Morgunblaðið - 30.07.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.07.1996, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Norskir fjölmiðlar fylgdust með brúðkaupi íslenskrar konu og norsks prins „Þjóðlegt og róm- antískt brúðkaup“ Ósló. Morgunblaðið. ISLENSK kona, Margrét Guð- mundsdóttir, giftist á laugardag inn í norsku konungsfjölskyld- una. Brúðguminn, Alexander Fernerm, er barnabarn Ólafs V. heitins Noregskonungs, og systursonur Haralds konungs. Brúðkaupið fór fram í hinni nýuppbyggðu Holmenkollen- kapellu í Osló og var hennar getið í öllum stærstu fjölmiðlum Noregs; bæði ljósvakamiðlum og blöðum. Brúðhjónin eru bæði 31 árs og eiga fjögurra mánaða son sem hlotið hefur nafnið Edvard. Brúðurin var í íslenskum upp- hlut en brúðguminn í þjóðbún- ingi frá Halling en þess má geta að brúðhjónin kynntust á skíðaferðalagi þar. ÖIl norska konungsfjölskyldan var við- stödd brúðkaupið, svo og fjöldi fyrirfólks. Fyrir utan kirkjuna var hópur fréttamanna og for- vitinna Norðmanna. í sunnudagsútgáfu Verdens Gang var tveggja síðna umfjöll- un um „þjóðlegt og rómantískt brúðkaup“ og greinilegt er að blaðamaðurinn er yfir sig hrif- inn af því að brúðhjónin og margir gestanna skyldu klæðast þjóðbúningum. Sérstaklega er tekið fram að konungurinn láti hins vegar aldrei sjá sig í slíkum klæðnaði. Sonja drottning, Há- kon krónprins og Marta prins- essa voru í þjóðbúningi en kon- ungur í smóking. Þrátt fyrir að svo margir meðlimir konungsfjölskyldunn- ar hafi verið viðstaddir brúð- kaupið, taka norsku blöðin sér- staklega fram að ekki hafi ver- ið um konunglegt brúðkaup að ræða. „Engu að síður var gift- ing Alexanders Ferner og Mar- grétar Guðmundsdóttur í Holm- enkollen-kapellu í gær hátiðleg- ur viðburður,“ segir í Aften- posten og því er bætt við að gestalistinn hafi verið jafnlítið hverdagslegur og hið óvenju- lega fallega sumarveður sem verið hafi á Iaugardag. Víst er að brúðkaupið var sérstök stund fyrir móður Scanfoto MARGRET Guðmundsdóttir og Alexander Ferner ganga út úr Holmenkollen-kapellunni. brúðgumans. Undanfarin ár hefur hún farið fyrir átaki til að safna fé til endurbyggingar kapellunnar, en hún skemmdist mikið í eldi sem djöfladýrkend- ur kveiktu árið 1992. Hafa 90 miiyónir ísl. kr. safnast til end- urbyggingarinnar. Landsmóti skáta á Úlfljótsvatni lokið morgunDiaoio/bigurour Jónsson MARGT gimilegra rétta var á boðstólum á heimabyggðarkynn- ingunum á laugardaginn, en þá gafst gestum m.a. kostur á að bragða á úrvali af matvælaframleiðslu hvers byggðarlags. Næsta landsmót haldið í Skorra- dal eftir þrjú ár LANDSMÓTI skáta lauk á Úlf- ljótsvatni um helgina. Mótinu var slitið á laugardagskvöld og héldu skátar til síns heima á sunnudag að lokinni sameiginlegri helgi- stund. Víking Eiríksson mótsstjóri sagðist vera mjög ánægður með mótið í heild. Þó að það hefði óneit- anlega verið erfíðara að ganga frá og taka upp tjöldin í rigningu á sunnudagsmorguninn, hefði allt gengið vel, enda skátar við öllu búnir. 300 fjölskyldur álaugardag Heimabyggðarkynningar og björgunarsýning fóru fram í blíð- skaparveðri á laugardaginn og fjölgaði þá að mikium mun í fjöl- skyldubúðunum, eða um einar 300 fjölskyldur, að sögn Víkings. End- anlegar tölur yfir heildarfjölda gesta liggja enn ekki fyrir, en Víking sagðist reikna með að höfðatalan hefði farið eitthvað á fjórða þúsundið á laugardeginum. Keppni í Fjallamaraþoni Lands- bjargar lauk á laugardag, en í henni tóku þátt sex tveggja manna lið. Tvö lið luku keppni Aðeins tvö lið luku keppni, en þau voru 13 og 14 klukkutíma að fara 42 kílómetra leið í nágrenni Úlfljótsvatns - með 20 kíló af búnaði á bakinu. í leiðinni áttu liðin að leysa úr hinum ýmsu þrautum, eins og til dæmis að síga niður kletta, binda um sár og róa út á Þingvallavatn og ná þar í bauju sem á stóð hvert ætti að fara næst. Bjöm Hermannsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar, sagði maraþonið hafa gengið mjög vel og yrði það framvegis fastur liður á landsmótum skáta. Næsta landsmót verður haldið í Skorradal að þremur árum liðn- um. Andlát HAUKURHELGASON HAUKUR Helgason, ritstjóri tímaritsins Ur- vals, lést sl. laugardag, 59 ára að aldri. Haukur fæddist á Akureyri 1. desember 1936, sonur hjónanna Katrínar Magneu Guð- mundsdóttur húsmóður og séra Helga Sveins- sonar. Haukur lauk stúd- entsprófi frá MR árið 1955 og prófí í hagfræði frá Háskóla íslands árið 1960. Hann stundaði framhaldsnám í hagfræði við Hamborgarháskóla frá 1960 til 1962, og lauk MA-gráðu í sömu grein frá University of Chieago árið 1967. Haukur starfaði í hagfræðideild Seðla- banka íslands árin 1965 til 1967. Hann var blaðamaður á Vísi 1968 til 1974, og rit- stjórnarfulltrúi árin 1974 til 1975. Haukur var aðstoðarritstjóri Dagblaðsins og síðar Dagblaðsins Vísis frá árinu 1975, og gegndi því starfi þar til hann varð ritstjóri tímaritsins Úrvals. Eftirlifandi eiginkona Hauks er Nancy Arnold Helgason. Heiðurstónleikar Listamenn ekkií forsvari SJÖ íslenskir tónlistarmenn, sem nafngreindir voru í fréttatilkynn- ingu um hátíðartónleika á fimmtu- dagskvöld til heiðurs væntanlegum forsetahjónum, hafa sent frá sér fréttatilkynningu þess efnis að þeir standi ekki fyrir tónleikunum. Tónlistarmennirnir sem senda frá sér fréttatilkynninguna eru Anna Guðný Guðmundsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir, Jónas Ingimund- arson, Kristinn Sigmundsson, Sig- rún Hjálmtýsdóttir, Steinunn Birna Ragnarsdóttir og Þorsteinn Gauti Sigurðsson. Segja þau, að af frétt, sem birst hafi í Morgunblaðinu sl. laugardag mætti ætla að tónlistar- mennirnir sem fram koma á tónieik- unum hafi efnt til þeirra undir for- ustu Guðmundar Emilssonar. Reyndin sé hins vegar sú að Guð- mundur og Einar Karl Haraldsson hafi komið að máli við listafólkið og farið þess á leit að það kæmi fram á tónleikunum og gæfi vinnu sína. Tónlistarfólkið segir að því, að Kristni Sigmundssyni undanskild- um, hafi verið ókunnugt um að fyr- irhugað væri að selja aðgang að tónleikunum. Þá hafi ekki verið samið sérstaklega við listamennina vegna áætlaðra sjónvarpsútsend- inga, eins og samningar gera ráð fyrir. Tónlistarfólkið segir þátttöku sína útiiokaða án slíkra samninga. Að lokum óska tónlistarmennirnir væntanlegum forsetahjónum vel- farnaðar í starfi og þeim sé ánægja af að heiðra nýkjörinn forseta við þetta tækifæri. Hagnaður til tónlistarhúss Guðmundur Emilsson segir að málið skýrist af ónákvæmni í frétta- tilkynningunni eins og hún birtist í Morgunblaðinu á laugardag og af þeim flýti sem verið hefur á undir- búningi tónleikanna. „Fréttatil- kynninguna sendi ég út nánast strax eftir að ég hafði náð tali af síðasta listamanninum og í þeim viðtölum gafst enginn tími til að fara ná- kvæmlega út í fyrirkomulagið. Ætl- unin var og er að ganga í þau mál á þriðjudag. Að senda fréttatilkynn- inguna út seinna en á föstudag hefði einfaldlega verið of seint.“ Guðmundur vill einnig taka fram, að í fréttatilkynningunni eins og hún barst frá honum hafi staðið að tón- leikar væru í undirbúningi, ekki að þeir yrðu haldnir, því ekki væri full- Ijóst hvort af yrði. Varðandi hugsan- legan hagnað af tónleikunum segir Guðmundur, að hann hafí frá upp- hafi ætlast til þess að peningarnir rynnu til byggingar tónlistarhúss og það kæmi fram í samningunum, sem lagðir yrðu fyrir listamennina í dag, þriðjudag. „Af samtölum við listamennina og af fréttatilkynningu þeirra sýnist mér ljóst að þeir hygg- ist eftir sem áður taka þátt í þessu verkefni." Torfært milli Patreksfjarð- ar og Flóka- lundar LÖGREGLAN á Patreksfirði er óhress með veginn milli Pat- reksfjarðar og Flókalundar, sem hún segir ófæran smábíl- um. Jónas Þór lögreglumaður segir það sitt mat að vegurinn sé ófær smábílum, á honum sé hola við holu. Fyrir utan stutta slitlagsbúta sé skásti kaflinn á leiðinni sá sem sérstaklega sé merktur sem grófur og vondur vegna þess að á hann eigi að leggja bundið slitlag. t \ I I > I I I | I I í í 1 I I I I I I I { I \ s

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.