Morgunblaðið - 30.07.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996 21
LISTIR
Kozana
Lucca
leiðbeinir
á Islandi
ARGENTÍNSKA listakonan Kozana
Lucca verður leiðbeinandi á tveimur
námskeiðum hér á landi í næsta mán-
uði, auk þess sem hún mun efna til
málverkasýningar.
Fyrra námskeiðið hefur yfirskrift-
ina „raddvinna" og
er fyrir söngvara
og leikara — at-
vinnumenn, byij-
endur og allt þar á
miili. Markmiðið
mun vera að hjálpa
hveijum þátttak-
anda til að finna
sína raunverulegu
rödd og upplifa
hana, eins og það
er orðað í kynn-
ingu. Hámarks-
fjöldi nemenda er tólf og verður nám-
skeiðið haldið að kvöldi til í samkomu-
sal Flensborgarskóla í Hafnarfirði
dagana 12.-16. ágúst og lýkur með
„masterklasse" í Hafnarborg laugar-
daginn 17. ágúst kl. 18-20 í tengslum
við opnun málverkasýningar Lucca,
Skins Forest, í Listhúsi 39. Mun hún
standa til 1. september.
Síðara námskeiðið kallast „rödd og
litur“ og er ætlað söngelskum mynd-
listarmönnum, myndelskum söngvur-
um, „þerapistum" og öðrum sem hafa
áhuga á söng og málun. A námskeið-
inu sem haldið verður að degi til vik-
una 19.-23. ágúst í samkomusal
Flensborgarskóla „leyfum við hreyfi-
þörfínni að kvikna og þróast í „lífs-
dansi tilfínninganna" og í hita leiksins
teiknum við og málum, að því er segir
í kynningu. Fjöldi nemenda miðast
sem fyrr við tólf.
Kozana Lucca fæddist í Cordoba í
Argentínu árið 1940. Hún nam við
ýmsa háskóla í heimalandi sínu,
Kanada, Bandaríkjunum, Evrópu og
á Norðurlöndunum. Hefur henni verið
lýst sem fjölhæfri og alþjóðlegri lista-
konu sem geri sér far um að ieita
nýrra leiða þar sem sköpun, skáld-
skapur og tilfmningatengsl tvinnast
saman.
Lucca er einn af stofnendum Roy
Hart-leikhópsins og viðhorf hans til
raddarinnar er sá grunnur sem hún
byggist á. Nú starfar hún sem leik-
kona og leikstjóri við ýmis tilraunale-
ikhús og heldur auk þess námskeið
víða um heim.
Skráningu á námskeiðin hefur
Kristján Helgason söngkennaranemi,
Hverfisgötu 52, Hafnarfirði, með
höndum en hann veitir jafnframt allar
nánari upplýsingar.
GRIMS-ÆVINTYR
HIN NÝJU
MYNPUST
Gallcrí Sævars
Karls/Gallerí
Laugavcgur 20 B
TEIKNINGAR
OG MÁLVERK
Hallgrímur Helgason/Bjöm Bimir.
Gallerí Sævars Karls: Opið kl.
10-18 virka daga og á laugardög-
um kl. 10-14 til 7. ágúst; aðgangur
ókeypis. Gallerí Laugavegur 20B:
Opið virka daga kl. 12-18 og kl.
14-18 um helgar fram eftir sumri;
aðgangur ókeypis.
ÞÆR TVÆR sýningar sem
hér er fjallað um eiga lítið sam-
eiginlegt annað en nálægðina og
stærð sýningarrýmis; báðar eru
í litlum sölum við aðalumferða-
ræð borgarinnar. Ólík efnitök við-
komandi listamanna eru hins
vegar ágæt vísbending um þá
fjölbreytni, sem þrifst i myndlist
samtímans.
Hallgrímur
Helgason
Vegferð Hallgríms Helgasonar
í listageiranum hófst í myndlist-
inni, og hann hefur haldið
tryggð við hana með sínum
hætti, þó almennur áhugi á
menningarmálum hafi leitt
hann á víðari svið. Þannig
hefur hann getið sér gott
orð sem rithöfundur, út-
varpsmaður, teiknari,
pistlahöfundur og jafnvel
sjálfstæður skemmtikraftur.
Kjarninn í viðfangsefnum
hans hefur þó oftast lotið
að viðhorfum fólks til
listar og menningar, og þá
gjarna með kaldhæðnislegum
efnistökum.
Sýning hans nú er mörkuð
þessum sömu einkennum. Á sýn-
ingu í Nýlistasafninum fyrir fjór-
um árum sýndi Hallgrímur skop-
leg portrett af sérkennilegu fólki,
og nú hefur hann haldið alveg
yfír í karikatúrinn. Hér birtist
áhorfendum annað sjálf lista-
mannsins, fígúran „Grim“, sem
hefur skoðanir á flestu sem lýtur
að furðum listheimsins, sem og
ýmsum öðrum flötum tilverunnar.
Grim er kynntur til sögunnar
með vörumerki, bol og sumar-
og vetrarmynd, þar sem fatnað-
urinn ber merki árstíðarinnar.
Uppistaða sýningarinnar felst
hins vegar í sögum af Grim, þar
sem myndefni og textar lýsa
þverstæðukenndum viðhorfum
hans (og listamannsins) til ólík-
legustu hluta: sjálfsmyndagerð-
ar, uppfræðslu listnema, akad-
emisma í listum og almennrar
vinnu, svo eitthvað sé nefnt. Skil-
greiningum sjúkdóma, ástar og
innblásturs er einnig velt upp,
listastefnur skoðaðar og loks
kemur innra öryggisleysi lista-
manna vel fram í myndum eins
og „Vertu þú sjálfur“ og „Opn-
un“. Myndir undir yfirskriftinni
„Ég elska list“ gera loks út um
allar fræðilegar skilgreiningar á
fyrirbærinu.
Teiknistíll Hallgríms er hreinn
og beinn, og framsetningin lýtur
hveiju sinni þeim boðskap, sem
hann er að fást við. Því kunna
teikningarnar að virka stuðandi
Þær hugmyndir sem listamað-
urinn setur loks fram um plaköt
fyrir sýninguna koma skemmti-
lega heim við staðinn; Grim og
tískufatnaðurinn fara vel saman,
svo ekki sé meira sagt.
Hér verður ekki kunderað frek-
ar um sýninguna, svo notað sé
orðfæri listamannsins, en áhuga-
fólki um beitta umræðu um listina
bent á að líta á hin nýju Grims-
ævintýri hjá Sævari Karli á næstu
dögum.
Björn
Birnir
GRIM - annað sjálf Hallgríms
Helgasonar.
á stundum (t.d. ,,Stand“), en slíkt
minnir raunar aðeins á, hversu
fáránlega langt fræðilegar um-
ræður á þessu sviði teygja sig
þegar verst lætur.
Hið litla gallerí að Laugavegi
20 B (gengið inn frá Klappastíg)
fer hægt af stað, en hér er á
ferðinni önnur sýningin á staðn-
um, og mun ætlað að standa
nokkuð fram eftir sumri.
Björn sýnir bæði málverk unn-
in með akrýl á striga og nokkrar
skissur, túss á pappír. Þessi litla
sýning er hvorki mikil um sig né
er henni fylgt eftir með skrá eða
öðrum upplýsingum. Það sem
einkum er athyglivert er að nú
kemur í ljós að rýmið ber með
ágætum stærri málverk, þar sem
dagsbirta nýtur sín.
Því eru það einkum málverkin,
sem áhorfandinn staldrar við.
Listamaðurinn hefur löngum
verið að fást við tilbrigði daufra
lita í óhlutbundnum myndum
sínum, og svo er einnig að
þessu sinni; þó er eins og nú
sé meiri gróandi í heildar-
svipnum, þar sem hann er í
ýmsum myndanna að fást við
græna liti. Er það í fullu sam-
ræmi við að hann nefnir mál-
verkin einu nafni „Jörðin“, og á
þessum árstíma er það skiljanlega
gróskan, sem heillar mest; má
einkum benda á nr. 2 í þessu
sambandi.
Það hvílir ró yfir þeim mynd-
heimi, sem Björn ber hér fyrir
áhorfandann, og minnir helst á
þá mildi, sem er að finna í stillum
íslenska sumarsins.
Eiríkur Þorláksson
BILATORG FUNAHOFOA 1 S: 587-T777
Draumavél
heimilanna!
5 gerðir
Margir litir
Fæst um land allt.
50 ára frábær reynsla.
Einar
Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 * 562 2901 og 562 2900
(# LOWARA
JARÐVATNS
DÆLUR
Gæðavara,
mikið úrval,
. hagstætt verð,
örugg þjónusta.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
Toyota 4Runner
árg. ‘90, vínrauður, álfelgur,
topplúga, dráttarkúla, ek. aðeins
58 þús. km. Verð 1.850.000.
Skipti á minni bíl.
Isuzu Double Cab
árg. ‘92, silfurgrár, upphækkaður,
32 dekk, álfelgur, spil, stuðara,
grind, brettakantar, ek. 97 þús.
km. Verð 1.370.000.
Skipti á ódýrari.
Cherokee Laredo
árg. ‘88, hvítur, álfelgur, rafm. í
rúðum, ek. 120 þús. km.
Verð 1.350.000.
Skipti.
MMC Lancer GLXi Super
árg. ‘93, blásans., sóllúga,
spoiler, álfelgur, ek. 58 þús. km.
Verð 1.200.000.
Daihatsu Charade TX
árg. ‘91, hvítur, 5 gíra,
ek. 59 þús. km.
Verð 540.000
VWGolf
árg. ‘95, svartur, 5 dyra, ek. 11
þús. km. Verð 1.200.000.
Skipti.
Mazda 323 4x4 Dohc Turbo
árg. ‘91, svartur, álfelgur, topplúga,
ek. 96 þús. km., aukadekk á
álfelgum fylgja. Verð 1.390.000.
Skipti.
Lincoln Continental
árg. ‘90, silfurgrár, digital
mælaborð, einn með öllu, ek. 87
þús. km. Verð 1.900.000. Skipti.
Mercedes Benz 190E
árg. ‘91, steingrár, álfelgur,
topplúga, rafm. í rúðum, ek. 75
þús. km. Verð 2.150.000.
Skipti á jeppa.
MMC Pajero V6 stuttur
árg. '90, rauður, álfelgur, 31" dekk,
ek. 97 þús. km.
Verð 1.350.000.
Skipti á dýrari.
Willy’s Wrangler Laredo
árg. ‘87, brúnsans., sjálfsk.,
álfelgur, 32” dekk, ek. 107 þús.
km„ aukadekk á orginal felgum
fylgja. Verð 890.000.
Peugeot 405 GLX diesel
árg. ‘95, silfur, rafm. í rúðum,
ek. 20 þús. km.
Verð 1.400.000.
Skipti.
EFTIR EINM El AKI NEINM SU