Morgunblaðið - 30.07.1996, Síða 52
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAVPVANGSSTRÆTl 1
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Könnun gerð á afstöðu til flutnings opinberra stofnana
55,3% andvíg flutn-
ingi Landmælinga
MEIRIHLUTI þeirra sem afstöðu
tóku í nýrri skoðanakönnun Fé-
lagsvísindastofnunar Háskóla ís-
lands, eða 55,3%, er andvígur
flutningi Landmælinga Íslands frá
Reykjayík til Akraness. 38,1% eru
hlynnt flutningi en 6,6% svarenda
sögðu að afstaða sín væri ýmsu
háð.
Þátttakendur í könnuninni, sem
gerð var dagana 16. til 22. júlí,
voru einnig spurðir hvort þeir væru
almennt hlynntir eða andvígir því,
að opinberar stofnanir sem þjóna
öllum landsmönnum verði fluttar
frá höfuðborgarsvæðinu til lands-
byggðarinnar. 43,2% þeirra sem
afstöðu tóku sögðust vera því and-
víg, 37,2% sögðust hlynnt flutningi
en 19,6% svöruðu að það væri ýmsu
háð.
Þátttakendur í könnuninni voru
spurðir hvort þeir væru hlynntir eða
andvígir flutningi, ef staðsetning
viðkomandi stofnana á landsbyggð-
inni yrði til að auka kostnaðinn við
starfsemina, og sagðist þá mikilt
meirihluti andvígur flutningi, eða
82,5% þeirra sem tóku afstöðu, á
móti 10% sem voru því hlynnt.
Landsbyggðarbúar hlynntari
flutningi
Svarendur voru einnig spurðir
hvort þeir væru hlynntir eða and-
vígir flutningi opinberra stofnana
ef starfsfólk viðkomandi stofnunar
legðist mjög gegn flutningi. Þá
sögðust 64,7% þeirra sem afstöðu
tóku vera andvíg flutningi en 18,5%
sögðust vera því hlynnt.
Ibúar landsbyggðarinnar eru
áberandi hlynntari flutningi opin-
berra stofnana til landsbyggðarinn-
ar en svarendur í Reykjavík og á
Reykjanesi. 60,7% landsbyggðar-
fólks sögðust vera þvi hlynnt en
hlutfallið var 22,1% i Reykjavík og
27,1% á Reykjanesi. 62,8% þátttak-
enda á landsbyggðinni eru einnig
hlynnt flutningi Landmælinga til
Akraness, 26,8% svarenda á
ISLAND er einn af fleiri möguleik-
um, sem norska fyrirtækið Norsk
Hydro hefur í athugun vegna
áforma um byggingu nýs átvers,
en staður og byggingartími hafa
enn ekki verið ákveðnir.
Að sögn Odds Guldbergs, for-
stöðumanns upplýsingadeildar fyr-
irtækisins, hefur framkvæmda-
stjórnin trú á að þótt álverð sé lágt
um þessar mundir gefist svigrúm
til aukinnar framleiðslu á næstu
árum. Norsk Hydro er fimmti
stærsti álframleiðandi í heimi nú.
Innan Norsk Hydro hefur undan-
farið verið hugað að stað til að reisa
álverksmiðju, án þess að neinar
ákvarðanir hafi verið teknar um
hvort, hvar og hvenær. Guldberg
segir það mat manna að þótt álverð
sé lágt nú muni gefast svigrúm til
nýrra framkvæmda á næstu árum.
í augsýn sé 2-3 prósenta markaðs-
aukning, auk þess sem svigrúm
gefist til framleiðsluaukningar,
þegar óhjákvæmilega komi að því
að gömlum og úrsérgengnum verk-
Reykjanesi og 23,6% svarenda í
Reykjavík eru sömu skoðunar.
63% framsóknarmanna með en
51% sjálfstæðismanna á móti
Umtalsverður munur er á afstöðu
stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks
og stuðningsmanna Framsóknar-
flokks til þessara mála. 64,9%
stuðningsmanna Framsóknarflokks
eru hlynnt því að opinberar stofnan-
ir verði fluttar frá höfuðborgar-
svæði til landsbyggðar, 28,3%
stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks
eru sömu skoðunar, 33,8% stuðn-
ingsmanna Alþýðuflokks, 43,2%
smiðjum í Austur-Evrópu verði lok-
að.
Ýmsir staðir í athugun
Að sögn Odds Guldbergs hefur
Norsk Hydro sótt um verksmiðjulóð
við ammóníaksverksmiðju sína í
Trinidad og það hefur leitt til
vangaveltna um að fyrirtækið hygð-
ist byggja álverksmiðju þar. Guld-
berg segir þó fjarri lagi að slíkt
hafi verið ákveðið, því aðeins hafi
verið sótt um lóðina til að fyrirtæk-
ið eigi kost á henni, ef á þurfi að
halda, en ekki af þvi að ákveðið sé
að nota hana undir álverksmiðju.
stuðningsmanna Alþýðubandalags,
36% stuðningsmanna Kvennalista
og 33,3% stuðningsmanna Þjóð-
vaka.
Talsvert fleiri sjálfstæðismenn
eru hlynntir flutningi Landmælinga
til Akraness en þeir sem sögðust
vera hlynntir flutningi opinberra
stofnana almennt til landsbyggðar
eða 44,3% en 51,4% eru því andvíg.
62,9% framsóknarmanna eru
hlynnt flutningi Landmælinga en
30,3% eru því mótfaliin.
Úrtakið í könnuninni var 1.200
manns á aldrinum 18-75 ára. Nettó-
svörun var 71,7%.
Ýmsir staðir eru í athugun, að
sögn Guldbergs, þar á meðal Island
og Venezúela. Lágt orkuverð sé
vissulega mikilvægur liður í slíkri
athugun, en fjöldi annarra þátta
komi einnig til greina, án þess að
hann vildi rekja hvað mælti með
og á móti íslandi sem stað fyrir
nýja álverksmiðju fyrirtækisins.
Guldberg undirstrikaði að Norsk
Hydro væri alþjóðafyrirtæki og
hugsaði því um heildaraðstæður á
alþjóðavettvangi, én þær hugleið-
ingar væru ekki komnar langt.
Norsk Hydro er talinn fimmti
stærsti álframleiðandi í heimi. Árs-
Sótt-
hreinsað á
veiðidegi
STANGAVEIÐIFÉLAG Reykja-
víkur gekkst fyrir fyrri veiði-
degi barnanna við Elliðaárnar í
gær. Börnunum eru kennd
handtök við veiðarnar og þau
frædd um Elliðaárnar og einnig
fá þau að renna fyrir fisk. En
þau fengu einnig nasasjón af
vandamálum sem veiðimenn
þurfa að kljást við, því áður en
þau fengu að fara í ána var út-
búnaður þeirra, þ.e. veiðarfæri,
agn og vöðlur, sótthreinsaður
upp úr sérstakri upplausn til
þess að draga úr smithættu í
ánni. Þetta hefur verið gert í
samræmi við ákvörðun Veiði-
málastofnunar frá því í ágúst í
fyrra eftir að kýlapest kom þar
upp í fiski. Kýlapest hefur ekki
greinst í fiski úr ánni í sumar.
framleiðsla fyrirtækisins er 700-
800.000 tonn, en heimsframleiðslan
á áli á ári er um 15 milljónir tonna.
Langstærstu álframleiðendurnir
eru í Bandaríkjunum og Kanada,
en þijú stærstu fyrirtækin þar á
eftir eru evrópsk og eitt þeirra er
Norsk Hydro.
Hydro Aluminium á hlut í álveri
í Noregi á móti Alusuisse og hafa
forráðamenn fyrirtækisins komið
hingað til lands oft á undanförnum
árum til að kynna sér aðstæður.
Garðar Ingvarsson, forstöðumaður
Markaðsskrifstofu iðnaðarráðu-
neytisins og Landsvirkjunar, sagði
í samtali við Morgunblaðið að
Landsvirkjun hefði um árabil haldið
uppi mjög góðu sambandi við Hydro
Aluminium, dótturfyrirtæki Norsk
Hydro. Fyrirtækið væri að skoða
ýmsa möguleika í heiminum og
meðal annars möguleikana hér á
landi. Hann vildi hins vegar ekkert
spá fyrir um hvort eða hvenær ein-
hver alvara færðist í þessar þreif-
ingar.
Síldarvinnslan hf.
251 millj.
í hagnað
HAGNAÐUR af reglulegri
starfsemi Síldarvinnslunnar hf.
í Neskaupstað fyrstu sex mán-
uði ársins nam 251 milljón kr.
en á sama tímabili í fyrra var
hagnaðurinn 77 millj. kr. Að
teknu tilliti til söluhagnaðar af
hlutabréfum og eignarskatta
nam heildarhagnaður Síldar-
vinnslunnar á fyrri hluta ársins
375 millj. kr.
Rekstrartekjur félagsins á
fyrri helmingi ársins námu
1.983 millj. kr. sem er 33%
aukning frá sama tímabili í
fyrra. Veltuaukning milli ára
er um 50%. í fréttatilkynningu
frá félaginu segir að megin-
skýringar á betri rekstraraf-
komu liggi í því að afurðaverð
á loðnuafurðum var óvenjuhátt
á fyrri hluta ársins og afla-
brögð góð. Ennfremur var
gengisþróun hagstæð á tíma-
bilinu. Gert er ráð fyrir að
reksturinn verði í jafnvægi á
síðari hluta ársins.
Sumarslátr-
unhafin
Hvammstanga. Morgunblaðið.
SLÁTRUN er hafin í sláturhúsi Fer-
skra afurða hf. á Hvammstanga, en
í gær hófst slátrun dilka, sem slátur-
húsið annast fyrir sauðfjárbændur í
Vestur-Húnavatnssýslu og Hagkaup
í Reykjavík. Verður kjötið komið til
sölu í verslunum Hagkaups á
fimmtudagsmorgun.
Bændur og Hagkaup hafa gert
með sér samning um sölu á ófrosnu
dilkakjöti vikulega frá þessum tíma
fram í desember. Greiðir Hagkaup
bændum yfirverð fyrir kjötið utan
hefðbundinnar sláturtíðar. Einnig
losna bændur á þeim tíma undan
verðskerðingargjaldi. Þessar verð-
bætur koma á móti smærri dilkum
í þessari sumarslátrun.
Bændur sem leggja til dilka í
þessa fyrstu slátrun hafa vigtað
lömbin á fæti og sett sér lágmark
með 27-30 kg lífþunga. Slík lömb
eiga að vigta 11-13 kg í fallþunga.
Margir bændur fylgjast af áhuga
með þessum samningi og útfærslu
hans og er ljóst að margir telja til-
raunina varða miklu um framhaldið.
-----------♦ ♦ ♦----
VR býður í Fjöl-
skyldugarðinn
STJÓRN Verslunarmannafélags
Reykjavíkur hefur tekið Fjölskyldu-
og húsdýragarðinn í Laugardal í
Reykjavík á leigu á frídegi verslun-
armanna næstkomandi mánudag.
Pétur Maack, varaformaður VR,
segir stjórn VR hafa ákveðið að taka
upp gamla venju og halda upp á
frídaginn í Reykjavík, en það hafi
ekki verið gert svo áratugum skipti.
Fyrst var haldið upp á frídag versl-
unarmanna í Reykjavík árið 1894
og tóku þá flestir verslunarmenn
bæjarins þátt í hátíðahöldunum. Allt
fram til ársins 1920 var einhver
dagskrá á þessum degi, en síðan
lögðust slík hátíðahöld af þó að dag-
urinn héldi áfram sínum sessi.
Að sögn Péturs Maack er fyrst
og fremst verið að höfða til barna-
fólks sem ekki fer í ferðalag um
verslunarmannahelgina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Álframleiðandinn Norsk Hydro hugleiðir byggingu nýrrar álverksmiðju
Kaupmannahöfn. Morgnnblaðið. a*
Island er með
í myndinni