Morgunblaðið - 30.07.1996, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ_____________________________________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996 9
FRÉTTIR
ÚTSALA - ÚTSALA
Blússur í miklu úrvali
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561-5077
29 flóttamenn frá fyrrum Júgóslavíu komnir til ísafjarðar
ÁKVEÐIÐ var að yngsti flóttamaðurinn, Jelena sem er 10 mán-
aða gömul, yrði fyrst til að stíga á ísfirska grund. Hér heilsar
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri henni og móður hennar, Dariju
Kospenda. Á myndinni eru einnig þau Þorsteinn Jóhannesson
forseti bæjarstjórnar og Sigríður Hrönn Elíasdóttir frá Svæðis-
skrifstofu Rauða krossins á ísafirði.
FORMLEG móttökuathöfn fór fram í skíðaskálanum á Seija-
landsdal á sunnudag. Hér færir Ruth Tryggvason fólkinu góð-
gæti á diski.
FULLTRÚAR þeirra sem gengu frá íbúðum flóttafólksins tóku á
móti þeim við komuna til Pollgötu. Hér býður Bárður Grímsson
Hrkalovic-fjölskylduna velkomna.
ÚTSALA ÚTSALA
Dragtir - buxnadragtir
frá kr. 12.900
Stærðir 36 - 48
Uáumv«
v/Nesveg, Seltjarnarnesi.
Simi 561 1680.
Draumurinn orðinn
að veruleika
Nýtt útbob
spariskírteina
ísafiröi. Morgunblaðið.
TUTTUGU og níu af þeim 32
flóttamönnum sem til stóð að
kæmu til landsins á laugardag,
komu til sinnar nýju heimabyggð-
ar á ísafirði aðfaranótt sunnu-
dags, eftir langa og stranga ferð
frá Belgrad í fyrrum Júgóslavíu.
Þriggja manna fjölskylda sem
einnig hafði verið gert ráð fyrir
að kæmi til landsins, mætti ekki
á flugvöllinn í Belgrad við brottför
og er ekki vitað um ástæður þess
að svo fór. Að sögn Jóns Tynes,
félagsmálastjóra Isafjarðarbæjar,
sem fór til móts við flóttafólkið í
Frankfurt í Þýskalandi, var það
ánægt en þreytt við komuna til
ísafjarðar, enda langt ferðalag að
baki;
„Ég tók á móti fólkinu í Frank-
furt á laugardagsmorgun. Þar bið-
um við í níu klukkustundir og fór-
um síðan í tæplega klukkustundar
flug til Berlínar. Eftir álíka langa
dvol þar var haldið áleiðis til Kefla-
víkur þar sem lent var eftir þriggja
og hálfs tíma flug. Þar tók Páll
Pétursson, félagsmálaráðherra á
móti fólkinu og bauð það velkomið
til landsins. Færði hann fólkinu
blómvendi frá ríkisstjórn íslands
en auk hans voru viðstaddir stutta
athöfn í Leifsstöð, fulltrúar frá
Rauða krossi íslands. Eftir um 40
mínútna dvöl í Leifsstöð
var haidið áfram með flug-
vél íslandsflugs til ísa-
fjarðar og þar lentum við
rétt fyrir kl, 2 aðfaranótt
sunnudags,“ sagði Jón
Tynes.
Ný heimkynni
Á ísafjarðarflugvelli
tóku fulltrúar ísafjarðar-
bæjar á móti fólkinu og
eftir stutta móttöku var
fólkinu ekið til sinna nýju
heimkynna.
„Fólkið var hrært við
komuna í sínar nýju íbúð-
ir. Það gerði sér varla
grein fyrir að draumurinn
var orðinn að veruleika.
Þar voru fulltrúar þeirra
sem sáu um að ganga frá
íbúðunum og færðu þeir
fólkinu blómvendi og
sýndu þeim sín nýju heim-
kynni. Eftir stutta stund
gekk fóikið til hvílu enda
mjög þreytt eftir erfiða
ferð. Á sunnudag var síð-
an móttökuathöfn í skíða-
skálanum á Seljalandsdal
og á mánudag fór fram
sameiginlegur málsverður
og síðan var farið með
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
YNGSTA flóttafólkið var mjög þreytt
eftir langt og strangt ferðalag frá
Belgrad. Hér hvílast tvö þeirra hjá
móður sinni í flugvélinni sem flutti þau
frá Keflavík til ísafjarðar.
fólkið í verslanir og því kynnt verð-
lag og hvað væri á boðstólum. Þá
fer fram lögbundin læknisskoðun
og þar með lýkur hinni reglulegu
kynningu,“ sagði Jón.
mibvikudaginn 31. júlí 1996
Verötryggð
spariskírteini ríkissjóbs
1. fl. D 1995,
Verðtryggð
spariskírteini ríkissjóös
Árgreibsluskírteini 1. fl. B 1995,
Utgáfudagur:
Lánstími:
Gjalddagi:
Grunnvísitala:
Nafnvextir:
Einingar bréfa:
Skráning:
20 ár.
29. september 1995
20 ár
1. október 2015
173,5
0,00%
100.000, 1.000.000,
10.000.000 kr.
Skráö á Veröbréfa-
þingi íslands
10 ár.
1. febrúar 1995
10 ár
10. apríl 2005
3396
4,50% fastir
5.000, 10.000, 50.000,
100.000, 1.000.000,
10.000.000 kr.
Skráð á Veröbréfa-
þingi íslands
10 ár.
Útgáfudagur: 27. október 1995
Lánstími: 10 ár
Gjalddagar: 2. maí ár hvert, í fyrsta
sinn 2. maí 1997
Grunnvísitala 174,1
Nafnvextir: 0,00%
Einingar bréfa: 500.000, 1.000.000,
10.000.000 kr.
Skráning: Skráö á Veröbréfa-
þingi íslands
Sölufyrirkomulag:
Spariskírteinin veröa seld með tilboös-
fyrirkomulagi. Öllum er heimilt aö
bjóöa í þau aö því tilskyldu aö lágmarks-
fjárhæö tilboösins sé ekki lægri en
10 milljónir króna aö nafnverði.
Öörum aðilum en bönkum, spari-
sjóöum, veröbréfafyrirtækjum,
verðbréfasjóðum, lífeyrissjóðum og
tryggingafélögum er heimilt í eigin
nafni, aö gera tilboð í meöalverö
samþykktra tilboöa, aö lágmarki
100.000 krónur.
Öll tilboð í spariskírteini þurfa aö
hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir
kl. 14:00 á morgun, miövikudaginn
31. júlí.
Tilboösgögn og allar nánari upplýsingar
eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins,
Hverfisgötu 6, í síma 562 4070.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæb, 150 Reykjavík, sími 562 4070.