Morgunblaðið - 05.05.1996, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 B 7
MANNLÍFSSTRAUMAR
VERALDARVAFSTURÆr
UFO-þagnarstíflan loks ad bresta?
„Cosmic- Water-
gate“ í Washington
ÞEGAR rætt er um geimverur eða UFO-fyrirbæri í fjölmiðlum hér á landi,
eftir að „ljós á himni“ hefur sést, kveður við dálítið annan tón en í banda-
rískri umræðu. Umræðustigið hér er ennþá: „Trúir þú á fljúgandi diska
eður ei?“ Á meðan nú er rætt um þingnefndarrannsókn vegna málsins í
Washington og jafnvel að málið verði hluti af kosningarbaráttunni þar
vestra í haust!
án leyfis til þess gerðra yfirvalda.
Hernaðaryfirvöld gátu ekki skýrt
hvers vegna!
Er nokkur nær um það hverjir
standa þarna að baki? Læknirinn
Jesse Marcel Jr. er sonur Jesse
Marcel, herforingjans sem varð
vitni að Roswell hrapinu. Þann 13.
Apríl 1995 sagði hann frá fundi
með Dick D’Amato árið 1991, en
hann er meðlimur í bandaríska
Þjóðaröryggisráðinu. í því viður-
kenndi D’Amato að diskhrapið átti
sér stað í Roswell og að lík fram-
andi vera voru um borð. Harin sagði
ennfremur, að nú ætti að opinbera
UFO-raunveruleikann. Mjög sterkir
„Black Arm“-aðilar (svart-armar)
innan ríkiskerfisins hefði_ haldið
þessu leyndu í nær 50 ár. I spilinu
væru einnig ótrúlegar ólöglegar
fjárupphæðir. Oryggisráðið væri að
reyna að finna út hverjir þetta séu.
Þrír þekktir menn, þeir Robert
Dean, Dr. Greer og Gordon Cooper,
Frægt er orðið að Bob Dole lét
þessi orð falla í september
1995, þegar hann gagnrýndi efna-
hagsstefnu CHntons : „Þetta er eins
og þegar flugherinn segir að UFO-
^—fyrirbærin séu
ekki til.“
Nú er nýlokið
rannsókn ríkisend-
urskoðunar
Bandaríkjaþings,
US General Acco-
unting Office, á
svokölluðu Rosw-
ell-máli. Það er hið
fræga mál, sem spannst út af hrapi
framandi flygildis í Nýju-Mexókó
árið 1947. Það var þingmaður Nýju-
Mexíkó, Steven Schiff ásamt fylkis-
stjóranum Diane Feinsteinsem, sem
fór fram á þessa rannsókn. Næg
ástæða þótti til þess að rannsaka
málið en niðurstöðurnar frá 28. júlí
1995 voru að greinilega hefði mikil-
vægum hernaðarskjölum verið eytt
eftir Einar
Þorstein
ÍSLANDSVINURINN Robert Dean.
ásamt fleiri vinna nú saman að
verkefni, sem nefnt er Stargate.
Þeir eru framarlega í flokki manna,
sem ætla sér að afhjúpa þetta mál
fyrir bandarískan almenning. Málið
snýst m.a. um það hvernig fínna
megi flöt á því að 20 aðilar megi
bera vitni fyrir þingnefndarrann-
sókn, en allir eru þeir bundnir
þagnareiði um vitneskju sína vegna
starfa að hermennsku.
Robert Dean er fyrrverandi her-
foringi. Hann kom til íslands í nóv-
ember 1993. Hann sagði hér frá
reynslu sinni, er hann starfaði hjá
SHAPE, NATO miðstöðinni við
París, á árunum 1967-1976. Leyni-
skýrslur þar sögðu m.a. að UFO-
fyrirbærin séu utanjarðargeimskip.
En undanfari þessara upplýsinga
var að í febrúar 1961 var nær skoll-
in á kjarnorkustyijöld vegna mikils
flugflota ókunnra farartækja sem
flaug frá Sovétríkjunum. Robert
Dean hefur nú safnað saman þess-
um 20 manna flokki,
sem allir hafa beina
reynslu af UFO-fyrir-
bærunum. Þetta eru
geimfarar, amerískir og
rússneskir, fyrrverandi
leyniþjónustumenn,
hermenn sem tóku þátt
í því að hreinsa upp eft-
ir UFO-diska hröp,
hershöfðingjar og flota-
foringjar. Þeir eru allir
reiðubúnir að bera vitni
fyrir þingnefndinni.
Dr. Steven Greer er
yfirmaður CSETI, en
það er nefnd, sem stend-
ur að rannsókn á utan-
jarðar vitsmunum. Hann
hefur verið í sambandi
við Dr. Gibbons, sem er vísindaráð-
gjafi Hvíta hússins, um allt það, sem
hann veit um UFO-málin. Tenglar
tveggja njósnastofnana hafa upplýst
Dr. Greer um það, að sérstakar
deildir innan herstofnana hafí verið
að nota nýja leynda tækni, á eins
konar „stjörnustríðs“ nótum, til þess
að reyna að skjóta niður UFO-fyrir-
bæri. Þeir hafa þannig skotið niður
tvo diska á tveimur árum.
Dr Greer segir einnig, að hátt-
settu fólki í stjórnun þjóðlanda,
hermála og njósnastofnana vítt og
breytt um heiminn, sé haldið utan
við allar þessar upplýsingar.
Gordon Cooper er geimfari sem
hefur nú loks rofíð þögina. í aríl-
mánuði árið 1995 sagði Cooper frá
. því að árið 1957 hafi hann sé filmu,
er sýni lendingu geimfars á flugvell-
inum Edwards Air Force Base. Eft-
ir það var filman send til Washing-
ton en eins og margar aðrar slíkar,
m.a. frá íslandi 1973, fannst hún
ekki síðan. Cooper vinnur nú með
kvikmyndagerðarmönnunum,
Jackie Dunn frá írlandi og Sam
Sherman frá Bandaríkjunum. Þeir
eru gera mjög ýtarlegar myndir um
UFO málið. í þeim segir Cooper,
að hann hafí kynnst úrvinnslu utan-
jarðartækni í einkageiranum. Enn-
fremur að hann hafi þekkt mann
persónulega, sem sá lík geimver-
anna frá Roswell-slysinu árið 1947.
í Hvíta húsinu eru menn lítið
ánægðir með upplýsingarnar frá
CIA um þessi mál, þar sem þeim
upplýsingum sem vísindaráðgjafínn
Dr. Gibbons hefur náð í, ber ekki
saman við þær. Aðili sem vinnur
hjá UFO-deild CIA hefur upplýst
að Clinton hafi nú þegar látið taka
upp á myndband nokkur mismun-
andi UFO- og geimverulendingaá-
vörp til þjóðarinnar, ef ske kynni ...
Haft er eftir öruggum heimildum
af Clinton forseti hafi nú gefið
grænt ljós á það að Dr. Gibbons
rannsaki enn frekar allt UFO-málið
fyrir Hvíta húsið.
Þann 21. október 1995 sam-
þykkti þingnefnd að halda opinbera
rannsókn á UFO-málinu, ef unnt
væri að ná saman nægjanlega
sterkum hópi vísindamanna í þessu
skyni. Robert Dean safnaði saman
þessum hópi á fjórum dögum!
Margt bendir nú til þess að hul-
unni yfir leyndinni í kringum UFO-
fyrirbærin í Bandaríkjunum verði
nú svipt af á næstu misserum. Rétt
er að minna á það að þann 25. júní
1997 verða 50 ár liðin frá því að
þessi fyrirbæri komust á blað í
menningunni. En þá er bara spurn-
ingin: Hver verður fyrstur í röðinni
til að græða á þeim framandi?
(Byggt á grein í NEXUS.)
Grand Cherokee Laredo, árg.
1993, ek. 69 þús., grænn,
gott eintak.
Verö: 2.990.000 kr.
Toyota Tercel 4x4, árg. 1988, ek.
143.000, grár.
Verð: 480.000 kr.
Toyota Landcrusier, diesel, árg.
1988, 38“ dekk, læsingar, einn
með öllu.
Verö: 2.200.000 kr.
Nissan Almera, árg. 1996, ek. 9
þús., vínrauður, 5 gíra.
Verð: 1.250.000 kr.
Chrysler New Yorker, árg.
1995, ek. 6 þús. vínrauður,
einn sá glæsilegasti.
Verð: 4.050.000 kr.
Nýbýlavegur 2 • Sími: 554 2600
Grand Cherokee Limited V8,
árg. 1995, ek. 15 þús., svartur,
leðurinnrétting.
Verð: 4.450.000 kr.
MMC Galant 4x4, árg. 1991, ek.
122.000, grænn.
Verö: 1.140.000 kr.
Skoda Favorit, árg. 1993, ek. 13
þús., hvítur, 5 dyra.
Verö: 540.000 kr.
Hagstæðir greiðsluskilmálar - Visa/Euro-raðgreiðslur - 6 mánaða ábyrgð
Chrysler Neon LX, árg. 1995, ek.
9.500, grænn, 150 hestöfl.
Verö: 1.650.000 kr.
Ford Econoline húsbíll 4x4,
læsingar, árg. 1978, vandaðar
innréttingar, bensín 302.
Verö: 1.500.000 kr.
Jeep Wrangler, árg. 1991,
ek. 55 þús.
Verö: 1.350.000 kr.