Morgunblaðið - 25.06.1996, Síða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
fHttgtmliIfifeife
Prentsmiðja Morgunblaðsins
■ 1 á'-~ í'i/V'-'‘
__
Priðjudagur 25. júnf 1996
Blað D
Lítil ásókn
í nýju lánin
LÍTIL ásókn hefur verið í nýju
húsbréfalánin til 15 eða 40 ára,
segir Grétar J. Guðmundsson í
þættinum Markaðurinn. Af nær
3.000 afgreiddum umsóknum í
ár, hafa aðeins verið veitt um
100 lán til 40 ára og 15 ára lán-
in eru mun færri. / 2 ►
Málmar
í lagnir
EKKI má kenna efninu um
vatnsskaðana hér nema að litlu
leyti, segir Sigurður Grétar
Guðmundsson í Lagnafréttum.
Orsökin er oftast röng hönnun,
rangt val á lagnaleiðum, röng
meðhöndlun efnis á lagnastað
og rangur frágangur. / 9 ►
Ú T T E
Hverfis-
gata 18
AÐ er ávallt fagnaðar-
efni, þegar gömul hús í
gamla bænum í Reykja-
vík eru gerð upp. Nú hefur
farið fram gagnger endurnýj-
un á húsinu að Hverfisgötu 18
að utan, bæði á þaki og á öllum
hliðum hússins. Um leið var út-
lit hússins fært í upprunalegt
horf eins og hægt var.
Þetta hús er mjög samofið
sögu Reykjavíkur á þessari
öld, en Pétur Bryiyólfsson ljós-
myndari og Gestur Einarsson
umboðssali létu byggja húsið
1906 og það er því 90 ára á
þessu ári. Mjög var til hússins
vandað, en það var að hluta
byggt með það fyrir augum að
reka þar Ijósmyndastofu.
Húsið var hannað og byggt
af Magnúsi Th. Blöndal húsa-
smið, sem byggði mörg glæsi-
legustu timburhúsin i Reykja-
vlk um og eftir síðustu alda-
mót.
Þeir Jóhann Ólafsson og
Björn Arnórsson keyptu húsið
1930 íyrir heildverzlunina Jó-
hann Oiafsson og Co. og hafði
fyrirtækið síðan aðsetur í hús-
inu allt fram til ársins 1974, en
húsið er enn í eigu fyrirtækis-
ins.
Síðustu áratugi hafa ýmsir
leigjendur verið í húsinu að
Hverfísgötu 18, aðallega Ijós-
myndastofur. Eins og í upphafi
þykir húsið hentugt enn f dag
fyrir ljósmyndastarfsemi og
þar er rekin umfangsmikil
starfsemi af því tagi, enda þótt
húsinu hafi verið breytt mikið
að innanverðu til móts við
kröfur nútímans. / 18 ►
Meiri hreyfing á
fasteignamarkaðnum
ÞAÐ sem af er þessu ári, hefur ver-
ið mun meiri hreyfmg á fasteigna-
markaðnum en á sama tímabili í
fyrra. Til marks um það hefur orðið
25% aukning í ár á umsóknum um
húsbréfalán vegna notaðs húsnæðis.
Nokkru minni aukning hefur orðið á
umsóknum vegna nýbygginga ein-
staklinga eða um 13%.
Að sögn Jóns Guðmundsonar, for-
manns Félags fasteignasala, hefur
íbúðasala verið lífleg að undanförnu.
Markaðurinn tók að sækja í sig veðr-
ið sl. haust og mikil hreyfíng er í fast-
eignasölunni nú, bæði hvað varðar
íbúðir og atvinnuhúsnæði.
Að sögn Jóns er í mörgum tilvik-
um skortur á ýmsum gerðum íbúða
eins og góðum sérhæðum með bíl-
skúr í vesturbæ og íbúðum á svæð-
inu sem næst Háskóla Islands.
Margir námsmenn utan af landi
kjósa heldur að kaupa en leigja og
gera það þá gjarnan með aðstoð for-
eldra. Þá er einnig tilfinnanleg vönt-
un á íbúðum á miðbæjarsvæðinu en
síður í úthverfum.
Ekki er samt um sýnilega verð-
hækkun á íbúðum almennt að ræða
þrátt fyrir aukna eftirspurn, en haldi
markaðurinn áfram með þeim krafti,
sem einkennt hefur hann að undan-
förnu, má gera ráð fyrir, að verðið
fari hækkandi, ef eitthvað er.
Verð á stórum húsum hefur ekki
heldur hækkað ennþá. Talvert af þeim
hefur þó selzt að undanfómu og
ástæðan er ekki hvað sízt fyrirgreiðsla
verðbréfaíyrirtækjanna, sem hófu að
lána svokölluð fasteignalán til 25 ára
út á íbúðarhúsnæði í fyrra.
Meiri hreyfing hefur líka verið á
atvinnuhúsnæði en áður að sögn
Jóns Guðmundssonar og áberandi
vöntun er á einstökum gerðum svo
sem litlum verzlunarplássum við
Laugaveg og hentugum og vel inn-
réttuðum skrifstofuhæðum, ýmist af
minni gerð eða þá mjög stórum.
Eins er tilfinnanleg vöntun á at-
vinnuhúsnæði með góðri aðkomu og
innkeyrslu. Telja má allt eins líklegt,
að verð á atvinnuhúsnæði fari hækk-
andi á næstunni.
Afgreiðslur í húsbréfakerfinu í jan.- maí 1996 n | breyting frá sama tímabili 1995 / j ; / 5000 Breyting jan.-maí
Innkomnar umsóknir J 1996/1995
Notað húsnæði 24,6%
Endurbætur -27,8%
Nýbyggingar einstaklinga 13,3%
Nýbyggingar byggingaraðila 26,2%
Samþykkt skuldabréfaskipti
Notað húsnæði - fjöldi 34,1%
Notað húsnæði - upphæðir 27,5%
Endurbætur - fjöldi -5,2%
Endurbætur - upphæðir -24,3%
Nýbyggingar einstaklinga - fjöldi 18,8%
Nýbyggingar einstaklinga - upphæðir 8,8%
Nýbyggingar byggingaraðila - fjöldi -5,3%
Nýbyggingar byggingaraðila - upphæðir -16,7%
Samþykkt skuldabréfaskipti alls - upphæð 22,6%
Útgefin húsbréf
Reiknað verð 21,2%
FASTEIGN ALAN SKAN
nýtt símanúmer
540 50 60
i fáiö nártarí upplysingar ,
Skandia býöur þér sveigjanleg lánskjör ef þú þarft aó skuldbreyta eöa stœkka við þig
Fyrir hverja eru Fasteignalán Þá sem eiga lítið veðsettar,
Skandia? auðseljanlegar eignir, en vilja lán
fásteignalán Skandia eru fyrir alla á stór-Reykjavíkursvæðinu sem eru að til annarra fjárfestinga.
kaupa sér fasteign og: Kostir Fasteignulána Skandia
Vilja kaupa stórar eignir en fá ekki Lánstími allt að 25 ár.
nægilega hátt lán í húsbréfakerfinu. Hagstæð vaxtakjör.
Þá sem vilja breyta óhagstæðum eldri Minni greiðslubyrði.
eða styttri lánum. Stuttur svartími á umsókn.
Skandia
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA MF
LAUGAVEGl 1 70
Dœmi um mánadarlegar
afborganir af1.000.000 kr.
Fasteignaláni Skandia*
\í‘\tir(%) 10 ár 15 ár 25 ár
7,0 11.610 8.990 7.070
7,5 11.900 9.270 7.500
8,0 12.100 9.560 7.700
Miðað er við jafngreiðslulán.
*Auk vcröbóta
3ÍN/1I 540 50 BO • FA.X 540 50