Morgunblaðið - 30.07.1996, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDS
llmsjón Guðmundur Páll
Arnarson
)
ÞÆR stöður koma oft upp
í sögnum að annar spilar-
inn getur leyft sér að segja
á lítil spil án þess að eiga
það á liættu að makker
haldi áfram. Oftast eru
sagnir þá að deyja út í bút
mótheijanna. Dæmi: 1
spaði - Pass - Pass? í
þessari stöðu er leyfilegt
að beijast á lítil spil. Þetta
er stundum kallað að „ball-
ansera", sem er auðvitað
ekki glæsileg íslenska, en
gott íslenskt heiti hefur
ekki náð fótfestu enn sem
komið er. „Verndardobl"
er til og „verndarstaða",
en hugsunin er ekki alveg
sú sama. Kannski ,jöfnun“
geti gengið.
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ D63
V ÁK73
♦ DG5
♦ 853
Suður
♦ G
V DG9642
♦ Á63
♦ K72
Vestur Norður Austur Suður
1 spaði Pass 2 spaðar 3 hjðrtu
Pass Pass Pass
Þetta spil er dæmi um
óvenjulega „sagnajöfnun",
sem sagnaspekingar hafa
mikið skrifað um á síðustu
árum. Suður er ekki í dæ-
migerðri jöfnunarstöðu, því
makker hans á enn síðasta
orðið ef tveir spaðar koma
til hans. Þess vegna ætti
suður að eiga betri spil,
strangt tekið. En þessi stíll
er að ryðja sér til rúms;
að koma grimmt inn á
langliti og veik spil, frekar
en leggja það á makker að
jafna (vernda) með óheppi-
lega skiptingu. Sú er skýr-
ingin á því að norður hækk-
ar ekki í fjögur hjörtu. En
nóg um sagnir. Nú er að
vinna þijú hjörtu. Vestur
leggur af stað með spaðaás
og skiptir síðan yfir í tígul-
tíu. Taktu við.
Austur á greinilega
tígulkóng, sem þýðir að
laufásinn er örugglega í
vestur. Því er hætta á að
gefa þrjá slagi á lauf. Sem
er'of mikið. Einn möguleiki
er að trompa spaða tvisvar
og senda vörnina svo inn á
þriðja tígulinn. Ef vestur
lendir inni, þarf hann að
spila frá laufás eða út í
tvöfalda eyðu.
Norður
♦ D63
V ÁK73
♦ DG5
♦ 853
Vestur
♦ ÁK952
V 10
♦ 10972
♦ Á94
Austur
♦ 10874
V 85
♦ K84
♦ DG106
Suður
♦ G
V DG9642
♦ Á63
♦ K72
Þessi áætlun gengur
ekki upp, því austur kemst
inn á tíguláttu til að spila
laufi í gegnum kónginn.
Vinningsleiðin felst í því
að gefa slaginn á tígultíu!
Síðan er tígullinn hreinsað-
ur með svíningu og einn
spaði trompaður. Loks er
spaðadrottningu spilað og
laufi hent heima. Vestur
neyðist þá til að gefa
níunda slaginn.
IDAG
Árnað heilla
p'Í^ARA afmæli. I dag,
OV/þriðjudaginn 30. júlí,
er fimmtugur Jón N.
Grettisson. Hann tekur á
móti gestum á heimili sínu
Arnartanga 38, Mos-
fellsbæ, föstudaginn 2.
ágúst nk. kl. 18-21.
Ljósmyndari Bonni
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 22. júní sl. í Háteigs-
kirlqu af sr. Vigfúsi Þór Vig-
fússyni María Steingríms-
dóttir og Kjartan Sigurðs-
son. Heimili þeirra er í
Rekagranda 4, Reykjavík.
Barna og fjölskylduljósmyndir
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 20. júlí sl. í Selfoss-
kirkju af séra Þóri Jökli
Þorsteinssyni Hróðný
Hanna Hauksdóttir og
Hróbjartur Örn Eyjólfs-
son. Heimili þeirra er í Hrís-
holti 8, Selfossi.
Barna og Qölskylduljósmyndir
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 20. júlí sl. í Kársnes-
kirkju af sr. Ægi Frímanni
Sigurgeirssyni Elísabet
Anna Hjartardóttir og
Björn Páll Angantýsson.
Heimili þeirra er í Engi-
hjalla 7, Kópavogi.
Hlutavelta
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ1996 43
Verð áður:
ÞESSAR duglegu stelpur héldu hlutaveltu nýlega til
styrktar hjálparsjóði Rauða kross íslands og varð ágóð-
inn 2082 krónur. Þær heita Svanhildur Kamilla Sigurð-
ardóttir, Heiðdís Skarphéðinsdóttir og
Vigdís Lea Birgisdóttir.
ÞESSAR duglegu stelpur héldu hlutaveltu nýlega og
söfnuðu fé til styrktar Barnaspítala Hringsins. Ágóðinn
varð 560 krónur. Þær heita Anna Sigrún Ingimars-
dóttir og Pollý Hilmarsdóttir.
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu hlutaveltu nýlega til
styrktar átakinu „Börnin heim“ og varð ágóðinn 1.250
krónur. Þær heita Júlía Aradóttir 8 ára, Anna Franc-
esca Bianchi 9 ára og Birta Aradóttir 6 ára.
Afmælisbarn dagsins:
Þér líður vel þegar nóg
eraðgera, og hæfileikar
þínir nýtast vel.
Hrútur 21. mars - 19. apríl) Þú hefur ástæðu til að gleðj- ast yfir góðu gengi í vinn- unni í dag. Gættu þess að láta engan misnota sér vin- áttu og örlæti.
Naut (20. apríl - 20. ma!) (ffö Ástvinir vinna vel saman í dag, og þeim berast ánægju- legar fréttir. Þegar kvöldar þarft þú að sinna fjármálum heimilisins.
Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þú hefur tilhneigingu til að vanmeta eigin getu, sem er algjör óþarfi. Hugmynd sem þú færð í vinnunni, hlýtur góðar viðtökur.
Krabbi (21. júní — 22. júlf) HfS Góð frammistaða færir þér aukin fríðindi í vinnunni, og horfur í peningamálum fara batnandi. Ástvinir eiga ánægjulegt kvöld.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) ‘ffC Á næstunni tekst þér að styrkja mjög stöðu þína f vinnunni, og ferðalag gæti verið í vændum. Vinafundur bíður þín í kvöld.
Meyja (23. ágúst - 22. september) Félagar starfa vel saman í dag, en í kvöld er tími ást- vina, sem fara út saman. Ástin verður í öndvegi á komandi vikum.
Vog (23. sept. - 22. október) Vanhugsuð orð þín hafa ef tii vill sært einhvem nákom- inn, og þú þarft að bæta þar úr með umhyggjusemi og nærgætni þegar kvöldar.
Sþoródreki (23. okt. - 21. nóvember) Starfsfélagi er óvenju hör- undsár í dag, og þú þarft að umgangast hann með varfærni. Fundur með ráða- mönnum skilar árangri.
Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Bættu strax fyrir mistök þín ef þú særir einhvern með vanhugsuðum orðum. Þér gengur vel í vinnunni, og þú getur slakað á í kvöld.
Steingeit (22. des. - 19.janúar) Þér býðst tækifæri, sem þú ættir ekki að láta framhjá þér fara, hvað svo sem aðrir segja. Vertu heima með ást- vini í kvöld.
Vatnsberi (20.janúar-18. febrúar) Þú sækist eftir auknum frama, og þér miðar vel í rétta átt. En ástvinur þarfn- ast umhyggju, og þið ættuð að fara út í kvöld.
Fiskar (19. febrúar - 20. mars) 2* Fjölskyldumálin eru ofarlega á baugi í dag, og í kvöld gætir þú átt von á gestum. Það er samt óþarfi að eyða of miklu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á 'traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Verð nú:
1.495r
Tegund: 4878
Stærðir: 41-46
Litur: Svartur, brúnn.
Póstsendum samdægurs
Toppskórinn ’Toppskórinn
.n ! A InnAlfxlnm b I Itc-nli im'irl/'i Ai n- A i irti ircl r'o
■ Veltusundi við Ingólfstorg
■Sirni 552 1212.
Útsölumarkaður Austurstræti
Simi 552 2727.
VW Golf GL 2000Í ‘96, 5 dyra, óekinn, 5 g„ vin-
rauður. V. 1.385.
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, simi
567-1800 ^--------
Löggild bílasala
Verið velkomin
Við vinnum fyrir þig
Toyota Corolla Liftback 1.6 GLI ‘93, steingrár,
sjálfsk., ek. aðeins 39 þ. km., rafm. í rúðum,
spoiler o.fl. V. 1.230 þús.
GMC Safari XT V-6 (4.3) 4x4 ‘91, steingrár,
sjálfsk., ek. 54 þ. km, álfelgur o.fl. 8 manna.
Fallegur bíll. V. 1.950 þús.
Ford Explorer XLT V-6 (4.0 L) ‘91, gullsans.,
sjálfsk., ek. aðeins 35 þ. km., rafm. í rúðum,
álfelgur o.fl. Óvenju gott eintak. V. 1.980 þús.
Nissan Sunny SLX Sedan '92, sjálfsk., ek.
aðeins 55 þ. km., rafm. (rúðum, spoiler, álfelgur
o.fl. V. 920 þús.
n
Nissan Sunny SLX 4x4 station ‘93, grásans., 5
g., ek. 78 þ. km., rafm. í rúðum, hiti í sætum,
toppgrind, spoiler o.fl. V. 1.190 þús.
Suzuki Swift GLXi 4x4 Sedan ‘93, blár, 5 g., ek.
58 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 890 þús.
BMW 316i '95, ek. 8 þ. km, 4 dyra, ABS, 5 gíra,
grænsans. V. 1.980 þús, sem nýr.
Grand Cherokee Laredo 4.0L ‘95, rauður, sjálf-
sk., ek. aðeins 20 þ. mllur, einn m/öllu. V. 3,5
millj.
Renault 21 Nevada 4x4 station ‘86, ek. 149 þ.
km., fjarst. samlæsingar, rafd. rúður, vínrauður.
Toppeintak. V. 790 þús.
MMC Lancer 4x4 GLX station ‘87, blár, 5 g.,
ek. 132 þ. km. V. 490 þús.
Toyota Hilux D. Cab diesil m/húsi ‘96, vin-
rauöur, 5 g., ek. 14 þ. km. Sem nýr. V. 2,4 millj.
Dodge Grand Caravan V-6 LXT ‘93, 7 manna,
sjálfsk., ek. 98 þ. mílur, leðurinnr., rafm. í öllu o.fl.
Fallegur bíll. V. 1.980 þús.
Daihatsu Feroza EL II ‘93, rauður, 5 g., ek.
aðeins 25 þ. km. V. 1.180 þús.
Dodge Neon 2.0 L ‘95, 5 dyra, sjálfsk., ek. 30 þ.
km., ABS-bremsur, álfelgur o.fl. V. 1.600 þús.
Honda Civic CRX ‘88, svartur, 5 g., ek. 117 þ.
km., sóllúga o.tl. Gott eintak. V. 650 þús.
Suzuki Vitara V-6 5 dyra ‘96, 5 g., ek. 10 þ. km,
upphækkaður, lækkuð hlutföll, rafm. I rúðum
o.fl. Mikið breyttur jeppi í sérflokki. V. 2.590 þús.
Nissan Patrol GR diesel steingrár, 5 g., ek. 87
þ. km, uppt., 31” dekk, læstur aftan, rafm. í
rúðum o.fl. Fallegur jeppi. V. 2.980 þús. Sk. ód.
Ford Aerostar Eddie Bauer 4x4, 7 manna ‘92,
grænsans., sjálfsk., ek. 105 þ. mílur, leður-
klæddur m/öllu. V. 1.890 þús.
Toyota Corolla XLi Sedan ‘95, sjálfsk., ek. 27
þ. km., rafm. í öllu, dráttarkúla o.fl. V. 1.290 þús.
Subaru Justy J-10 4x4 5 dyra ‘88, hvítur, 5 g.,
ek. 80 þ. km. Gott eintak. V. 275 þús.
Toyota Corolla 1.6 GLi Liftb. ‘93, 5 dyra, sjálf-
sk., ek. 38 þ. km., spoiler, rafm. í öilu o.fl.
V. 1.230 þús.
Fjallajeppi: Toyota Hi-Lux Extra Cab SR5 V-6
‘90, m/húsi, geislasp., þjófav., álfelgur, 38”
dekk, læstur F/A o.fl. o.fl. V. 1.550 þús.
Nissan Sunny 100 NX 1600 ‘91, rauður, 5 g.,
ek. 93 þ. km, geislasp., álfelgur o.fl. V. 990 þús.
VW Polo 1400i ‘96, blár, 3 dyra, 5 g., ek. 7 þ.
km. V. 1.100 þús.
Opel Corsa Swing 5 dyra ‘94, rauður, sjálfsk.,
ek. 51 þ. km. V. 890 þús.
Fjöldi bíla á mjög góðu verði.
Bílaskipti oft möguleg.
PCI lím og fiíguefni
m 111 u uukLu
pgnaBFg»irniTTijju
Ut.11.1
Stórhöfða 17. við Gullinbrú,
súni 567 4844
- kjarni málsins!
%^/^(\\v\V Brúðhjón
Allur borðbúnaðui Glæsilcij ijjafavara Bníðarbjona listar
X/vi//VX\\vv\. VERSLUNIN
Lnugavegt 52, s. 562 4244.