum, auk
þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins.
Ráðning fljótlega.
Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 1996.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofu Liðsauka, sem opin er kl. 9-14.
Liósauki
Skólavörðustíg 1a -101 Reykjavík - Sími: 562 1355
Fax: 562 1311 - Kt. 600182-0729
Kennarar,
skólastjórar
Mýrdalshreppur auglýsir lausar eftirfarandi
stöður við Víkurskóla, Vík í Mýrdai:
• Stöðu skólastjóra, afleysing til 1 árs.
• Stöðu sérkennara, afleysing til 1 árs.
• Stöðu íþróttakennara.
• Stöður almennra kennara, meðal kennslu-
greina: Almenn kennsla, íslenska, stærð-
fræði, danska, enska, hand- og mynd-
mennt, samfélagsgreinar, raungreinar og
tónmennt.
Umsóknarfrestur er til 12. maí.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 487 1242/
487 1124 og sveitarstjóri í síma 487 1210.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Aðstoðarkokkur
Laust er starf í mötuneyti Fjórðungssjúkra-
hússins á ísafirði. Óskað er eftir jákvæðum
og áreiðanlegum starfsmanni, karli eða konu,
sem getur annast sjálfstæða eldamennsku
í afleysingum. Um er að ræða fullt starf í
vaktavinnu. Um frambúðarstarf er að ræða,
en einnig kemur til greina sumarafleysing.
Umsóknarfrestur er til 5. maí nk.
Nánari upplýsingar gefur María Bergvins-
dóttir, yfirmaður mötuneytis, í vs. 456 4500.
SjÚKRAHÚS
REYKJAVÍ KU R
Hjúkrunarfræðingar!
Lausar eru fáeinar stöður hjúkrunarfræðinga
á öldrunardeild B-4 í Fossvogi. Starfsemi
deildarinnar er margþætt og byggist á bráða-
innlögnum og innköllunum aldraðra, meðferð
og endurhæfingu. Þverfaglegt teymi hjúkrun-
arfræðinga, lækna, sjúkraþjálfa, iðjuþjálfa og
félagsráðgjafa starfar á deildinni.
Boðið er upp á aðlögun sem hæfir viðkom-
andi starfsmanni.
Komið og takið þátt í skemmtilegu og gef-
andi starfi.
Sérstaklega vantar á næturvaktir.
Upplýsingar veita Anna Birna Jensdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 525 1535
og Gyða Þorgeirsdóttir, deildarstjóri í síma
525 1536.
Seaflower Whitefish Corporation Ltd.
LUDERITZ - NAMIBIA
SWC er fiskvinnslufyrirtæki í Namibíu sem gerir út þrjá togara ■
og einn frystitogara. Hjá fyrirtækinu starfa um 380 starfsmenn,
þar af 28 íslendingar. SWC er að hluta til í eigu íslenskra sjávar-
afurða hf.
- BAADERMAÐUR
skipstjórnarmenntaður
Við leitum að starfsmanni til afieysinga að minnsta
kosti í þrjá mánuði.
Mikil Baader-reynsla.
► Skipstjórnarmenntun
► Reynsla af störfum á frystitogara
Við leitum að úrræðagóðum og reyndum Baader-manni
sem er vel skipulagður, á gott með að leiðbeina öðrum,
getur axlað ábyrgð og unnið sjálfstætt að hinum fjöl-
breytilegustd verkefnum.
Góð enskukunnátta nauðsynleg.
Ráðið verður í starfið strax og þarf nýr starfsmaður helst
að geta hafið störf sem allra, allra fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Benjamín Axel Árnason
ráðningastjóri Ábendis. Farið verður með allar
umsóknir og fyrirspumir sem trúnaðarmál.
Vinsamlegast sækið um á eyðublöðum sem liggja
frammi á skrifstofu okkar sem fyrst.
A <S
AJ>'
A B E N D I
RÍÐCIOF &
RÁÐNINGAR
tAU
GAVECUR 178
S 1 M I : 568 90 99
F A X : 568 90 96
Atvinna óskast
Vanur vélstjóri, 1500 kw, óskar eftir afleys-
ingum í einn til tvo mánuði.
Upplýsingar í síma 566 6609.
G
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Lausar stöður
Frá og með næsta skólaári eru þessar stöð-
ur lausar til umsóknar í Fjölbrautaskólanum
í Garðabæ:
Heil staða stærðfræðikennara.
Heil staða kennara í samfélagsgreinum.
Ein og hálf staða kennara í raungreinum (eðl-
isfræði, efnafræði og jarðfræði).
Auk þess er auglýst eftir stundakennurum í
vélritun og markaðsfræði.
Umsóknarfrestur er til 22. maí 1996.
Umsóknir skal senda til Fjölbrautaskólans í
Garðabæ, Lyngási 7-9, 210 Garðabæ.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Skólameistari.
Aðstoðarskólastjóri
Grunnskólakennarar
Eftirtaidar stöður við grunnskólann í
Reykjanesbæ eru lausar til umsóknar.
Njarðvíkurskóli. Staða aðstoðarskólastjóra,
almenn kennsla, heimilisfræði og hannyrðir.
Holtaskóli. Almenn kennsla.
Myllubakkaskóli. Tónmenntakennsla, al-
menn kennsla, myndmennt og tímabundin
kennsla vegna barnsburðarleyfa.
Umsóknarfrestur er til 22. maí.
Upplýsingar um stöðurnar og viðtöku um-
sókna veita skólastjórar viðkomandi skóla.
Skólamálastjóri Reykjanesbæjar.
>=<
1
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Þjónustudeild
Vegna yfirtöku grunnskólans 1. ágúst n.k. og
aukinna verkefna því fylgjandi hefur verið stofnuð
þjónustudeild við Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar.
Starfsfólk deildarinnar mun sinna ráðgjafar- og
sálfræðiþjónustu við leikskóla og grunnskóla.
Auglýst er eftir starfsfólki í eftirtaldar stöður:
Kennslufulltrúi ein staða vegna grunnskóla
Skólasálfræðingar tvær stöður vegna leik-og
grunnskóla.
Talkennari Ein staða vegna leik- og
grunnskóla.
Ráðið verður í störfin frá og með 1. ágúst n.k.
eða eftir nánara samkomulagi.
Um kaup og kjör fer skv. samningum STH og
Hafnarfjarðarbæjar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf berist Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar,
Strandgötu 4, fyrir 3. maí n.k.
Nánari upplýsingar veita skólafulltrúi (Magnús
Baldursson) í síma 555 3444 og deildarstjóri
þjónustudeildar (Guðjón Ólafsson) í síma 565
8011.
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði.